Eintak - 07.07.1994, Side 34
id Œ 3
Nú fer fyrst að verða gaman...
Fjórðungsúnslitin
Nú erannarri umferð heimsmeistarakeppninnar lokiðog eftirstanda þau átta lið sem staðið hafa af sér stórviðrin
og skothriðir andstæðinganna. Afátta bestu liðum heims um þessar mundir eru sjö frá Evrópu og aðeins eitt
frá Suður-Ameríku. Bjöm Ingi Hrafnsson rýnir hér íþessa stórieiki helgarinnar.
Rúmenski snillingurinn Gheorghe Hagi skorar hér glæsilegt mark gegn Argentínumönnum á sunnudagskvöld. Þetta mark tryggði Rúmenum áframhaldandi þáttöku í
keppninni og mæta þeir Svíum í fjórðungsúrslitum.
Boston, 9. júlí kl. 16:00.
Ítalía - Spánn
Þessi leikur gæti orðið mjög
skemmtilegur. Spánverjar eru með
mjög skemmtilegt og sókndjarft lið
en Italirnir hafa skorað mörkin
þegar mest hefur á reynt.
Spænska liðið hefur tekið gríðar-
legum breytingum frá því sem áður
hefur þekkst hjá iiðinu. Clemente,
þjálfari liðsins, tók út gamlar stór-
stjörnur eins og Rafael Martin
Vasquez og Emilio Butragueno
og sagði að liðið hefði aldrei náð
neinum árangri með þá í aðalhlut-
verki. I stað þessara gamalreyndu
kappa og fleiri slíkra valdi Cle-
mente unga og óreynda leikmenn,
marga frá stórliðinu Barcelona.
Þótt landsleikir spænsku leik-
mannanna séu ekki margir hafa
þeir samt mikla leikreynslu og
frammistaða þeirra í leikjunum til
þessa hefur haft yfir sér lítinn byrj-
endabrag.
Italirnir eru öllu meira spurn-
ingamerki. Liðið hefur alla burði til
að fara alla leið en stundum er eins
og karakterinn vanti. Ekki vantar
stórstjörnur, Signorj, Maldini,
Donadoni, Massaro og að
ógleymdum Roberto Baggio eru
nöfn sem flestir þekkja en einhvern
veginn hefur það viljað loða við
ítali að spila betur með félagsliðinu
heldur en með landsliðinu.
Liðið á enn eftir að sýna stjörnu-
leik og í sannleika sagt hafa leikir
þess hingað til verið langt írá því
lýsingarorði. Liðið hefur þó sýnt
viss batamerki og leikur liðsins
gegn Nígeríu sýndi að það brotnar
ekki þegar á móti blæs heldur berst
á móti. Þar sýndi einnig besti knatt-
spyrnumaður heims 1993, Roberto
Baggio, fyrst hvað í honum býr
með tveimur mikilvægum mörk-
um og hver veit hvað hann gerir í
næsta leik? Það er nefnilega sagt að
ítalska Iiðið leiki nákvæmlega eins
og Baggio gerir hverju sinni.
Dallas, 9. júlí kl. 19:30
Holland - Brasilía
Ef hinn leikurinn verður
skemmtilegur þá er þetta rjóminn á
toppinn. Þetta verður líklega sann-
kölluð veisla fyrir fótboltafíkla, létt-
leikandi og liprir Brasilíumenn
gegn þungum en duglegum Hol-
lendingum.
Bæði lið komust í gegnum sextán
liða úrslitin án teljandi erfíðleika.
Brasilíumenn áttu í erfiðleikum
með að skora gegn Bandaríkja-
mönnum en einhvern veginn var
sigurinn aldrei í hættu. Hollend-
ingar áttu heldur engan stjörnuleik
gegn Irum en þeir skoruðu þó tvö
mörk og komust aldrei í hann
krappann.
Hollendingum hefur töluvert
verið legið á hálsi fyrir brothættan
og áhættusaman varnarleik óg það
gæti verið mikilvægt gegn sóknar-
liði Brassanna. Menn eins og Ron-
ald Koeman og Wim Kieft eru
ekki til stórræðanna lengur í vörn-
inni og oftar en ekki beita þeir
brögðum til að stöðva eldfljóta
framherja andstæðinganna ef þeir
eru komnir í bandræði. Frank
Rijkaard hefur hins vegar engu
gleymt og ljóst er að hann styrkir
liðið mikið. Helsti styrkur Hollend-
inganna liggur í lipru miðju- og
kantspili og afgreiðslum Dennisar
Bergkamp í mark andstæðing-
anna.
Brasilíumenn eru með eitt sterk-
asta lið heims um þessar mundir.
Varnarleikur liðsins hefur tekið al-
gjörum stakkaskiptum og er nú ör-
uggur og sterkur án þess þó að höf-
uðeinkenni liðsins, stórhættulegur
sóknarbolti, hafi þurft að líða fyrir.
Menn eins og Romario, Rai og
Bebeto spila betur en flestir aðrir
og lið sem hefur efni á að hafa
menn eins og Branco og Ronaldo
á bekknum hlýtur að fara langt.
NewYork, 10. júlíkl. 16:00
Þvskaland - Búloaría
Enn heldur veislan áfram. Þjóð-
verjar spila aldrei betur en í mikil-
vægum leikjum og frammistaða
þeirra í leiknum við Belga á laugar-
daginn hlýtur að vera Búlgörum
nokkurt áhyggjuefni. Þeir þurfa þó
varla að kvarta sjálfir, þeir hafa
unnið þrjá síðustu leiki sína við
Grikki, Argentínumenn og nú síð-
ast Mexíkómenn, og eru komnir í
fjórðungsúrslit sem er meira en lið-
ið hefur nokkru sinni gert.
Helsta stjarna Búlgara er án efa
framherjinn Hristo Stoichkov.
Drengurinn sá er baneitraður í ná-
munda við mark andstæðinganna
og með fjórum mörkum í jafn-
mörgum leikjum liðsins hefur
hann endanlega sannað sig sem
einn af hættulegustu sóknarmönn-
um heims. Orðrómur um að lið
hans, Barcelona, vilji hann burt eru
vægast sagt undarlegar í ljósi
frammistöðu hans í HM.
En búlgarska liðið er ekki bara
Stoichkov. Þar eru einnig leikmenn
eins og Konstandinov og mark-
vörðurinn frábæri Borislav Mik-
hailikov. Liðið hefur leikið skyn-
samlega og passað sig á því að reyna
ekki eitthvað sem það ræður ekki
við. Samt er hætta á því að Þjóð-
verjar reynist þeim of stór biti að
kyngja og draumurinn verði úti um
kvöldmatarleytið á sunnudag. En
það getur nú samt allt gerst í fót-
bolta...
Þjóðverjar eru auðvitað sér kap-
ítuli út af fyrir sig. Lið hefur ekki
þótt leika vel í keppninni að Belga-
leiknum undanskildum. Aga-
vandamál hafa verið tíð og alls kyns
illdeilur hafa sett svip sinn á liðið.
Konur leikmanna hafa kvartað yfir
banni á allri bólfimi og ein helsta
stjarna liðsins, Stefan Effenberg
var sendur heim fyrir að sýna
löngutöngina sína fúll frjálslega.
Samt koma þeir alltaf sterkir.
Klinsmann er enn einu sinni í
feiknaformi og „gamlinginn“ Rudi
Völler sýndi með tveimur mörkum
sínum gegn Belgum að hann hefur
engu gleymt. Helst hafa meiðsli
Lothars Mattheusar varpað
skugga á möguleika liðsins en ekki
er útséð um frekari þátttöku hans í
keppninni.
San Fransisco, 10. júlí kl. 19:30
Rúmenía - Svíbióð
Það er eitt einkenni þessarar
keppni að viðhorf manna til ein-
stakra liða hefur breyst. Þannig
hafa Hollendingar skyndilega orðið
leiðinlegir og Svíar skemmtilegir(I).
Menn hafa jafnvel gengið svo langt
að fara að halda með Rúmeníu sem
hefði verið eins og að halda með
Víði í Garði fyrir keppnina.
Svíar og Rúmenar eru nefnilega
lið sem hafa komið mjög svo
skemmtilega á óvart í keppninni
hingað til. Bæði hafa leikið aðlað-
andi knattspyrnu, gert mörg glæsi-
leg mörk og falleg og bæði hafa á að
skipa mönnum sem hægt er að
halda sérstaklega upp á, Svíar hafa
Martin Dahlin og Rúmenar Ghe-
orghe Hagi.
Svíum var ekki spáð sérstakri vel-
gengni fyrir lokakeppnina. Þeir
voru þó taldir í hópi hinna sterkari
en ekki líklegir til að ógna veldi
gömlu kandídatanna um krúnuna
frægu. Þeir hafa hins vegar gert
mikið af því að skora mörk, Dahlin
sérstaklega, og jafntefli gegn Brasil-
íumönnum sýnir svo ekki verður
um villst að sænska liðið er sterkt.
Samt er erfitt að halda með
Svíum. Það er bara erfitt. Þess
vegna tippa ég á konunga Khar-
patafjallanna, Rúmenana. Þeir hafa
nú líka aldeilis spilað skemmtilega
knattspyrnu. Hagi hefur sýnt ótrú-
lega leiki og sendingarnar hjá hon-
um eru eins og þegar Ásgeir Sig-
urvinsson var upp á sitt besta. Ekki
hefur síðan spillt fyrir að nánast allt
hefur gengið upp sem leikmenn
liðsins hafa verið að taka sér fyrir
hendur; Hagi skoraði frá kantin-
um, Dimitrescu með glæsilegri
aukaspyrnu og Petrescu þegar all-
ir áttu von á fyrirgjöf.
Rúmenar eru að mínu mati betra
liðið í þessum leik og því tippa ég á
sigur þeirra. Þó skal það viðurkennt
að möguleikar sænskra eru einnig
allnokkrir og því verður spennandi
og skemmtilegt að sjá. 0
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ1994
Gamla brýnið Rudi Völler skorar hér annað mark sitt gegn Belgum. Þjóðverjar spiluðu skínandi
knattspyrnu gegn Belgum á laugardag og með sama ieik ínæstu leikjum fara þeir líklega alla leið.
\port