Morgunblaðið - 07.01.2005, Side 1
jóla, og komu greinilega við á álfabrennunni
á Ásvöllum í Hafnarfirði þar sem fjölmenni
ÁLFAR og tröll gerðu víðreist á landinu í
gærkvöldi, eins og jafnan á þrettánda degi
brenndi út jólin. Gott veður var til brennu-
halds í Hafnarfirði, en nokkuð kalt.
Morgunblaðið/Golli
Jólin kvödd
STOFNAÐ 1913 5. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Vínartónlist
á villigötum?
Umsögn Jónasar Sen um
Vínartónleika Sinfóníunnar | 45
Úr öskrinu í
ómþýðuna
Heiðar Örn Kristjánsson í Botnleðju
vendir kvæði sínu í́ kross | 47
Íþróttir í dag
Svíagrýlan lifir Garcia fær gálga-
frest Tímamótasamningur við
Þóreyju Eddu Tólf tapleikir í röð
MAHMUD Abbas, formaður Frelsissamtaka
Palestínumanna (PLO), kvaðst í gær vilja
hefja friðarviðræður við stjórn Ariels Shar-
ons, forsætisráðherra Ísraels, eftir forseta-
kosningar Palestínumanna á sunnudaginn
kemur. Talið er nánast öruggt að Abbas sigri
í kosningunum.
Abbas gagnrýndi stjórn Sharons hart á
fjögurra daga kosningaferðalagi um Gaza-
svæðið og kallaði hana meðal annars „síon-
íska óvininn“ eftir að sjö Palestínumenn féllu
í árás ísraelskra hermanna á þriðjudaginn
var.
Það kvað hins vegar við annan tón á blaða-
mannafundi Abbas í Nablus á Vesturbakk-
anum í gær. Hann sagði að færi hann með sig-
ur af hólmi gæfist kjörið tækifæri til að
tryggja frið og stofna Palestínuríki eins og
kveðið er á um í svokölluðum Vegvísi til frið-
ar. „Við hefjum samningaviðræður eftir kosn-
ingarnar. Ariel Sharon er kjörinn leiðtogi og
við semjum við hann. Við leggjum Vegvísinn
til friðar á borðið og segjum að við séum tilbú-
in að koma öllum ákvæðum hans í fram-
kvæmd.“
Boðar við-
ræður við
Sharon
Reuters
Mahmud Abbas, formaður PLO, veifar til
stuðningsmanna sinna á kosningafundinum
í Nablus á Vesturbakkanum í gær.
Nablus. AP.
VEXTIR á íbúðabréfum gætu lækk-
að í 4% við næsta útboð Íbúðalána-
sjóðs á íbúðabréfum. Í Morgunkorni
Íslandsbanka í gær kom fram að
haldi þróun ávöxtunarkröfu íbúða-
bréfa áfram líkt og gerst hefur það
sem af er ári muni vextir á íbúða-
lánum til almennings fara niður fyr-
ir 4% fyrir mitt þetta ár.
Krafan ákvörðuð á markaði
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Jóhann G. Jóhannsson, sviðs-
stjóri áhættustýringarsviðs Íbúða-
lánasjóðs, að ávöxtunarkrafa bréfa
sjóðsins ráðist af markaðskjörum
hverju sinni og að sjóðurinn geti
ekki haft áhrif á hana. „Útlánavextir
Íbúðalánasjóðs ákvarðast af fjár-
mögnunarkostnaði á markaði með
0,6% álagi. Þannig verður vaxtastig-
ið 4% ef ávöxtunarkrafa í útboði er
3,4%,“ sagði Jóhann. Hann sagði að
ekki hefði verið endanlega ákveðið
hvenær næsta útboð yrði haldið.
Samkvæmt hálffimmfréttum KB
banka í fyrradag var meðalávöxt-
unarkrafa á markaði þá 3,45% og
samkvæmt upplýsingum frá grein-
ingardeild bankans var hún óbreytt
við lokun Kauphallar Íslands í gær.
Að sögn Snorra Jakobssonar, hag-
fræðings hjá greiningardeild KB
banka, er það vel mögulegt að
ávöxtunarkrafan eigi eftir að lækka
enn meira á næstu dögum og gæti
hún þá farið niður í 3,40%. Fari svo
verði vextir á íbúðabréfum til al-
mennings að loknu næsta útboði,
sem að hans sögn fer væntanlega
fram um miðjan janúar, 4%. Hann
telur sennilegt að vextir muni fara
niður fyrir 4% einhvern tímann í
mars eða apríl.
Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir
hjá greiningardeild Landsbankans
segir ávöxtunarkröfu hafa farið
lækkandi í byrjun þessa árs vegna
væntinga um neikvæða útgáfu
íbúðabréfa á árinu hjá Íbúðalána-
sjóði.
Kaupir meira en hann gefur út
Neikvæð útgáfa þýðir að sjóður-
inn kaupir meira af eigin skulda-
bréfum en hann gefur út. Guð-
munda telur líklegt að vaxtakjör á
íbúðalánum muni nálgast 4% og
jafnvel fara niður fyrir 4% í næsta
útboði Íbúðalánasjóðs.
Ávöxtunarkrafa íbúðabréfa
hefur lækkað verulega
Vextir íbúðalána munu væntanlega fara niður fyrir 4% á næstu mánuðum
SAUTJÁN manns var bjargað á
Andaman- og Nicobar-eyjum í Ind-
landshafi í gær af svæði sem enn er
að mestu undir vatni eftir flóðbylgj-
una miklu annan dag jóla. Meðal
þeirra var fjórtán ára piltur sem
hafðist við á tré í tíu daga án þess
að fá vott né þurrt.
„Fyrstu dagana grét ég en svo
hættu tárin að koma. Ég hafði
ekkert til að borða, ekkert vatn til
að drekka og var alveg hjálpar-
laus,“ sagði pilturinn, sem heitir
Murlitharan. Hann kvaðst ekki
kunna að synda.
Að minnsta kosti 10.000 manns
fórust í náttúruhamförunum á Ind-
landi, þar af um 1.200 á Andaman-
og Nicobar-eyjum. Um 5.500 er enn
saknað á eyjaklasanum.
Beið á tré
í tíu daga
Port Blair. AFP.
BRESKA stjórnin hyggst beita sér fyrir
„nýrri Marshall-aðstoð“ í baráttunni gegn fá-
tækt í heiminum. Gordon Brown, fjármálaráð-
herra Bretlands, skýrði frá þessu í ræðu í gær
og sagði að aðstoðin ætti að felast í því að allar
skuldir fátækustu þjóða heims yrðu afskrif-
aðar og fjárhagsaðstoðin við þróunarlönd yrði
aukin um helming.
Brown sagði að Bretar myndu beita sér fyr-
ir aðstoðinni á vettvangi G-8-hópsins, átta
helstu iðnríkja heims, þar sem þeir eru nú í
forsæti.
Fjármálaráðherrann áréttaði að breska
stjórnin væri hlynnt því að lánardrottnar
veittu greiðslufrest eða gæfu eftir eitthvað af
skuldum þeirra ríkja sem urðu verst úti í nátt-
úruhamförunum við Indlandshaf annan í jól-
um. Hann lagði hins vegar áherslu á að auðugu
ríkin þyrftu einnig að takast á við orsakir fá-
tæktar í öllum þróunarlöndunum.
Brown lagði til áætlun, sem hann líkti við
Marshall-aðstoðina, fjárhagsaðstoð Banda-
ríkjanna við ríki Evrópu eftir heimsstyrjöldina
síðari.
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands,
ræddi einnig áætlunina á blaðamannafundi í
gær og sagði að náttúruhamfarirnar við Ind-
landshaf væru álíka mannskæðar og „hörm-
ungarnar sem ganga yfir Afríku í hverri viku“.
Auðugu ríkin gætu afstýrt hörmungum sem
ættu rætur að rekja til fátæktar en ekki nátt-
úruhamförum.
Brown tók í sama streng og sagði að á hverj-
um degi dæju 30.000 börn úr hungri í Afríku.
Leggja til „Marshall-
áætlun“ gegn fátækt
Bretar beita sér fyrir stóraukinni aðstoð við fátæk þróunarlönd
London. AFP, AP.
Vill að aðstoðin/14