Morgunblaðið - 07.01.2005, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
VERKAMENN tengja nýjar raf-
magnslínur í bænum Nagapatt-
inam, um 350 km suður af Madras á
Indlandi í gær. Meira en 15.000 Ind-
verjar biðu bana þegar flóðbylgjan
öfluga reið þar á land á öðrum degi
jóla. Um 140.000 fiskimenn hafast
nú við í neyðarskýlum en hörmung-
arnar jöfnuðu hús þeirra við jörðu.
Reuters
Leggja nýjar rafmagnslínur
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær
ríki heims til að láta strax af hendi í
reiðufé einn milljarð dollara, rúm-
lega 62 milljarða ísl. kr., svo unnt
væri að bregðast af krafti við afleið-
ingum hamfaranna í Asíu. Sagði
hann, að um fimm milljónir manna
ættu um sárt að binda.
Kom þetta fram á dagsráðstefnu,
sem efnt var til í Jakarta, höfuðborg
Indónesíu, en hana sóttu leiðtogar
eða aðrir frammámenn 26 ríkja og
alþjóðastofnana. Ríki heims hafa
raunar þegar heitið að leggja fram
meira en 250 milljarða kr. en Annan
lagði áherslu á, að það væri ekki að-
eins mikilvægt, að við fyrirheitin
yrði staðið, heldur ekki síður, að þau
yrðu í reiðufé. Það væri forsenda
þess, að unnt væri að halda uppi
margvíslegu hjálparstarfi á ham-
farasvæðunum.
Að minnsta kosti 146.000 manns
fórust í 11 löndum við Indlandshaf í
hamförunum á öðrum degi jóla og
óttast er, að sú tala geti jafnvel tvö-
faldast af völdum sjúkdóma og
hungurs verði ekki brugðist strax
við. Sagði Annan, að Sameinuðu
þjóðirnar hefðu aldrei í 60 ára sögu
sinni staðið frammi fyrir umfangs-
meira hjálparstarfi.
Hjálparstarf Bandaríkjanna
undir forystu SÞ
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tilkynnti á ráðstefn-
unni, að hópur nokkurra ríkja, sem
hefðu sérstaklega ætlað að standa
saman að hjálparstarfi, Bandaríkj-
anna, Japans, Ástralíu og Indlands,
hefði verið leystur upp. Myndu þessi
ríki framvegis vinna að hjálparstarf-
inu undir forystu SÞ.
Áður hafði stofnun fjögurra ríkja
hópsins verið harðlega gagnrýnd og
þótti sumum sem hún sýndi enn einu
sinni óvild Bandaríkjanna í garð
Sameinuðu þjóðanna.
Framlög ríkja, stofnana og ein-
staklinga vegna hamfaranna hafa
verið mikil og er það að sumu leyti
rakið til þess, að þær voru óvenju al-
þjóðlegar ef svo má segja. Í þeim
fórst fólk eða er saknað frá 52 lönd-
um.
Evrópusambandið ákvað í gær að
leggja næstum 30 milljarða kr. af
mörkum og eru þá heildarframlög
þess og einstakra ríka innan þess
komin í 167 milljarða kr. Þróunar-
banki Asíu lagði einnig fram um 30
milljarða kr. í gær og stöðugt berast
fréttir um ný eða aukin framlög ann-
ars staðar frá.
Loforðin hafa ekki
alltaf verið efnd
Áhyggjuefni er hins vegar það,
eins og sýndi sig eftir jarðskjálftann
í Bam í Íran og hefur sýnt sig í Afg-
anistan, að oft er ekki staðið við
nema hluta loforðanna. Hefur Ann-
an vafalaust haft það í huga er hann
bað um reiðufé og það án tafar.
Á ráðstefnunni í Jakarta var einn-
ig samþykkt að koma upp kerfi til að
vara við flóðbylgjum á Indlandshafi
en slíkur búnaður hefur verið á
Kyrrahafi í áratugi. Hafa Banda-
ríkjamenn, Japanir og Rússar meðal
annars lofað aðgangi að sínum kerf-
um.
Ráðstefnan fagnaði sérstaklega
því frumkvæði sumra vestrænna
ríkja að frysta og hugsanlega að
gefa eftir eitthvað af skuldum þeirra
ríkja, sem verst urðu úti í hamför-
unum.
Vill að aðstoðin verði í
reiðufé og berist strax
Samþykkt á leiðtogafundi í Jakarta í Indónesíu að koma
upp kerfi til að vara við flóðbylgjum á Indlandshafi
Jakarta. AFP.
Reuters
Grafsteinar úr kirkjugarði í þorpinu Pandiruppu á Sri Lanka hafa færst úr
stað og liggja nú í sjávarmálinu. Vitað er að um 30.500 fórust á Sri Lanka í
náttúruhamförunum 26. desember sl.
FÓLK sem tilheyrir Jarawa-ættbálknum á Suð-
ur-Andaman-eyjum á Indlandshafi kom út úr
skógarþykkninu í gær til að skýra umheiminum
frá því að allir sem ættbálknum tilheyra hefðu
sloppið ómeiddir úr náttúruhamförunum á Ind-
landshafi.
Á Andaman og Nicobar-eyjum búa fimm ætt-
bálkar sem sagðir eru á steinaldarstigi og hafa
búið þar í minnst 60.000 ár. Ekki er nákvæm-
lega vitað um hversu marga ræðir en talið er að
fjöldinn sé á bilinu 400 til 1.000 manns. Mann-
fræðingar hafa áhyggjur af framtíð þessara ætt-
bálka þar sem tilverugrundvöllur þeirra hafi all-
ur raskast stórlega við hamfarirnar.
„Við erum öll örugg. Við erum í skóginum í
Balughat,“ sagði Ashu, einn úr ættbálknum er
hann kom út úr skóginum ásamt sex fylgdar-
mönnum sínum og flutti umheiminum þessi tíð-
indi með aðstoð túlks. Allir báru mennirnir boga
og örvar. Ashu bannaði fréttamönnum sem með
voru í för að taka myndir. „Við veikjumst ef
teknar eru af okkur myndir,“ sagði hann.
Engar fregnir höfðu borist af Jarawa-fólkinu
frá 26. desember. Í ættbálknum eru um 250
manns. Eftir því sem næst verður komist urðu
ættbálkarnir fimm ekki fyrir manntjóni í ham-
förunum. Fólkið mun hafa tekið eftir breyt-
ingum á hegðun dýra og því afráðið að hraða sér
frá ströndinni áður en flóðbylgjan reið yfir.
Ashu vildi ekki ræða þetta í gær. „Heimur minn
er frumskógurinn. Ykkar heimur er fyrir utan.
Okkur líkar ekki við fólk sem kemur að utan,“
bætti hann við.
Þá sögðu sérfræðingar í gær að allir meðlimir
Onge-ættbálksins, sem sagt var frá á forsíðu
Morgunblaðsins í gær, hefðu sloppið óskadd-
aðir. Allir 98 meðlimir ættbálksins hefðu verið
skoðaðir og þeir væru allir við hestaheilsu.
„Við veikjumst ef teknar eru
af okkur myndir“
Steinaldarfólkið á Ind-
landshafi við góða heilsu
YFIRMAÐUR Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna, UNICEF, fagn-
aði í gær þeirri ákvörðun stjórn-
valda í Indónesíu að banna
ættleiðingu barna sem misstu for-
eldra sína í náttúruhamförunum
við Indlandshaf. Stjórnvöld á Sri
Lanka gerðu hið sama í gær og
gildir bannið um óákveðinn tíma.
Carol Bellamy, framkvæmda-
stjóri UNICEF, lýsti yfir því á
fundi með blaðamönnum í Jakarta
að ákvörðun stjórnvalda frá því
fyrr í vikunni væri til fyrirmyndar.
Ákvörðun þessi var tekin til að
vernda börnin en margir óttast
mjög að munaðarlaus börn á ham-
farasvæðunum verði seld, ættleidd
með óleyfilegum hætti eða misnot-
uð á einn veg eða annan.
Bellamy sagði UNICEF hafa
fengið af því fregnir að glæpa-
gengi sem seldu börn til ættleið-
ingar hefðu starfað í Aceh-héraði í
Indónesíu áður en hamfarirnar
riðu yfir. Fregnir hermdu og að
þessir hópar reyndu nú að nýta
sér ástandið og ræna munaðar-
lausum börnum.
„Þetta líkist þjófunum sem fara
á stjá þegar rafmagnið fer,“ sagði
Bellamy.
Bann stjórnvalda í Indónesíu
kveður m.a. á um að börn yngri en
16 ára megi ekki fara úr Aceh-
héraði nema í fylgd foreldra sinna.
Fólki verður einungis leyft að
styrkja börn fjárhagslega en ætt-
leiðingar verða bannaðar. Börnin
verða á heimilum sem ríkið rekur.
Bellamy sagði liggja fyrir að
fólk í öðrum löndum vildi gjarnan
ættleiða börn sem misst hefðu for-
eldra sína. Hún kvaðst þeirrar
hyggju að fyrst ætti að láta reyna
á hvort ættmenni munaðarlausu
barnanna gætu ekki tekið þau að
sér. Hefð væri fyrir slíku í þessum
heimshluta og þess bæri að freista
að nýta hana.
Tryggja þarf stöðugt
umhverfi og kunnuglegt
Bellamy var í Aceh á miðviku-
dag og sagði áríðandi nú að
tryggja börnunum stöðugt um-
hverfi og kunnuglegt. Í því efni
væri sérlega mikilvægt að hefja
skólastarf sem fyrst fyrir mun-
aðarlaus börn.
„Börnin nefndu að þau langaði
aftur í skólann. Ein leið til þess að
bregðast við áfallinu sem börnin
hafa orðið fyrir er að hjálpa þeim
að komast sem fyrst í skólann
jafnvel þótt skólinn hafi eyðilagst.
Það má nota tjöld. Við erum að
tala um uppfræðslu ekki nauðsyn-
lega skólabyggingar,“ sagði hún.
Áhugasamtök á Indlandi hafa
hvatt stjórnvöld þar til að banna
ættleiðingar í eitt ár til að tryggja
að munaðarlaus börn komist ekki í
hendur illvirkja og glæpamanna.
Vilja þau að bann þetta taki til
strandhéraða. Þess hefur verið
krafist að stjórnvöld setji slíkt
bann án tafar til að vernda börn
sem misstu foreldra sína í hamför-
unum á Indlandi.
„Börnin langar
aftur í skólann“
UNICEF fagnar banni við ættleið-
ingu munaðarlausra barna í Indónes-
íu til að vernda þau fyrir illþýði
Jakarta. AFP.
Jirkatang. AP, AFP