Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 23
DAGLEGT LÍF
Ekki einasta breiðir MargrétBjörnsdóttir út hlýjan faðm-inn með bros á vör þar sem
hún stendur í gættinni heima hjá sér
og tekur á móti bláókunnu innrás-
arliði, heldur reiðir hún líka fram ný-
bakaðar pönnukökur. Og hún hefur
lagt á borð ævafornt gullslegið spari-
stell sem er listaverki líkast. En mest
um verð er hlýjan allt um vefjandi.
Engu líkara en að við höfum alltaf
þekkst þó við séum að hittast fyrsta
sinni.
Margrét er sérstök kona og
óhrædd við að fara sínar eigin leiðir.
Hana hafði dreymt um það alla ævi
að læra á píanó og lét loks verða af
því fyrir einu og hálfu ári síðan, þegar
hún stóð á áttræðu. „Allt hefur sinn
tíma og það er aldrei of seint að gera
það sem mann langar til. Ég var allt í
einu tilbúin í þetta, bæði í huganum
og öllum aðstæðum. Nú hef ég efni á
þessu, ég er ekki að eyða pening-
unum í bíóferðir, böll eða áfengi og
mér finnst sjálfsagt að ég veiti mér þá
ánægju sem tónlistarnámið gefur
mér. Nú hef ég líka nægan tíma og
vilja til að meðtaka námið og þetta er
svo góð hugarleikfimi. Ég keypti mér
reyndar hljómborð fyrir nokkrum
áratugum en hef ekki snert á því fyrr
en núna. Það hefur beðið hérna hjá
mér eftir því að ég væri tilbúin,“ segir
Margrét með sínu geislandi brosi og
bætir við að hún hafi ekki séð nokkra
ástæðu til að láta það aftra sér að
hefja píanónám þó hún væri orðin átt-
ræð. „Maður á að fylgja sinni innri
rödd og þegar ég sá auglýsinguna frá
honum Ástvaldi Traustasyni píanó-
kennara, þar sem það kom fram að
hann kenndi fólki meðal annars að
spila eftir eyranu, þá var því hvíslað
að mér að ég ætti að slá til. Og ég hef
ekki séð eftir því, þetta gefur mér svo
mikið og hann Ástvaldur er frábær
kennari sem hefur hjálpað mér að
finna sjálfa mig.“
Ástvaldur er ekki síður ánægður
með Margréti sem er aldursforseti í
skólanum hjá honum og hann segir
hana frábæran nemanda. „Hún er
svo jákvæð og skemmtileg og auk
þess ótrúlega dugleg og sam-
viskusöm. Hún æfir sig alltaf vel
heima og mér finnst forréttindi að fá
að leiðbeina henni í tónlistarnáminu.
Hún kennir mér ekki síður en ég
henni.“ Skólinn hans Ástvalds heitir
Tónheimar og þar er námið ekki háal-
varlegt agað akademískt nám, heldur
er það hugsað fyrir fólk sem langar
fyrst og fremst að læra að spila fyrir
sjálft sig og ánægjuna. „Ég vil færa
tónlist og tónlistarnám af stalli og
nær hinum almenna borgara sem
hefur einmitt eins og Margréti alltaf
langað til að spila. Af því að tónlist er
ekki neitt sem stendur utan við okk-
ur, hún býr í okkur öllum. Hún er við
sjálf.“
Söng undir stýri í Bjöllunni
Margrét fer einu sinni í viku í tón-
listartíma til Ástvalds og þá hefur
hún alltaf með sér lítinn engil í gler-
kúlu sem hún stillir upp á píanóið á
meðan á kennslustundinni stendur.
„Þetta er verndarengillinn minn. Ég
á þrjár ömmustelpur í Færeyjum og
ein þeirra, hún Guðrún, sendi mér
þennan engil og sagði mér að ég ætti
alltaf að hafa hann hjá mér og hann
ætti að passa mig. Okkur mannfólk-
inu veitir heldur ekkert af því að hafa
hjá okkur engla. Margir missa svo
mikið samband við sjálfa sig í hraða
nútímans og þeir taka ekki eftir þeg-
ar innri röddin hvíslar einhverju að
þeim, en ég hef lært að það skiptir
miklu máli í lífinu að leggja eyrun vel
við þegar sú rödd bærir á sér.“
Aðspurð segist Margrét alla tíð
hafa haft mikið yndi af tónlist. „Ég
hlusta mikið á tónlist og hún hreyfir
gjarnan við mér. En ég held ég sé
laglaus og ég syng aldrei svo nokkur
heyri, en þegar ég átti Volkswagen
bjölluna á sínum tíma, þá söng ég oft
fullum hálsi undir stýri ef eitthvað í
útvarpinu höfðaði til mín.“
Íslands amma til alls vís
Margrét var komin á sextugsaldur
þegar hún tók upp á því að taka bíl-
próf og kaupa sér bíl. „Fólk hélt að ég
væri orðin eitthvað biluð að gera
þetta á þeim aldri, það tæki því ekki
fyrir mig og ég væri allt of tauga-
veikluð til þess. En þegar ég ákveð
eitthvað þá fylgi ég því eftir og ég lét
engar úrtölur stjórna því hvort ég
tæki bílpróf eða ekki, enda fór það
allt vel.“ Og það er aldrei að vita
hverju ólíkindatólið Margrét á eftir
að taka upp á, enda segist hún hafa
nægan tíma. „Miðill nokkur sagði
mér að ég ætti eftir að verða hundrað
ára og mér dettur örugglega eitthvað
í hug á þeim árum sem ég á eftir.
Kannski ég haldi einhverntíma tón-
leika?“ segir hún og skellihlær, konan
sem Færeyingar kölluðu Íslands
ömmu þegar hún dvaldi þar í sex
mánuði hjá dóttur sinni fyrir tveimur
árum. Og hún veit fátt fegurra en
horfa á fólk dansa tangó. Og henni
þykir vænt um lífið þó það hafi ekki
alltaf farið um hana blíðum höndum.
Margrét hefur aldrei látið neikvæðni
ná tökum á sér og segir það hafa
bjargað sér í lífinu. „Ég væri út við
sundin blá, ef ég hefði ekki haft já-
kvætt hugarfar til að létta mér lífið.“
FRAMTAKSSEMI | Skellti sér í píanónám þegar hún stóð á áttræðu
Allt of fáir fylgja sinni
innri rödd en það gerði
Margrét Björnsdóttir
þegar hún hóf píanónám
á níræðisaldri. Kristín
Heiða Kristinsdóttir
hitti þessa huguðu konu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ástvaldur leiðbeinir Margréti við að spila Heims um ból.
khk@mbl.is
Lét gamlan draum rætast
Verndarengillinn góði
frá Færeyjum.
„VIÐ komum til með að fljúga nú
í fyrsta skipti til Feneyja og mun-
um samnýta leiguflugið með Úr-
vali-Útsýn alla miðvikudaga í
sumar,“ segir Laufey Jóhanns-
dóttir, framkvæmdastjóri Plús-
ferða.
Í Feneyjum verða Plúsferðir
með eitt hótel, tvö í ítölsku borg-
inni Mestre og þrjú í strandbæn-
um Lido di Jesolo. Hagstæðasta
verðið hjá Plúsferðum á Fen-
eysku rívíeruna fyrir hjón með
tvö börn nemur tæpum 55 þúsund
krónum í viku en tveir fullorðnir
í íbúð þyrftu að greiða tæplega
70 þúsund krónur fyrir jafnlanga
ferð.
Að sögn Laufeyjar virðist mik-
ill áhugi fyrir Ítalíu-ferðunum ef
marka má fyrstu viðbrögð og því
ekki ástæða til annars en bjart-
sýni á komandi ferðasumar.
Plúsferðir bjóða upp á vorferð-
ir til Kúbu, Antalya í Tyrklandi,
Marrakech í Marokkó, Aþenu í
Grikklandi, Lissabon í Portúgal
og Madrídar á Spáni.
Billund á Jótlandi
Að sögn Laufeyjar munu Plús-
ferðir svo, líkt og í fyrrasumar,
bjóða upp á vikulegt flug á laug-
ardögum til Billund á Jótlandi í
sumar. „Við erum eina íslenska
ferðaskrifstofan sem það gerir,
en þangað sækja Íslendingar
gjarnan í sumarhús auk þess sem
við erum að stíla inn á Dani og
Íslendinga búsetta á Jótlandi sem
vilja ferðast til Íslands.“
Flugsæti til Billund báðar leiðir
kemur til með að kosta 22.430 kr.
með sköttum, en 800 krónum
minna fyrir börn.
Að sögn Laufeyjar er hér ekki
um tæmandi ferðaframboð ferða-
skrifstofunnar að ræða fyrir
komandi sumar því von sé á frek-
ari nýjungum frá Plúsferðum í
febrúarbyrjun.
Morgunblaðið/Ómar
Flogið verður til Feneyja á mið-
vikudögum í sumar.
Mikill
áhugi á
Ítalíu
FERÐALÖG | Plúsferðir
!"
#
$%
!#$
& % &
'
( )
&
Hagstæðasta netverðið hjá Úr-
vali-Útsýn á Feneysku rívíeruna
með gistingu fyrir hjón með tvö
börn í viku nemur rúmum 60 þús-
und krónum með sköttum á mann-
inn og jafnlöng ferð fyrir tvo kostar
tæplega 90 þúsund krónur.
Samhliða beinu flugi til Feneyja,
„OKKAR nýjungar á komandi sumri
felast fyrst og fremst í beinu viku-
legu leiguflugi til Feneyja á Ítalíu.
Flogið verður alla miðvikudaga í
sumar, frá maílokum til ágústloka,
beint til Feneyja þar sem lent verð-
ur á Marco Polo-flugvellinum.
Svæðið þar í kring sem við köllum
einu nafni Feneysku rívíeruna
finnst okkur spennandi kostur, sem
opnar fjölbreytta möguleika fyrir
íslenska ferðalanga,“ segir Helgi
Eysteinsson, sölu- og markaðsstjóri
Úrvals-Útsýnar. Flogið verður með
757-200 vélum Flugleiða sem taka
189 manns í sæti.
Auk Feneyja kynnir Úrval-Útsýn
tvo nágrannabæi Feneyja fyrir Ís-
lendingum, strandbæinn Lido di
Jesolo og borgina Mestre. Lido di
Jesolo sem státar m.a. af 14 kíló-
metra langri sandströnd og aragrúa
veitingastaða og verslana er í um
hálftíma akstursfjarlægð frá Fen-
eyjum og þangað má t.d. komast á
milli með almenningssamgöngum.
Borgin Mestre er uppi á fastaland-
inu en tengist Feneyjum með brú.
Að sögn Helga er Mestre ekki
strandbær, heldur nútímaleg ítölsk
borg, sem hefur upp á allt það að
bjóða sem fólk í fríi er að leita eftir.
„Við erum aðeins með eitt hótel á
eyjunum sjálfum, en fjögur hótel í
strandbænum Lido di Jesolo og
fjögur hótel í Mestre, sem er aðeins í
tíu mínútna akstursfjarlægð frá
Feneyjum. Í Mestre er sömuleiðis
vöruhús með ítalskan tískuvarning
þar sem verðlag er hagstæðara en í
Feneyjum.“
Ítalía hefur ekki verið inni á kort-
inu hjá Úrvali-Útsýn í nokkur ár, en
þar á bæ er nú, að sögn Helga, litið á
Feneysku rívíeruna sem framtíðar-
áfangastað þar sem Ítalía virðist
eiga miklum vinsældum að fagna
meðal Íslendinga almennt.
hyggst Úrval-Útsýn endurvekja
ferðir til Portoroz í Slóveníu eftir
langt hlé, en þangað er tæplega
tveggja tíma akstur frá Marco Polo-
flugvellinum í Feneyjum. „Við erum
að fá gríðarlega góð viðbrögð þessa
dagana við þessum nýjungum okkar
og má segja að síminn hafi ekki
stoppað,“ segir Helgi.
Vorferðir, sem Úrval-Útsýn efnir
til með hækkandi sól, hafa sömu-
leiðis hlotið góðan hljómgrunn, en
þá er ferðinni heitið m.a. til Kúbu,
Antalya og Belek í Tyrklandi,
Marrakech í Marokkó, Aþenu í
Grikklandi, Lissabon í Portúgal og
Madrídar á Spáni.
„Þetta er aðeins það framboð,
sem við erum nú þegar búin að setja
á markað, en í byrjun febrúar má
vænta þess að við kynnum okkar
endanlega sumarframboð. Þá má
vænta frekari nýjunga,“ segir
Helgi.
Beint flug til Feneyja í sumar
Reuters
Auk þess sem boðið verður upp á ferðir til Feneyja og Feneysku rívíer-
unnar mun einnig verða boðið upp á ferðir til Portoroz í Slóveníu.
FERÐALÖG | Úrval-Útsýn
*%
% +) )
,#%
+ '
- .. /)