Morgunblaðið - 07.01.2005, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 07.01.2005, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN UM LEIÐ og ég óska borgar- búum gleðilegs nýs árs, vil ég benda á nokkrar staðreyndir um fjárhag Reykjavíkurborgar og væntanlega þróun hans á nýhöfnu ári. Borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins, með formann Sambands ís- lenskra sveitarfélaga í fararbroddi, hafa á liðnum vikum gagn- rýnt útsvarshækkun í Reykjavík og efnt til auglýsinga í fjöl- miðlum í því skyni að útmála fjárhag höf- uðborgarinnar heldur dökkum litum. Stað- reyndirnar ættu þó að vera formanni sambandsins nær- hendis, því upplýsingar um fjármál sveitarfélaga eru öllum aðgengileg- ar á vef Sambands íslenskra sveitar- félaga, www.samband.is. Verkefni sveitarfélaga og fjármögnun þeirra Sveitarfélögin í landinu hafa á liðn- um árum tekið við fjölmörgum verk- efnum samfélagsþjónustunnar af ríkisvaldinu. Um stærstu verkefnin hefur verið þverpólitísk samstaða sem byggir á því að þjónustu á borð við grunnskólakennslu eigi að vera stjórnað sem næst notendunum. Önnur verkefni hefur ríkið falið sveitarfélögunum óumbeðið. Ríki og sveitarfélög hafa samið um tiltekna tekjuskiptingu vegna sumra þessara verkefna og er sú tekjuskipting til sífelldrar endurskoðunar. Fram hef- ur þó komið að ráðherrar og sumir sveitarstjórnarmenn telja að um- ræða um eflda tekjustofna sveitarfé- laga sé fráleit á meðan sveitar- félögin nýta ekki þá tekjustofna sem þau hafa fyrir. Hvað sem því líður þá er ljóst að aukin þjónusta kostar peninga og sú er ástæðan fyrir hækkun útsvars í Reykjavík. Tvískinnungur formanns Sambands sveitarfélaga Talsmaður Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn er einnig formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlýtur sem slíkur að bera nokkra ábyrgð á þeim samningum sem gerðir hafa verið við ríkisvaldið um tekjuskiptingu vegna aukinna verk- efna. Þess vegna hljóta sveitar- stjórnarmenn að veita því sérstaka athygli þegar hann tjáir sig um út- svarsprósentu einstakra sveitarfé- laga. Hvers vegna var formaðurinn að semja um útsvarsprósentu upp á 13,03% ef sveitarfélög mega ekki nýta sér hana við þær aðstæður sem nú eru uppi? Í því sambandi er rétt að benda á að kostnaðarauki Reykjavíkurborgar vegna samninga við kennara losar milljarð króna á ári en útsvarshækkunin skilar 740 milljónum króna. Samanburður sveitarfélaga Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera að minnsta kosti tveir flokkar þeg- ar kemur að umræðu um fjármál sveitarfé- laga, annars vegar meirihlutaflokkur og hins vegar minni- hlutaflokkur. Stefnan fer eftir úrslitum næstu kosninga á und- an. Þar sem þeir eru í minnihluta á að gera allt í senn, lækka skatta, greiða skuldir og auka þjónustu. Þar sem þeir eru í meirihluta virðist meiri tenging við veruleikann. Það er nauðsynlegt í umræðu um fjármál sveitarfélaga að bera saman nokkr- ar lykiltölur nokkurra sveitarfélaga og alveg ástæðulaust fyrir Sjálf- stæðismenn að kveinka sér undan því eins og sjá má í meðfylgjandi töflum. Þær eru unnar upp úr Ár- bók sveitarfélaga 2004 og end- urspegla stöðuna samkvæmt nýj- ustu ársreikningum, þ.e. fyrir árið 2003. Skatttekjur á íbúa: Reykjavík 256 þkr. Kópavogur 249 þkr. Akureyri 248 þkr. Garðabær 269 þkr. Seltjarnarnes 281 þkr. Skuldir á íbúa: Reykjavík 177 þkr. Kópavogur 389 þkr. Akureyri 256 þkr. Garðabær 306 þkr. Seltjarnarnes 114 þkr. Skuldir Reykjavíkurborgar eru því vel viðráðanlegar og er borgin betur í stakk búin til að greiða sínar skuldir en margir nágrannanna. Orkuveita Reykjavíkur Það vekur furðu margra að heyra sjálfstæðismenn tala um Orkuveitu Reykjavíkur sem fjárhagslegt vandamál fyrir Reykjavíkurborg og á köflum virðist manni sem þeir vilji helst losna við Orkuveituna úr eigu borgarinnar. Eða hvernig á öðruvísi að túlka málflutning sjálfstæðis- manna undanfarin misseri? Það er fróðlegt að bera saman efnahag Orkuveitunnar og annars fyrirtækis á orkusviði, Landsvirkjunar, til að fólk átti sig á fjárhagslegum styrk fyrirtækjanna, en tölurnar eru úr ársreikningum 2003 og eru í millj- örðum króna: Orkuveita Reykjavíkur: Tekjur 12 Hagnaður 1,3 Eigið fé 40 Skuldir 30 Landsvirkjun: Tekjur 13 Hagnaður 1,6 Eigið fé 41 Skuldir 93 Lína Sjálfstæðismanna virðist vera sú að fjargviðrast nóg um Línu Net og risarækjur og þá muni borg- arbúar smám saman fara að tor- tryggja Orkuveituna og stöðu henn- ar. Á sama tíma er það þó gagnrýnt að Orkuveitan greiði arð af starf- seminni til borgarsjóðs. Svona mál- flutningur er vitaskuld ekki boðleg- ur. Þá má bæta því við að afkoma Orkuveitunnar var afar góð á ný- liðnu ári, svo góð að fyrirtækið býð- ur nú lægst raforkugjöld sem þekkj- ast á landinu þrátt fyrir að það standi í afar mikilli fjárfestingu. Að lokum Hreinar skuldir borgarsjóðs Reykjavíkur munu lækka talsvert á þessu nýhafna ári. Væntanlega munu þær verða um 6,6 milljarðar í árslok. Á móti þessum skuldum standa vitaskuld verulegar eignir. Þær eru metnar á 87,7 milljarða króna. Ársvelta borgarsjóðs er 41 milljarður þannig að gerðu menn ekki annað frá áramótum en að greiða niður skuldir þá væru þær uppgreiddar í lok febrúar. Fjármálum Reykjavíkurborgar ber að stýra af festu og ábyrgð og það munum við í Reykjavíkurlist- anum gera hér eftir sem hingað til en láta Sjálfstæðisflokknum eftir auglýsingar í dagblöðum. Um fjárhag Reykjavíkurborgar Steinunn Valdís Óskarsdóttir fjallar um fjármál Reykjavík- urborgar ’Sjálfstæðisflokkurinnvirðist vera að minnsta kosti tveir flokkar þegar kemur að umræðu um fjármál sveitarfélaga, annars vegar meiri- hlutaflokkur og hins vegar minnihluta- flokkur.‘ Steinunn Valdís Óskarsdóttir Höfundur er borgarstjóri. LENGI tekur sjórinn við. Orð sem hafa hljómað um langt skeið. Úrgang- ur og frárennsli hafa verið losuð í sjóinn án umhugsunar og hverjar eru afleiðingarnar? Streymi mengunarefna til sjávar hefur stórlega dregið úr gæðum hafs- ins víða um heim. Ofauðgun næringarefna leiðir til óhóflegs þör- ungablóma, skaðleg efni í botnmálningu skipa or- saka ófrjósemi marg- víslegra skeldýra, þrá- virk lífræn efni hlaðast upp í lífverum með ófyr- irséðum afleiðingum. Upptalningin er löng og lengist enn. Mengun hafsins er ekki mál einnar þjóðar. Umferð skipa er óháð landa- mærum og mengunarefni frá landi berast oft langar vegalengdir. Þrávirk lífræn efni dreifast með loft- og haf- straumum frá stóru meginlöndunum og setjast að á köldum svæðum þar sem þau ganga inn í lífkerfið. Ein- göngu alþjóðlegt samstarf og samn- ingar geta því stuðlað að verndun heimshafanna svo gagn sé að. Yfirgnæfandi hluti þeirrar meng- unar sem á endanum lendir í hafinu á uppruna sinn í landi, eða um 80%. Mengunarefni berast með fráveitu- kerfum, árvatni og vindi. Alþjóða- samfélagið hefur gripið til margskonar aðgerða í því skyni að stöðva dreifingu mengunar við upptök því allar aðgerð- ir eru erfiðari og dýrari eftir að meng- unin hefur náð til sjávar. Árið 1995 samþykktu yfir 100 þjóðir, þ.m.t. Ís- lendingar, alþjóðlega framkvæmda- áætlun um að draga úr mengun frá landi og er unnið að framgangi áætl- unarinnar víða um heim. Árið 2001 gaf umhverfisráðuneytið út sérstaka áætl- un fyrir Ísland og varð þar með annað ríkið í heiminum sem gekk frá sérstakri lands- áætlun. Hér hefur markvisst verið unnið að því að draga úr mengun frá bú- setu og iðnaði, m.a. í samræmi við ákvæði ís- lensku framkvæmda- áætlunarinnar. Í starfs- leyfum fyrirtækja eru ákvæði um loftmengun, frárennsli, efnis- meðhöndlun og förgun úrgangs. Breytingar á urðun úrgangs hafa dregið umtalsvert úr streymi sigvatns og foki mengunarefna til sjávar og margvíslegar aðgerðir opinberra og einkaaðila hafa miðað að því að við- halda hreinu hafsvæði umhverfis Ís- land. Án efa teljast þó þær úrbætur sem sveitarfélög hafa gert í fráveitu- málum til mestu umhverfisbætandi að- gerða sem gripið hefur verið til. Reyk- víkingar þurfa ekki að líta langt aftur til þess að minnast þess þegar böðun var bönnuð í Nauthólsvík, skólpúði gekk yfir sum íbúðahverfi í hvassri hafátt og fjörur voru fullar af allra handa úrgangi. Mörg sveitarfélög hafa unnið ötullega í sínum fráveitumálum en þó eiga mörg enn margt ógert. Mengun frá skipum Þegar minnst er á mengun sjávar frá skipum dettur örugglega mörgum í hug Exxon Valdez, Prestige og jafnvel fleiri þekkt stór og mikil mengunar- óhöpp þar sem þúsundir tonna af þrá- virkri hráolíu renna í sjóinn nálægt Mengun hafs og stranda Kristján Geirsson skrifar um mengun Kristján Geirsson Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Jakob Björnsson: „Það á að fella niður með öllu aðkomu forsetans að löggjafarstarfi.“ Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir: „Ég vil hér með votta okkur mína dýpstu samúð vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í íslensku þjóð- félagi með skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar í stöðu hæstaréttar- dómara. Ég segi okkur af því að ég er þolandinn í „Prófessorsmálinu“.“ Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er að án þeirrar hörðu rimmu og víðtæku umræðu í þjóðfélaginu sem varð kringum undirskriftasöfnun Umhverf- isvina hefði Eyjabökkum verið sökkt.“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir: „Viljum við að áherslan sé á „gömlu og góðu“ kennsluaðferðirnar? Eða viljum við að námið reyni á og þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og sjálfstæða hugsun?“ Bergþór Gunnlaugsson: „Ég hvet alla sjómenn og útgerðarmenn til að lesa sjómannalögin, vinnulöggjöfina og kjarasamningana.“ Á mbl.is Aðsendar greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.