Morgunblaðið - 07.01.2005, Síða 31

Morgunblaðið - 07.01.2005, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 31 MINNINGAR ✝ Páll Lúðvíkssonfæddist í Reykja- vík 11. mars 1926. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 31. desember síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Sveinn Lúðvík Sigmunds- son, vélstjóri og yfir- verkstjóri í Reykja- vík, f. í Reykjavík 29. júlí 1903, d. 1. janúar 1947, og Alexía Sess- elía Pálsdóttir hús- móðir og verslunar- kona, f. í Reykjavík 29. maí 1900, d. 20. júní 1976. Þau bjuggu alla tíð í Reykjavík. Systk- ini Páls eru Kristín, f. 1928, Har- aldur, f. 1930, d. 2003, Sigmundur, f. 1931, d. 1976, Guðlaug Ágústa, f. 1933, og Erla Sigrún, f. 1936. Páll kvæntist 19. maí 1956 Ásu Fanneyju Þorgeirsdóttur fé- lagsráðgjafa, f. á Ísafirði 16. sept- ember 1930. Foreldrar hennar voru Þorgeir Ólafsson, f. á Snæ- fjallaströnd 12. febrúar 1898, d. 30. desember 1967, og Jóna Jóns- f. 4. apríl 2004. Úlfar, f. 21. júlí 1989. Fannar, f. 16. júní 1995. Páll var stúdent frá MR 1947, lauk fyrrihlutaprófi í verkfræði frá HÍ 1950 og lauk námi í véla- verkfræði frá DTH í Kaupmanna- höfn 1953. Eftir nám starfaði Páll á verkfræðistofu P. Schönning í Kaupmannahöfn 1953 en hélt þá heim til Íslands og hóf störf hjá tæknideild og síðar teiknistofu Sambands íslenskra samvinnu- félaga. Hann starfaði þar til 1986 og stofnaði þá ráðgjafarfyrirtækið Nýju teiknistofuna ásamt sam- starfsmönnum frá teiknistofu SÍS og starfaði þar til ársins 1995. Páll sat í nefnd sem undirbjó B.Sc.-nám í verkfræði við HÍ 1970–1973 og var stundakennari í verkfræði- deild HÍ 1974–1981. Páll hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir verkfræðinga, m.a. sat hann í stjórn Stéttarfélags verkfræðinga 1958, 1963–1964 og 1968–1970, í stjórn Verkfræðingafélags Íslands 1964–1965. Þá var hann í ritnefnd TVFÍ 1974–1986 og ritstjóri Fréttabréfs VFÍ 1976–1984. Páll sat í Kröflunefnd 1974–1978. Páll var einn af stofnfélögum Kæli- tæknifélags Íslands og formaður félagsins 1990–1994. Útför Páls fer fram frá Lang- holtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. dóttir, f. í Skutuls- firði 5. nóvember 1897, d. 4. desember 1991. Börn Páls og Ásu eru: a) Þorgeir, f. 22. október 1956, maki Sesselja Bene- diktsdóttir, f. 3. apríl 1956. Börn Ægir Ing- ólfsson, f. 4. júní 1977, maki Elísabet Snædís Jónsdóttir, f. 3. janúar 1979, og Hlynur Ingólfsson, f. 2. apríl 1980. b) Hild- ur Alexía, f. 4. júlí 1960, maki Unnar Eyjólfsson. Börn Arnar Páll, f. 8. janúar 1979, maki Guðríður Harð- ardóttir, f. 1. mars 1979, sonur þeirra Yngvar Máni, f. 3. ágúst 2001. Atli Freyr, f. 19. mars 1984, maki Valgerður Helga Hauksdótt- ir, f. 19. október 1984. Ása Alexía, f. 16. desember 1996. c) Páll Reyn- ir, f. 11. ágúst 1962, maki Margrét Þorsteinsdóttir, f. 12. október 1962. Börn Ingi Þór, f. 4. júní 1983, maki Erna Geirsdóttir, f. 30. mars 1982, dóttir þeirra Karitas Björk, Elsku pabbi, þú varst stólpinn sem við gátum alltaf hallað okkur að, en við vitum að þér líður vel núna, laus við allar þjáningar. Minningin lifir í hjarta okkar. Faðir, þó mér fjarlægð hylji friðargeisla augna þinna, ertu samt um allar stundir engill kærleiksdrauma minna. (Hulda.) Ástarkveðja Þorgeir, Hildur og Reynir. Elsku afi. Okkur langar að kveðja þig og þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem þú gafst okkur. Allar sumarbú- staðarferðirnar sem við fórum með þér og ömmu í Borgarfjörðinn, þar sem spilaður var fótbolti, smíðaður kofi og kassabíll, farið í göngutúr nið- ur að læk, þar sem okkur var kennt að fleyta kerlingar. Við fórum oft í sund í Hreppalaug eða að Varmalandi, þá var oftast stoppað og keyptur ís á leið- inni til baka. Einnig fengum við að vera mikið hjá ykkur ömmu í Álfheimunum, þar sem mikið var spilað og lesið, og jóla- húsið skreytt fyrir jólin. Elsku afi, við vitum að þér líður vel núna og við eigum eftir að hittast aft- ur, við skulum líta eftir ömmu fyrir þig og hjálpa henni í bústaðnum. Arnar Páll, Atli Freyr og Ása Alexía. Nú er komið að kveðjustund. Páll bróðir minn lést á gamlársdag eftir löng og erfið veikindi. Maður lítur yfir farinn veg og margs er að minnast. Palli átti góða æsku og var oft glatt á mannmörgu heimili foreldranna. Börnin voru sex og Palli var elstur af systkinum sínum og leit maður upp til stóra bróður sem alltaf var svo traust- ur, rólegur og góður. Gott var að leita til hans alla tíð. Hann lærði verkfræði og vann hjá Sambandinu fyrst eftir að hann kom frá námi í Danmörku og síðan við fyrirtæki sem hann stofnaði ásamt fleirum. Fljótt eftir nám var Palli svo hepp- inn að hitta eftirlifandi eiginkonu sína hana Ásu Fanney og var það hans gæfa. Voru þau alla tíð ákaflega sam- stiga með alla hluti. Þau byggðu sum- arbústað við Langá og voru með þeim fyrstu sem byggðu þar. Tók það tals- verðan tíma, en það var ekki málið að rubba því upp í flýti, það var byggt af vandvirkni og alúð, eins og þeirra var vani. Þar áttu þau margar góðar stundir og var alltaf gaman að hittast þar, í góðra vina hópi naut hann sín. Er börnin þeirra þrjú uxu úr grasi höfðu þau tækifæri til að ferðast tals- vert og nutu þess bæði. Í sumar sem leið var farið nokkuð oft í sumarbú- staðinn og þar var hann á heimavelli og er aðdáunarvert hve Ása hugsaði vel um hann, svo og börnin þeirra. Við Hemmi sendum okkar samúðarkveðj- ur til Ásu, barnanna og fjölskyldna þeirra. Guð veri með ykkur. Guðlaug og Hermann. Mágur okkar, Páll Lúðvíksson verkfræðingur, hefur kvatt sína jarð- vist. Við tímamót sem þessi koma fram í huga okkar ljúfar minningar liðins tíma. Páll kom inn í fjölskyldu okkar þegar hann og Ása Fanney systir okkar giftu sig. Hann var ein- staklega vel gerður maður, prúður og kurteis í samskiptum við aðra og ávallt reiðubúinn að rétta hjálpar- hönd í smáu sem stóru. Vandvirkni og mikil afköst voru í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Heimili og sumarbú- staður fjölskyldu hans ber honum vitni um næma tilfinningu fyrir feg- urð og fágaðan smekk. Nokkru eftir 70 ára aldur fór heilsu Páls að hraka. Sjón hans dapraðist og heilabilun gerði vart við sig stuttu seinna. Hann mætti óblíðum örlögum sínum með öllum sínum góðu per- sónueinkennum, svo hann gat verið heima umvafinn kærleika eiginkonu, þar til nú rétt fyrir jól að innlögn á sjúkrahús varð ekki lengur umflúin. Hinsti dagur hans var jafnframt síð- asti dagur ársins. Við bræður erum þakklátir fyrir þann vinskap og hlýju sem hann auð- sýndi okkur alla tíð og biðjum honum Guðs blessunar. Systur okkur, börnum hennar, tengdabörnum, barnabörnum og barnabörnum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Ólafur Þorgeirsson, Jóhann Þorgeirsson. Það fækkar stöðugt í hópi stúdenta frá MR 1947. Meðal okkar var Páll Lúðvíksson. Að eiga samferðamann eins og hann á mennta- og háskólaárunum samfellt í áratug var mér mikils virði. Við leystum oft sameiginlega verk- efnin og sóttum styrk hvor til annars, vafalaust báðum til gagns. Margt má segja um námsárin, sem raunar lifa í minningunni sem ánægjulegur tími í góðra vina hópi, núna þegar þrauta- ganga prófa og aðrar áhyggjur þess tíma eru löngu fyrndar. Má þar til dæmis nefna ferðina heim með Gull- fossi eftir fyrsta námsveturinn í Kaupmannahöfn. Auraráð voru lítil enda naumt skammtaður gjaldeyrir- inn á þessum árum, en við Páll aur- uðum saman aleigunni fyrir glaðningi fyrsta kvöldið um borð. Fjöldi stúd- enta var á heimleið á 3ja farrými, sem var í lestinni, en á 1. farrými var með- al farþega kunnur heildsali, sem síðan veitti vel alla leiðina. Ég er viss um að margir stúdentanna muna vel eftir þessari veisluheimferð, eftir knappan kost í Köben. Við Páll höfðum valið hvor sína grein verkfræðinnar og atvikin hög- uðu því svo til að á starfsævinni unn- um við fá verkefni saman. En sam- bandi var haldið í góðum félagsskap. Ánægjulegt var að sækja þau hjón heim á þeirra fallega heimili, sem þau byggðu hörðum höndum við Álfheim- ana, eins og tíðkaðist á þeim árum. Svo vildi til að eiginkonur okkar urðu báðar gagnfræðingar frá Ísafirði á sama ári og við Páll lukum stúdents- prófi. Það kom því fyrir oftar en ekki, að við urðum að hafa hraðan á til að komast úr okkar árgangsafmæli í af- mæli eiginkvennanna á öðru lands- horni. Af hvorugum fagnaðinum vild- um við missa, enda mjög ánægjulegt að kynnast hvor annars skólafélög- um. Síðustu árin átti þó Páll við erfið veikindi að stríða og gat því miður ekki lengur tekið þátt í þeim ferðum. Ég veit að ég mæli fyrir hönd allra stúdenta frá MR ’47, þegar við Steina þökkum Páli samfylgdina og vottum Ásu og allri fjölskyldunni okkar dýpstu samúð. Minning um góðan dreng mun lifa. Pétur Guðmundsson. PÁLL LÚÐVÍKSSON Hjartans þakkir sendum við þeim er sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KATRÍNAR INGIBERGSDÓTTUR frá Vík í Mýrdal, Droplaugarstöðum, Snorrabraut 58, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Droplaugarstaða. Ásdís Óskarsdóttir, Benedikt Gunnarsson, Baldur Óskarsson, Anna Kristrún Jónsdóttir, Valgerður Benediktsdóttir, Grímur Björnsson, Katrín Baldursdóttir, Ljósbrá Baldursdóttir, Matthías Gísli Þorvaldsson, Guðbjörg Eva Baldursdóttir og langömmubörn. Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, MAGNÚS KRISTJÁNSSON, (Gutti), Skipagötu 10, Ísafirði, sem lést þriðjudaginn 28. desember, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 8. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda hins látna, Hildur Jósefsdóttir, Jóna Örnólfsdóttir, Grétar Þór Magnússon, Jónína Þorkelsdóttir, Edda Björk Magnúsdóttir, Steinþór Auðunn Ólafsson, Hilmar Magnússon, Árni Magnússon, Erna Fannbergsdóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, EDWARD PÁLL EINARSSON 3630 Centerview Avenue, Wantagh, New York, lést sunnudaginn 26. desember. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Anna Kristín Einarsson, Eirik Einarsson. Elskulegur bróðir okkar, FRIÐRIK FR. HANSEN, lést á heimili sínu á Hvammstanga fimmtu- daginn 30. desember sl. Hann verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 15. janúar kl. 14.00. Systkini hins látna. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, tengdadóttir, systir og amma, RAGNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR, Skipastíg 11, Grindavík, sem andaðist á heimili sínu laugardaginn 1. janúar síðastliðinn, verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 8. janúar kl. 14. Sævar Þórarinsson, Gunnlaugur Sævarsson, Auður Arna Guðfinnsdóttir, Albert Sævarsson, Eydna Fossadal, Steinþóra Sævarsdóttir, Árni Þór Sævarsson, Þórarinn Ólafsson, Guðveig S. Siguðardóttir, Málfríður Guðjónsdóttir, Vilborg Guðjónsdóttir og barnabörn. Frændi okkar, GUNNAR PÁLL BJÖRNSSON frá Grjótnesi, andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga að morgni miðvikudagsins 5. janúar. Aðstandendur. Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug, vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, UNNAR H. LÁRUSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar L-5 á Landakoti fyrir einstaka umönnun og hjartahlýju. Jón Magnús Magnússon, Elínborg Magnúsdóttir, Ástþór Magnússon, Natalía Wium, Jónína Magnúsdóttir, Jón Tryggvi Kristjánsson, Elsa Magnúsdóttir, Pjetur N. Pjetursson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.