Morgunblaðið - 07.01.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 33
MINNINGAR
✝ Gísli Júlíussonfæddist í Hafnar-
firði 4. september
1927. Hann varð
bráðkvaddur á heim-
ili sínu 29. desember
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Júlíus
Sigurðsson skip-
stjóri, f. á Akranesi
9.11. 1900, d. 19.1.
1967, og Margrét
Gísladóttir, f. í Hafn-
arfirði 13.12. 1899, d.
19.5. 1988. Júlíus var
sonur hjónanna Sig-
urðar Jónssonar frá
Melshúsum á Akranesi og Kristín-
ar Árnadóttur Velding frá Hafnar-
firði. Margrét var dóttir hjónanna
Gísla Jónssonar hafnsögumanns
frá Hafnarfirði og Hallgerðar
Torfadóttur frá Hafnarfirði. Systk-
ini Gísla eru Sigurður löggiltur
skjalaþýðandi, f. 4.10. 1928, d. 7.1.
1999, Kristín kennari, f. 19.3. 1931,
d. 4.3. 2001 og Hallgeir verkfræð-
ingur, f. 1.7. 1937.
Gísli kvæntist 13.12. 1949 Jónínu
Jónsdóttur, f. 30.9. 1929. Hún er
dóttir hjónanna Jóns Bergssonar
stórkaupmanns í Reykjavík og
Guðbjargar, f. Arndal. Gísli og Jón-
ína skildu. Börn þeirra eru: 1) Jón
mælingamaður, f. 22.10. 1949.
Maki 1 Íris Helgadóttir, f. 10.7.
1960, þau skildu, fóstursonur Hall-
dór Páll, f. 27. 12. 1976. Maki 2
Gabríela Sigurðardóttir, f. 25.2.
1962, þau slitu samvistum. Dóttir
þeirra er Nína Lea, f. 17.4. 1995. 2)
Margrét innanhússarkitekt og ljós-
myndari, f. 25.1. 1956. Maki Hálf-
dan Jónsson, f. 21.2. 1953, þau
skildu. Synir þeirra eru Jón Hilm-
ar, f. 13.5. 1973 og Júlíus Atli, f.
17.5. 1975, maki Stefanía Guðrún
Ástþórsdóttir, f. 6.6. 1977, dætur
þeirra eru Kara Rún, f. 15.4. 1998
og Tera Rún, f. 26.10. 2001. 3) Júl-
íana viðskiptafræðingur, f. 9.11.
1957. Maki Benedikt R. Jóhannsson
blikksmiður, f. 27.3. 1943.
Gísli kvæntist 31.5. 1967 Ólínu
Helgu Kristófersdóttur, f. 31.5.
1927, d. 12.11. 2004. Hún var dóttir
Kristófers Oliverssonar skipstjóra
í Sandgerði og Þuríðar Gísladóttur
frá Sandgerði. Börn þeirra eru: 1)
Þuríður örverufræðingur, f. 11.10.
1960 og 2) Ólafur rafmagnsverk-
2.1. 1973 og Dóra Dögg Kristófers-
dóttir, f. 4.1. 1983.
Gísli lauk stúdentsprófi frá MA
1947, fyrrihlutaprófi í verkfræði
frá HÍ 1950 og lokaprófi í raforku-
verkfræði frá DTH í Kaupmanna-
höfn 1953. Gísli var verkfræðingur
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur
1953 til 1954, hjá rafvirkjadeild
Sameinaðra verktaka á Keflavík-
urflugvelli 1954 til 1956, rak eigin
verkfræðistofu, Landstólpa hf. í
Reykjavík, ásamt öðrum 1956 til
1957, starfaði hjá Íslenskum aðal-
verktökum 1957 til 1958, hjá flug-
her og (síðar sjóher) Bandaríkj-
anna á Keflavíkurflugvelli 1958 til
1965, vann hjá Vélsmiðju Njarðvík-
ur 1965 til 1968, var fyrsti stöðv-
arstjóri Búrfellsstöðvar 1968 til
1972, deildarverkfræðingur (síðar
yfirverkfræðingur) hjá Landsvirkj-
un til 1997. Gísli var fulltrúi Lands-
virkunar í Landvernd til 1984 og í
stjórn Landverndar frá 1984 til
1999, þar af varaformaður frá
1989. Hann hefur tekið þátt í störf-
um Orkuspárnefndar frá upphafi
1976 til 1994, hefur setið í áætlun-
arnefnd og í umhverfis- og rekstr-
arnefnd NORDEL, var formaður
rafmagnsverkfræðideildar VFÍ
1974 til 1975 og í aðalstjórn VFÍ, í
orðanefnd rafmagnsverkfræði-
deildar VFÍ frá 1974, var prófdóm-
ari við verkfræðideild HÍ 1973-
1977, í rafveitunefnd Njarðvíkur
1961 til 1968 og formaður 1965 til
1968, formaður í félagi sjálfstæð-
ismanna í Selja- og Skógahverfi í
Reykjavík 1986-1995, sat í hrepps-
nefnd Gnúpverjahrepps 1969 til
1973, félagsforingi í skátafélaginu
Víkverjum í Njarðvík 1965 til 1968,
í stjórn Félags áhugamanna um
Fjölbrautaskólann í Breiðholti frá
1978 og formaður frá 1981 til 1990,
félagi í Lionshreyfingunni frá
1962, formaður Lk Selfoss 1971 til
1972 og fjölumdæmisritari 1975 til
1976, félagi í Lk Nirði frá 1981.
Hann var einn af stofnfélögum
Kælitæknifélagsins árið 1988, sat í
Samstarfsnefnd um rannsóknir á
eldingum og var formaður tækni-
nefndar á vegum Rafstaðlaráðs er
vann að gerð handbókar um gerð
gagna til notkunar á raftæknisviði.
Þá var hann ritstjóri Fréttabréfs
Landsvirkjunar frá upphafi 1983
til 1993 og hefur skrifað fjölda
greina í blöð og tímarit, íslensk og
erlend, um ýmis verkfræðileg efni,
m.a. varmadælur og rafmagnsbíla.
Útför Gísla verður gerð frá
Seljakirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
fræðingur, f. 2.11.
1961, kvæntur Salvöru
Gunnarsdóttur hjúkr-
unarfræðingi, f. 10. 1.
1961, börn þeirra eru
Dóra Bergrún, f. 17.1.
1987, Helga Margrét,
f. 29.5. 1990, Páll Axel,
f. 21.8. 1992 og Hanna
Sólbjört, f. 25.11. 1996.
Börn Helgu af fyrra
hjónabandi og fóstur-
börn Gísla eru: 1) John
Francis Zalewski, f.
9.8. 1948. Dóttir hans
og Júlíu Sveinsdóttur
er Sveindís Helga, f.
27.9. 1965, dóttir hennar er Julia
Maria, f. 6.7. 2001. John kvæntist
Unni Þorsteinsdóttur, þau skildu.
Börn þeirra eru: a) Huldís, f. 5.5.
1968, maki Þórhallur Halldórsson,
börn þeirra eru Annel Helgi, f. 1.8.
1986, Aðalheiður, f. 24.11. 1992 og
Bjartur, f. 2.10. 1990, b) Annel Jón,
f. 9.7. 1976 og c) Jenný Heiða, f. 7.1.
1978. Sambýliskona Johns er Krist-
ín Einarsdóttir, f. 6.10. 1949. Börn:
Ólöf Birna, f. 3.8. 1982 og Friðgeir
Einar, f. 22.11. 1983. 2) Kristín
Helga Zalewski, f. 10.7. 1949, gift-
ist Sigurði Guðjónsyni, þau skildu.
Börn þeirra eru: a) Soffía Dóra, f.
10.10. 1970, gift Agnari Má Jóns-
syni, f. 3.1. 1964. Börn þeirra eru
Eiríka Steinunn, f. 17.7 1993, Sig-
urður Andri, f. 30.9. 1998 og Anna
Kristín, f. 8.10. 2000. b) Gísli Júlíus,
f. 3.7. 1974, kvæntur Rannveigu H.
Guðbrandsdóttur, dóttir þeirra er
Inghildur Síta, f. 25.5. 2004. c) Jón
Bjarmi, f. 1.10. 1977, maki Elfa
Björk Ragnarsdóttir. Börn þeirra
eru Daníel Dagur, f. 26.6. 1999 og
óskírð dóttir, f. 2.12. 2004. Seinni
maður Kristínar er Haukur Engil-
bertsson, f. 10.4 1938, dóttir þeirra
er Eybjörg Helga, f. 30.4. 1982,
sambýlismaður Jón Ellert Þor-
steinsson. 3) Kristófer Oliversson
Zalewski, f. 1.7. 1951. Maki 1 Ás-
gerður Guðbjörnsdóttir, börn
þeirra eru: a) Diðrik Jón, f.
3.7.1974, sambýliskona Sonya Dias,
dóttir þeirra er Thorvína Dias, f.
20.7. 2004 og b) Helga, f. 13.1. 1976.
Maki 2 Guðný Ottesen, dóttir
þeirra er Lilja Rut, f. 23.1. 1982.
Maki 3 Aldís J. Höskuldsdóttir.
Maki 4 Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
dætur, Rebekka Sif Bjarnadóttir, f.
Gísli Júlíusson kom inn í líf mitt
þegar ég var tíu ára gamall. Móðir
mín og hann hófu þá sambúð, sem
entist þeim lengi og vel. Gísli reyndist
henni á sérstakan hátt. Tók við okkur
börnunum þremur og gerðist góður
faðir okkar. Og á síðustu árum þegar
móðir okkar hafði misst heilsu, var
Gísli sá stuðningur sem brást aldrei.
Þegar hún lést nú fyrir tæpum tveim
mánuðum, þá var umhyggja hans slík
að betra varð ekki á kosið. Fyrir allt
þetta, góðu stundirnar mörgu, er ég
afskaplega þakklátur góðum manni.
Það eru margar góðar minningar,
sem við systkinin eigum um sam-
skiptin við Gísla fóstra okkar. Hann
tók okkur þannig strax að sér, að við
fundum þar traustan stuðning og
áhuga fyrir öllu því sem við tókum
okkur fyrir hendur. Hann hvatti okk-
ur áfram í lífinu, var hlýr og um-
hyggjusamur. Og þegar við eignuð-
umst svo eigin fjölskyldur og börn, þá
voru það allt börnin hans, áhugamál-
ið stóra, sem hann var tilbúinn til að
leggja allt á sig fyrir. Þar fylgdist
hann mjög náið með hverjum ein-
staklingi.
Gísli var skörulegur maður, sem
kynnti sig vel hvar sem hann fór.
Honum voru falin störf, sem kröfðust
ábyrgðar, og ávallt lagt mikið honum
á herðar. Fljótt varð ég þess var, að
hvar sem ég kom þá var litið upp til
Gísla. Hann hafði þannig persónu-
leika, traustur og ábyrgðarfullur.
Vildi íhuga mál og hugsa þau vel, áð-
ur en hann myndaði sér skoðun. Það
byggðist á velvilja til fólks og já-
kvæðni. Hann tók víða þátt í fé-
lagsmálum. Mér er efst í huga starf
hans að málefnum skátahreyfingar-
innar. Gísli átti sér margar hugsjónir
og var tilbúinn til þess að berjast fyr-
ir þeim. Við vorum ekki alltaf sam-
mála, en við vorum alltaf vinir. Öll
samskipti við hann er ég afskaplega
þakklátur fyrir. Gísli Júlíusson var
góður maður, sem forréttindi eru að
hafa fengið að vera svo náinn.
Þegar Gísli er kvaddur, þá gerir
fjölskylda mín það með sama þakk-
læti. Það er í okkar huga táknrænt,
að svo stutt var milli þeirra hjóna,
móður minnar og Gísla. Þau höfðu átt
samleið í 46 ár, voru nánir vinir, áttu
allt sameiginlegt. Við trúum því að
vegna miskunnar Guðs séu þau aftur
saman. Guð blessi minningu Gísla
Júlíussonar.
John Fr. Zalewski.
Elsku afi minn.
Þegar ég hugsa til baka streyma
margar góðar minningar um þig og
ömmu fram í huga minn.
Um sumarið 2003 fór ég og Páll
með þér, ömmu og Þurý í Búrfell. Þar
var æðislega gaman, við fórum í
Landmannalaugar og það var í fyrsta
sinn sem ég fór þangað. Við fórum
líka að veiða og ég veiddi einn fisk og
ég, Páll og þú hlógum að því að þetta
væri eini fiskurinn í ánni af því að
enginn annar fiskur veiddist í þessari
ferð. Þegar ég var lítil komuð þið oft
til okkar og pössuðuð okkur systk-
inin, ég var svo ánægð að eiga svona
góðan afa og ömmu sem hugsuðu
svona vel um barnabörnin sín.
Þið buðuð okkur líka oft með ykkur
í sumarbústað og að gista hjá ykkur.
Þegar ég gisti hjá ykkur fór ég oftast
með þér í sund í Breiðholtinu og
stundum kom Þurý með og síðan
komum við heim og fengum góðan
hádegisverð sem amma var búin að
útbúa.
Þú og amma komuð oftast á tón-
leika hjá mér og ég var svo stolt að
sjá ykkur og mér fannst ég vera svo
sérstök þegar svona margir komu að
horfa á mig.
Mér finnst svo vænt um þig og
ömmu og það er svo erfitt að kveðja
og hugsa til þess að geta ekki séð
ykkur aftur, faðmað ykkur aftur eða
kysst ykkur aftur.
Takk fyrir öll góðu árin og minn-
ingarnar með þér og ömmu og þótt
þú og amma séuð farin úr ykkar lík-
ömum veit ég að þið eruð ekki langt
undan og vakið alltaf yfir okkur og
gefið okkur styrk þegar við þurfum á
honum að halda.
Kveðja
Helga Margrét.
Afi minn ég á nokkrar minningar
sem ég man. Þegar ég kom heim til
þín varstu svo góður við mig og mér
leið eins og englar svifu í kringum
mig og ljós skini á mig. Þegar Helga
og Páll systkin mín voru í sveit með
þér og ömmu og Þurý þá komum við
seinna, ég, mamma og pabbi. Ég skar
mig og þú varst svo góður að hjálpa
mér að mér leið eins og þú og ég vær-
um litlir fallegir englar. Og þegar ég
spila á píanóið heima veit ég að þú ert
fallegur engill hjá mér.
Hanna Sólbjört.
Elsku afi minn.
Ég sit hér eftir í mikilli sorg, afi
minn er farinn líka. Tæpir tveir mán-
uðir síðan amma dó.
Þú fórst svo snöggt. Ég trúði því
innilega að þú myndir ná þér af veik-
indunum, og fara aftur í sund eins og
þú hefur ávallt gert í gegn um tíðina.
Alveg frá því að ég var lítil stelpa.
En nú hefur þú kvatt þennan heim
og ert kominn til ömmu. Ég veit að
ykkur líður vel saman þar.
Nú er fallega heimilið ykkar
ömmu, sem hefur alltaf verið öllum
opið, tómt. Það er svo erfitt að sætta
sig við að þú sért farinn. Endalausar
minningar streyma um í huga mér.
Og vil ég þakka þér af öllu hjarta all-
ar þær stundir sem ég átti með þér.
Hvíl í friði.
Þín
Helga.
Elsku afi. Nú ertu kominn á betri
stað. Alveg erum við viss um að
amma hefur tekið á móti þér opnum
örmum. Ekki hefði hvarflað að okkur
þegar við hittumst um jólin að það
yrði í síðasta sinn sem við spjölluðum
saman. Þú leist betur út og virtist
vera að braggast, en svona er lífið
hverfult, það fer ekki allt eins og
maður hefði helst viljað. Við söknum
þín sárt og hefðum viljað hafa þig
lengur hjá okkur. Það er okkur þó
ákveðin huggun að vita að þú ert hjá
ömmu og að ykkur líður vel. Allar
minningarnar um ykkur ömmu eru
vandlega geymdar í hjörtum okkar,
þær munum við alltaf eiga.
Takk fyrir allt,
Soffía, Eybjörg og Bjarmi.
Ég á margar góðar minningar með
þér, afi minn, eins og það að þú hefur
alltaf verið hjá mér og fjölskyldunni
um jólin frá því að ég man eftir mér.
Og í sumar þegar ég gisti hjá þér,
Þurý og ömmu í Húsafelli í eina nótt
og í fyrrasumar þegar ég og Helga
gistum í nokkra daga í Búrfelli með
ykkur þremur og við fórum að veiða í
Fossá, Svo á ég fullt af öðrum góðum
minningum með þér og ömmu. Þegar
ég hugsa um þig finn ég fyrir mörg-
um góðum minningum og sorg, mig
langar svo til að knúsa þig og ömmu
og kyssa ykkur á kinnina. Mér þykir
vænt um ykkur.
Kveðja,
Páll Axel.
Góður félagi er fallinn frá. Þegar
gluggað er í sögugögn Landverndar
kemur eitt nafn oftar fyrir en önnur,
Gísli Júlíusson verkfræðingur. Gísli
gekk til liðs við stjórn Landverndar
árið 1984, þegar samtökin voru 15
ára, og tók virkan þátt í störfum sam-
takanna allt fram á sinn síðasta dag.
Hann var að vanda mættur á litlujól
Landverndar nú rétt fyrir þessi jól. Í
15 ára sat hann í stjórn Landverndar,
þar af í 10 ár sem varaformaður. Þeg-
ar stjórnarsetu lauk var honum falið
að vera skoðunarmaður reikninga
Landverndar, því starfi gegndi hann
þegar hann féll frá. Enginn hefur
sinnt ábyrgðarstörfum fyrir Land-
vernd jafnlengi og Gísli Júlíusson.
Gísli tókst á hendur ótalmörg verk
fyrir Landvernd, eins og líka glöggt
sést í fundargerðum af aðalfundum
og stjórnarfundum. Hann tókst á við
fjármál jafnt sem stefnumörkun í
landgræðslumálum og loftslagsmál-
um. Gísli var bæði ráðagóður og
þrautseigur baráttumaður fyrir um-
hverfis- og náttúruvernd, eins og líka
kom fram í málflutningi hans. Gísli
var framsýnn maður og fylgdist vel
með nýjungum í tækni og því sem
horfði til framfara á ýmsum sviðum.
Hann var hæglátur en einbeittur og
fjallaði um deilumál af nærgætni í
þeim tilgangi að sætta ólík sjónarmið.
Nú þegar komið er að skilnaðar-
stundu vill stjórn Landverndar
þakka þessum góða félaga og starf-
sama baráttumanni. Gísli Júlíusson
hefur með því hversu úthaldsgóður
hann var í starfi sínu skráð sig í sögu
Landverndar sem mikilsmetinn fé-
lagi.
Stjórn Landverndar,
landgræðslu- og umhverfis-
verndarsamtaka Íslands.
Kynni okkar Gísla Júlíussonar hóf-
ust á vettvangi Sjálfstæðisflokksins
fyrir nokkrum áratugum. Gísli var þá
áhugasamur forystumaður í hverfa-
samtökum flokksins hér í borginni.
Áhugi hans á málefnum samfélagsins
var eindreginn enda var Gísli ósér-
hlífinn og baráttufús. Ásamt nokkr-
um valinkunnum forystumönnum fé-
lagsstarfs í Sjálfstæðisflokknum
stofnuðum við óformlegan félagsskap
í þeim tilgangi að taka veðrið í stjórn-
málum líðandi stundar. Hópurinn
gekk undir nafninu Veðurstofan og
innan hans fóru fram hreinskiptar
umræður um það hvernig styrkja
mætti stöðu flokksins. Umræðurnar í
Veðurstofunni urðu mér notadrjúg-
ar, þegar ég gegndi ráðherraembætti
á síðasta áratug enda voru félagarnir
ósparir á að láta álit sitt í ljós jafnt á
embættisverkum einstakra ráðherra
sem og stjórnarstefnunni. Þar átti
Gísli Júlíusson drjúgan þátt í mál-
efnalegri umfjöllun.
Gísli Júlíusson var Landsvirkjun-
armaður í 26 ár. Hann varð fyrsti
stöðvarstjóri Búrfellsvirkjunar 1968
en hún var gangsett ári síðar og þar
starfaði hann til ársins 1972. Eftir
það vann Gísli að ýmsum mikilvæg-
um verkefnum fyrir Landsvirkjun til
ársloka 1994, þegar hann lét af störf-
um fyrir aldurs sakir.
Gísli var náttúruverndarmaður í
besta skilningi. Um árabil sat hann í
stjórn Landverndar. Einnig starfaði
hann í skátahreyfingunni. Hann rit-
aði greinar í blöð og tímarit m.a. um
varmadælur og rafmagnsbíla og sat
um langt skeið í orðanefnd rafmagns-
verkfræðideildar Verkfræðinga-
félagsins.
Við leiðarlok kveð ég Gísla Júl-
íusson með þökk fyrir ánægjulegt
samstarf og góða vináttu. Hans verð-
ur ávallt minnst fyrir óeigingjörn
störf og brennandi áhuga á framfara-
málum þjóðarinnar.
Friðrik Sophusson.
Þegar sólin hefur hafið sína öruggu
og hægu ferð í átt að vorinu kveður
Gísli Júlíusson þennan heim.
Vorið og jarðagróður voru Gísla
ákaflega hugleikin og kom það skýrt í
ljós þau árin sem hann átti sæti í
stjórn Landverndar og sem varafor-
maður samtakanna um 10 ára skeið.
Það er líklega óhætt að segja að
margir voru hugsi þegar verkfræð-
ingur frá Landsvirkjun tók sæti í
stjórninni – það kynni ekki góðri
lukku að stýra. Það kom hins vegar
fljótt í ljós að mannkostir Gísla, ein-
lægur samningavilji, góðar hug-
myndir og góð ráð voru honum efst í
huga í öllu hans starfi innan Land-
verndar. Eftir á að hyggja þá hlýtur
hann oft að hafa þurft að vega og
meta í hvorn fótinn ætti að stíga í
ýmsum málum sem voru til umfjöll-
unar, en á þessum tíma urðu miklar
breytingar í rekstri samtakanna þeg-
ar samningar tókust við kaupmenn
um Pokasjóð Landverndar. Á sinn
hógværa en ákveðna hátt kom Gísli
að málum og leitaði sátta ef á þurfti
að halda. Landgræðsla og orku-
sparnaður voru hans hjartans mál og
á árum áður vann hann ötullega að
landgræðslustörfum í Þjórsárdal
sem stöðvarstjóri og verkfræðingur
Landsvirkjunar við Búrfell, ennfrem-
ur eru það ófáar greinar sem hann
ritaði í dagblöð og tímarit um raf-
magn og orkusparnað – allt var þetta
af umhyggju fyrir náttúrunni og um-
hverfinu.
Starf Gísla innan Landverndar var
ekki eingöngu stjórnarseta og alvar-
leg afgreiðsla mála því alltaf var hann
tilbúinn að rétta hjálparhönd ef á
þurfti að halda og eru margar góðar
minningar frá málningar- og tiltekt-
arvinnu og ræktunarstörfum í um-
hverfisfræðslusetri Landverndar að
Alviðru en í því máli sem öðrum lét
Gísli ekki sitt eftir liggja og bar hag
staðarins fyir brjósti.
Það hefur lengi staðið til að hittast
og rifja upp góð kynni og gott sam-
starf – af því verður ekki úr þessu en í
stað koma fátækleg orð og hugsanir
sem renna nú fram í hugann.
Hafðu þökk fyrir samstarfið að
náttúru- og umhverfisvernd og fram-
lag þitt til góðra verka á því sviði.
Auður Sveinsdóttir.
GÍSLI
JÚLÍUSSON
Fleiri minningargreinar
um Gísla Júlíusson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Bergur Jóns-
son, Jakob Björnsson og Jóhann
Már Maríusson.