Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 40
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÞETTA ER EINN AF ÞESSUM DÖGUM
SEM MAÐUR KEMUR ENGU Í VERK
ÉG VEIT ALVEG HVAÐ
ÞÚ ÁTT VIÐ...
1994 VAR
ÞANNIG HJÁ MÉR
HÆ KALLI!
ÞETTA ER
PATTA... HVAÐ
SEGIR ÞÚ?
ÉG ÞARF Á HJÁLP ÞINNI AÐ
HALDA KALLI. LIÐIÐ OKKAR
Á AÐ SPILA Á EFTIR OG EINN
LEIKMAÐURINN OKKAR ER
VEIKUR ÞANNIG AÐ...
VILTU AÐ ÉG SPILI FYRIR
LIÐIÐ ÞITT Í DAG?
NEI, OKKUR VANTAR BARA
AÐ FÁ HANSKANN ÞINN
LÁNAÐANN...
MAMMA, FÆ ÉG PENING
TIL ÞESS AÐ
KAUPA PLÖTU MEÐ
DJÖFLADÝRKANDI
ROKKHLJÓMSVEIT
Í SJÁLFSVÍGS-
HULEIÐINGUM
KALVIN, SÚ STAÐREYND AÐ
ÞEIR ERU EKKI BÚNIR AÐ
FREMJA SJÁLFVÍG Í
TRÚARATHÖFN TIL HEIÐURS
MYRKRAHÖFÐINGJANUM
SÝNIR AÐ ÞEIR ERU BARA Í
ÞESSUM BRANSA TIL ÞESS
AÐ FÁ PENING EINS OG ALLIR
AÐRIR. ÞANNIG AÐ ÞETTA
HNEYSLAR
ENGANN
LENGUR
ER ÞÁ
EKKI EINU
SINNI HÆGT
AÐ TREYSTA
SJÁLFS-
HATRI?!
ÞVÍ MIÐUR
KALLINN
MINN
ÞAÐ ER SVO ERFITT
FYRIR KRAKKA AÐ
BERJAST GEGN KERFINU
Svínið mitt
© DARGAUD
HVAÐ
GENGUR Á
HÉR?
ÞETTA ER RÓLAND.
HANN ER AÐ SÝNA
NÝJUSTU GRÆJUNA FLOTTUR
MAÐUR!
ÞETTA ER
SNILLD
VÁ!
ÞETTA ER EKKERT
SMÁ SVALT!
ÞAÐ SNÝR ALLTAF Í
NORÐUR JAFNVEL ÞEGAR
MAÐUR VEIT EKKI HVAR
MAÐUR ER. MAÐUR
TÝNIST ALDREI!
HRINGIR
ÞAÐ?
HRINGIR
ÞAÐ?
HRINGIR ÞAÐ?
ÉG GET STILLT Á
85 MISMUNANDI
LÖG Í THX
VALS,
TEKNÓ,
HIPPHOPP
ROKK
POPP
ÞAÐ MÆLIR
HITANN
ÞAÐ GETUR
MÆLT PÚLSINN
HRINGIR
ÞAÐ?
ÞAÐ MÆLIR LÍKA
STYRKLEIKA
VÖÐVANA MEÐ
SEGLI EF MAÐUR
VILL
SJÁÐU BARA
STÓRA VÍSINN
ÞEGAR ÉG SPENNI
EN
HRINGIR
ÞAÐ?
EF MAÐUR TOGAR
Í ÞENNAN HNAPP
ÞÁ KEMUR UPP
LOFTNET
HRINGIR
ÞAÐ?
ÞAÐ VELUR STÖÐ
SJÁLFKRAFA
NÆRÐU AFRÍKU-
RÁSINNI EÐA
107,4
GROIN!!
GROIN!
HVAÐ VILTU?
HVAÐ ER VINUR
ÞINN AÐ REYNA
AÐ SEGJA MÉR?
HANN VILL BARA VITA
HVAÐ KLUKKAN ER
GROIN!
ÖÖ!!
ÖÖÖ!!
GROIN!
AULI!
HUMM!
FÍFL! GROIN!
Dagbók
Í dag er föstudagur 7. janúar, 7. dagur ársins 2005
Víkverji sagði frá þvífyrir viku þegar
hann sat í kirkju um-
kringdur fermingar-
börnum, sem voru svo
upptekin við að senda
og lesa SMS-skeyti að
guðsorðið hlaut að fara
fyrir ofan garð og neð-
an. Þetta varð til þess
að einn af viðmæl-
endum Víkverja sagði
honum sögu, sem sýnir
fram á að ekki eru það
bara fermingarbörn,
sem verða fyrir því að
upplýsingatæknin
ræni þau athyglinni.
x x x
Heimildarmaðurinn settist nýlega áskólabekk í háskóla, kominn hátt
á fertugsaldur. Þegar hann var síðast
í háskóla notaði fólk stílabækur til að
taka glósur, en nú þykir enginn mað-
ur með mönnum nema nota fartölvu
til að glósa. Aldurhnigni stúdentinn
notfærði sér tæknina auðvitað líka,
ræsti ritvinnsluforritið í fartölvunni
sinni og fannst hann bara nokkuð ný-
móðins. Fljótlega komst hann að
raun um að yngri samnemendur hans
voru aldeilis ekki bara að nota rit-
vinnslu til að taka glósur, heldur lágu
þeir á Netinu, lásu mbl.is, fóru yfir
tölvupóstinn sinn,
skrifuðu inn á blogg-
síður, skiptust á skila-
boðum við kunn-
ingjana á MSN-inu
o.s.frv.
x x x
Allt átti þetta sérstað á meðan heita
átti að fólk sæti í fyrir-
lestri. Víkverji veltir
því fyrir sér, hvort það
sé virkilega hægt að ná
einhverju af því, sem
kennarinn er að segja,
samhliða þessari mjög
svo virku netnotkun.
Hann veltir því líka fyrir sér hvort
þetta sé nokkuð öðru vísi en að vera
t.d. með nefið ofan í bók í miðjum fyr-
irlestri og sér ekki fyrir sér að hans
gömlu kennarar í háskóla hefðu liðið
að stúdentar væru á kafi í bókum í
fyrirlestrum – jafnvel þótt það væru
fræðibækur.
x x x
En kannski er þetta bara gamal-dags tuð í Víkverja. Kannski eru
hann og heimildarmaður hans bara á
eldra þróunarstigi en rúmlega tvítug-
ir stúdentar, sem hafa hæfileika til að
fylgjast með mörgu í einu og halda
fullri athygli.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Þjóðarbókhlaða | Þrjátíu ára afmæli Kvennasögusafns Íslands var fagnað við
hátíðlega athöfn í gær, en safnið var stofnað þ. 1. janúar 1975. Í tilefni afmæl-
isins sagði forstöðumaður safnsins, Auður Styrkárdóttir, frá sögu safnsins
auk þess sem Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur reifaði helstu atburði
kvennaársins og fyrirhugaðar aðgerðir kvennasamtaka á árinu 2005, en með-
al þeirra atburða verður Þingvallafundur kvenna 19. júní og Útifundur
kvenna 24. október. Þær Kristín og Auður rýndu við þetta tilefni saman í
gamlar blaðaúrklippur sem hafa að geyma ýmsan fróðleik um viðhorf og við-
burði hvers tíma.
Morgunblaðið/Þorkell
Blaðað í kvennasögunni
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Og nú fel ég yður Guði og orði náðar hans, sem máttugt er að uppbyggja
yður og gefa yður arfleifð með öllum þeim, sem helgaðir eru. (Post. 20, 32.)