Morgunblaðið - 07.01.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 41
DAGBÓK
Gítarskóli Ólafs Gauks, sem verðurþrjátíu ára á þessu ári, hefur kennsluá vorönn 24. janúar nk. og stendurinnritun nemenda nú yfir. Í skólanum
eru yfir tuttugu námskeið í boði, sem öll eru
sérsamin. Fá nemendur í hverjum tíma bækur
og geisladiska með æfingum. „Ég er afar
hreykinn af því námsefni sem ég hef verið að
semja undanfarin tuttugu ár eða meira,“ segir
Ólafur Gaukur tónlistarmaður, sem hefur
stundað tónlistina í rúma hálfa öld. „Þetta er
reynsla sem hefur verið að byggjast upp, bæði
af kennslu, tónlistarflutningi og af því að semja
og framleiða plötur.“ Ólafur hefur verið afar ið-
inn við útgáfu platna en eftir hann liggja á ann-
að hundrað plötur sem hann hefur komið að
sem tónlistarmaður, lagahöfundur, útsetjari og
fleira.
Hvað er það sem heillar við tónlistina?
„Ég get ekki svarað því, en það er rétt, hún
heillar. Það hafa margir reynt að útskýra tón-
listina, en ég hef aldrei getað séð neitt sem ég
hef getað samþykkt sem endanlegt mat á
henni. Fyrir mig gefur hún lífinu gildi. Án
hennar væri það mjög fátæklegt. Hún hjálpar
manni með tjáningu og útrás, sorg og gleði og
allt þar á milli. Þetta er töluvert svið.“
Er nokkurn tíma of seint að hefja tónlist-
arnám?
„Í fyrsta lagi held ég að það sé aldrei of seint
að hefja neitt nám. Mér finnst að maðurinn
ætti aldrei að hætta að læra og alltaf að vera
að bæta við sig. Ég held að það verði þannig í
framtíðinni að menn verði að taka minni stökk í
einu en oftar.
Sérstaklega með tónlist er það aldrei of
seint. Strax og þú tekur þér hljóðfæri í hönd,
sérstaklega svona lítið og tiltölulega einfalt
hljóðfæri eins og gítarinn, þá færðu ákveðna
ánægju og lífsnautn út úr því að gutla með
þessa tóna, að fá þessa tóna inn í þinn heim,
þína veröld. Það er lífselexír að fá tónlistina til
sín. Svo getur maður jafnvel gaulað einhverja
lagstúfa eftir sjálfan sig og sett hljóma við.
Það er kannski stóri kosturinn við gítarinn
að hann er einfaldur í byrjun ef maður tekur
þetta ekki of alvarlega heldur leikur sér dálítið
með hljóðfærið. Síðan er alltaf hægt að bæta
við sig í allar mögulegar áttir, það þrýtur aldr-
ei.
Ég byrjaði sjálfur seint að vinda mér út í það
að opna dyr sem voru að lokast, að mér fannst,
og það hafði góð áhrif. Að læra eitthvað nýtt á
miðjum aldri breytir alveg lífinu, maður verður
miklu yngri. Maður yngist um tíu til tuttugu ár
við svoleiðis lagað, svo mikið er víst. Maður er
að ögra heilanum og brjóta sig upp úr viðjum
vanans.“
Tónlist | Gítarskóli Ólafs Gauks verður þrjátíu ára í ár
Lífselexír að læra eitthvað nýtt
Ólafur Gaukur Sím-
onarson er fæddur árið
1930 í Reykjavík. Hann
lauk stúdentsprófi frá
MA árið 1949 og lærði á
gítar hjá Sigurði Briem.
Þá lærði hann poppgít-
arleik í bréfaskóla
Helge Jacobsen, í Dan-
mörku. Árið 1988 út-
skrifaðist hann úr námi
í tónsmíðum fyrir kvik-
myndir frá Grove
School of Music og lærði einnig í Guitar
Institute of Hollywood árið 1992. Ólafur hefur
starfað sem tónlistarmaður síðan 1947 og
einnig við kennslu og tónsmíðar frá tvítugs-
aldri. Ólafur er kvæntur Svanhildi Jakobs-
dóttur og eiga þau tvö uppkomin börn.
Aksturshraði á milli
Hveragerðis og Reykjavíkur
ÞAÐ er ótrúlegt, hversu margir
ökumenn aka langt undir hámarks-
hraða á milli ofangreindra staða,
þrátt fyrir þokkaleg og stundum
ágætis skilyrði. Ég ek nær daglega á
milli Hveragerðis og Reykjavíkur og
verð margoft vör við bílalestir, sem
skapast þegar einn óöruggur bíl-
stjóri safnar á eftir sér vanari eða
öruggari bílstjórum, sem oft reyna
þá að skjótast fram úr við misjöfn
skilyrði. Að aka þessa leið (ég er
ekki að tala um heiðina eingöngu) á
50–70 km hraða við góð skilyrði
nema fyrir lélega eða illa útbúna
bíla, skapar gífurlega hættu vegna
framúraksturs. Væri ekki hægt að
setja upp nokkur skilti, þar sem
ökumenn væru beðnir um að aka
ekki langt undir hámarkshraða
nema sérstök veður- eða færðarskil-
yrði séu fyrir hendi?
Hvergerðingur.
Salt hangikjöt
ÉG vil taka undir orð konunnar sem
skrifar í Velvakanda sl. þriðjudag
um að hangikjöt sé of salt. Þetta er
alveg rétt, kjötið er saltað allt of
mikið nú orðið. Núna um jólin varð
ég að skipta um soð á hangikjötinu
því ég hef rekið mig á það undan-
farin ár að kjötið verður sífellt salt-
ara.
Margrét.
Grá húfa týndist
GRÁ húfa úr þæfðri ull tapaðist á
gamlárskvöld, að öllum líkindum
fyrir framan Kleppsveg 4. Húfan
var jólagjöf og þætti mér mjög vænt
um að endurheimta hana. Skilvís
finnandi vinsamlegast hafi samband
við Ólöfu í 699 1165 eða 552 9586.
GSM-sími týndist
GSM-SÍMI með Harry Potter-fram-
hlið týndist 21. desember á milli
Borgartúns og Laugavegs. Skilvís
finnandi hafi samband í síma
565 2818 eða 863 2424.
Pelstrefill í óskilum
DÖKKBRÚNN pelstrefill, lítill með
dúskum á endum, fannst á bílastæði
Landspítalans við Hringbraut sl.
þriðjudag. Upplýsingar í síma
560 4253.
Skór teknir í misgripum
SKÓR sonar míns voru teknir í mis-
gripum í Skautahöllinni í Laugardal
fimmtudaginn 16.desember sl. Þetta
eru brúnir gönguskór með svörtum
hælkappa og eru nr. 37. Í stað þeirra
voru skildir eftir gráir Lowa-skór
nr. 40 sem eru hjá mér. Ef einhver
er með skóna er hann beðinn að hafa
samband við Auði í síma 862 0258.
Pokar týndust við
Seilugranda
POKAR með sundfötum, snyrtidóti,
flugeldum, ferðageislaspilara,
myndvél o.fl. týndist við stoppustöð
við Seilugranda 30. desember sl.
Skilvís finnandi hafi samband í síma
691 0069.
Svört lítil læða í óskilum
SVÖRT læða, 6-7 mánaða, er í óskil-
um í Auðarstræti 19. Hún er
ómerkt. Upplýsingar í síma
551 6337.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Þraut fyrir bölsýnismenn.
Norður
♠D32
♥DG104
♦Á52
♣763
Suður
♠ÁKG874
♥ÁK
♦4
♣ÁG54
Suður verður sagnhafi í sex spöðum
og fær út tíguldrottningu. Hvernig er
öruggast að spila?
Í hreinskilni sagt myndu flestir spila
þannig: Drepa á tígulás, taka ÁK í
spaða og síðan ÁK í hjarta, hvort sem
trompið er komið eða ekki. Spila blind-
um inn á spaðadrottningu og henda
tveimur laufum niður í litlu hjónin í
hjarta. Ef trompið reynist vera 4-0
þegar spaðaásinn er tekinn, má skipta
um áætlun, spila laufás og laufi og
reyna við eina laufstungu í borði og
treysta á hjartað 4-3.
Allt í allt, nokkuð gott, en samt ekki
nógu gott ef hjartað er 6-1 og trompið
3-1.
Norður
♠D32
♥DG104
♦Á52
♣763
Vestur Austur
♠965 ♠10
♥7 ♥986532
♦DG1076 ♦K983
♣K1082 ♣D9
Suður
♠ÁKG874
♥ÁK
♦4
♣ÁG54
Sannir bölsýnismenn spila þannig:
Drepa á tígulás, spila tígli í öðrum slag
og henda hjartaásnum heima! Nú er
nóg að taka einu sinni hjarta áður en
vestur er aftrompaður með spaða-
drottningu blinds, en síðan fara þrjú
lauf niður í DG10 í hjarta.
„Það er vont en það versnar.“
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 Rf6 4. Rc3 cxd4
5. Rxd4 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be7 8. f3
Be6 9. Dd2 O-O 10. O-O-O Rbd7 11. g4
Dc7 12. Kb1 b5 13. g5 Rh5 14. f4 exf4
15. Bxf4 Rxf4 16. Dxf4 Re5 17. Rd4
Dc5 18. h4 b4 19. Rd5 Bxd5 20. exd5 a5
21. Bg2 Hfc8 22. Rc6 Bf8 23. h5 g6 24.
hxg6 hxg6 25. Hh3 Bg7 26. Hdh1 Hc7
Staðan kom upp í netkeppni fjögra
landsliða sem lauk fyrir skömmu á ICC
skákþjóninum. Peter Svidler (2735)
hafði hvítt gegn Xiangshi Bu (2615).
27. Df6! og svartur gafst upp enda hót-
ar hvítur að máta með Hh3-h8 og ef
hann þiggur drottninguna með 27...
Bxf6 verður hann óverjandi mát eftir
28. gxf6.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur,
Gígja Björg Guðjónsdóttir og Erla
Mekkín, söfnuðu kr. 4.150 til styrktar
Rauða krossi Íslands. Með þeim á
myndinni er Þórður Guðjónsson.
Morgunblaðið/Ómar
STYRKTARSJÓÐUR Halldórs Hansen
verður formlega stofnaður í dag kl. 16 í
Salnum, Kópavogi, og verður boðið til há-
tíðarsamkomu af því tilefni. Bergþór Páls-
son söngvari mun minnast Halldórs og
starfa hans í þágu tónlistar, tilkynnt verð-
ur um verðlaunahafa sjóðsins á árinu
2004 og koma þeir fram á samkomunni.
Einnig verður tilkynnt um afhendingu
fyrsta framlags sjóðsins til uppbyggingar
tónlistarbókasafns LHÍ.
Halldór Hansen barnalæknir ánafnaði
Listaháskóla Íslands veglegu tónlistar-
safni sínu fyrir þremur árum, auk þess
sem hann arfleiddi skólann að öllum eig-
um sínum, með þeim formerkjum að þeim
yrði ráðstafað í sérstakan styrktarsjóð í
hans nafni.
Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja
uppbyggingu og styðja við tónlistarsafn
Listaháskóla Íslands. Auk þess veitir
sjóðurinn árlega tónlistarnemum, sem
náð hafa framúrskarandi árangri að mati
sjóðsstjórnar, styrki til frekara náms.
Morgunblaðið/Arnaldur
Hátíðarsamkoma Styrktarsjóðs
Halldórs Hansen í Salnum
Ljósmyndasýningu
Ara Sigvaldasonar
fréttamanns, sem
staðið hefur í Gerðu-
bergi síðan 19. nóv-
ember, lýkur nú á
sunnudaginn.
Myndir Ara eru
mannlífsmyndir af
götunni, teknar víðs
vegar um heiminn á
árunum 1988 til
2004. Þetta eru
skyndimyndir að því
leyti að þær eru
teknar án alls und-
irbúnings en einnig
eins konar laumu-
myndir því fólkið á myndunum vissi
fæst af því að það væri myndað fyrr en
eftir á. Að sögn Ara er það gert til að
fanga stemningu, ná sérstökum svip-
brigðum og augnablikum. Þótt flestar
myndanna sýni spaugilegar hliðar á
mannfólkinu eru aðrar ljúfsárar. Segja
má að þær sýni vel fjölbreytileika
mannlífsins.
Að sögn starfsfólks Gerðubergs hefur
sýningin hlotið mikla athygli og aðsókn
verið mjög góð.
Mannlífsmyndir Ara á hverfanda hveli