Morgunblaðið - 07.01.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 43
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, al-
menn handavinna, böðun, fótaaðgerð,
frjálst að spila í sal.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist spiluð í Gullsmára 13 kl. 20.30.
Brids í Gjábakka kl. 13.15.
Félag eldri borgara Reykjavík |
Fræðslunefnd FEB verður með kynn-
ingu í Ásgarði, Glæsibæ, kl. 14–16. Það
er leikur að læra. Kynning á nám-
skeiðum o.fl. sem margt er sniðið að
þörfum eldri borgara á vorönn.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Gleði-
gjafarnir koma saman kl. 14 og syngja
undir stjórn Guðmundar Magnússonar.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Garðaberg er opið frá kl. 12.30 til 16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Opið frá 9–
16.30, m.a. spilasalur eftir hádegi.
Þriðjudaginn 11. janúar byrjar gler-
skurður og postulínsnámskeið. Allar
upplýsingar á staðnum s. 575 7720 og
www.gerduberg.is.
Furugerði 1 | Kl. 9, aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður, kl. 14, sagan, kl. 15
kaffiveitingar.
GA-fundir (Gamblers Anonymous) |
Fundir fyrir spilafíkla eru alla föstudaga
í Laugarneskirkju, safnaðarheimilinu kl.
20. Allir velkomnir. Tekið vel á móti ný-
liðum.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, útskurður, hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerð, kl. 12 hádegismatur, kl. 13
bókabíllinn, kl. 14 bingó, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Bridge kl. 13. Skráning hafin
á þorrablótið sem verður 22. janúar.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu. Böðun virka daga
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er opið
öllum. Tréskurður, myndlist, leirlist,
glerlist, framsögn, bókmenntahópur,
leshópur, söngur, gönguhópur, gönu-
hlaup, leikfimi o.fl. Bridge í dag kl. 13.30.
Hárgreiðslustofa 568-3139. Fótaað-
gerðarstofa 897-9801. Ganga laug-
ardaga kl. 10. Uppl. í s. 568–3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 hefst nýtt nám-
skeið í myndlist, kl. 10 boccia, kl. 14 leik-
fimi. Innritun í síma 568-6960.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30 hannyrðir,
kl. 13.30–14.30 sungið v/flygilinn, kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar, kl. 14.30–16
dansað í aðalsal, kl. 13.30 verður sungið
við undirleik Sigurbjargar Petru.
Vitatorg félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, leirmótun og hárgreiðsla kl. 9,
morgunstund og fótaaðgerð kl. 9.30,
leikfimi kl. 10, bingó kl. 14. Skráning haf-
in í námskeiðin upplýsingar í síma 561
0300. Allir aldurshópar velkomnir.
Kirkjustarf
Hallgrímskirkja | Starf með öldruðum
alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15.
Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bæna-
stund alla laugardaga kl. 20. Einnig er
bænastund alla virka morgna frá 06–
07. Almenn samkoma sun. 9. jan. kl.
16.30. Ræðum. Mike Fitzgerald. Gosp-
elkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Aldurs-
skipt barnakirkja á meðan á samkomu
stendur.
Morgunblaðið/Ómar
Stóra-Borg í Grímsnesi.
DAGBÓK
ÁKVEÐIÐ hefur verið að framlengja
sýningar á leikriti Braga Ólafssonar,
Belgíska Kongó, sem frumsýnt var í
Borgarleikhúsinu sl. vor. Til stóð að
hafa örfáar sýningar á verkinu í haust,
en vegna mikilla vinsælda hefur nú ver-
ið bætt við sýningum og eru þær fyr-
irhugaðar til febrúarloka. Eggert Þor-
leifsson hafði ætlað sér í hálfs árs frí
frá og með áramótum, en frestaði því
vegna vinsælda verksins. Nýr leikari,
Davíð Guðbrandsson, tekur þó við hlut-
verki Hilmars, langömmubarns Rósa-
lindar, en hann leysir Gunnar Hansson
af í hlutverkinu. Davíð útskrifaðist úr
Leiklistardeild LHÍ vorið 2003 og er
þetta hans fyrsta hlutverk í Borgarleik-
húsinu.
Belgíska Kongó framlengt fram í febrúar
Ljósmynd/Sigfús Már Pétursson
POPS, ein þekktasta sveit ’68-
kynslóðarinnar, ætlar að heiðra
minningu Péturs heitins Kristjáns-
sonar, stofnanda Pops, með sínum
hætti á Kringlukránni um helgina,
en þeim til aðstoðar kemur sjálfur
konungur rokksins á Íslandi, Rúnar
Júlíusson.
Pops hefur í meira en áratug
skemmt gestum á Kringlukránni í
kringum þrettándann við góðan
orðstír. „Þetta er árlegur við-
burður og hefur verið í yfir ára-
tug,“ segir Óttar Felix Hauksson,
gítarleikari Pops, en sveitin var
endurvakin á 25 ára afmæli hennar
1992 að frumkvæði Óla Laufdal,
verts á Broadway, sem átti einmitt
frumkvæði að minningartónleik-
unum um Pétur Kristjánsson, sem
fram fóru í gærkvöldi. „Síðan réð
’68-kynslóðin okkur til að leika á
nýársfagnaði sínum á Hótel Sögu 1.
janúar 1993 og við lékum þar
sleitulaust til ársins 2003, eða sam-
fellt í ellefu ár. Síðan þá höfum við
ávallt haldið dansleiki eina til tvær
helgar um áramótin, því þá erum
við búnir að æfa upp og komnir í
gang og höfum þá viljað aðeins
leyfa fleirum að komast að til að
hlusta á Pops.“
Óttar segir vissulega missi að
Pétri Kristjánssyni, sem gæddi tón-
listina miklu lífi. „Við fengum hinn
landskunna rokkkóng Rúnar Júl-
íusson til liðs við okkur, en Pétur
og Rúnar eru um margt andlegir
bræður. Rúnar er vel til þess fallinn
að syngja lögin hans Péturs,“ segir
Óttar. „Við erum vissir um að Pét-
ur hefði ekki viljað að við legðum
árar í bát og okkur finnst við
heiðra best minningu Péturs með
því að halda henni hátt á loft og
rokka feitt á Kringlukránni um
helgina. – Sýningin verður að halda
áfram. En við söknum vissulega
Péturs, það eru ekki nema fjórir
mánuðir síðan hann dó og Pétur
kemur upp í huga manns í hverri
viku. Það er skarð fyrir skildi, því
Pétur var stór í sniðum og litríkur
persónuleiki sem setti svip á mann-
lífið og auðgaði mannlífsflóruna.“
Frábær skilyrði fyrir
dægurlagatónlist
Óttar segir sannkallaða „sixties-
sveiflu“ munu verða uppi um alla
veggi þegar Pops og Rúnar flytja
alla smellina með Bítlunum, Stones,
Kinks, Small Faces o.fl. Drengirnir
munu í minningu Péturs sann-
arlega halda kyndli hinna gömlu
meistara dægurtónlistarinnar hátt
á loft. „Ég held hreinlega að það
sem gerði þessa músík svo frábæra
hafi verið skilyrðin,“ segir Óttar,
spurður um ástæður ágætis þess-
ara afkvæma fyrstu ára rokksins.
„Á þessum tíma voru svo frábær
skilyrði fyrir dægurlagatónlist.
Það er að vaxa upp kynslóð eftir
stríðið sem hefur rýmri efnahag,
meiri tíma og betri aðgang að tón-
listararfinum. Það er vöxtur víðast
hvar í hinum vestræna heimi og
vöntun á afþreyingu. Í þessu ný-
fengna frelsi, þar sem menn fara
milli landa og yfir landamæri, verð-
ur til mikill suðupottur sem upp úr
gýs geysilega mikið af góðri tónlist
sem leggur grunn að því sem
seinna kom. Þróun dægurtónlist-
arinnar í dag er mikið byggð á
þessum grunni sem að miklu leyti
var lagður á sjöunda og áttunda
áratugnum,“ segir Óttar, sem lofar
skemmtilegri og lifandi stemmn-
ingu í kvöld og annað kvöld.
Tónlist | Pops gleður landann á Kringlukránni um helgina
„Sixties-sveifla“ upp
um alla veggi
Morgunblaðið/Golli
Hljómsveitin Pops æfir upp slagara sjöunda og áttunda áratugarins ásamt rokkkónginum Rúnari Júlíussyni.
Dansleikur Pops hefst kl. 23 og
stendur til 3 og kostar 1.500
krónur inn.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos