Morgunblaðið - 12.01.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 10. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Í mörg horn
að líta
Umbrotatímabil fram undan á
Fljótsdalshéraði | Minn staður
Bílar og íþróttir í dag
Bílar | Nýr Discovery 3 Reynsluakstur: BMW x3
2,0D Dakar-rallið Íþróttir | Lehman segist ekki á
förum frá Arsenal Var Garcia skipað að taka frí?
LANDSSÖFNUNIN Neyðarhjálp úr norðri
hófst í gær en að henni standa m.a. mannúðar-
samtök, níu útvarpsstöðvar, þrjár sjónvarps-
stöðvar, þrjú dagblöð, þrjár verslunarmið-
stöðvar, listamenn og fyrirtæki.
Safna á fé til að aðstoða þá sem lifðu af hamfar-
irnar í Asíu og til að byggja upp á hamfarasvæð-
unum. Landssöfnunin var kynnt á blaðamanna-
fundi í gær. Söfnunin nær hámarki á laugardag
með sameiginlegri beinni útsendingu Sjónvarps-
ins, Stöðvar 2 og Skjás eins, og er það í fyrsta
sinn sem þessir aðilar taka höndum saman um
slíka útsendingu að sögn Elínar Þorsteinsdóttur,
verkefnisstjóra landssöfnunarinnar. Hún segir
að aldrei fyrr hafi svo margir aðilar á Íslandi tek-
ið höndum saman um neyðarhjálp til útlanda.
Þegar hafa safnast um 250 milljónir kr. hér á
landi. Munar þar mest um ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar að veita 150 milljónir til hjálparstarfsins
„Það ber að þakka og taka fram að það hafa aldr-
ei verið eins góð viðbrögð við neinu málefni fram
að þessu, en öll viðbót er vel þegin,“ segir Elín
um viðbrögð landsmanna við söfnuninni.
Fénu verður varið í neyðarhjálp og uppbygg-
ingarstarf á næstu árum af fimm mann-
úðarsamtökum; Barnaheillum, Hjálparstarfi
kirkjunnar, Rauða krossi Íslands, SOS-
barnaþorpum og Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna.
Alla vikuna verður hægt að hringja í söfn-
unarsímanúmer til að veita fé til söfnunarinnar.
Þá munu sjálfboðaliðar safna fé í verslunar-
miðstöðvum. /6
Íslenska þjóðin tekur höndum
saman í Neyðarhjálp úr norðri
Morgunblaðið/Þorkell
Landssöfnunin Neyðarhjálp úr norðri kynnt á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær: Jakob Frímann Magnússon, f.h. listafólks, Grétar
Þorsteinsson, formaður ASÍ, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri, Jónas Þ. Þórisson, Hjálparstarfi kirkjunnar, Vigdís Finnbogadóttir, vernd-
ari söfnunarinnar, Elín Þorsteinsdóttir verkefnisstjóri og Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka Íslands.Á nú fyrir
sígarettum
MAÐUR nokkur í hverfinu Friðriksbergi í
Kaupmannahöfn var um daginn að leita
að sígarettum í drasli hjá sér og fann þá
þriggja mánaða gamlan lottómiða, að
sögn Jyllandsposten. Vinningurinn reynd-
ist vera nær 19 milljónir danskra króna,
um 210 milljónir ísl. kr. Maðurinn fékk
vinninginn greiddan út á mánudag.
„Ég varð sígarettulaus eitt kvöldið og
fór þá að leita í drasli heima hjá mér,“
sagði maðurinn sem ekki vill láta nafns
síns getið. „Þá fann ég jóker-seðilinn.“
Vinningshafinn sagðist hafa orðið mjög
hissa þegar í ljós kom að hann hafði unnið.
„Síðan hef ég varla getað sofið,“ bætti
hann við. „En ég hef látið mig dreyma um
margt og nú ætla ég að láta suma
draumana rætast.“
FÁRVIÐRIÐ, sem geisaði í Norð-
ur-Evrópu um síðustu helgi, olli gíf-
urlegum skógarsköðum í Svíþjóð
og Eystrasaltslöndum, þeim mestu
í að minnsta kosti 100 ár. Í Svíþjóð
svara trén, sem féllu, til fjögurra
ára skógarhöggs.
Samtök skógareigenda í Svíþjóð
áætla, að veðrið hafi fellt 60 millj-
ónir rúmmetra af viði og sumir litlir
skógarbændur sáu næstum allan
sinn skóg leggjast út af. Er skaðinn
metinn á allt að 276 milljarða ísl. kr.
og hætta er á, að hundruð smárra
og ótryggðra skógarbænda verði
gjaldþrota. Um 60% allra skógar-
bænda eru tryggð fyrir náttúru-
hamförum en 40% aðeins fyrir
skógareldum.
Miklir skaðar urðu einnig í Eist-
landi og enn meiri í Lettlandi og
ljóst er, að mikið af timbrinu mun
fara til pappírsgerðar en þá fæst
helmingi minna fyrir það en sög-
unarmyllurnar greiða. Hvort sem
er, þá er talið, að tímabundið of-
framboð á timbri muni valda verð-
lækkun á næstunni.
Óvenjulegt veðurfar
Eftir veðrið um helgina voru enn
í gær tugþúsundir manna án raf-
magns í Svíþjóð og Lettlandi en þar
hefur verið óvenju heitt í veðri.
Það, sem af er janúar, hefur hitinn
verið 11–12 gráðum hærri en til
jafnaðar á þessum árstíma.
Ofsaveður var í gær á Írlandi og
Skotlandi. Í Londonderry lést mað-
ur er bíll hans fauk út af brú.
Fallin tré í Svíþjóð
svara til fjögurra
ára skógarhöggs
SCANPIX/Lars Ottosson
Einna mestu skógarskaðarnir í ofsaveðrinu um síðustu helgi urðu á
Norður-Skáni en þar liggja nú heilu skógarteigarnir flatir. Sömu sjón er
að sjá víða í Eystrasaltslöndunum, til dæmis í Eistlandi og Lettlandi.
Gífurlega miklir skógarskaðar af völdum fárviðrisins um síðustu helgi
Stokkhólmi, Riga, Dyflinni. AFP.
Hjörtu kvenna
eru sterkari
HJÖRTU kvenna eru sterkari en karla og
það kann að vera helsta skýringin á því að
þær lifa lengur, að því er breska ríkis-
útvarpið, BBC, hafði eftir vísindamönnum
í Bretlandi í gær.
Rannsókn vísindamanna við John Moor-
es-háskóla í Liverpool leiddi í ljós að
hjörtu karla missa allt að fjórðungi af dæl-
ingarkrafti sínum frá aldrinum 18 ára til
sjötugs. Litlar breytingar urðu hins vegar
á hjörtum kvenna frá tvítugu til sjötugs.
Talið er að þessi munur kunni að skýra
hvers vegna konur lifa að meðaltali allt að
fimm árum lengur en karlar.
David Goldspink, sem stjórnaði rann-
sókninni, sagði þó að tengd rannsókn
leiddi í ljós að karlmenn gætu styrkt
hjartað með hreyfingu. Hjörtu gamalla
íþróttamanna væru jafnsterk og tvítugra
manna sem ekki stunduðu íþróttir.
♦♦♦
Metfé til
hjálpar-
starfs SÞ
SAMEINUÐU þjóðirnar hafa nú
þegar tryggt sér 717 milljónir doll-
ara, 44,7 milljarða ísl. kr., vegna ham-
faranna í Suður-Asíu en það eru 73%
af því fé, sem samtökin töldu sig
þurfa nú strax.
Jan Egeland, sem stýrir mannúð-
araðstoð á vegum SÞ, sagði, að sam-
tökin hefðu aldrei safnað jafnmiklu fé
á jafnskömmum tíma en fyrirheitin,
sem gefin hafa verið, eru nokkuð á
sjötta hundrað milljarða kr. Við þau
hefur þó verið misjafnlega staðið í
gegnum tíðina.
Tryggir réttu aðstoðina
Egeland og Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, hafa lagt mikla
áherslu á að fá aðstoðina í reiðufé því
að þannig sé hægt að tryggja, að fólk
fái þá aðstoð, sem best á við á hverj-
um stað.
Það fé, sem Sameinuðu þjóðirnar
hafa nú þegar tryggt sér, verður not-
að í bráðaaðstoð við fórnarlömb ham-
faranna en uppbygging á svæðunum
mun hins vegar krefjast miklu meiri
fjármuna og taka langan tíma.