Morgunblaðið - 12.01.2005, Page 6

Morgunblaðið - 12.01.2005, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is -Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Sími 588 4477 • Einbýlishús óskast fyrir fjársterka kaupendur á Seltjarnarnesi. Má kosta allt að 80 millj. Upplýsingar veitir Bárður. • Einbýlishús eða raðhús í Kópavogi, má kosta allt að 45 millj. Upplýsingar veitir Bárður. • Einbýlishús - parhús í Garðabæ, má kosta allt að 45-50 millj. Upplýsingar veitir Bárður. • Einbýlishús á Álftanesi eða Hafnarfirði, má kosta allt að 35-40 millj. Upplýsingar veitir Bárður. Hafið samband. Hér er reynslan og þekkingin fyrir hendi. Ábyrg þjónusta í áratug. Við kunnum að meta eignina þína. Fjársterkir kaupendur LANDSSÖFNUNIN Neyðarhjálp úr norðri hófst formlega í gær, en markmiðið með henni er að safna fé til að aðstoða þá sem lifðu af ham- farirnar í Asíu og til að byggja upp á hamfara- svæðunum. Söfnunin, sem var kynnt á blaða- mannafundi í gær, mun ná hámarki með sameiginlegri beinni útsendingu Sjónvarpsins, Stöðvar 2 og Skjás eins laugardagskvöldið 15. janúar kl. 19.40. Þá verða stöðvarnar með sam- eiginlega tveggja klukkustunda dagskrá og hef- ur slíkt aldrei gerst áður að sögn Elínar Þor- steinsdóttur, verkefnisstjóra landssöfnunar- innar. Auk þess munu þrjár verslunarmiðstöðvar, níu útvarpsstöðvar, þrjú dagblöð, listamenn, fyr- irtæki og almenningur taka þátt í söfnuninni. Elín segir aldrei fyrr svo marga aðila á Íslandi hafa tekið höndum saman um neyðarhjálp til út- landa. Hún segir söfnunarfénu verða varið til neyðaraðstoðar nú og uppbyggingar á næstu ár- um á vegum fimm mannúðarsamtaka; Barna- heilla – Save the Children, Hjálparstarfs kirkj- unnar, Rauða kross Íslands, SOS barnaþorpa og UNICEF – Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Aðspurð segir Elín þegar hafa safnast um 250 milljónir kr. til hjálparstarfs. „Það ber að þakka og taka fram að það hafa aldrei verið eins góð viðbrögð við neinu málefni fram að þessu, en öll viðbót er vel þegin,“ segir Elín og bætir því við að um langtímaverkefni sé að ræða enda ljóst að gríðarleg eyðilegging hafi orðið á svæðunum. Vantar fé til uppbyggingar Í símaviðtali á blaðamannafundinum við Ómar Valdimarsson, sendifulltrúa Rauða kross Íslands í Indónesíu, greindi hann frá því að það skipti mestu að það fengist fé til uppbyggingar eftir hamfarirnar í Suðaustur-Asíu. Eins og staðan sé í dag sé nóg til af hjálpargögnum, s.s. lyfjum, fatnaði og mat. Hann segir samgöngur á svæð- inu vera mjög slæmar og því verði að byggja upp vegi og brýr en til þess þurfi fjármagn. Auk þess sé ekki síður mikilvægt að veita fólki, bæði íbúum og þeim sem stunda hjálparstörf, sálræn- an og félagslegan stuðning. Vigdís Finnbogadóttir, verndari söfnunar- innar, segir hverja krónu sem safnist skipta máli því margt smátt geri eitt stórt. Hún segist finna fyrir miklum samhug meðal Íslendinga enda þekki þeir afleiðingar náttúruhamafara, hvort sem um háska sjávarins sé að ræða, snjóflóð eða annað. „Mér finnst það alveg stórkostlegt að Ís- lendingar skyldu taka við sér strax og gefa fé,“ segir Vigdís. Hún bendir á að það sé mikilvægt að hlúa vel að börnunum sem mörg hver hafa misst foreldra sína. Tekið við stóru og smáu Hægt verður að gefa með því að hringja í þrjú söfnunarnúmar: 901-1000, 901-3000 og 901-5000. Síðustu fjórar tölurnar í númerinu tákna hversu mikið hver og einn gefur, þ.e. 1.000 kr. í síma 901-1000 o.s.frv. Nánari kynningu er hægt að sjá með því að smella á tengilinn Neyðarhjálp úr norðri sem er vinstra megin á forsíðu www.mbl.is. Landssöfnun hafin Morgunblaðið/Þorkell Meðal þeirra sem kynntu landssöfnina á fundinum í gær voru Jakob Frímann Magnússon tónlist- armaður, Grétar Þorsteinsson, formaður ASÍ, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri, Jónas Þ. Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, Vigdís Finnbogadóttir, verndari söfn- unarinnar, Elín Þorsteinsdóttir verkefnisstjóri, Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans og bakhjarl söfnunarinnar, og Renuka Perera, starfsmaður Alþjóðahúss. Reuters Maður í Banda Aceh á Súmötru þakkar áströlskum hermanni fyrir sig með handabandi eftir að hafa fengið hreint drykkjarvatn. BERTIL Jobeus, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, segir sænsku þjóðina vera ákaf- lega þakkláta fyrir þá hjálp sem Íslend- ingar veittu frændum sínum þegar þeir aðstoðuðu við að flytja Svía frá hamfara- svæðunum á Taílandi. Íslensk stjórnvöld urðu við beiðni sænskra stjórnvalda fyrr í mánuðinum um að senda flugvél með heil- brigðisstarfsfólki til að koma slösuðum Svíum til síns heima. Jobeus segist hafa hitt Halldór Ásgríms- son forsætisráðherra og Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingaráðherra á fundi í gær þar sem hann lét í ljós hlýjar þakkir sænskra stjórnvalda í garð Íslendinga. Hann segir bæði Finna og Þjóðverja einnig hafa boðið sænskum stjórnvöldum hjálp við að flytja Svía frá Taílandi, en sú hjálp hafi verið í mun minni mæli en sú sem var þegin frá Íslendingum. Jobeus segir viðbrögð Íslendinga hafa auk þess verið með ólíkindum skjót. „Þetta var ein- stök hjálp frá íslenskum stjórnvöldum og íslensku þjóðinni. Ég fór ásamt Svavari Gestssyni, sendiherra Íslands í Svíþjóð, á Arlanda-flugvöll nóttina sem íslenska flugvélin lenti. Við hittum áhöfnina, læknana og alla sérfræðingana og það var mjög hjartnæmt af því að sumir læknanna og hjúkrunarfræðinganna tjáðu mér að þau hefðu bæði menntað sig og unnið í Sví- þjóð og fannst þeim aðstoð þeirra vera leið til þess að þakka fyrir veru sína í Svíþjóð,“ segir Jobeus sem kveðst hafa orðið hrærð- ur yfir því. Jobeus segir Svía ekki hafa verið í stakk búna að takast á við hamfarir af þeirri stærðargráðu sem varð annan dag jóla, en á bilinu 25–30 þúsund Svíar voru á ham- farasvæðunum. Hann segir hjálp Íslend- inga hafa komið sér afar vel og verið vel þegna. Hann segir marga Íslendinga hafa komið í sendiráðið, sent bréf og hringt til þess að votta Svíum samúð vegna missis þeirra í hamförunum. „Það hlýjar okkur um hjartaræturnar,“ segir Jobeus að lok- um. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bertil Jobeus, sendiherra Svíþjóðar. Sænska þjóð- in þakklát Íslendingum FASTEIGNAMAT hækkaði að með- altali um 16,9% á landinu öllu á síðasta ári, þ.e. frá árslokum 2003 til ársloka 2004. Þar af hækkuðu hús um 16,6% en lóðir hækkuðu en meira samkvæmt matinu eða um 18,5%. Hækkun brunabótamatsins var nær helmingi minni hlutfallslega en hækkun fast- eignamatsins og hækkaði það að með- altali um 8,9% á sama tímabili sam- kvæmt upplýsingum Fasteignamats ríkisins. Verðmæti allra fasteigna í landinu samkvæmt fasteignamatinu nam rúmum 2.300 milljörðum króna um síðustu áramót og óx um rúma 330 milljarða króna milli ára. Þar af nam lóðamat 381 milljarði og húsmatið 1.921 milljarði kr. Verðmætið sam- kvæmt brunabótamatinu var 600 milljörðum króna hærra eða rétt rúm- ir 2.900 milljarðar króna. Hækkun fasteignamatsins var mis- munandi um áramótin eftir tegundum eigna og staðsetningu þeirra á land- inu, eins og fram hefur komið, en það sem mestu ræður í þeim efnum er mikil hækkun markaðsverðs fasteigna víða á landinu. Þannig hækkaði sér- býli til að mynda mest á Seltjarnar- nesi um 30% samkvæmt nýju fast- eignamati, en íbúðir í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu um 13% og á Siglufirði og Höfn í Horna- firði breyttist fasteignamat á íbúðar- húsnæði ekki. Sumarhús og sumar- húsalóðir hækkuðu um 13% og atvinnuhúsnæði um 8% svo dæmi séu tekin. Þegar þetta allt hefur verið tek- ið saman og tillit tekið til þess sem bæst hefur við af byggingum á árinu, en venjulega nemur það um 1,5–2,5% á ári, er meðaltalshækkunin á lands- vísu 16,9%, eins og áður sagði. Að öðru óbreyttu þýðir þetta að tekjur sveitar- félaga af fasteignaskötum aukast að meðaltali sem þessu nemur, en fast- eignaskattar taka mið af fasteigna- mati eins og það er á hverjum tíma. 39% hækkun á þremur árum Fasteignamat hefur hækkað stöð- ugt síðustu árin. Það hækkað um 10,6% að meðaltali milli 2002 og 2003 og um önnur 7,5% milli áranna 2001 og 2002. Á þremur árum frá árslokum 2001 til ársloka 2004 hefur fasteigna- mat þannig hækkað um 39%. Á sama tíma hefur verðmæti eigna samkvæmt brunabótamati hækkað um 31%. Fasteignamat hækkar um tæp 17% að meðaltali milli ára Verðmæti fasteigna óx um 330 milljarða kr. í fyrra Brunabótamat hækkaði um tæp 9% milli ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.