Morgunblaðið - 12.01.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 9
FRÉTTIR
Allt á útsölu
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
HVERFISGÖTU 6, 101 REYKJAVÍK,
SÍMI 562 2862
ÚTSALAN
ER
HAFIN
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Opnunartími mán.-fös. kl. 11-18 & lau. kl. 11-14
Útsalan í fullum gangi
40-80%
afsláttur
Góðar vörur
á góðu verði
Dæmi um verð: Áður Núna
Mohair peysa 6.000 1.900
Riffluð peysa 6.500 1.400
Rennd peysa 5.900 1.900
Rúllukragapeysa 6.200 1.900
Vafin peysa 4.800 1.900
Peysa m. v-hálsmáli 4.700 1.400
Satíntoppur 5.300 1.900
Bolur m. perlum 6.600 1.900
Bolur m. áprentun 3.700 900
Skyrta 4.000 1.800
Túnikublússa 4.700 900
Hettupeysa 4.900 1.900
Sítt pils 6.300 900
Flauelsjakki 6.400 1.900
Dömujakki 5.600 900
Vatteruð úlpa 6.800 2.900
Leðurbuxur 11.200 2.900
Kvartbuxur 4.900 900
Dömubuxur 5.800 900
Og margt margt fleira
ÚTSALA - ÚTSALA
60—80% afsláttur
Ótrúlega lágt verð
Síðumúla 13
sími 568 2870
108 Reykjavík.
Opið frá 10-18
mbl.issmáauglýsingar
FOSSKRAFT, verktakinn sem
reisir stöðvarhús Kárahnjúka-
virkjunar í Fljótsdal, átti lægsta
tilboð í gerð þjónustubyggingar í
dalnum, eða svonefnds hlaðhúss
við gangamunnann. Tilboð Foss-
kraft var upp á 348 milljónir
króna en kostnaðaráætlun nam
492 milljónum króna. Næstlægstir
voru Keflavíkurverktakar með 365
milljóna króna tilboð.
Ásamt aðveitustöð í Fljótsdal
og stíflumannvirkjum er hlaðhúsið
eina bygging Kárahnjúkavirkjun-
ar sem sjáanleg er á yfirborði
jarðar. Í húsinu verða skrifstofur,
stjórnherbergi, starfsmannaað-
staða og tækjageymsla. Tvö önnur
tilboð bárust, frá Magnúsi og
Steingrími ehf. í Reykjavík og
Magnúsi Þ. Þórarinssyni á Egils-
stöðum, sem bæði voru upp á tæp-
ar 450 milljónir króna.
Svíar lægstir í stálvíraútboði
Hjá Landsvirkjun hafa tilboð
einnig verið opnuð í stálvíra fyrir
Fljótsdalslínur 3 og 4 og Sult-
artangalínu 3. Sænska fyrirtækið
Swedwire bauð lægst, 54 millj-
ónir, og rúmar 50 milljónir í frá-
vikstilboði. Áætlun Landsvirkjun-
ar var upp á 64 milljónir en meðal
þriggja annarra tilboðsgjafa var
Byko með 62,4 milljóna króna
boð.
Vinna við Kárahnjúkavirkjun
Fosskraft bauð lægst
í þjónustubyggingu
SKIPULAGSSTOFNUN hefur úr-
skurðað að rannsóknarboranir á
Hengilssvæði og Hellisheiði skuli í
nokkrum tilvikum háðar mati á
umhverfisáhrifum. Svæðin sem um
ræðir eru: í Innstadal, Stóra-
Skarðsmýrarfjalli og í Fremstadal
í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Rannsóknarboranir á eftirtöld-
um stöðum eru ekki háðar mati á
umhverfisáhrifum: við Kýrgil og
Búrfellslínu 3A á Ölkelduhálsi í
Grímsnes- og Grafningshreppi og
við Hverahlíð í Sveitarfélaginu
Ölfusi.
Allt fylliefni aðflutt
Fyrirhugaðar eru rannsóknar-
boranir á vegum Orkuveitu
Reykjavíkur á fjórum svæðum á
Hellisheiði og austanverðu Heng-
ilssvæði, þ.e. 2 borholur í Innsta-
dal, 2 í Fremstadal og 2 borholur á
Ölkelduhálsi-Þverárdal og 1 í
Hverahlíð. Níu borholur hafi þegar
verið gerðar á virkjunarsvæði OR
á Hellisheiði og Ölkelduhálsi, þar
af sjö vegna undirbúnings Hellis-
heiðarvirkjunar. Framkvæmdir
eru hafnar við virkjunina og kem-
ur fram í gögnum OR að gert er
ráð fyrir að á þessu ári og því
næsta verði boraðar 10 vinnslu-
holur á virkjunarsvæði hennar.
Fela framkvæmdir við rann-
sóknarboranir m.a. í sér gerð
aðkomuleiða og borstæða, vatns-
töku, efnistöku og förgun affalls-
vatns. Gera þarf nýja vegslóða til
að færa stórvirk tæki. Allt fylliefni
er aðflutt og er gert ráð fyrir að
útbúa þurfi 4.000 m² borstæði í
hverju tilviki og að reikna er með
um 3.000–5.000 rúmmetrum af
fylliefni í hvert þeirra. Við borun
þarf að staðaldri um 30–40 lítra/s
af vatni og er reiknað með að bor-
un hverrar holu taki um 1–2 mán-
uði og blástur 3–6 mánuði. Frá-
rennsli verður síað og borvatn
síðan leitt í svarfþró og borvatni
sem rennur frá holunni beint í
næsta vatnsfarveg eða hraun-
sprungu. Engar nýjar námur
verða opnaðar vegna fyrirhugaðra
rannsóknarborana.
Kann að hafa veruleg
áhrif á gróður
Í niðurstöðu Skipulagsstofnunar
um einstök svæði segir um Innsta-
dal að framkvæmdir þar kunni að
hafa veruleg áhrif á landslag og
gróður í dalnum vegna beinnar
röskunar af mannvirkjagerð og
hugsanlegra áhrifa af blásandi
holu og frá affallsvatni, en dal-
urinn sé afluktur, gróinn og lítt
snortinn. Framkvæmdir þar skulu
því háðar mati á umhverfisáhrif-
um.
Sömu sögu er að segja af fyr-
irhugaðri rannsóknarborun á
Skarðsmýrarfjalli og í Fremstadal
sem skulu háðar umhverfismati, að
mati stofnunarinnar. Rannsóknar-
boranir á öðrum stöðum sem til-
greindir eru skuli hins vegar ekki
háðir umhverfismati.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar
má kæra til umhverfisráðherra og
er kærufrestur til 4. febrúar 2005.
Rannsóknarboranir á Hengilssvæði og Hellisheiði
Háðar umhverfismati
í nokkrum tilvikum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Orkuveita Reykjavíkur áformar að
bora margar holur á Hellisheiði.