Morgunblaðið - 12.01.2005, Síða 23

Morgunblaðið - 12.01.2005, Síða 23
Ágreiningur Tonys Blairsforsætisráðherra ogGordons Browns fjár-málaráðherra setti áfram svip sinn á forsíður bresku blaðanna í gær en m.a. er sagt frá því að þeir Blair og Brown hafi fengið það óþvegið hjá þingmönnum Verka- mannaflokksins á fundi sem haldinn var á mánudagskvöld. Skömmuðu þingmenn flokksins forystumennina tvo fyrir þann persónulega meting, sem sett hefur mark sitt á samband þeirra, en margir óttast nú að deilur þeirra muni skaða Verkamanna- flokkinn í næstu þingkosningum. Dagblaðið The Times sagði mikla reiði ríkja í garð Blairs og Browns í kjölfar þess að metingurinn þeirra í millum kom á ný upp á yfirborðið nú um helgina, en þá var greint frá nýrri bók þar sem fram kemur að Blair hafi ákveðið í júní 2004 að hann myndi gegna forsætisráðherraemb- ættinu áfram um langa hríð enn, í stað þess að standa við loforð sem hann á að hafa gefið Brown um að víkja senn fyrir honum. The Guardian sagði þingmenn Verkamannaflokksins hafa húð- skammað Blair og Brown á fundin- um á mánudag og The Daily Tele- graph líkti ráðherrunum tveimur við ólátabelgi sem gripnir hafa verið í slagsmálum á skólaleikvellinum. „Hysjið upp um ykkur brækurnar“ „Tony Blair og Gordon Brown fengu það báðir óþvegið á fundinum í kvöld. Þetta var þingflokksfundur sem á sér engin fordæmi,“ sagði þingmaðurinn Paul Flynn um fund- inn á mánudag. Og í gær staðfesti John Prescott aðstoðarforsætisráð- herra að forystan hefði verið gagn- rýnd á fundinum. „Fótgönguliðið er að segja við leiðtogana: hysjið upp um ykkur brækurnar,“ sagði hann. Blair ræddi gagnrýnina á hendur honum og Brown beint á fundinum á mánudag. „Ég veit að allir sem hér eru viðstaddir […] eru sammála um að ekkert má koma í veg fyrir að samstiga Verkamannaflokkur sem stendur sameinaður á bakvið stefnu- mið flokksins tryggi sér þriðja kjör- tímabilið sem fólkið í landinu þarf svo bráðnauðsynlega á að halda,“ sagði Blair. Bað hann flokksbræður sína um að standa þétt saman eftir að hafa hlýtt á þá lýsa áhyggjum sínum, um að ekkert yrði af því að flokkurinn ynni sigur í þriðju þingkosningunum í röð sökum metingsins milli Blairs og Browns sem hefur verið á milli tanna á fólki í Bretlandi allt frá því að Verkamannaflokkurinn komst til valda 1997. Brown sat þegjandi við hlið Blairs á fundinum og vel fór á með þeim, var markmið leiðtoganna greinilega að sýna að þeir séu samherjar en ekki keppinautar. Á sunnudag höfðu einmitt bæði Brown og Blair mætt í sjónvarpsvið- töl, hvor í sínu lagi, til að leggja áherslu á að þeir stæðu þétt við hlið hvor annars og að þeir myndu ekki láta þær fullyrðingar, sem fram koma í nýrri bók blaðamannsins Ro- berts Prestons, slá sig út af laginu. Brown sagði það eitt fara um hug sinn nú að tryggja að Verkamanna- flokkurinn yrði áfram kjörinn til að stjórna landinu. „Það er verkefni mitt í stjórnmálum, það sem ég á degi hverjum reyni að vinna að. Og ég læt ekki fréttir í dagblöðum eða bækur eða orðróm eða slúður af- vegaleiða mig, og það mun Tony Blair ekki heldur gera,“ sagði hann. Blair lét svipuð ummæli falla í samtali við David Frost í breska sjónvarpinu, BBC. Sagðist hann síð- an hafa svarað sömu spurningum um áform sín í stjórnmálum fyrir hálfu ári. „Ég sagði þá að maður semur ekki um störf sem þessi – maður ein- faldlega gerir það ekki.“ Alger trúnaðarbrestur Í bók Prestons, „Brown’s Brit- ain“, er því haldið fram að Blair hafi í kvöldverðarboði Prescotts aðstoðar- forsætisráðherra í nóvember 2003 tjáð Brown að hann myndi senn draga sig í hlé og gefa Brown eftir forsætisráðherraembættið. Var Blair á þessum tíma langt niðri, taldi sig hafa glatað öllu trausti meðal kjósenda vegna Íraksmálanna, sem verið hafa bresku stjórninni erfið. Preston segir hins vegar frá því að Blair hafi skipt um skoðun í júní 2004 en þá höfðu nokkrir nánir banda- menn hans í ríkisstjórninni hvatt hann til að endurskoða hug sinn. Varð við þetta alger trúnaðar- brestur, að sögn Prestons, og er Brown sagður hafa sagt við Blair: „Ég mun aldrei trúa neinu sem þú segir við mig framar.“ Vill Blair losa sig við Brown? Það hefur lengi verið rætt um að spenna einkenndi samskipti gömlu félaganna Blairs og Browns. Blair varð formaður Verkamannaflokks- ins 1994 en Brown hafði haft metnað til starfans líka. Er rætt um að þeir hafi orðið ásáttir um að snúa bökum saman í því skyni að komast til valda, gegn því að Blair léti Brown emb- ættið eftir um síðir. Hafa síðustu árin verið fluttar stöðugar fréttir af því, að Brown væri farinn að gerast óþreyjufullur eftir efndum loforðsins. Ef marka má frásögn Prestons hefur spennan í samskiptum Browns og Blairs hins vegar nú náð nýjum hæðum og Preston er raunar ekki einn um það mat, Andrew Marr, stjórnmálafréttastjóri BBC, deilir því með honum. „Ég tel samband þeirra, hin persónulegu samskipti, sannarlega afar bágborið. Staðan er mjög erfið,“ segir hann og bætir því við að margir í framvarðasveit Verkamannaflokksins telji að Blair muni reyna að færa Brown úr starfi fjármálaráðherra eftir næstu þing- kosningar. „En það ræðst þó auðvit- að af því hvort Verkamannaflokkur- inn heldur völdum og hversu traustur þingmeirihlutinn verður.“ Fengi Brown meiri stuðning? Þrátt fyrir átökin í forystusveit Verkamannaflokksins benda nýjar skoðanakannanir til þess að flokkur- inn hafi sigur í þingkosningum, sem talið er að verði boðaðar 5. maí nk. Í könnun sem birt var í The Times kom fram að Verkamannaflokkurinn fengi 38%, Íhaldsflokkurinn 33% og frjálslyndir demókratar 20%. Könn- un The Independent benti hins veg- ar til að Verkamannaflokkurinn fengi aðeins 23%, íhaldsmenn 18% og frjálslyndir 12%; alls 26% kjós- enda væru óákveðnir. Vekur athygli að könnun The In- dependent bendir til að ef Brown tæki við af Blair nú þá myndi fylgi Verkamannaflokksins aukast um þriðjung – en Brown er talið til tekna gott efnahagsástand í Bretlandi und- anfarin ár, auk þess sem hann er ekki tengdur ákvörðuninni um að ráðast inn í Írak á sama hátt og Blair. „Forskot Verkamannaflokks- ins er hvorki svo stórt né svo fast í hendi að flokkurinn megi við áfram- haldandi spennu milli forystumann- anna,“ hafði The Independent eftir stjórnmálafræðingnum John Curt- ice. Byggt á: AFP, fréttavef BBC. Blair og Brown fengu það óþvegið Reuters Rifjað var upp í gær að Tony Blair (t.h.) kaus að halda blaðamannafund nýverið á nákvæmlega sama tíma og Gordon Brown var að kynna áætlanir stjórnarinnar um að beita sér fyrir „nýrri Marshall-áætlun“ í baráttunni gegn fátækt í heiminum. Þykir þetta til marks um að spennan úr samskiptum þeirra sé farin úr böndunum. Fréttaskýring | Þingmenn breska Verkamannaflokksins lýstu á fundi með leiðtogum flokksins á mánudag mikilli óánægju sinni með illdeilur þeirra í millum. Þingmennirnir óttast að spennan í samskiptum Blairs og Browns muni skaða flokkinn í komandi þingkosningum. david@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 23 áð því að i á veit- opinberra Jóhann- menn hjá að læra gingu há- ahúsa í ndum á sérstak- gi. „Hvað darundir- ann þá nslan að a að ætla minna en undirbún- iðað við hafist hér ður segir r áfanga- nnar, en áfanga og ta áfang- 2018. græðing ngunni byggingin um þær eru fyrir ni bendir húsnæði a til ára bygginga sem hér eru eru hreinlega ónýt- ar,“ segir Jóhannes og vísar þar m.a. til bráðabirgðahúsnæðis LSH sem sé komið til ára sinna og orðið allsendis ófullnægjandi, auk þess sem húsnæði LSH er víða orðið afar viðhaldsfrekt og því hreinlega hagkvæmast að rífa það þegar búið er að flytja starf- semina þaðan. „Hvað varðar gömlu fallegu Landspítalabygginguna, sem Guð- jón Samúelsson, húsameistari rík- isins, hannaði þá á hún auðvitað að njóta verndar og fá að njóta sín, sem þýðir að ekki verður byggt fyrir húsið. En ég sé fyrir mér að gamli Landspítalinn myndi sóma sér vel sem miðstöð stjórnunar spítalans. Hvað við- bygginguna aftan við þessa elstu byggingu varðar sé ég fyrir mér að hún yrði notuð til léttari starf- semi s.s. dagdeildar- og göngu- deildar,“ segir Jóhannes og legg- ur áherslu á að hægt verði að ná fram mikilli rekstrarlegri hagræð- ingu í formi samlegðaráhrifa með fyrirhugaðri uppbyggingu. En eins og staðan er í dag er spít- alinn dreifður á hátt á annan tug staða um bæinn sem, að sögn Jó- hannesar, felur í sér feiknamikla óhagræðingu bæði rekstrarlega og fyrir sjúklinga sem iðulega þarf að vera að senda á milli húsa. Spurður hvað verði um Landspít- alann í Fossvogi segir Jóhannes ráðgert að selja bæði Borgarspít- alann og lóðina sjálfa. Aðspurður segist Jóhannes ekki geta spáð fyrir um hvers konar starfsemi verði þar í framtíðinni. „Hins veg- ar er alveg ljóst að þarna er um mjög nýtanlegt hús að ræða sem nýta má á marga lund.“ Að sögn Jóhannesar er gert ráð fyrir að leggja þurfi 36 milljarða króna í byggingaframkvæmdir auk sölu- andvirðis eigna sem LSH myndi ekki nýta í framtíðinni, s.s. hús- næði spítalans í Fossvoginum. Morgunblaðið/Árni Sæberg ýnin getur eruleika  " (      STARFSMANNARÁÐ Landspít- ala – háskólasjúkrahúss (LSH) fagnar af heilum hug yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, utanrík- isráðherra og formanns Sjálf- stæðisflokksins, um ráðstöfun söluandvirðis Símans til uppbygg- ingar nýs hátæknisjúkrahúss. Ráðið gerði sérstaka samþykkt um þetta í kjölfar yfirlýsingar Davíðs. „Yfirlýsingin styður við mikið undirbúningsstarf sem stjórn- endur og starfsfólk LSH hafa innt af hendi með heilbrigðisráðuneyt- inu vegna nýbyggingar Landspít- ala – háskólasjúkrahúss,“ segir Már Kristjánsson, læknir og ann- ar tveggja fulltrúa starfsmanna í stjórnarnefnd LSH, og ítrekar að sérstakt fagnaðarefni sé sú breiða pólitíska samstaða sem skapast hafi um að hefjast handa við að byggja nýtt hátæknisjúkrahús. Már bendir á að um nokkurt skeið hafi verið ljóst að þörf væri á uppbyggingu nýs hátækni- sjúkrahúss til að leysa gamlar byggingar LSH af hólmi. „En nýtt húsnæði er forsenda áframhald- andi þróunar nútíma lækninga og hjúkrunar þannig að þjónusta við sjúklinga verði sem skilvirkust og nýting fjármuna til reksturs spít- alans sem best. Auk þess mun nýtt húsnæði verða lyftistöng fyr- ir kennslu- og vísindastarf LSH,“ segir Már og tekur fram að að mati margra hafi uppbygging nýs hátæknisjúkrahúss verið ein af aðalforsendum fyrir því að sam- eining sjúkrahúsanna í Reykjavík myndi ganga upp í raun. „En jafnvel þó starfsfólk hafi alið með sér þessa sýn í brjósti að hátæknispítali yrði byggður þá hefur í rauninni ríkt nokkur svartsýni vegna þess að þótt vinna við undirbúning verksins hafi verið í gangi hefur skort ein- hvers konar yfirlýsingu frá ráða- mönnum og ríkisstjórn um form- legan stuðning við verkið, þar til nú. Þannig að þessi yfirlýsing for- manns Sjálfstæðisflokksins nú er gríðarlega mikilvæg og hefur sannarlega vakið bjartsýni meðal starfsfólks spítalans.“ Vekur bjartsýni meðal starfsfólks

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.