Morgunblaðið - 12.01.2005, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Njörður 6005011219 II
HELGAFELL 6005011219 IV/V
GLITNIR 6005011219 I H.v.
I.O.O.F.181851128Á.S. 9.0.*
I.O.O.F. 9 1851128½ Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Styrkir
Menntamálaráðuneytið
Styrkir úr Æskulýðssjóði
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsókn-
um um styrki úr Æskulýðssjóði samkvæmt
reglum nr. 113 frá 22. janúar 2004.
Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja eftirtalin
verkefni:
Sérstök verkefni á vegum æskulýðsfélaga
og æskulýðssamtaka sem unnin eru fyrir
börn og ungmenni og/eða með virkri þátt-
töku þeirra. Ekki eru veittir styrkir til árvissra
eða fastra atburða í félagsstarfi, svo sem
þinga, móta eða þess háttar atburða né ferða
hópa. Þjálfun æskulýðsleiðtoga og leiðbein-
enda til virkrar þátttöku í æskulýðsstarfi, m.a.
með námskeiðum og þátttöku í þeim. Ný-
jungar og tilraunir í félagsstarfi barna og
ungmenna. Samstarfsverkefni æskulýðsfé-
laga og æskulýðssamtaka á sviði félags-
starfa.
Við mat á umsóknum er meðal annars tekið
tillit til fjölda þeirra, sem taka þátt í verkefnun-
um og til eigin fjármögnunar verkefna.
Sérstakt tillit er tekið til minni félaga og félaga-
samtaka er vinna að æskulýðsmálum.
Styrkir úr sjóðnum eru veittir tvisvar á ári og
er næsti frestur til að skila inn umsóknum
10. febrúar 2005.
Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðu-
blöð fást í menntamálaráðuneytinu, sími
545 9500 og á vef ráðuneytisins
www.menntamalaraduneyti.is.
Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu,
Æskulýðssjóður, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið,
4. janúar 2005.
menntamalaraduneyti.is
Auglýsing um afgreiðslu
bæjarráðs og bæjarstjórnar
Kópavogs á auglýstum
tillögum að breyttu skipulagi
Í samræmi við 3. mgr. 18. gr. og 1. mgr. 25.
gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997,
með síðari breytingum, er hér með auglýst
afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar Kópa-
vogs á eftirfarandi skipulagstillögum:
Hörðukór 2. Deiliskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar-
ráð Kópavogs þann 16. desember 2004
samþykkt tillögu að breyttu deiliskipulagi lóð-
arinnar nr. 2 við Hörðukór. Í breytingunni felst
að umrædd lóð er stækkuð um 1.200 m², verð-
ur 3.600 m² í stað 2.400 m²; afmörkun á bygg-
ingarreit er breytt og hann stækkaður, ráðgert
gólfflatamál eykst úr 1.500 m² í um 3.000 m²
og fjöldi íbúða í fyrirhuguðu sambýli verður
16 íbúðir í stað 8. Tillagan var auglýst frá
22. október til 19. nóvember 2004 með athuga-
semdafresti til 6. desember 2004. Engar at-
hugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulags-
stofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerir
ekki athugasemd við að birt verði auglýsing
um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind
lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins
mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda 20. janúar
2005.
Hörðukór 5. Deiliskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar-
ráð Kópavogs þann 16. desember 2004
samþykkt tillögu að breyttu deiliskipulagi lóð-
arinnar nr. 5 við Hörðukór. Í breytingunni felst
að þaki hússins er lyft að hluta sem nemur 4,5
metrum; þakrýmið er nýtt sem hluti íbúða 10.
hæðar; vegna landhalla á viðkomandi lóð og
hæðarsetningu hússins ásamt bílgeymslu er
bætt við jarðhæð með 3 íbúðum; íbúðum er
fjölgað úr 40 í 44; hámarks flatarmál hússins
eykst um 700 m² verður um 6.700 m2 í stað
6.000 m²; fyrirkomulag og fjöldi bílastæða
breytist. Tillagan var auglýst frá 22. október
til 19. nóvember 2004 með athugasemdafresti
til 6. desember 2004. Engar athugasemdir eða
ábendingar bárust. Skipulagsstofnun hefur
yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athugasemd
við að birt verði auglýsing um samþykkt deili-
skipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing
um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast
í B-deild Stjórnartíðinda 20. janúar 2005.
Skemmuvegur 2. BYKO Breiddinni.
Deiliskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar-
ráð Kópavogs þann 26. ágúst 2004 samþykkt
tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar
nr. 2 við Skemmuveg. Í breytingunni felst að
byggingarreitur Skemmuvegar 2 er stækkaður
um 16 metra til norðurs og er áætluð stækkun
grunnflatar 350 m². Fyrirkomulag bílastæða
á lóð breytist. Tillagan var auglýst frá 2. júlí
til 30. júlí 2004 með athugasemdafresti til
16. ágúst 2004. Engar athugasemdir eða
ábendingar bárust. Skipulagsstofnun hefur
yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athugasemd
við að birt verði auglýsing um samþykkt deili-
skipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing
um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast
í B-deild Stjórnartíðinda 20. janúar 2005.
Hafnarbraut 11 og 21-23 og Auðbrekka
2-32 (sléttar tölur). Breyting á aðalskipu-
lagi.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum hefur bæjar-
stjórn Kópavogs þann 23. nóvember 2004
samþykkt tillögu að breyttu Aðalskipulagi
Kópavogs 2000-2012. Breytingin nær til lóð-
anna Auðbrekku 2, 4, 6, 8, 12, 14, 16, 18, 20,
22, 24, 26, 28, 30 og 32 og Hafnarbrautar 11
og 21-23. Í tillögunni felst að í húsaröðinni sem
stendur sunnan Auðbrekku, þ.e. Auðbrekku
2-32 (sléttar tölur) breytist landnotkun úr því
að vera með blandaða landnotkun athafna-
svæðis og verslunar- og þjónustusvæðis í
blandaða landnotkun athafna- og íbúðar-
svæðis. Við Hafnarbraut 11 og 21-23 breytist
landnotkun aðalskipulagsins úr hafnarsvæði
í blandaða landnotkun athafna- og íbúðar-
svæðis. Tillagan var auglýst frá 27. ágúst til
27. september 2004 með athugasemdafresti
til 11. október 2004. Athugasemdir og ábend-
ingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti tillög-
una 16. nóvember 2004 ásamt umsögn Bæjar-
skipulags um athugasemdir og ábendingar
er bárust á kynningartíma. Tillagan var sam-
þykkt óbreytt. Breytingartillagan var síðan
samþykkt í bæjarstjórn 23. nóvember 2004.
Bæjaryfirvöld hafa afgreitt athugasemdirnar
og sent þeim sem þær gerðu umsögn sína.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send
Skipulagsstofnun sem lagði fram tillögu til um-
hverfisráðherra um lokaafgreiðslu.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar
skipulagsáætlanir og afgreiðslu þeirra er hægt
að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fann-
borg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og 16:00
mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum
frá 8:00 til 14:00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Félagslíf
I.O.O.F. 7 18501127½ ÁS.
Myndakvöld — Skaftafell —
náttúrufegurð
Fyrsta myndakvöld FÍ á nýju ári
verður verður miðvikudaginn
12. janúar. Þar verður fjallað um
Skaftafell og Þjóðgarðinn í máli
og myndum. Ragnar Frank
Kristjánsson, þjóðgarðsvörður,
segir frá Þjóðgarðinum og
Snævarr Guðmundsson sýnir
myndir úr Skaftafelli. Langt og
gott kaffihlé og kjörið tækifæri til
að hitta ferðafélaga og spjalla.
Myndakvöldið hefst klukkan
20.00. Allir velkomnir.
Aðgangur kr. 600.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
OPIÐ málþing um „tæknivæðingu
barna og unglinga“ verður haldið í fé-
lagsmiðstöðinni Tónabæ föstudaginn
14. janúar kl. 9–12. Málþingið er hald-
ið af æskulýðssviði ÍTR og er ætlunin
að varpa fram spurningum um áhrif
nútímatækni á breytt lífsmynstur
barna og unglinga. Neikvæð áhrif
geta t.a.m. verið hreyfingarleysi,
breyttur samskiptamáti, óreglulegur
svefn, staðlaðar fyrirmyndir og fé-
lagsfælni. Lögð verður áhersla á
ábyrgð foreldra og uppalenda til að
upplýsa sig um möguleika tækninnar
og sérstaklega það sem snýr að hinu
neikvæða.
Fyrirlestrar verða haldnir af
starfsfólki félagsmiðstöðva ÍTR, Þor-
birni Broddasyni, prófessor við HÍ,
og Árna Matthíassyni, blaðamanni á
Morgunblaðinu. Aðgangur er ókeypis
og er meðan húsrúm leyfir en áhuga-
samir eru vinsamlegast beðnir um að
skrá sig á netfangið fraedsla@itr.is.
Málþing um tæknivæðingu
barna og unglinga
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
HSK-mótið í tvímenningi var spil-
að hjá félaginu miðvikudaginn 5. jan-
úar sl. Til leiks mættu 17 pör, og var
spilaður monrad-barómeter með 4
spilum á milli para, 7 umferðir, alls
28 spil. Efstu pör urðu:
Ísak Örn Sigurðss. – Stefán Jónss. (gestir)34
Kristján M. Gunnarsson
– Helgi G. Helgason Umf. Selfoss 32
Garðar Garðarsson
– Gunnar Þórðarson Umf. Selfoss 29
Vilhjálmur Þór Pálsson
– Þórður Sigurðsson Umf. Selfoss 25
Ásgeir Gestsson
– Guðm. Böðvarsson Umf. Hrunamanna 15
Nánar má finna um gang mála á
heimasíðu félagsins www.bridge.is/
fel/selfoss.
Næsta mót hjá félaginu er aðal-
sveitakeppnin, en hún hefst fimmtu-
daginn 13. janúar nk. Stjórn mun að
vanda raða pörum saman í sveitir.
Suðurlandsmót í sveitakeppni
Suðurlandsmótið í sveitakeppni
verður haldið að Þingborg laugar-
daginn 22. og sunnudaginn 23. jan-
úar nk. Reiknað er með að spila-
mennska hefjist kl. 10 báða dagana.
Auk Suðurlandsmeistaratitilsins í
sveitakeppni verður spilað um 3 sæti
á Íslandsmótinu í sveitakeppni 2005.
Skráningarfrestur rennur út
fimmtudagskvöldið 20. jan. Skráning
er hjá Bridssambandi Íslands, hjá
Ólafi í s. 898 6500 eða tölvupósti ost-
@mbf.is og hjá Garðari í s. 862 1860.
Félag eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni var spiluð í
Glæsibæ fimmtud. 6.1.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig. 1. umferð af 20.
Árangur N-S
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 291
Ægir Ferdinandss. – Magnús Halldórs. 236
Björn Pétursson – Ragnar Halldórss. 228
Árangur A-V
Bragi Björnsson –– Albert Þorsteinss. 280
Jón Árnason –– Eggert Þórhallsson 236
Jón Hallgrímss. – Helgi Hallgrímss. 229
Frá FEBK Gjábakka
Föstudaginn 7/1 var spilaður tví-
menningur á 8 borðum meðalskor
var 168 og úrslitin urðu þessi:
N/S
Rafn Kristjánss. – Magnús Halldórsson 224
Auðunn Guðmss. – Bragi Björnsson 197
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 185
A/V
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 231
Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddsson 217
Ólafur Ingvarsson – Ragnar Björnsson 173
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson