Morgunblaðið - 12.01.2005, Qupperneq 33
GGL,
GHL
AG08, AG09, AG10, AG11, AG12,
AH01, AH02, AH03, AH04, AH05
ÁRÍÐANDI UPPLÝSINGAR FYRIR VIÐSKIPTAVINI VELUX
VELUX innkallar gerð af þakgluggum sem
seldir voru frá hausti 1998 til sumars 1999
Í framhaldi af reglulegu gæðaeftirliti og eftirfylgni
á markaði höfum við fundið galla í ákveðinni
gerð af þakgluggum okkar sem seldir voru frá
haustinu 1998 til sumarsins 1999. Hætta er á að
glugginn sé ekki nógu þéttur við skrúfur sem eru í
ytri klæðningu á hliðarkarmi gluggans.
Á efsta hluta rammans á VELUX glugganum þín-
um er tegundarmerki. Það sést þegar glugginn er
opnaður. Ef glugginn þinn er af þeirri gerð
glugga sem eru gallaðir, stendur GGL eða GHL
efst til vinstri á merkinu og neðst til hægri á merk-
inu má sjá eftirfarandi kódanúmer: AG08,
AG09, AG10, AG11, AG12, AH01, AH02,
AH03, AH04 eða AH05.
Ef merki með þessum stafarunum, GGL eða GHL
auk einu af þeim kódanúmerum sem sjá má hér
að ofan, er á glugganum þínum, ertu vinsamleg-
ast beðinn um að hafa samband við þjónustuver
VELUX. Það má gera á heimasíðunni
www.VELUX.dk/eftersyn
eða í síma 00 45 80 60 45 16.
Til að við getum undirbúið þjónustuheimsóknina
sem best er mikilvægt að þú gefir upp öll númer
og stafi á tegundarmerkinu (t.d. GGL M08 3059
U 42 AG10 V). Við þjónustuskoðunina verður
farið yfir gluggann, mældur raki í tréverkinu og
gert við gallann. Mögulegur skaði verður bættur.
Þetta getur skemmt gluggann og dregið töluvert úr
endingu hans og hætta er á að byggingarhlutar í
kringum gluggann geti orðið fyrir skemmdum. Við
bjóðum af þessum sökum ókeypis þjónustuathug-
un sem felur í sér að gert er við gallann og bættur
sá skaði sem hugsanlega hefur orðið.
VELUX Danmark A/S
Ådalsvej 99, 2970 Hørsholm
S. 00 45 80 60 45 16
WWW. VELUX.dk/eftersyn
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 33
DAGBÓK
Sumarliði Ásgeirsson
„Það að vera með viðurkennda
þekkingu á því sem ég starfa við
skiptir mig og mitt fyrirtæki öllu
máli. Þar sem ég bý á Stykkishólmi
þá hentaði þessi kennslutími
mér einnig frábærlega. „
MCSA námið er spennandi kostur fyrir þá sem vilja starfa
sem sérfræðingar við umsjón Microsoft netkerfa.
Markmiðið með náminu er að nemendur geti að námi
loknu tekið þau fjögur alþjóðlegu próf sem þarf til að öðlast
MCSA gráðuna og eru þau öll innifalin í námskeiðsgjaldi.
Inntökuskilyrði
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa góða þekkingu
og skilning á Windows umhverfinu, þekkja vel innviði PC
tölvunnar. Allt kennsluefni er á ensku.
Kennt er laugardaga frá 13-17 & sunnudaga 8:30-16
aðra hverja helgi frá 12. feb. til 5. jún.
Frábært nám með vinnu - Kennt er aðra hverja helgi!
(Fyrrv. matreiðslumaður)
MCP - MCSA & Kerfisfræðingur NTV
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 9, postu-
línsmálning kl. 9 og kl. 13 bókaormar,
leshringur kl.13.30, vinnustofan opin
alla daga.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, al-
menn handavinna, böðun, glerlist, spil-
að brids/vist, fótaaðgerð.
FEBÁ, Álftanesi | Handverksdagur í
Haukshúsi í dag, kl. 13–16. Vilborg Gunn-
arsdóttir leiðbeinir. Kaffiveitingar.
Félag eldri borgara Reykjavík | Sam-
félagið í nærmynd kl. 11, þáttur um mál-
efni eldri borgara á RUV. Síðdegisdans
kl. 14.30-16.30, húsið opnað kl. 14. Ath.
breyttan tíma. Guðmundur Haukur leik-
ur, kaffi og terta. Dansstjórar Matt-
hildur Guðmundsd. og Jón Freyr Þór-
arinss. Söngfélag FEB kóræfing kl. 17.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starf í Ármúlaskóla kl. 16.20 stofu V24.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, kl. 10.05 og kl.
11, bridge og handavinnuhorn í kl. 12.30,
Hrafnkell Helgason verður með fyr-
irlestur kl. 16 í Garðabergi, opið hús í
Holtsbúð kl. 13.
Furugerði 1 | Kl. 9 aðstoð við böðun og
bókband, kl. 13 leikfimi, kl. 14 sagan.
Fimmtudaginn 13. janúar dansleikur kl.
19.30, hljómsveitin, Í góðum gír leikur
fyrir dansi.
Hraunbær 105 | Kl. 9 alm. handav.,
bútasaumur, útskurður, hárgreiðsla, kl.
10 fótaaðgerð, kl. 11 banki, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 13 brids, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Myndmennt kl. 10 og 13 línu-
dans kl. 11, píla kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa,
kl. 9–15, jóga kl. 9–12, myndlist kl. 15–18,
böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaað-
gerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Starfið er hafið eftir
áramót, kl. 9–16. Listasmiðja; postulíns-
málun m.m., kl. 9. Betri stofan opin alla
daga, leiðbeinendur á mánudögum og
þriðjudögum. Hárgreiðslustofa 568–
3139. Fótaaðgerðarstofa 897–9801.
Hugmyndabankafundur kl. 14 á laug-
ard. Uppl. í s. 568–3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Keila í Mjódd á
morgun fimmtudag kl. 10.
Norðurbrún 1 | Nýtt námskeið í leir-
mótum, postulínsmálningu og myndlist,
er hafið, enn eru laus pláss, upplýsingar
hjá Birnu í síma 568 6960, kl. 9–16.30
opin vinnustofa. Félagsvist fellur niður í
dag, kl. 9 smíði, kl. 9 opin vinnustofa.
Sjálfsbjörg | Félagsvist í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 myndmennt, kl.
10–12 sund (Hrafnistulaug), kl. 10.15–
11.45 spænska, kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður, kl 12.15–14 verslunarferð í
Bónus, Holtagörðum, kl 13–14 Spurt og
spjallað, kl. 13–16 tréskurður, kl 14.30–
15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband, handmennt og hár-
greiðsla kl. 9, fótsnyrting kl. 9.30,
morgunstund kl. 10, kóræfing kl. 13,
verslunarferð kl 12.30, lesklúbbur kl.
15.30 í setustofu á 3. h.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn kl.
10–12. Kirkjuprakkarar kl. 15.30.
Árbæjarkirkja | Kyrrðar og bænastund
kl. 12. Fyrirbænir, hugleiðing og tónlist.
Hádegishressing á eftir.
Áskirkja | Hreyfing og bæn kl 11.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist – altarisganga – fyrirbænir. Létt-
ur málsverður eftir stundina. Kirkju-
prakkarar, 7–9 ára kl. 16.30. TTT, 10–12
ára kl. 17.30. Æskulýðsfélag KFUM&K
og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra í Bú-
staðakirkju 12. janúar. Samverur á
miðvikud. frá kl. 13. Spilað, föndrað og
handavinna. Um kl. 15 kaffi. Gestur:
Þorvaldur Halldórsson.
Digraneskirkja | Barnastarf 6-9 ára kl.
17.15 –18 á neðri hæð.
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag kl. 10 til 12. Fyrirlestur mán-
aðarlega. Pabbar og mömmur, afar og
ömmur velkomin.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Altarisganga og fyrirbænir. Léttur há-
degisverður á vægu verði. Prestar
safnaðarins þjóna fyrir altari, orgelleik-
ari Hörður Bragason.
Hallgrímskirkja | Morgunmessur alla
miðvikudagsmorgna kl. 8 árdegis. Hug-
leiðing, altarisganga. Einfaldur morg-
unverður í safnaðarsal eftir stundina.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar eru á
miðvikudögum kl. 10–12.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Eldur
Unga Fólksins fimmtud. 13. jan. kl. 21.
Lofgjörð, vitnisburðir og bæn. Fjöl-
skyldusamveran (opið öllum, ekki bara
fjölskyldum) miðvikud. 12. jan. kl. 18 og
hefst með léttri máltíð. Kl. 19 Biblíu-
lestur f. alla fjölskylduna. Barnastarfið
er fyrir 1–2 ára, 3–4 ára, 5–7 ára, 8–9
ára, 10–12 ára og 13–17 ára.
Kapella Fríkirkjunnar í Reykjavík |
Vikulegar bæna- og kyrrðarstundir Frí-
kirkjunnar í Reykjavík í Safnaðarheim-
ilinu kl. 12.15 í hádeginu á miðviku-
dögum. Léttar veitingar.
Kálfatjarnarkirkja | Alfa námskeið
hefst miðvikud. 19. jan. kl. 19–22. Kynn-
ingarkvöld Alfa miðvikud. 12. jan. kl. 19–
21.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut 58
kl. 20 í kvöld. „Kærleiksóðurinn“, Sálm-
ur 45. Ræðumaður: Ragnar Gunn-
arsson. Vitnisburður. Kaffiveitingar.
Langholtskirkja | Kl. 12.10 hádegis-
bænagjörð með orgelleik – fyrirbænir,
kl. 12.30 súpa og brauð (kr. 300). Starf
eldri borgara kl. 13–16. Fjölbreytt dag-
skrá. Uppl. í s. 520 1300, kl. 19.30 –
20.15 biblíulestur í safnaðarheimilinu í
umsjón sr. Jóns Helga Þórarinssonar.
Markúsarguðspjall lesið.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn, kl. 10.30 Gönguhópurinn Sól-
armegin leggur af stað frá kirkjudyrum
alla miðvikudagsmorgna, kl. 14.10–
15.30 Kirkjuprakkarar. (1. – 4. bekkur).
Kl. 16.15 T.T.T. (5. – 7. bekkur). Kl. 19,
Fermingar – Alfa, kl. 20.30 Unglinga-
kvöld Laugarneskirkju.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
UNDIRBÚNINGUR stendur nú yfir
að útgáfu minningabókar Kópa-
vogs í tilefni af 50. afmælisári bæj-
arfélagsins. Þess vegna eru ungir
sem aldnir Kópavogsbúar hvattir til
að skrá minningar sínar tengdar
Kópavogi í sérstaka minningabók,
sem liggur frammi í Bókasafni
Kópavogs.
„Við tökum við handritunum sem
fólk kemur með, ljósritum og látum
liggja frammi í þessari minn-
ingamöppu, en handritin sjálf
geymum við. Þetta geta verið æsku-
minningar, úr skóla, skátastarfi,
leikir barna í Kópavogi og mögu-
leikarnir sem umhverfið gaf,“ segir
Inga Kristjánsdóttir, deildarstjóri
barnadeildar Bókasafns Kópavogs.
„Þetta geta verið frásagnir fólks
sem stofnaði heimili sitt í Kópavogi,
byggði hús, ræktaði garð, ól upp
börn og annað úr daglegu lífi. Þá
geta menn rifjað upp ýmsa starf-
semi í bænum, félagsstörf, leik-
félag, kóra, íþróttir. Uppbygging
fyrirtækja, smiðjur, bifreiðaverk-
stæði, matvælafyrirtæki. Sam-
göngur, gatnakerfi, umhverfi.
Gamansögur og hugleiðingar. Aðal-
atriði er að þetta séu persónulegar
minningar, þ.e. að sögumaður hafi
sjálfur upplifað atburði tengda því
sem hann skrifar um.“
Hægt er að skila tölvu- eða hand-
skrifuðu handriti til Bókasafns
Kópavogs. Lengd er hæfileg t.d.
1–3 vélritaðar síður, styttri eða
lengri eftir atvikum. Einnig er
hægt að setjast niður á safninu og
skrifa þar. Hver sem er getur skilað
eins mörgum frásögnum og hann
vill, fjalli þær um efni innan fram-
angreinds ramma. Starfsfólk er
reiðubúið til að yfirfara og hrein-
rita handrit sé þess óskað og að
sögn Ingu væri ekki verra ef gömul
ljósmynd fylgdi með sem þá yrði
skönnuð og síðan skilað aftur til
eiganda. „Æskilegast er að fólk
skrifi undir nafni, en í þeim til-
vikum sem óskað er eftir að nota
dulnefni er það virt,“ segir Inga.
Frásagnir úr lífi
Kópavogsbúa
Bókaútgáfa | Minningabók Kópavogs
Koma má handriti til Bókasafns
Kópavogs, aðalsafni, Hamraborg
6a, 200 Kópavogi eða Lindasafns,
Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópa-
vogi.