Morgunblaðið - 12.01.2005, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 viðkvæmur, 8 lé-
lega rúmið, 9 heitir, 10
dráttardýrs, 11 lifir, 13
rekkjum, 15 grenja, 18
þoli, 21 sundfugl, 22 álít-
ur, 23 slóra, 24 tarfur.
Lóðrétt | 2 veður, 3 ör-
lagagyðja, 4 blettir, 5
kjánum, 6 viðauki, 7 botn-
fall, 12 reið, 14 rándýr, 15
pest, 16 hyggur, 17 ákveð,
18 ávöxtur, 19 hæðar, 20
sefar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 slægt, 4 fálma, 7 æptir, 8 múgur, 9 aum, 11 týna,
13 firð, 14 lamdi, 15 sumt, 17 snák, 20 ull, 22 örðug, 23 orm-
ur, 24 garns, 25 kanna.
Lóðrétt | 1 slæpt, 2 ættin, 3 tíra, 4 fimm, 5 lagni, 6 afræð,
10 urmul, 12 alt, 13 fis, 15 stöng, 16 móður, 18 náman, 19
kerla, 20 uggs, 21 lokk.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hlunnindi af ýmsu tagi rata til þín í dag.
Lof, launahækkun og viðurkenning fyrir
framlag þitt eru nokkur líkleg dæmi.
Fólk víkur til hliðar þegar þú átt leið hjá.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Óvænt tækifæri til ferðalaga eða til þess
að ota þínum tota hvað varðar menntun
og starfsreynslu verða sennilega á vegi
þínum í dag. Vertu vakandi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ekki er ósennilegt að þú sýnir óvænta
einlægni og hreinskilni í dag. Hugs-
anlega hittir þú nýjan einstakling eða
sérð nýja hlið á einhverjum sem þú þekk-
ir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einhver sér ástæðu til þess að umbuna
þér í dag. Hugsanlegt er að krabbar sem
eiga maka njóti góðs af einhverju sem
hann ber úr býtum. Opnaðu vasana!
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki er ólíklegt að eitthvað ánægjulegt
eigi sér stað í vinnunni í dag. Þér miðar
áfram á einhvern hátt: Kannski að vinnu-
félagi geri þér greiða sem gleður þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Dagurinn í dag er kjörinn fyrir róm-
antík. Óvænt daður fær hjartað til þess
að slá hraðar. Einnig er dagurinn í dag
góður fyrir spákaupmennsku af ein-
hverju tagi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Mögulegt er að vogin kaupi einhvern list-
rænan, óvenjulegan eða nútímalegan
hlut fyrir heimilið í dag. Fjölskyldu-
meðlimur kemur þér kannski á óvart.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Samræður ættu að verða ánægjulegar í
dag, en munu samt sem áður koma á
óvart á einhvern hátt. Búðu þig undir að
hitta skemmtilegt og óvenjulegt fólk.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn fær kannski óvenjulegar
viðskiptahugmyndir í dag en veit ekki
hvað hann á að gera við þær. Gefðu hug-
myndunum tækifæri og berðu þær undir
aðra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Frábærar hugmyndir koma til þín á
færibandi um þessar mundir. Hugur
þinn rásar hreinlega í allar áttir.
Ánægjuleg breyting verður á daglegri
rútínu þinni í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hittir hugsanlega manneskju í dag
sem bindur bagga sína ekki sömu hnút-
um og samferðamennirnir. Búðu þig
undir að vinir og félagar komi þér í opna
skjöldu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hugsanlegt er að þér bjóðist óvænt tæki-
færi til þess að ferðast eða spjalla við yf-
irmanninn í dag. Eitthvað sem viðkemur
flugi, rafmagni og vísindum grípur inn í
framvindu dagsins.
Stjörnuspá
Frances Drake
Steingeit
Afmælisbarn dagsins:
Þú styður málstaðinn sem þú berst fyrir
af öllu hjarta. Lífsskoðanir þínar eru
sterkar og þú gerir eins og þú segir. Lífs-
starf þitt tekur oft allan þinn tíma. Þá
ertu lifandi, málgefin og athafnasöm
manneskja.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ingahúsinu Sölku, í kvöld kl. 20. Yfirskrift
fundarins er: Með hækkandi sól – lægri
skattar – aukin hagsæld. Framsögumenn:
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og
alþingismennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir og
Sigurður Kári Kristjánsson.
Námskeið
ITC-samtökin á Íslandi | Námskeið á veg-
um ITC 12. jan.–2. mars, á Digranesvegi 12
Kóp. Fjallað verður um ímynd, raddþjálfun
og líkamsbeitingu. Námskeiðið verður á
miðvikud. kl. 18–20. Nánari uppl. gefur Ingi-
björg s. 8221022 og Hildur s. 6632799.
http://www.simnet.is/itc Útbr.nefnd ITC.
Útivist
Ferðafélag Íslands | Myndakvöld hjá FÍ kl.
20. Fjallað verður um Skaftafell og þjóð-
garðinn í máli og myndum. Allir velkomnir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
BORGARLEIKHÚSIÐ auglýsti í desem-
ber eftir hugmyndum í árlega dansleik-
hússamkeppni sem Leikfélag Reykja-
víkur og Íslenski dansflokkurinn
standa saman að, en þetta er í þriðja
sinn sem samkeppnin er haldin. Í
auglýsingu Borgarleikhússins var
óskað eftir hugmyndum að stuttum
dansleikverkum fyrir blandaðan hóp
leikara og dansara. Skilafrestur hug-
mynda í keppnina rennur út 15. janúar
nk.
Að sögn talsmanna Borgarleikhúss-
ins er tilgangur keppni af þessu tagi að
gefa listafólki tækifæri til að koma á
framfæri hugmyndum sínum um dans-
leikhús, sem er ungt og spennandi list-
form.
„Íslenski dansflokkurinn og Leikfélag
Reykjavíkur vilja með þessu leggja sitt
af mörkum til að efla dansleikhús og
þróa,“ segir Sigrún Valbergsdóttir,
kynningarstjóri Borgarleikhússins.
„Markmið þessarar samkeppni er í
raun þríþætt, að leita að nýjum höf-
undum, stuðla að þróun dansleikhúss-
formsins og að láta reyna á samruna
listgreinanna.“
Listafólk er hvatt til að taka þátt í
hugmyndasamkeppninni, en gert er ráð
fyrir að dansleikverkin verði um 10
mínútna löng, samin fyrir 4–6 manna
hóp dansara og leikara. Nokkrar hug-
myndir verða síðan valdar til frekari
útfærslu og nokkrar af þeim verða að
lokum valdar til uppsetningar.
Borgarleikhúsið býður upp á aðstöðu
í leikhúsinu og aðstoð leikara og dans-
ara og fá allir jafnlangan tíma til þess
að koma hugmyndinni á svið.
Dansleikhússamkeppnin verður síðan
haldin á Stóra sviði 9. júní og verða
fern verðlaun veitt, þrenn af dómnefnd
og ein frá áhorfendum.
Morgunblaðið/Golli
Skilafrestur tillagna í dansleikhússamkeppni
Fréttir
í tölvupósti
1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Bg7 5. Rc3 Rc6 6. Be3 Rf6 7. Bc4
Da5 8. O-O O-O 9. Rb3 Dc7 10. Bg5
a6 11. Bd3 b5 12. Dd2 He8 13. Hae1
Hb8 14. e5 Rg4 15. f4 d6 16. h3 Rh6
17. g4 Da7+ 18. Kh2 b4 19. Rd1 Bb7
20. f5 Rxg4+ 21. hxg4 Rxe5 22. Kg3
a5 23. Dh2 a4 24. Rc1 Hbc8 25. Hh1
h5 26. gxh5 Rf3 27. Be3 Da5 28. Dh3
Rxe1 29. Hxe1 b3 30. Hf1 bxc2 31.
Rf2 Be5+ 32. Kh4 Bf6+ 33. Kg3
gxf5 34. Dxf5 Dxf5 35. Bxf5 e6 36.
Bd3 Bxb2 37. Re4 Bxe4 38. Bxe4 f5
39. Bd3 Hc3 40. Bd2 Ha3 41. Hf3
Hc8 42. Kh4 Kf7 43. h6 Hg8 44. h7
Hh8 45. Kg3 Hxh7 46. Bxc2 Bxc1 47.
Bxc1
Staðan kom upp á ofurmóti sem
lauk fyrir skömmu í Drammen. Kjetil
Lie (2474) hafði svart gegn hinum
pólska Bartlomiej Macieja (2613).
47... Hh3+! Einfaldasta leiðin til sig-
urs. 48. Kxh3 Hxf3+ og hvítur gafst
upp þar eð hann tapar öðrum hvor-
um biskupnum eftir 49. Kg2 Hc3.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Tónlist
Ömmukaffi, Austurstræti | Funk/djass
hljómsveitin UHU! treður upp kl. 20.30.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí Banananas | Baldur Björnsson –
Hefur þú upplifað geðveiki?.
Gallerí Sævars Karls | Hulda Vilhjálms-
dóttir – Hver er að banka á hurðina?
Kannski barnið í landslaginu?
Hafnarborg | Rafmagn í 100 ár – sýning í
tilefni af 100 ára afmæli fyrstu almenn-
ingsrafveitunnar. Svart á hvítu, þrívíð verk,
málverk, teikningar og grafík eftir íslenska
og erlenda listamenn í Sverrissal og Apó-
teki. Sigrún Guðmundsdóttir er mynd-
höggvari febrúarmánaðar.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk.
Hrafnista Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist-
insson myndlistamaður sýnir málverk og
tússmyndir í Menningarsal.
Kaffi Espresso | Guðrún Eggertsdóttir –
skúlptúrar og myndir.
Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir –
Snjókorn.
Kunstraum Wohnraum | Alda Sigurð-
ardóttir – Landslagsverk.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist:
um veruleikann, manninn og ímyndina.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró –
Víðáttur.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Textíllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning.
Kjarval í Kjarvalssal.
Nýlistasafnið | Hlynur Helgason – Gengið
niður Klapparstíg. Ævintýralegir femínist-
ar – Carnal Knowledge.
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur | Sör-
en Solsker Starbird – Er sálin sýnileg?
Ljósmyndasýning.
Dans
Dansskóli Jóns Péturs og Köru | Dans-
skólinn býður upp á námskeið í barnadöns-
um, freestyle, samkvæmisdönsum, tjútti,
mambói og salsa. Boðið upp á einstaklings-
námskeið fyrir fullorðna í s-amerískum
dönsum. Innritun kl. 12–19 í s. 5536645
eða með tölvupósti til dans@dansskoli.is.
Kennsla hefst miðvikud. 12. janúar.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús að
Álfabakka 14a kl. 20.30. Opið hús er annan
hvern miðvikudag. Gömlu dansarnir. Allir
velkomnir.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun á miðvikudögum kl. 14–17 á
Sólvallagötu 48. Svarað í síma 5514349
þri.–fim kl. 11–16. Tekið við vörum og gjöfum
þri. og mið. kl. 11–16. netfang. mnefnd@mi-
.is.
Fundir
ITC Melkorka | Fundur kl. 20. Gestir vel-
komnir. Nánari upplýsingar: http://
itcmelkorka.simnet.is/.
Veitingahúsið Salka | Sjálfstæðisflokk-
urinn heldur opinn stjórnmálafund á Veit-
Fyrsti slagurinn.
Norður
♠K63
♥Á984
♦3
♣ÁG842
Suður
♠ÁG5
♥G10
♦ÁG10652
♣53
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 tígull
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass 2 hjörtu Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Útspil vesturs er spaðaátta.
Hvernig er best að spila?
Það sýnir sig aftur og aftur að
rétti tíminn til að hugsa er í fyrsta
slag. Ef sagnhafi hleypir spaðanum
heim – eins og virðist sjálfsagður
hlutur – þá missir hann eina inn-
komu sem hann sennilega þarf til að
nýta tígulinn.
Lítum á útspilið – spaðaáttuna.
Þetta er greinilega „toppur af engu“
í ósögðum lit. Ekki er það fjórða
hæsta, því þá ætti vestur D1098 og
myndi spila út tíunni. Austur á því
spaðadrottningu og það er mikilvægt
að stinga upp kóng og spara innkom-
urnar tvær heima á ÁG í spaða.
En þá er að fara í tígulinn.
Norður
♠K63
♥Á984
♦3
♣ÁG842
Vestur Austur
♠874 ♠D1092
♥K762 ♥D53
♦D8 ♦K974
♣K1076 ♣D9
Suður
♠ÁG5
♥G10
♦ÁG10652
♣53
Nóg er að fá fjóra slagi á litinn og
rétta íferðin er að taka fyrst á ásinn
og spila svo smáum tígli í bláinn –
ekki gosanum. Það skilar sér ef lit-
urinn er 3-3 og ennfremur þegar
annar varnarspilarinn hefur byrjað
með háspil annað, Dx eða Kx.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is