Morgunblaðið - 24.01.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 22. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Frumsýnt
á fjölunum
María Kristjánsdóttir skrifar um Ég
er ekki hommi og Spítalaskipið | 25
Fasteignir| Eldhúsþankar Holl húsráð Viðhald Inntök Ryk-
sugubúnaður IQ-ljósið Íþróttir | Allt um HM í Túnis Wilkens hætt-
ur með Knicks Frestað vegna flensunnar Jón Arnar til liðs við FH
Líkur á
formlegu
vopnahléi
Gazaborg. AP, AFP.
MAHMOUD Abbas, nýr leið-
togi Palestínumanna, var
bjartsýnn á það í gær, að
vopnaðar sveitir Palestínu-
manna myndu fljótlega lýsa
yfir formlegu vopnahléi í
stríði þeirra við Ísrael.
Talsmenn nokkurra hreyf-
inga hafa lýst yfir vilja til að
hætta árásum á Ísrael og Ab-
bas sagði í viðtali, að hann
byggist fljótlega við formlegri
yfirlýsingu um vopnahlé. Það
þótti tíðindum sæta í gær, að
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, kallaði saman
ríkisstjórnarfund í bæ í Suð-
ur-Ísrael, sem oft hefur legið
undir árásum Palestínu-
manna.
Bréf til foreldra barna sem taka samræmd próf
„Ekki undirbúa
börnin sérstaklega“
NÁMSMATSSTOFNUN
biður foreldra um að und-
irbúa ekki sérstaklega þau
grunnskólabörn í 4. og 7.
bekk sem fara í samræmd
könnunarpróf 3. og 4. febr-
úar nk. Er talið að slíkur
undirbúningur geti m.a.
valdið auknum prófkvíða. Í
bréfi sem sent hefur verið
foreldrum barnanna segir:
„Ekki er ástæða fyrir for-
eldra að undirbúa börnin
sérstaklega fyrir prófin
enda eru þau hluti af hefð-
bundnu skólastarfi.“
Aðspurður hvers vegna
foreldrum séu send þessi
tilmæli segir Sigurgrímur
Skúlason, hjá Námsmats-
stofnun, ástæðuna vera þá
að ekki sé ætlunin að keyra
upp prófastress hjá börn-
unum vegna könnunar-
prófsins. Hann segir prófið
byggjast á því námsefni
sem börnin hafi verið að
læra á undanförnum tveim-
ur til þremur árum. Hann
segir kerfisbundna upprifj-
un innan veggja skólans
vera mun gagnlegri fyrir
börnin en að þau séu t.d. að
fara í gegnum gömul próf
með foreldrum sínum.
Hann bendir á að próf séu
ekki byggð upp sem
kennsluefni, þau gefi ekki
heildstætt yfirlit eins og
kerfisbundin upprifjun.
„Í prófum er verið að
koma við á ólíkum stöðum
en í kennslunni er verið að
gefa heildstæðara yfirlit yf-
ir ákveðið svið,“ segir Sig-
urgrímur.
Hann segir ofangreinda
setningu hafa verið í bréf-
inu í nokkur ár þannig að
þessi hvatning sé ekki ný af
nálinni.
VÍKTOR Jústsjenko sór í gær emb-
ættiseið sem forseti Úkraínu og lýsti
um leið yfir, að framtíð landsins væri
innan sameinaðrar Evrópu. Fögn-
uðu því hundruð
þúsunda manna,
sem safnast
höfðu saman á
Sjálfstæðistorg-
inu í Kíev, höf-
uðborg landsins.
„Framtíð okk-
ar er innan Evr-
ópusambands-
ins,“ sagði
Jústsjenko í
ræðu, sem hann
flutti á Sjálfstæðistorginu eftir að
hafa svarið eiðinn í þinginu. „Mark-
mið mitt er að tengjast Evrópu.
Framtíð okkar er í sameinaðri Evr-
ópu.“
Jústsjenko beindi einnig máli sínu
til þeirra, sem studdu keppinaut
hans, Víktor Janúkovítsj, og fullviss-
aði þá um, að hann væri einnig
þeirra forseti. „Sigur minn er sigur
allrar þjóðarinnar,“ sagði hann.
Embættistakan var í raun há-
punktur „rauðgulu byltingarinnar“ í
Úkraínu en eitt meginstefið í henni
var að brjótast undan ofurvaldi rúss-
neskra áhrifa og tengjast Evrópu-
ríkjunum nánari böndum. Við at-
höfnina í gær voru enda viðstaddir
margir fulltrúar vestrænna ríkja,
meðal annars Colin Powell, fráfar-
andi utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, framkvæmdastjóri NATO, og
fulltrúar Evrópusambandsins.
Powell hét því í gær fyrir hönd
Bandaríkjastjórnar að styðja Úkra-
ínustjórn og það sama kom fram í yf-
irlýsingum fulltrúa ESB.
„Framtíð okkar er í
sameinaðri Evrópu“
Reuters
Gífurlegur mannfjöldi var saman kominn á Sjálfstæðistorginu í Kíev er
Jústsjenko kom þar fram að lokinni embættistöku í þinginu.
Jústsjenko með
innsiglisstimpil for-
setaembættisins.
Kíev. Ap, AFP.
Hundruð þúsunda
fögnuðu nýjum
forseta Úkraínu
FÓLK í norðaustanverðum Bandaríkjunum, til dæmis þessi
íbúi í Sommerville í Massachusetts, varð í gær að grípa til
skóflunnar til að komast út úr húsi en þar er nú gífurlegt
fannfergi. Í Boston var jafnvel talið, að um væri að ræða met
allt frá því mælingar hófust árið 1892. Áætlunarflug og aðrar
samgöngur fóru meira eða minna úr skorðum.
Reuters
Allt á kafi í snjó
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, segist í samtali
við Morgunblaðið í dag vera hryggur
yfir því að Gylfi, félagi sinn í flokkn-
um, skuli „misnota“ nafn verkalýðs-
hreyfingarinnar. „Hann hefur að
mínu viti ekki umboð frá verkalýðs-
hreyfingunni til þess að tala í hennar
nafni eins og hann gerði í gær,“ segir
Össur. Hann segist hafa fengið mjög
sterk viðbrögð við ummælum Gylfa.
Auk þess segist Össur hafa verið
óviðbúinn ummælum Gylfa. Hann
hafi ekki átt von á því að formanns-
baráttan yrði eins persónulega
harkaleg og raun beri vitni.
Allir gæti hófstillingar
„Þetta snýst ekki bara um okkur
Össur. Þetta er stór flokkur og það
er mikið af fólki í flokknum sem hef-
ur sjálfstæðar skoðanir. Það ákveður
sjálft hvort það kemur fram og lýsir
stuðningi við annaðhvort mig eða
Össur og á hvaða forsendum það
gerir það. Við getum ekkert stjórnað
því fullkomlega,“ segir Ingibjörg
Sólrún við Morgunblaðið og telur
mikilvægt að allir gæti hófstillingar í
því sem þeir segja, bæði þau Össur
og aðrir líka.
Snýst ekki
bara um
okkur Össur
UMMÆLI framkvæmdastjóra ASÍ, Gylfa Arnbjörnsonar, um stuðning
margra úr verkalýðshreyfingunni við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem
formann Samfylkingarinnar hafa valdið nokkrum titringi innan flokksins.
Sex fulltrúar í verkalýðsmálaráði flokksins, sem í eiga sæti 45 manns, sendu
frá sér yfirlýsingu þar sem ummæli Gylfa eru ekki sögð vera í þeirra nafni.
Óskað hefur verið eftir fundi í ráðinu. Össur Skarphéðinsson, formaður
flokksins, segist vera hryggur yfir því að Gylfi skuli „misnota“ nafn verka-
lýðshreyfingarinnar. Ingibjörg Sólrún segir það ekki sanngjarnt hjá Össurri
að segja stuðningsmenn hennar viðhafa „subbuleg“ vinnubrögð.
Samfylkingin/6
GYLFI Arn-
björnsson,
framkvæmda-
stjóri ASÍ, seg-
ir að sér sé
frjálst að tjá
eigin skoðanir
um formanns-
efni Samfylk-
ingarinnar.
Með stuðningsyfirlýsingu við
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
hafi hann ekki verið að tala fyrir
hönd ASÍ eða allra fulltrúa í
verkalýðsmálaráði Samfylking-
arinnar. ASÍ sé ekki í Samfylk-
ingunni.
Gylfi segist aldrei hafa sagst
vera talsmaður verkalýðs-
málaráðs flokksins.
„Ég sagði marga virka aðila í
verkalýðshreyfingunni vera sömu
skoðunar og ég. Ég sagði aldrei
að það væru allir,“ segir Gylfi og
vísar á bug ummælum Össurar
Skarphéðinssonar í sjónvarps-
fréttum í gær um að hann beiti
„subbulegum“ vinnubrögðum.
Frjálst að tjá
eigin skoðanir
Fasteignir og Íþróttir í dag