Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 2
2 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Blikktromman
30%
afsláttur
Eitt helsta bókmennta-
verk 20. aldar.
Saga Óskars, hins
meinfýsna dvergs sem
slær blikktrommu sína
af ástríðu, er um leið
saga Þýskalands á
umrótsáratugum
stríðs og nasisma.
Nú loksins fáanleg í
einni bók!
HALD LAGT Á GÖGN
Hald var lagt á mikið af bókhalds-
gögnum og tölvubúnaði þegar hópur
á vegum skattrannsóknarstjóra
gerði skyndilega húsrannsókn á
fjölda vínveitingastaða í Reykjavík
sem hófst í fyrrakvöld og lauk síð-
degis í gær. Grunur leikur á víð-
tækum skattsvikum. Eru þetta um-
fangsmestu húsrannsóknir sem
gerðar hafa verið vegna skattrann-
sókna í langan tíma.
Hermenn særðu gísl
Bandarískir hermenn gerðu skot-
árás á ítölsku blaðakonuna Giuliana
Sgrena og fylgdarlið hennar í Írak í
gær eftir að mannræningjar létu
hana lausa úr gíslingu. Blaðakonan
særðist og ítalskur leyniþjónustu-
maður lét lífið. Hermt var að tveir
aðrir leyniþjónustumenn hefðu
særst.
Varasjóður VR
Félagsmenn í VR munu hver og
einn eignast sinn eigin séreignasjóð
hjá félaginu, svonefndan VR-vara-
sjóð, verði tillaga stjórnar félagsins
þar um samþykkt. Munu félags-
menn þannig eignast sjóð með um
45.000 kr. inneign að meðaltali –
sumir meira, aðrir minna.
Krefjast handtöku Kútsma
Kommúnistar á þingi Úkraínu
kröfðust þess í gær að Leoníd
Kútsma, fyrrverandi forseti lands-
ins, yrði handtekinn. Krafan kom
fram eftir að fyrrverandi innanríkis-
ráðherra fannst látinn skömmu áður
en hann átti að mæta til yfirheyrslu
vegna rannsóknar á morði sem fyrr-
verandi stjórn landsins hefur verið
sökuð um.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 34
Fréttaskýring 8 Bréf 39
Úr verinu 12 Kirkjustarf 40/42
Viðskipti 14 Brids 42
Erlent 16/18 Minningar 43/49
Minn staður 20 Skák 50
Akureyri 29 Myndasögur 54
Suðurnes 30 Dagbók 54/57
Árborg 32 Af listum 58
Landið 33 Staður og stund 56
Daglegt líf 24/25 Leikhús 58
Ferðalög 26/27 Bíó 62/65
Úr Vesturheimi 28 Ljósvakamiðlar 66
Menning 29, 58/65 Veður 67
Umræðan 30/39 Staksteinar 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SKÁKSNILLINGURINN Bobby
Fischer hefur verið settur í einangr-
un í innflytjendabúðunum, þar sem
hann hefur verið í haldi í nærri átta
mánuði. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi í Tókýó í gær, sem stuðn-
ingsmenn Bobbys Fischers héldu.
Búið er að kaupa opinn flugmiða til
Íslands fyrir Fischer. Á fundinum
hvöttu þeir Guðmundur G. Þórarins-
son, fyrrverandi forseti Skáksam-
bands Íslands, og Sæmundur Páls-
son, vinur Fischers, japönsk stjórn-
völd til að leyfa Fischer að fara til
Íslands.
Guðmundur sagði á fundinum að
mannlegur harmleikur væri í uppsigl-
ingu. „Við erum að ræða um mál
manns, sem sennilega er mesti skák-
snillingur sem uppi hefur verið,“
sagði hann, samkvæmt frásögn á
fréttavefnum Mainichi Shimbun.
Guðmundur sagði að þótt komandi
kynslóðir muni heiðra Fischer fyrir
skáksigra hans muni sagan ekki fara
mjúkum höndum um Bandaríkin og
Japan vegna atburðanna nú. „Hann
hefur aldrei meitt nokkurn mann
nema hugsanlega með orðum,“ sagði
Guðmundur. „Hann hefur aðeins fært
taflmenn af svörtum reitum á hvíta.“
Fischer settur í einangrun
Sæmundur lýsti á fundinum von-
brigðum með að hann hefði ekki enn
fengið að hitta Fischer og hann von-
aðist til að geta komið ferðaskjölum
og útlendingavegabréfi til hans.
Fram kom á fundinum, að Fischer
hefði verið settur í einangrun í útlend-
ingabúðunum. Hefur engum verið
leyft að hitta hann undanfarna daga,
ekki heldur Masako Suzuki, lögmanni
hans. Einnig hefur honum verið
bannað að hringja úr búðunum. Tals-
maður búðanna neitaði að tjá sig um
málið við AFP-fréttastofuna að öðru
leyti en því að um öryggisráðstafanir
væri að ræða.
Miyoko Watai, unnusta Fischers
og forseti japanska skáksambands-
ins, sagðist óttast um heilsu hans.
Sagði hún að Fischer hefði misst um
10 kg frá því hann var handtekinn í
júlí. Þá sagði hún að Fischer legði nú
fæð á Japan og Japana.
Masako Suzuki lögmaður sagði að
keyptur hefði verið opinn flugmiði
fyrir Fischer til Íslands. Sagði hún að
Fischer hefði í síðustu viku sótt form-
lega um að fá að fara sjálfviljugur frá
Japan til Íslands og lofað því að láta af
málaferlum gegn japanska dóms-
málaráðuneytinu ef fallist yrði á
þetta. Japönsk innflytjendayfirvöld
hefðu ekki svarað þessari beiðni.
John Bosnitch, formaður stuðn-
ingsmannanefndar Fischers í Japan,
sagði að vonast væri til að Fischer
fengi að fara frá Japan fyrir 9. mars
en þá verður Fischer 62 ára. Bosnitch
bætti við að bandaríski lögmaðurinn
Richard J. Vattuone væri að undirbúa
kröfu um að hugsanlegur málarekst-
ur á hendur Fischer í Bandaríkjunum
yrði stöðvaður.
Flugmiði keyptur fyr-
ir Fischer til Íslands
Ljósmynd/Einar S. Einarsson
Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrv. formaður Skáksambandsins, Garðar
Sverrisson, fyrrv. formaður Öryrkjabandalagsins, og Sæmundur Pálsson,
vinur Fischers, sýna vegabréf sín á blaðamannafundi í Japan í gær.
ÓTTAST er að Bobby Fischer hafi
ekki látið setja sig í einangrunar-
klefa átakalaust og hann orðið fyrir
líkamlegum meiðingum, að því er
fram kom á blaðamannafundi
stuðningsmanna hans í Tókýó í
gær.
„Við höfum ekki fengið skýr-
ingar á hvers vegna við fengum
ekki að hitta hann á mánudag, en
ég vona að það hafi ekkert komið
fyrir hann. Við höfum heyrt af því
að það hafi verið farið með hann í
einangrun í handjárnum þegar við
komum í búðirnar. Það virðist eitt-
hvað hafa gerst,“ sagði Sæmundur
Pálsson, vinur Fischers, í samtali
við fréttavef Morgunblaðsins.
Sæmundur ætlar að gera aðra til-
raun til að heimsækja Fischer í búð-
irnar á mánudag, en heimsóknir
eru ekki leyfðar um helgar. „Ég
vona svo bara að ég fái að hitta
hann á mánudag,“ sagði Sæmund-
ur. Hann sagðist vera mjög ánægð-
ur með fundinn í gær og taldi að
málstaður stuðningsmanna Fisch-
ers hefði komist vel til skila.
Einar S. Einarsson sagði fundinn
hafa verið fjölsóttan og áhrifarík-
an. Sérstaklega hefði verið til þess
tekið hvað framsaga Sæmundar
hefði verið hjartnæm. Fjöldi fjöl-
miðlamanna var á fundinum, m.a.
frá fréttastofunum AP, AFP og
Reuters og frá japönskum dag-
blöðum og sjónvarpsstöðvum.
Einar sagði ekki ljóst á þessu
stigi hvað íslenska sendiráðið í Jap-
an teldi sér fært að gera varðandi
vegabréfið. Lögfræðingur Fischers
hefði í gær skrifað sendiherra Ís-
lands í Tókýó greinargerð um
meintar lagaflækjur því tengdar.
Vonar að ekk-
ert hafi komið
fyrir Fischer
„ÉG ER sammála Guðmundi Jóns-
syni sagnfræðingi (og Helgu Kress)
um það, að ég hefði átt að vísa oftar til
Peters Hallbergs, sem ég hafði mikið
gagn af, í bók minni, Halldór, sem
kom út árið 2003. Ég hélt, að ein alls-
herjartilvísun í eftirmála, þar sem ég
tók fram, hversu mikið gagn ég hefði
haft af ritum Hallbergs, nægði. En ég
sé nú, að svo er ekki. Hallberg átti
auðvitað skilið, að ég vitnaði oftar til
hans, ekki síst í meginmáli.“
Þetta kemur fram í svari Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar prófessors
við opnu bréfi Guðmundar Jónssonar,
prófessors í sagnfræði, sem sent var
út til allra starfsmanna Háskóla Ís-
lands í gær. Hannes segir að það hafi
„blátt áfram [orðið] útundan að vísa
nægilega ört og skýrt til þeirra Lax-
ness og Hallbergs,“ en í svarinu tekur
hann einnig undir þá gagnrýni Guð-
mundar og Helgu Kress að hann hefði
átt að afmarka skýrar, hvað í köflum
bókarinnar um æsku Laxness er sótt í
æskuminningabækur hans, og vísa
oftar í ritin neðanmáls. „Bókin hefði
ekki spillst við það,“ segir Hannes í
svari sínu. „ Ég hefði vissulega átt að
stytta endursagnir mínar úr þessum
bókum og gera texta minn ólíkari
texta Laxness. Þetta var athugaleysi
af minni hálfu. Það er því sorglegra
sem það hefði í hæsta lagi kostað mig
nokkurra daga vinnu að kippa þess-
um atriðum í lag. Það var ekki tíma-
skortur, sem réð þessari yfirsjón,
heldur hitt, að ég beindi athyglinni í
aðra átt. Ég lagði mig fram um að láta
Halldór Kiljan Laxness njóta sann-
mælis í bók minni, halla hvergi á
hann, og líka að gera frásögnina læsi-
lega og fróðlega, svo að bókin yrði við
alþýðu skap.“
Háskólayfirvöld taki
málið föstum tökum
Guðmundur krefst þess í opna
bréfinu sem beint er til rektors að há-
skólayfirvöld taki þær ásakanir sem
komið hafa fram um vinnubrögð
Hannesar Hólmsteins föstum tökum
og kveði skýrt upp úr með það hvort
viðurkenndar fræðireglur um með-
ferð heimilda hafi verið brotnar.
„Þannig sýnir Háskólinn í verki að
siðareglur hans eru meira en orðin
tóm og gefur jafnframt ótvírætt til
kynna að svipaðar siðareglur gildi í
Háskóla Íslands og í háskólum er-
lendis.“
Segist Guðmundur hafa fengið
spurnir að því að siðanefnd HÍ, sem
falið var að kanna málið, ætli ekki að
aðhafast frekar í því. „Ég tel hins veg-
ar að háskólayfirvöld geti ekki leitt
svo alvarlegar ásakanir um óvönduð
fræðileg vinnubrögð hjá sér og þeim
beri að taka skýra afstöðu gegn rit-
stuldi. Umræðan er sérlega mikilvæg
innan sagnfræðinnar þar sem rík
áhersla er lögð á vandaða meðferð
heimilda. Til nemenda í sagnfræði eru
gerðar þær kröfur að þeir sýni hvar
þeir leiti fanga í ritsmíðum, að þeir
forðist mistúlkun og afbökun heim-
ilda, í stuttu máli, að þeir sýni heilindi
gagnvart bæði lesendum og öðrum
höfundum.“
Hannes bendir á að hann sé að
vinna að svari við ritgerð Helgu í
tímaritinu Sögu og sér finnist að Guð-
mundur hefði mátt bíða eftir því svari.
Í svari sem Helga Kress skrifar við
bréfum Hannesar og Guðmundar í
gær kemur fram að engin svör hafi
borist frá háskólarektor við ítarlegri
skýrslu um vinnubrögð Hannesar
Hólmsteins. Var skýrslan að sögn
Helgu send rektor sl. haust.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson svarar gagnrýni á bók sína um Laxness
Hefði átt að vísa oftar í Peter
Hallberg og Halldór Laxness
Hannes Hólm-
steinn Gissurarson
Guðmundur
Jónsson
!
"
#
$
%&' (
)***