Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 4

Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 4
4 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LESTUR Morgunblaðsins hefur aukist um 2,5% frá því í nóvember samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun IMG Gallup. Er meðallestur á tölu- blað nú 51,9% en var 49,4% í nóv- ember. Lestur Fréttablaðsins minnkar um 1,4% á sama tímabili, var 68,5% í nóvember en er nú 67,1%. DV bætir við sig lesendum samkvæmt könnuninni, er nú með 20,1% meðallestur á tölublað en var með 16,7% í nóvember. Hefur lestur DV því aukist um 3,4% samkvæmt þessu. Könnunin var gerð 4.–10. febrúar sl. Úrtakið var 1.266 Íslendingar á aldrinum 12–80 ára, valdir með til- viljunaraðferð úr þjóðskrá. Svar- hlutfall var 63,3%. Morgunblaðið mest lesið á föstudögum Morgunblaðið er mest lesið á föstudögum samkvæmt könnuninni, en þá lesa 55,9% landsmanna blaðið. Sunnudagsblaðið kemur þar á eftir með 53,7% lestur. Sé meðallestur skoðaður eftir kynjum kemur í ljós að konur eru í naumum meirihluta lesenda Morgunblaðsins, tæp 53% þeirra lesa Morgunblaðið en 51% karla. Elsti lesendahópurinn, 60 og eldri, les blaðið mest, en 73,2% þess aldurshóps les Morgunblaðið. Blaðið er mest lesið á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 59% íbúanna lesa blaðið, á móti 39,9% íbúa á landsbyggðinni. Þegar spurt var í hversu mörg skipti einstökum tölublöðum dag- blaðanna þriggja er flett að meðaltali kemur í ljós að Morgunblaðið hefur nær alltaf forskot á hin blöðin. Á laugardögum er DV flett oftast af dagblöðunum, á mánudögum og föstudögum er Morgunblaðinu og Fréttablaðinu flett jafn oft (1,4 sinn- um) en aðra daga vikunnar hefur Morgunblaðið vinninginn. Lestur sérblaða 68% lesenda Morgunblaðsins lesa fólk í fréttum og menningu á föstu- dögum. Tímarit Morgunblaðsins á sunnudögum mælist í könnuninni með tæplega 68% lestur og Lesbókin með 63,5% lestur. Þá er viðskipta- blað Morgunblaðsins lesið af 59,3% lesenda blaðsins á fimmtudögum og tæplega 52% lesenda lesa íþrótta- blaðið á þriðjudögum. Tæplega helmingur lesenda Morgunblaðsins á mánudögum les Fasteignablað Morgunblaðsins og 42,9% lesa sér- blaðið Bíla. Lestur Morgunblaðsins eykst en lestur Fréttablaðsins minnkar                                 AF lýsingum sjónarvotta að dæma er skýringin á ljósaganginum yfir landinu í fyrrakvöld sú að óvenju stór loftsteinn kom inn í gufuhvolfið og brann þar upp, að sögn Þorsteins Sæmunds- sonar stjörnufræðings. Hann hefur rætt við um tug manna og segir hann að svo virðist sem ljósagangurinn hafi sést á öllum landshornum. Loftsteinninn hafi verið óvenju bjartur, svo bjartur að hann lýsti upp jörð á stóru svæði, líklega á mestöllu landinu, að sögn Þorsteins. „Ég hef því miður ekki feng- ið nægilega nákvæmar upplýsingar en ég giska á að hann hafi fallið 100–200 kílómetra norð- austur af landinu og verið bjartastur í um 80– 100 km hæð,“ segir hann. „Það er líklegast að hann hafi sundrast að öllu leyti. Af lýsingum að dæma kom hann inn á miklum hraða og þá verður sjaldnast mikið eftir af þeim.“ Þorsteinn segir að ekki sé hægt að segja til um stærð steinsins með vissu en líklega hafi hann verið 50 sentimetrar eða minna í þvermál. Gera megi ráð fyrir að hann hafi verið á 12–70 km hraða á sekúndu þegar hann kom inn í gufu- hvolfið (43.000–252.000 km/klst). Svona stórir og bjartir loftsteinar sjást ekki mjög oft en þó á nokkurra ára fresti. Bjart var yfir landinu í fyrrakvöld og því urðu óvenju margir vitni að sjónarspilinu. Aðspurður segir Þorsteinn að ekki sé um það að ræða að jörðin hafi farið í gegnum lofsteinabelti, þetta hafi verið stakur lofsteinn. Til að hægt sé að meta nánar hvar loftsteinn kom inn í gufuhvolfið, og fleira því tengt, eru upplýsingar frá þeim sem sáu ljósaganginn vel þegnar og er hægt að ná sambandi við Þorstein á Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Óvenju stór loftsteinn brann upp með miklum ljósagangi Steyptist á ógnarhraða inn í gufuhvolfið TILKYNNT var snemma í gær- morgun um eld í bifreið á Hverf- isgötu, á móts við hús númer 62. Bifreiðinni hafði verið ekið utan í vegrið eða keilur og í framhaldinu komið upp eldur. Að sögn vitna fór ökumaðurinn strax út úr bifreiðinni eftir að hafa ekið utan í keilurnar og upp á gangstétt og hljóp á brott. Lög- reglu grunar að ekki hafi allt verið með felldu hjá ökumanninum sök- um ölvunar eða annarra ástæðna og hann því flúið af vettvangi. Hans var leitað í gær. Að sögn slökkviliðsins gekk vel að slökkva eldinn, en bifreiðin, gömul Mazda, er talin ónýt eftir brunann. Eldsupptök eru ókunn. Ljósmynd/Guðjón Jónsson Brann á Hverfisgötu Ökumaðurinn stakk af og er nú leitað. Ökuþórinn hljópst á brott KRINGUM 50 ungir hundarækt- unarmenn sýndu í gær listir sínar og dýra sinna á alþjóðlegri sýn- ingu Hundaræktarfélags Íslands í reiðhöll Gusts við Álalind í Kópa- vogi. Sýndu þau í tveimur flokk- um og undir kvöldið voru sýndir 105 hvolpar sem skráðir voru til leiks. Sýningin heldur áfram í dag og á morgun og voru alls 467 hundar sem eru 9 mánaða og eldri skráðir til keppninnar. Mik- ill áhugi er á keppninni. Morgunblaðið/Þorkell Nærri 500 hundar sýndir um helgina LÖGREGLAN í Stykkishólmi stöðvaði níu ökuþóra fyrir of hraðan akstur í gær og er það óvenju mikið. Sá sem hraðast ók mældist á 141 km hraða á Vatnaleið og allir hinir óku hrað- ar en 110 km/klst. Líkt og venju- lega voru karlmenn í meirihluta hinna brotlegu ökumanna, sjö karlar og tvær konur. Á 141 km hraða á Vatnaleið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.