Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði í setn- ingarræðu sinni á landsþingi flokks- ins í gær, að í nýrri tillögu að ályktun flokksins í samgöngumálum, væri lagt til að lokið yrði við gerð átján til tuttugu jarðganga á 20 árum. Álykt- unartillaga þess efnis hefur verið lögð fram á landsþinginu. „Nú erum við í Frjálslynda flokkn- um að leggja fram nýjar áherslur í samgöngumálum þar sem byggt er á að koma sem flestum af erfiðustu fjallvegum landsins í jarðgöng – og unnið verði að þverun fjarða til stytt- ingar vegalengda,“ sagði Guðjón. „Væri slíkri áætlun fylgt næstu tutt- ugu árin þyrfti að merkja nægilegt fjármagn í fjárlögum hvert ár svo samfellt væri unnið að jarðgöngum á hverju ári í 20 ár og ljúka við átján til tuttugu jarðgöng – sem alls yrðu um 80 til 90 km á lengd – eftir að leitað hefði verið að hagstæðustu staðsetn- ingu í hverju tilfelli og forgangsrað- að. Með þannig vinnulagi og sam- felldu í varanlegum samgöngubót- um, væri verið að spara mikla fjármuni til lengri tíma litið. Lítum til aldar, en ekki áratugar í varanlegri vegagerð.“ Um hundrað landsþingsfulltrúar fylgdust með setningarræðu for- mannsins á Kaffi Reykjavík í gær. Guðjón sagði m.a. í ræðu sinni að til þess að halda velli og brjóta upp veldi fjórflokksins yrði Frjálslyndi flokkurinn að stækka yfir tíu pró- senta fylgi. Markmiðið væri að breyta völdum í íslensku þjóðfélagi og minnka áhrif fjórflokksins. „Við unnum sigur í síðustu alþingiskosn- ingum. Við erum með opið bókhald sem aðrir stjórnmálaflokkar gætu tekið sér til fyrirmyndar. Höldum áfram að vinna heiðarlega fyrir opn- um tjöldum. Sækjum fram út frá miðjunni, bæði til hægri og vinstri. Látum ekki villa okkur sýn með of mikilli hægri sveiflu né vinstri villu. Við viljum standa fyrir einstaklings- framtaki og frelsi en ekki nýju vist- arbandi leiguliðans. Við viljum standa vörð um velferð fólks og styðja þá með virðingu sem höllum fæti standa og skilað hafa þjóðfélag- inu sínu ævistarfi. Skilað okkur inn í nútíma þjóðfélag. Við viljum stétt með stétt hvar sem við störfum.“ Vilja færeysku leiðina Guðjón minnti á að Frjálslyndi flokkurinn hefði frá upphafi hafnað kvótakerfinu í sjávarútvegi. „Núver- andi stórgreifar í útgerðarmanna- stétt gera kröfu til söluréttar á óveiddum fiski í sjónum, aflahlut- deild, sem í almennu tali manna á meðal er nefnt kvótinn. Þeir vilja einkaeign og leggjast gegn því að í stjórnarskrá Íslands segi að auðlind- ir sjávar séu þjóðareign,“ sagði hann. „Frjálslyndi flokkurinn telur að sú stefna að vinna sig út úr kvótakerfinu í aðgreindum skrefum í tíma og með skiptingu flotans í fjóra aðgreinda út- gerðarflokka sé vel fær leið. Þannig megi vinna sig hægt en með mark- vissum hætti út úr kvótakerfi með frjálsu framsali án skaða og síðar til mikils ávinnings fyrir þjóðina. Víða á landsbyggðinni er verðhrun á aðal- eign hverrar fjölskyldu, íbúðarhús- inu, vegna atvinnutapsins sem varð þegar atvinnurétturinn, auðlindin í sjónum – fiskikvótinn, var seldur burt. Næst mun vegið að undirstöðu byggðar- og atvinnurétti fólks á Stöðvarfirði ef eftir gengur sú vá sem fólki þar er nú boðuð.“ Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, á landsþingi Átján til tuttugu jarðgöng verði gerð á tuttugu árum Flokkurinn sæki fram út frá miðjunni, bæði til hægri og vinstri Morgunblaðið/Golli Guðjón Arnar Kristjánsson vill leggja aukna fjármuni í jarðgangagerð. ÞORRI skólastjóra og skólameistara fram- haldsskólanna hefur miklar efasemdir um styttingu náms til stúdentsprófs, að mati Sölva Sveinssonar, verðandi skólastjóra Verzlunar- skóla Íslands og fyrrverandi skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla. Sölvi telur að gefa þurfi framhaldsskólunum svigrúm til að skipuleggja námsframboð sitt, verði nám til stúdentsprófs stytt í þrjú ár. Hann hefur varpað fram þeirri hugmynd að þriðjungur af nýja stúdentsprófinu verði í ís- lensku, ensku og stærðfræði. Vægi hverrar greinar í þessum þriðjungi yrði einstaklings- bundið eftir áhugasviði og vali nemenda. Skól- unum verði síðan gefið sjálfdæmi um hvernig þeir hagi öðrum greinum til stúdentsprófsins. „Auðvitað hljóta þeir að taka mið af hags- munum nemenda og kröfum háskólanna,“ sagði Sölvi. „Margar deildir háskólanna hafa skilgreint hvað sé æskilegur undirbúningur fyrir nám í þeim og hvað sé nauðsynlegt. Sum- ar tilgreina beinlínis einingafjölda í tilteknum námsgreinum. Ég sé ekki betur, verði þær hugmyndir sem uppi eru núna að hafa kjarna, kjörsvið og val til stúdentsprófs, en að þá geti t.d. nemandi í Verslunarskóla Íslands sem ætl- ar sér að fara í verkfræði- og raunvísindadeild HÍ ekkert sinnt þeim greinum sem eru sérsvið Verzlunarskólans. Nema þá hann taki fleiri einingar en stúdentsprófið nýja verður.“ Sölvi segir að samkvæmt hugmyndum sem fram hafi komið um nýja stúdentsprófið verði það í raun steypt í sama mótið óháð skólum. „Það á að treysta skólunum til að bjóða upp á það sem þeir eru sterkastir í þannig að þeir geti haldið sínum sérkennum og búið nem- endur sína undir það nám sem þeir hyggjast fara í. Mér leiðist þessi miðstýringarárátta í menntamálaráðuneytinu og þykir hún haml- andi fyrir skólana.“ Sölvi segist bera kvíðboga fyrir tungumálanámi, verði nám til stúd- entsprófs stytt. „Ís- lendingar eru mjög lítið málsamfélag og þurfa að mínu mati að læra tvö, ef ekki þrjú, hjálparmál sem ég kalla svo. Norrænt mál nýtist Íslendingum mjög vel. Rannsóknir Auðar Hauksdóttur meðal íslenskra námsmanna í Dan- mörku sýna það ljóslega. Íslendingar telja sig almennt miklu betri í ensku en þeir eru í raun og veru. Það sést um leið og fólk fer að lesa enskar fagbók- menntir að það rekur mjög hastarlega í vörð- urnar. Þeir eru góðir í bíómyndum og slangri, götumáli. Síðan sýnist mér geta stefnt í mikinn ófarnað varðandi þriðja málið með stytting- unni; frönsku, spænsku eða þýsku. Ég ber líka kvíðboga fyrir því að helmingur dönskukennslu eigi að flytjast til grunnskól- anna. Svo ég vitni aftur í rannsóknir Auðar Hauksdóttur þá eru mjög margir að kenna dönsku í grunnskóla sem hafa litla menntun í henni eða eru beinlínis þvingaðir til þess.“ En hvað um þær hugmyndir að stytta frem- ur grunnskólann um eitt ár fremur en fram- haldsskólanám til stúdentsprófs? „Mér finnst það miklu eðlilegra,“ segir Sölvi. „Það er búið að lengja námstíma í grunnskóla um allt að tveimur árum án þess að námsefni hafi verið bætt við í sama mæli. Það má vissu- lega bæta við námsefni í grunnskóla, en mér finnst of hratt af stað farið í þeim efn- um.“ Sölvi bendir á að við styttingu náms til stúdentsprófs sé hugmyndin að flytja 12 einingar hið minnsta af fram- haldsskólanámi til grunnskólans. Kennsla í samræmi við það eigi að hluta til að hefjast haustið 2006. Hann telur það ekki tímabært, því ekki gefist tími til að endurmennta grunnskólakennara eða lengja kennaranámið til að mæta nýjum kröfum. Grunnskólinn sé því vanbúinn að taka við þessari auknu kennslu að sinni. Nú þegar vanti víða fagkennara með full réttindi í minni grunnskóla. Þeir séu flestir í stórum grunnskólum þar sem séu margar bekkjardeildir í hverjum árgangi. Nýta ætti sveigjanleikann í kerfinu Hugmyndir um skiptingu þriggja ára náms til stúdentsprófs, milli kjarna, kjörsviðs og frjáls vals, eru meingallaðar, segir Yngvi Pétursson, rektor Menntaskólans í Reykjavík. „Það er gert ráð fyrir að halda sama hlutfalli í kjarna og nú er gert, en samt eru teknar 12 einingar og fluttar í grunnskólann. Þannig er hlutfallslega verið að auka kjarnann sem þýðir að ekki verður hægt að bjóða upp á jafn sér- hæft nám í þessu nýja kerfi og í dag,“ sagði Yngvi. Hann sagðist hafa borið nýju hugmynd- irnar saman við þær deildir MR sem búa nem- endur undir nám t.d. í raunvísindum og læknis- fræði. Skerðingin í raungreinanámi til stúdentsprófs yrði um minnst 10 einingar, jafn- vel meira með hinu nýja fyrirkomulagi. Nem- andi sem tæki allt kjörsviðið og frjálsa valið undir raungreinar kæmist upp í 66 einingar, en núna eru 77 einingar á þessum brautum í MR. Yngvi telur mikilvægt að nemendur komi jafn vel undirbúnir undir háskólanám úr fyrir- huguðu kerfi og því sem nú gildir. Ef fram- haldsskólinn verður styttur um eitt ár ætti skerðing á námstímanum fremur að koma nið- ur á almennum greinum. Þykir honum að minnka eigi vægi kjarnans í fyrirhuguðu stúd- entsnámi í 40–45 einingar. Kjarninn yrði bund- inn við greinar eins og íslensku, ensku og stærðfræði. Síðan ætti að veita skólunum frelsi til að bjóða upp á eins sveigjanlegt nám í öðrum greinum og þeim þykir skynsamlegt. Yngvi benti á að nú þegar væru ýmsar leiðir til að stytta námstíma til stúdentsprófs. Hann nefndi t.d. tveggja ára nám í Hraðbraut, þriggja ára nám í áfangaskólunum og í fyrra fóru Menntaskólinn við Sund og Verzlunarskóli Íslands að bjóða upp á þriggja ára nám til stúd- entsprófs í bekkjakerfi. „Stóru grunnskólarnir, að minnsta kosti, hafa boðið upp á hægferðir og hraðferðir í ýms- um námsgreinum í efstu bekkjum. Það mætti vel hugsa sér að þeir fari að bjóða upp á tveggja ára braut úr námsefni 8.–10. bekkjar fyrir ákveðinn hóp nemenda, án þess að stytta grunnskólann. Þar með væri búið að mæta sjónarmiðum ólíkra hópa. Ákveðinn hópur nemenda gæti þannig farið gegnum efstu bekki grunnskóla á tveimur árum í stað þriggja og jafnvel stytt námstímann enn frekar með því að fara síðan á þriggja ára braut í framhalds- skóla. Mér finnst að það eigi að nýta þennan mikla sveigjanleika og framboð sem er í skóla- kerfinu, í stað þess að steypa alla í sama mót.“ Skólarnir fái að bjóða upp á nám sem þeir eru sterkastir í Sölvi Sveinsson leggur til að framhaldsskólar fái aukið sjálfdæmi um námsframboð Sölvi Sveinsson Yngvi Pétursson FRJÁLSLYNDI flokkurinn ítrekar þá afstöðu sína til Evrópusam- bandsins að aðild sé engan veginn tímabær, segir í drögum að stjórn- málayfirlýsingu landsþings Frjáls- lynda flokksins. „EES-samningur- inn virðist enn duga Íslendingum vel og þar eigum við sameiginlega hagsmuni með Noregi,“ segir einn- ig í drögunum. Þar segir einnig að Frjálslyndi flokkurinn vari mjög eindregið við drottnunarvaldi örfárra fyrirtækja í atvinnugreinum og viðskiptum „og telur brýnt að setja rammalög- gjöf um hringamyndanir,“ segir í drögunum. Þá segir að flokkurinn vísi með öllu á bug hugmyndum um einka- væðingu Landsvirkjunar og hann segist ennfremur alfarið á móti einkavæðingu Símans með dreifi- kerfinu, eins og ríkisstjórnin boði. Andvígur framboði til öryggisráðsins Í drögunum er einnig fjallað um framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og sagt að flokkurinn sé andvígur því að sóa fé í tilraunir til að ná sæti í ráðinu. Að lokum má nefna drög að stefnu flokksins í menntamálum, en þar segir að hann vilji efla leik- skólastigið og gera skólavist síð- asta árgangs leikskólabarna gjald- frjálsa. „Stefnt skal að gjaldfrjáls- um leikskóla í áföngum.“ Landsþingi Frjálslynda flokksins líkur í dag með kosningu forystu flokksins. Aðild að ESB engan veginn tímabær Vilja gjaldfrjáls- an leikskóla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.