Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 17 ERLENT HÓPUR danskra frjálshyggjumanna, sem finnst ríkisstjórn Venstre og Íhaldsflokksins einkennast af allt of miklu miðjumoði, stefnir að því að stofna nýjan hægriflokk með haust- inu. Hópurinn, sem nú er um 100 manns, ætlar að koma saman á næstunni til að ganga frá drögum að stefnu flokksins og efna síðan til stofnfundar að loknum sumarleyfum. „Stór hópur frjálslyndra manna hefur sýnt þessu mikinn áhuga og ég efast ekki um að út- koman verður nýr flokkur. Á honum og Venstre og Íhaldsflokknum verður skýr mun- ur þótt það sé ekki ætlunin að fylgja einhverri ofurfrjálshyggju,“ sagði Kjeld Flarup, einn frjálshyggjumannanna, í viðtali við Berlingske Tidende. Flarup nefnir sem hugsanleg stefnumál, að eftirlaun og efstu skattþrepin verði afnumin og skattprósentan verði ekki hærri en 20%. Í nýafstaðinni kosningabaráttu í Danmörku létu margir frjálshyggjumenn í ljós óánægju með ríkisstjórn borgaraflokkanna, sem þeim finnst eins og áður segir vera komin inn á miðj- una, og það vakti ekki mikla hrifningu í þeirra röðum þegar Anders Fogh Rasmussen for- sætisráðherra lýsti yfir á kosningafundi, að frjálshyggjan væri úrelt hugmyndafræði. Skoðanasystkin hvött til að nota Netið Frjálshyggjufólk í Danmörku hefur verið hvatt til að nota Netið og koma þannig á fram- færi sínum hugmyndum um stefnumál flokks- ins væntanlega og hvað hann skuli heita. Hef- ur ýmislegt verið nefnt í því sambandi, til dæmis Frelsislistinn, Frelsisflokkurinn og Frjálshyggjuflokkurinn. Peter Kurrild-Klitgaard, lektor í stjórnvís- indum, segir, að nái flokkurinn að koma mönn- um á þing, geti það vissulega orðið til að færa Venstre og Íhaldsflokkinn aftur til hægri en á hinn bóginn sé það ekki auðvelt fyrir nýjan flokk að hasla sér völl og komast yfir 4%-mörk- in. „Síðustu dæmin um þetta eru Danski þjóð- arflokkurinn og Einingarlistinn en þeir áttu rætur að rekja til gamalla og gróinna flokka. Sé um alveg nýjan flokk að ræða, þá verður hann að geta flaggað áberandi manni á borð við Mogens Glistrup eða Erhard Jakobsen en ég hef ekki enn komið auga á neinn slíkan mann í þessum hópi,“ sagði Peter Kurrild- Klitgaard. Nýr frjálshyggjuflokkur á döfinni í Danmörku Óánægja á hægrivæng með „miðjumoð“ ríkisstjórnarinnar YFIRSTJÓRN dönsku landhelg- isgæslunnar viðurkenndi í gær, að vegna mistaka hefði ekki verið gripið inn í siglingu flutninga- skips, sem rakst á Stórabeltis- brúna í fyrrakvöld. Stýrimaður skipsins beið bana við árekst- urinn. Jyllands-Posten hefur það eftir talsmanni landhelgisgæslunnar, að þeir, sem fylgdust með skip- inu í ratsjá, hefðu átt að grípa inn í þegar ljóst var orðið, að skipið var ekki á réttri leið. Sagði hann, að gæslan bæri þó enga ábyrgð á árekstrinum og benti á, að við þessar aðstæður hefðu tveir menn átt að vera í brú skipsins en stýrimaðurinn var þar einn. Stýrimaðurinn var 37 ára Króati og lést við áreksturinn. Fór líkið í sjóinn en fannst skömmu síðar. Skipstjóri og mat- sveinn meiddust nokkuð. Nokkru fyrir áreksturinn hafði hafnsögumaður farið um borð en svo virðist sem ekki hafi verið farið að fyrirmælum hans. Rakst skipið á vestasta hluta brúar- innar en stór skip mega ekki fara undir hana þar. Skipið, Karen Danielsen, er í danskri eigu en skráð á Bahamaeyjum. Gæslan greip ekki inn í AP Brú skipsins fór mjög illa við áreksturinn. FJÓRIR kanadískir lögreglumenn létu lífið á fimmtudag er þeir gerðu húsleit á bóndabýli í Albertafylki þar sem grunur lék á að lögð væri stund á kannabisræktun. Er þetta mesta mann- fall, sem orðið hefur í lögregluaðgerð í Kanada í rúma öld. Fjórir menn úr riddaralögregluliðinu voru að leita að fíkniefnum á bænum sem er um 130 kíló- metra norðvestur af höfuðstaðnum, Edmonton, þegar eigandi býlisins hóf skyndilega að skjóta á þá með öflugum riffli. Lögreglumennirnir fund- ust látnir í skúr á bóndabýlinu ásamt bóndanum. Hugsanlegt er talið að bóndinn hafi framið sjálfsmorð eftir að hafa skotið lögreglumennina. Fjórir lögreglu- menn drepnir Toronto. AFP. EFNT verður til þjóðaratkvæðagreiðslu um hina nýju stjórnarskrá Evrópusambandsins (ESB) í Frakklandi 29. maí. Jacques Chirac Frakklandsforseti sendi frá sér tilkynningu þessa efnis í gær. Til þess að nýju stjórnlögin öðlist gildi verða þau að hljóta samþykki í aðildarríkjunum 25. Hins vegar verður ekki efnt til þjóðaratkvæða- greiðslu í þeim öllum. Í sumum tilfellum næg- ir samþykki þingheims. Felli eitt aðildarríkj- anna stjórnlögin öðlast þau ekki gildi. Spánverjar hafa þegar lagt blessun sína yf- ir stjórnarskrána. Þátttaka var hins vegar lít- il í þeirri kosningu, innan við 50%. Chirac forseti er ákafur talsmaður nýju stjórnlaganna en teikn eru á lofti um að and- staðan fari vaxandi. Á fimmtudag í næstu viku hefur verið boðað til verkfalls til að mót- mæla lögunum en nýjustu kannanir sýna að 58% kjósenda eru hlynnt stjórnarskránni en 42% henni andvíg. Stjórnlög ESB Frakkar kjósa 29. maí París. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.