Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MARTHA Stewart, átrúnaðargoð banda-
rískra húsmæðra, var látin laus úr fangelsi í
gær eftir að hafa setið inni í tæplega hálft ár
fyrir að ljúga að yfirvöldum um hlutabréfa-
viðskipti. Það var þó enginn iðrandi syndari,
sem mætti blaðamannaskaranum úti fyrir
fangelsinu, síður en svo. Fyrir Mörthu Stew-
art hefur þessi fimm mánaða vist verið ein
samfelld auglýsing, sú besta síðan hún
komst í sviðsljósið fyrst fyrir 23 árum.
Í augum landa sinna er Stewart ekki leng-
ur spillti forstjórinn, sem fékk það, sem
hann átti skilið. Raunar hvarf sú ímynd
strax í fyrrasumar er hún kvaddi hundana
sína og kanarífuglana undir skærum ljósum
sjónvarpsvélanna og ekki skiptir minna
máli, að hún tók þann kostinn að sætta sig
strax við fyrsta dóm og fara í fangelsi.
Vondu karlarnir hjá Enron, WorldCom og
Tyco eru hins vegar allir frjálsir menn
ennþá í skjóli sífelldra áfrýjana. Þeirra
ímynd á sér engrar uppreisnar von.
Allt í öllu í fangelsinu
Stewart naut þess að vera í svokölluðu
opnu fangelsi þar sem fangarnir eru miklu
frjálsari en annars staðar og hún nýtti tím-
ann vel. Hún breytti vistinni í nokkurs kon-
ar raunveruleikasjónvarp með sjálfa sig í að-
alhlutverki og skipti sér af öllu innan veggja
fangelsisins, jafnt smáu sem stóru. Hún las
epli af trjánum í fangelsisgarðinum og not-
aði í salöt, kenndi meðföngum sínum jóga og
stofnun fyrirtækja, stýrði leshring og dró
ekkert af sér við hreingerningarnar.
Með öllu þessu fylgdust fjölmiðlar og al-
menningur af miklum áhuga og með þeim
árangri, að verð á hlutabréfum í fyrirtæki
Stewart, Living Omnimedia, sem hrundi eft-
ir að málið kom upp, hefur fjórfaldast. Og
ekki nóg með það. Hún er með tvo nýja
sjónvarpsþætti á prjónunum og þann þriðja,
sem verður raunveruleikaþáttur í anda
Donalds Trumps, „Lærlingurinn: Martha
Stewart“. Líklegt þykir, að væntanleg sam-
eining stórverslananna Kmart og Sears
muni gefa vörunum frá Mörthu Stewart
aukið hillupláss og bráðum má sjá nafnið
hennar á alls kyns varningi, allt frá geisla-
spilurum til kvenfatnaðar.
Allt hefur þetta ferli verið skipulagt út í
ystu æsar af þrautreyndum mönnum í New
York og Hollywood og í þeim hópi er líka
sjálfur Donald Trump.
„Bandaríkjamönnum finnst ekkert
skemmtilegra en glæsileg endurkoma,“
sagði Jeff Zucker hjá NBC, sem mun sýna
alla sjónvarpsþættina þrjá.
Þrátt fyrir allt glysið í kringum Stewart
og þrátt fyrir samúðina, sem hún virðist
njóta, er ekki þar með sagt, að björninn sé
unninn. Reksturinn á Living Omnimedia
gengur illa. Fyrir nokkrum dögum var skýrt
frá því, að tapið á síðasta ári hefði verið 60
milljónir dollara, rúmlega 3,6 milljarðar ísl.
kr., og tíu sinnum meira en 2003. Hluta-
bréfaverðið hefur þó rokið upp, er nú 36
dollarar, en samt mæla sérfræðingarnir á
Wall Street ekki með kaupum í fyrirtækinu.
Á þessum markaði eru tískan og tímarnir
mjög hverfult fyrirbrigði. Nýjar lífsstíls-
biblíur á borð við Real Simple og O, tímarit
Opruh Winfrey, hafa höggvið stórt skarð í
söluna á Stewart-tímaritunum og sérfræð-
ingarnir telja ólíklegt, að hrifningin yfir
fanganum fyrrverandi, Mörthu Stewart,
muni endast lengi.
„Fólk mun ekki hlaupa upp til handa og
fóta og kaupa Stewart-kodda þótt það sjái
hana í einhverjum „lærlingsþætti“,“segir
markaðsfræðingurinn Dennis McAlpine,
sem spáir því, að verðið á hlutabréfum í
Living Omnimedia verði brátt á bilinu 6 til
10 dollarar.
Ljósið í myrkrinu er þó það, að auglýs-
endur, sem hafa sniðgengið Stewart-tímarit-
in að undanförnu, eru nú að snúa aftur.
Féll fyrir „smáaurunum“
Martha Stewart var dæmd fyrir að nýta
sér innherjaupplýsingar er hún seldi hluta-
bréf sín í fyrirtækinu ImClone daginn áður
en verðið á þeim hrundi. Var áætlaður hagn-
aður hennar af sölunni 52.000 dollarar, rúm-
lega þrjár milljónir ísl. kr., sem eru auðvitað
ekkert annað en vasapeningur fyrir
milljónamæringa á borð við Stewart. Hún er
heldur ekki alveg frjáls manneskja þótt hún
gisti ekki lengur fangelsið því að næstu
fimm mánuði verður hún að halda sig heima
og vera með rafrænt eftirlitsband um ökkl-
ann.
Newsweek, Washington Post, AP.
Martha Stewart, uppáhald bandarískra húsmæðra um langt skeið, er laus úr fangelsi og baðar sig nú í flóðljósum fjöl-
miðlanna sem aldrei fyrr. Verð á hlutabréfum í fyrirtæki hennar hefur rokið upp og hún er með þrjá nýja sjónvarpsþætti
á prjónunum. Samt eru blikur á lofti í rekstrinum og ekki víst, að hrifningin yfir fanganum fyrrverandi endist lengi.
Fangelsisvistin
sögð ein alls-
herjar auglýsing
Reuters
Martha Stewart er hún var látin laus í gær úr
kvennafangelsi í Vestur-Virginíu. Næstu
fimm mánuði verður hún að halda sig heima
með rafrænt eftirlitsband um ökklann.
’Bandaríkjamönnum finnstekkert skemmtilegra en glæsi-
leg endurkoma.‘
KOMMÚNISTAR á þingi Úkraínu
kröfðust þess í gær að fyrrum for-
seti landsins, Leoníd Kútsma, yrði
handtekinn. Krafan kom fram eftir
að fyrrum innanríkisráðherra
landsins, sem
stóð til að yfir-
heyra í tengslum
við rannsókn á
morðmáli, fannst
látinn á sveita-
setri sínu
skammt fyrir ut-
an höfuðborgina,
Kíev.
Interfax-
fréttastofan
skýrði frá því í
gærmorgun að
talið væri að inn-
anríkisráðherr-
ann fyrrverandi,
Júríj Kravtsj-
enko, hefði fram-
ið sjálfsmorð.
Heimildarmenn
AFP-fréttastof-
unnar sögðu
hann hafa stytt
sér aldur með
skotvopni.
Í gær átti
Kravtsjenko að
mæta til yfir-
heyrslu vegna
rannsóknar á
morði Heorhíj
Gongadze, sem
skekið hefur
þjóðlífið allt í
Úkraínu á síð-
ustu árum.
Morðið gat af
sér fjöldamót-
mæli gegn ríkisstjórninni sem
náðu hámarki er Víktor Jústsj-
enko, fulltrúi stjórnarandstöðunn-
ar, fór með sigur af hólmi í forseta-
kosningum. Sjálfur varð Jústsj-
enko fyrir dularfullri eitrun í
kosningabaráttunni sem næstum
því kostaði hann lífið.
Gagnrýnin kostaði hann lífið
Gongadze var blaðamaður sem
rak afar vinsæla fréttaþjónustu á
Netinu þar sem stjórn Leoníds
Kútsma, þáverandi forseta lands-
ins, var óspart gagnrýnd. Árið
2000 var Gongadze rænt og 50
dögum síðar fannst höfuðlaust lík
hans í skógi skammt utan við Kíev.
Líkamsleifar hans eru enn geymd-
ar í líkhúsi einu í höfuðborg lands-
ins.
Til eru segulbandsupptökur þar
sem heyra má Kútsma ítrekað
kvarta undan fréttaflutningi Gon-
gadze. Á einni upptökunni heyrist
Kútsma fela Kravtsjenko, þáver-
andi innanríkisráðherra Úkraínu,
það verkefni að „hrekja hann [Gon-
gadze] á brott, kasta honum út eða
láta Tsjetsenana fá hann“. Samtöl
þessi tók Míjkola Melnítsjenko,
fyrrverandi lífvörður forsetans,
upp. Kútsma segir upptökurnar
falsaðar og kveðst hvergi hafa
komið nærri morðinu á Gongadze.
Lífvörðurinn fyrrverandi fékk
hæli í Bandaríkjunum og eiginkona
Gongadze ákvað einnig að flýja
land og dvelst nú vestra.
Víktor Jústsjenko hét því er
hann tók við forsetaembættinu
fyrr í ár eftir „appelsínugulu bylt-
inguna“ í Úkraínu að málið yrði
upplýst. Og hann stóð við þau fyr-
irheit. Fyrr í vikunni skýrði forset-
inn frá því að málið væri upplýst
og tveir menn, liðsforingjar í sveit-
um innanríkisráðuneytisins, hefðu
verið handteknir. Sagði forsetinn
að „mannhatrið“ að baki morðinu
tilheyrði „miðöldum“. Að óreyndu
hefði hann ekki trúað því að stjórn-
völd gætu meðhöndlað þegnana
eins og „skynlausar skepnur“.
Daginn eftir var því haldið fram
að Kútsma forseti og undirsátar
hans hefðu haldið hlífiskildi yfir
morðingjunum. Á grundvelli þess-
ara upplýsingar var ákveðið að
kalla innanríkisráðherrann fyrr-
verandi til yfirheyrslu.
„Dæmdi sjálfan sig“
Jústsjenko forseti sagði í gær
eftir að hafa fengið fregnir af
sjálfsvíginu að Kravtsjenko hefði
„dæmt sjálfan sig“. Hann hefði
staðið frammi fyrir tveimur val-
kostum, annars vegar „að verja
heiður sinn“ og aðstoða yfirvöld við
rannsókn málsins eða að „dæma
sjálfan sig“.
Kommúnistar á þingi brugðust
við tíðindunum með því að krefjast
þess að Leoníd Kútsma yrði hand-
tekinn í „tengslum við hið dular-
fulla andlát innanríkisráðherrans
fyrrverandi“. Sagði talsmaður
þeirra Ígor Aleseijev að Kútsma
væri „höfuðpaurinn að baki glæp-
samlegri stefnu stjórnvalda síðasta
áratuginn“.
Kröfur uppi um að Leoníd
Kútsma verði handtekinn
Fyrrverandi innanríkisráðherra
Úkraínu finnst látinn en hann átti að
bera vitni í rannsókn á morðmáli
Kíev. AFP.
Víktor Jústsjenko,
forseti Úkraínu.
Júrí Krastjenko,
fyrrv. innanríkis-
ráðherra Úkraínu.
Leoníd Kútsma,
fyrrverandi forseti
Úkraínu.
AP
Heorhíj Gongadze var í hópi þekktustu blaðamanna í Úkraínu. Hér er hann
ásamt Myroslava, eiginkonu sinni, og tveimur dætrum.
MIKIL leynd hvílir yfir rannsókn
svissnesku lögreglunnar á dauða
fransks viðskiptajöfurs, Edouard
Stern, en hann fannst látinn í íbúð
sinni í Genf á þriðjudag. Yfirvöld hafa
staðfest að dauða Stern hafi borið að
„með glæpsamlegum hætti“ en hafa
að öðru leyti ekki greint frá málsat-
vikum.
Þjónustustúlka á heimili Stern
sagði í samtali við dagblaðið Tribune
de Geneve að viðskiptafélagar Sterns
hefðu farið að hafa áhyggjur þegar
hann mætti ekki til vinnu sinnar. Var
hún í framhaldinu beðin um að opna
dyrnar að íbúð hans í Genf á þriðju-
dagsmorgun. Þar fannst Stern, sem
var fimmtugur að aldri, látinn. Gaf
samstarfskona Sterns, sem óskaði
nafnleyndar, til kynna í samtali við
AFP-fréttastofuna að Stern hefði
verið skotinn til bana.
Sveifst einskis í viðskiptum
Stern hafði orð á sér fyrir að svífast
einskis í viðskiptum. Hann varð fyrst
þekktur er hann tók við stjórn Stern-
bankans, sem bar nafn fjölskyldunn-
ar, af föður sínum en hann var þá að-
eins 22 ára gamall. Hann kvæntist
elstu dóttur Michels David-Weill, for-
manns stjórnar hins þekkta franska
fjárfestingarbanka Lazard, og var
lengi litið á hann sem væntanlegan
arftaka David-Weill. Stern rauf hins
vegar öll tengsl við bankann 1997.
Frá þeirri stundu hefur hann
stundað viðskipti, hann setti m.a. á
stofn fjárfestingafyrirtækið IRR sem
talið er eiga eignir upp á 600 milljónir
evra, um 48 milljarða ísl. kr. Nokkrar
tilraunir Sterns til yfirtöku í stórum
fyrirtækjum munu hafa þó mistekist
á undanförnum árum.
Viðskipta-
jöfur
fannst
látinn
Lögreglan í Sviss
verst allra frétta
Genf. AFP.