Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 21
MINNSTAÐUR
Sandgerði | Stærðfræðikunnátta
stúlkna er til umfjöllunar í banda-
ríska fréttatímaritinu Time Magaz-
ine. Blaðamaður Time heimsótti
meðal annars nemendur Grunn-
skólans í Sandgerði og leitaði skýr-
inga á þeim mun sem er á stærð-
fræðikunnáttu drengja og stúlkna
hér á landi.
Í greininni er fjallað um nið-
urstöður svokallaðrar TISA-
könnunar í stærðfræði og öðrum
raungreinum, en hún var lögð fyrir
15 ára nemendur í öllum OECD-
löndunum árið 2003. Könnunin
leiddi í ljós að Ísland er um miðja
deild OECD-þjóða hvað varðar
stærðfræðikunnáttu 15 ára ung-
linga. Hins vegar vakti það athygli
blaðamanns Time Magazine að á
Íslandi, öfugt við öll hin OECD-
löndin, eru stelpurnar sterkari en
strákarnir í þessum fræðum. Mun-
urinn er meiri á landsbyggðinni en
höfuðborginni og sýnu mestur á
Suðurnesjum, segir Guðjón Krist-
jánsson, skólastjóri Grunnskólans í
Sandgerði, en blaðamaður Time
Magazine heimsótti einmitt Guðjón
og ræddi einnig við þrjá nemendur
hans, Gísla Þór Hauksson 14 ára,
Hönnu Maríu Heiðarsdóttur og
Margréti Ingþórsdóttur, sem báðar
eru 15 ára.
Sigraði í stærðfræðikeppni
Margrét hefur sínar skýringar á
þeim mun sem er milli stráka og
stelpna í stærðfræði. Hún segir í
samtali við Morgunblaðið mikil-
vægt að skipuleggja tíma sinn vel
þegar unnið er í stærðfræðinni.
Strákarnir séu ekki eins skipulagð-
ir og stelpurnar og nenni kannski
ekki að pæla í stærðfræði, noti tím-
ann frekar við tölvurnar. Margrét
og Hanna María hafa náð góðum
árangri í stærðfræði og sigraði
Margrét í stærðfræðikeppni
grunnskólanna á Suðurnesjum á
síðasta vetri. Hún segir að stærð-
fræðin sé skemmtileg en þó sé
skemmtilegra að læra ensku. Mar-
grét lýkur grunnskólanum í vor og
er staðráðin í að halda áfram. Hún
reiknar með að fara í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja í Keflavík en hef-
ur ekki gert upp við sig á hvaða
braut stefna skuli.
Margrét er á kafi í íþróttum.
Hún æfir knattspyrnu með sameig-
inlegu liði Reynis í Sandgerði og
Víðis í Garði og Grindvíkingar eru
að einhverju leyti að koma inn í
það samstarf. Vonast hún til að
þessi félög sendi sameiginlegt lið í
meistaraflokk kvenna á næstu ár-
um.
Fjallað um stærðfræðikunnáttu drengja og stúlkna í Time
„Mikilvægt að skipu-
leggja tíma sinn vel“
Morgunblaðið/RAX
Við sjávarsíðuna Time Magazine birti mynd af Hönnu Maríu Heiðars-
dóttur og Margréti Ingþórsdóttur framan við mynd sem íbúar Sandgerðis
máluðu á vegg í nágrenni hafnarinnar á Sandgerðisdögum í fyrra.
TENGLAR
......................................................
http://www.time.com/time/
covers/1101050307/sciceland.html
MEÐ auknum umsvifum mat-
vælabrautar Verkmenntaskólans á
Akureyri hefur nemendum fjölgað
og viðburðum fjölgað í tengslum
við starfsemi hennar.
Eftir að brautin tók í notkun
fullkomna aðstöðu í nýbyggingu
fyrir tveimur árum og heimild
skólans til að fullmennta kokka og
þjóna var í höfn hefur aðsókn auk-
ist mjög. Það er von skólans, að
sögn Hjalta Jóns Sveinssonar
skólameistara, að innan skamms
verði boðið upp á framhaldsnám
að loknu grunnnámi en til þess að
svo megi verða þarf að koma til
náið samstarf við veitingamenn á
Akureyri og ekki síður annars
staðar þar sem nemendur gætu
komist á námssamning. Vel hefur
gengið að koma nemendum fyrir í
starfskynningu í mötuneytum og á
veitingastöðum, sem einnig er
hluti af náminu.
Á dögunum buðu nemendur for-
eldrum sínum til kvöldverðar, í
þriggja rétta hátíðarmat sem
bragðaðist einkar vel en auk þess
gafst gestum jafnframt tækifæri til
að kynnast starfi deildarinnar,
kennurum hennar og aðstöðu.
Matvælabraut VMA
Aðsókn hefur
aukist mjög
Einbeittir Nemar á matvælabraut VMA afar einbeittir við eftirréttinn.
Fræðslufundur | Í dag kl. 14 verð-
ur haldinn fræðslufundur um fíkni-
efni í Kvosinni, sal Menntaskólans á
Akureyri á Hólum. Fundurinn er
sérstaklega ætlaður foreldrum og
forráðamönnum ólögráða nemenda í
MA og VMA svo og kennurum. For-
eldrafélag Menntaskólans á Ak-
ureyri og forvarnafulltrúar MA og
VMA standa fyrir fundinum en
markmið hans er að upplýsa for-
eldra og kennara um áhrif og ein-
kenni fíkniefnaneyslu, ræða stöðu
þessara mála í skólunum og leiðir til
úrbóta. Nemendur framhaldsskól-
anna eru stærsti markhópur fíkni-
efnasala í bænum og telja menn sig
hafa orðið vara við aukna neyslu.
Aðalfyrirlesarar koma frá rann-
sóknarlögreglunni á Akureyri og
SÁÁ en einnig munu fulltrúar
starfsmanna og nemenda flytja stutt
ávörp. Gott tóm gefst til fyrirspurna
og umræðna, bæði að loknum fram-
söguerindum og yfir kaffibolla á eft-
ir þegar formlegum fundi er lokið.
Tónleikar | Tónleikar verða í Ak-
ureyrarkirkju á mánudagskvöld, 7.
mars, kl. 20.30, þar sem Jón Jósep
Snæbjörnsson, söngvari hljómsveit-
arinnar Í svörtum fötum, og Gunnar
Þór Jónsson, gítarleikari Sóldaggar,
flytja fjölbreytta tónlist ásamt
Stúlknakór Akureyrarkirkju. Að-
gangseyrir er kr. 1.000 og rennur
ágóðinn til æskulýðsstarfs í kirkj-
unni.
Sýningarlok | Sýningu Kristínar
Gunnlaugsdóttur á Listasafni
Reykjanesbæjar í Duushúsum í
Keflavík lýkur um helgina. Safnið er
opið báða dagana klukkan 13 til
17.30. Sýningin hefur vakið athygli,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá safninu, og fengið góðar við-
tökur.
Flest verkanna á sýningunni eru
unnin á árunum 2001–2004 og hafa
ekki verið sýnd áður. Kristín verður
með listamannsspjall í sýningar-
salnum á sunnudag klukkan 15 og
eru allir velkomnir.
Í tilefni 90 ára vígsluafmælis
Keflavíkurkirkju eru einnig fjögur
verk eftir Kristínu sýnd í safn-
aðarheimili kirkjunnar, Kirkjulundi,
og er þar opið á sama tíma.
Keflavíkurflugvöllur | Aðalhliðið að
varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli
hefur verið tekið formlega í notkun
að loknum gagngerum endurbótum
á báðum hliðum stöðvarinnar. Hlið-
in hafa verið færð til þess horfs sem
nýjustu kröfur um öryggi gera um
eftirlit með umferð inn og út af
varnarsvæðinu.
Framkvæmdir hafa staðið í á
annað ár og fólu í sér byggingu
nýrra varðskýla og vegabréfaskrif-
stofu auk breytinga á girðingu og
lagningu bifreiðastæða. Verkið var
unnið af Íslenskum aðalverktökum
og nam kostnaður við það um 132
milljónum króna, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá varn-
arliðinu.
Jóhann Benediktsson, sýslumað-
ur á Keflavíkurflugvelli, og Mark S.
Laughton kafteinn, yfirmaður flota-
stöðvar varnarliðsins, tóku mann-
virkin í notkun með táknrænum
hætti og lýstu báðir ánægju sinni
með verklok og þá bættu aðstöðu
sem þau fela í sér.
Öll almenn umferð er sem fyrr
um aðalhliðið við Hafnaveg sem op-
ið er allan sólarhringinn en umferð
flutningabifreiða verður um Græn-
áshlið ofan Njarðvíkur.
Nýtt aðalhlið opn-
að fyrir umferð
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Öryggi Nýtt aðalhlið Keflavíkurflugvallar við Hafnaveg hefur verið opnað.
SUÐURNES
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð samþykkti á fundi
sínum í vikunni að leggja til við bæjarráð að haf-
ist verði nú þegar handa við undirbúning að
snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli með það að mark-
miði að hún geti hafist á haustdögum 2005. Ráð-
ið vísaði málinu til umsagnar stjórnar Vetr-
aríþróttamiðstöðvar Íslands með ósk um að hún
fjármagni uppsetningu kerfisins.
Fyrir fundi ÍTA lá áætlaður rekstrarkostn-
aður vegna snjóframleiðslukerfis í Hlíðarfjalli
og að sögn Björns Snæbjörnssonar formanns
ráðsins, er rekstrarkostnaður áætlaður 7,5–8,5
milljónir króna á ári. Áður hefur komið fram að
kostnaður við kaup á búnaði til snjóframleiðslu
er áætlaður 80–100 milljónir króna. Björn sagði
það ánægjulegt að ÍTA hefði tekið þessa
ákvörðun og að þarna væri um stórt skref að
ræða. Hann sagði þessar tölur um rekstr-
arkostnað vel viðráðanlegar, miðað við það sem
menn ætluðu að fá út úr þessu. „Þrjú síðustu ár
hafa verið mjög léleg í Hlíðarfjalli en með snjó-
framleiðslu getum við boðið upp á meira öryggi,
bæði gagnvart heimamönnum og ferðafólki.
Þessi staða hefur þýtt að hingað hefur komið
mun færra fólk og við þurfum að snúa þeirra
þróun við,“ sagði Björn.
Aðstæður eru góðar í Hlíðarfjalli þessa dag-
ana, búið að vera sæmilega kalt, snjó hefur verið
rutt í helstu brautir, og unir fólk sér vel á skíð-
um og brettum. Þessa dagana eru nemendur
Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni í
sinni árlegu skíðakennsluferð í Hlíðarfjalli og
láta mjög vel að aðstæðum, segir á vef Akureyr-
arbæjar. Þar er haft eftir Guðmundi Karli Jóns-
syni, forstöðumanni Skíðastaða, að líklega séu
snjóalög í fjallinu mun betri en fólk almennt geri
sér grein fyrir. Aðstæður hafi verið þokkalegar í
vetur en hlýindakaflinn sem stóð yfir í rúmar
tvær vikur fyrir skemmstu hafi líklega dregið
kraftinn úr skíðafólkinu.
Morgunblaðið/Kristján
Snjóframleiðsla Íþrótta- og tómstundaráð leggur til að snjóframleiðsla hefjist í Hlíðarfjalli.
Snjóframleiðsla
hefjist í Hlíðarfjalli
AKUREYRI
Fyrirlestrar | Kristín Vala Ragn-
arsdóttir, prófessor í umhverfisjarð-
efnafræði við jarðvísindaskor Háskól-
ans í Bristol á Englandi, mun flytja
tvo fyrirlestra hjá auðlindadeild Há-
skólans á Akureyri. Sá fyrri verður á
mánudag, 7. mars, og heitir Tengsl
umhverfis við heilsu – áhrif snefilefna
í jarðvegi á þróun riðu í sauðfé. Síðari
fyrirlesturinn verður á þriðjudag og
heitir Náttúrulega skrefið – vísindin á
bak við sjálfbærni. Báðir hefjast þeir
kl. 12 á Borgum.