Morgunblaðið - 05.03.2005, Side 22
22 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SMS heimasími
Panasonic KX-TCD300
Tilboð í vefverslun: 8.980 kr.
25% afsláttur
úr heimasíma
í 6 númer
Skráðu þig á siminn.is
Nú getur þú sent SMS
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
5
0
1
siminn.is/vefverslun
980
Léttkaupsútborgun:
og 750 kr. á mán. í 12 mán.
kr.
Tiboðsverð: 9.980 kr.
Hægt er að senda og taka á móti SMS. Númerabirting fyrir allt að 30 númer.
Símaskrá fyrir 200 símanúmer og nöfn. Innbyggður hátalari fyrir handfrjálsa
notkun. Dagsetning og tími og raddstýring á 20 númerum.
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | „Fólk getur komið hér með fartölvuna
sína og tengt sig inn á tölvunetið okkar sem er
með háhraðanettengingu. Í gegnum það getur
það svo farið inn á tölvukerfi síns fyrirtækis eða
stofnunar og unnið þar að sínum verkefnum.
Þetta er lifandi samband og í þjónustuverinu
hérna fær fólk prentaraþjónustu og það sem
þarf. Við höfum reynslu af því að menn komi
hér inn hjá okkur til að vinna,“ segir Páll
Bjarnason, fyrsti skrifstofuhótelstjórinn á Ís-
landi, en hann heldur utan um nýja þjónustu á
Selfossi, skrifstofuhótel, sem er einn hluti sam-
starfsverkefnisins Sunnan 3 sem sveitarfélögin
Árborg, Ölfus og Hveragerðisbær standa að.
Skrifstofuhótelið var opnað formlega fyrir
nokkrum dögum og framundan er kynning á
þessum nýja möguleika fyrir fólk sem býr fjarri
starfsaðstöðu sinni.
Ætlunin að mynda samfélag fólks
sem nýtir aðstöðuna saman
„Þetta er mjög þægilegt fyrir fólk, það getur
skipulagt starf sitt þannig að það þurfi ekki að
aka um eins langan veg til að sinna vinnunni.
Svo er það líka hugsunin að hér myndist sam-
félag fólks sem nýtir aðstöðuna en maður er
manns gaman og því bindum við heilmiklar von-
ir við að þetta takist vel og menn hafa þegar
sýnt þessu mikinn áhuga,“ segir Páll, sem er
framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurlands
síðan haustið 2000. Verkfræðistofan heldur ut-
an um þennan hluta samstarfsverkefnis sveitar-
félaganna.
Páll hefur starfað hjá verkfræðistofunni í 21
ár, fyrst sem sumarstarfsmaður en síðan sem
fastur starfsmaður. Stofan er með fimmtán
starfsmenn, þar af tvo til þrjá verkfræðinema á
sumrin. Hún heldur uppi almennri verk-
fræðiþjónustu og meðal verkefna er þjónusta
við sveitarfélög með landupplýsingakerfi þar
sem öll mannvirki og lóðir eru hnitasett mynd-
rænt og tengd gagnagrunni á töfluformi en það
auðveldar mjög allt skipulag og yfirsýn sveitar-
félaganna.
Menn gefa sig að fullu í verkefnin eins og
þekkt er um íslenska björgunarmenn
Páll Bjarnason er þekktur fyrir starf sitt að
björgunarsveitarmálum á Selfossi og í Árborg
og er félagi í Björgunarfélagi Árborgar. Hann
var fjögur ár formaður félagsins og hefur komið
að uppbyggingu þess og krefjandi störfum.
„Það gefur manni mikið að taka þátt í slíku
starfi og það er sérstök reynsla að fara til leitar
að fólki og einkum að finna það heilt á húfi. Allt
þetta starf er mjög gefandi og menn gefa sig að
fullu í verkefnin eins og þekkt er um íslenska
björgunarmenn. Í þessum áhugamannafélögum
eru fólgin gríðarleg verðmæti eins og í öðrum
áhugamannafélögum sem eru með virka starf-
semi í samfélaginu. Forvarnarstarfið er mikið
og það hefur mikið uppeldisgildi að gefa ung-
lingum möguleika á að vera með. Þar læra þeir
að taka tillit til aðstæðna og til annars fólks,“
segir Páll.
„Mér er það mjög eftirminnilegt þegar ég var
í leit með manni sem hafði verið í björg-
unarsveit í tíu ár og farið í margar leitir en aldr-
ei verið með í að finna fólk. Þegar við fundum
fólkið í þessari leit ljómaði hann allur og sagði
það algjöra fullkomnun að sjá fólkið sem leitað
var að. Þá er mér líka minnisstætt starfið sem
björgunarsveitarmaður í kringum stóru jarð-
skjálftana tvo hér á Suðurlandi þegar við fórum
í hvert einasta hús í dreifbýlinu til að kanna að-
stæður. Fólk var mjög fegið komu okkar og
fagnaði okkur í bæði skiptin sem við komum,“
segir Páll Bjarnason þegar hann leiðir hugann
að starfi björgunarsveitarmannsins.
„Þetta er einhver þörf fyrir athafnasemi sem
dregur mann í þetta áhugastarf og löngun til að
láta gott af sér leiða. Svo er þetta góður fé-
lagsskapur og mikið um ferðalög þannig að allt
er þetta mjög gefandi en það er nauðsynlegt
hverri manneskju að vera í einhverjum fé-
lagsskap,“ segir Páll Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Verkfræðistofu Suðurlands og hótelstjóri
fyrsta skrifstofuhótelsins á Íslandi.
Þess má geta að Sunnan3 vinnur að því að
koma upp hliðstæðri aðstöðu í Hveragerði.
Hótelstjóri fyrsta skrifstofuhótelsins á Íslandi er björgunarsveitarmaður í frístundum
Það er alltaf sérstök
tilfinning að finna
fólk heilt á húfi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hótelstjóri Páll Bjarnason, framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurlands, í einum vinnubás
skrifstofuhótelsins. Skrifstofuhótelið hefur fengið inni hjá Verkfræðistofu Suðurlands.