Morgunblaðið - 05.03.2005, Side 42

Morgunblaðið - 05.03.2005, Side 42
42 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Á MORGUN usta kl. 13. Stoppleikhópurinn flytur barnaleikritið Kamilla og þjófurinn eftir Kari Vinje. Við minnum á bæna- og kyrrð- arstund á þriðjudag kl. 18 (sjá einnig á www.hjallakirkja.is). KÓPAVOGSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Sóknarprestur, sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson predikar og þjónar fyrir alt- ari. Krakkar úr 8–9 ára og 10–12 ára starfi kirkjunnar taka virkan þátt í guðs- þjónustunni. Skólakór Kársness syngur og strengjasveit ungra hljóðfæraleikara annast tónlistarflutning. Barnastarf í kirkj- unni kl. 12:30 í umsjón Önnu Kristínar, Péturs Þórs og Sigríðar Stefánsdóttur. Bæna- og kyrrðarstund þriðjudag kl. 12:10. LINDASÓKN í Kópavogi: Æskulýðsdag- urinn. Fjölskylduguðsþjónusta í Linda- skóla kl. 11. Kór Salaskóla syngur, stjórn- andi er Ragnheiður Haraldsdóttir. Hannes Baldursson organisti leikur undir. Lísa Rún Guðlaugsdóttir les frumort ljóð við undirleik, fermingarbörn taka þátt í guðs- þjónustunni og leikbrúðuþáttur verður fluttur. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson sóknarprestur þjónar. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Söngur, saga, líf og fjör! Barnakór Selja- kirkju syngur. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 14. Jón Ómar Gunnarsson æskulýðs- starfsmaður prédikar. Æskulýðssöngvar sungnir. Kvöldvaka kl. 20. Ólafur Jóhann Borgþórsson æskulýðsstarfsmaður flytur hugvekju. Hljómsveitirnar Amos og Nylon flytja tónlist. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN, Fossaleyni 14: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Kökusala á eftir til syrktar unga fólkinu sem er að fara á kristilegt mót. Samkoma kl. 20.00 með mikilli lofgjörð og fyr- irbænum. Friðrik Schram predikar. Einnig verður heilög kvöldmáltíð. Þáttur kirkj- unnar „Um trúna og tilveruna“ er sýndur á Ómega kl.13.30. BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp: Samkomur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla miðvikudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Kvöld- vaka laugardag kl. 20.30. Guðsþjónusta sunnudag kl. 15 í Háteigskirkju. Martin Restorff Jacobsen prédikar. Kaffi í Sjó- mannaheimilinu á eftir. Allir velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Sam- koma kl. 20. Umsjón Elsabet Daníels- dóttir. Mánudagur: Heimilasamband kl. 15. Sr. Pétur Þorsteinsson talar. Allar kon- ur velkomnar. FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagrahvarfi 2a: Sunnudaginn 6. mars fellur hefðbundin samkoma niður vegna Alfa-helgar en sam- verustund verður í kirkjunni kl. 14. Sam- félag og bænir. Allir velkomnir. Þriðjudag- inn 8. mars er bænastund kl. 20.30. Allir velkomnir. Föstudaginn 11. mars er ung- lingastarf kl. 20. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma á sunnudag kl. 17. Upphaf kristniboðsviku. „Menningarheimar mætast.“ Upphafsorð: Stefán Einar Stefánsson. Einsöngur: Helga Magnúsdóttir. Myndröð: Finnur og Gulli. Hugleiðing: Birna Gerður Jónsdóttir. Fyrirbæn og heitur matur eftir samkom- una. FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11:00. Ræðum. John Beynon. Almenn samkoma kl. 16:30. Og barnablessun. Ræðum. Jak- ob Valsson, biblíuskólakennari frá Kan- ada. Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Fyrirbænir í lok samkomu. Barnakirkja á meðan á samkomunni stendur. Allir vel- komnir. Miðvikud. 9. mars kl 18:00 er fjöl- skyldusamvera, „súpa og brauð“. Allir vel- komnir. Bænastund alla laugardaga kl. 20:00. Bænastundir alla virka morgna kl. 07–08. www.gospel.is - Ath! Hægt er að horfa á beina útsendingu á www.gospel.is eða hlusta á útvarp Lindina fm 102.9 Kl. 20:00 á Omega er samkoma frá Fíladelfíu og á mánudagskvöldum er nýr þáttur „Vatnaskil“ frá Fíladelfíu sýndur á Omega kl. 20:00. KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða- smára 5 kl. 16.30. BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11 sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á föstudögum. KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna síðari daga heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða- bæ: Föstu- og vitnisburðarguðsþjónusta kl. 9 árdegis á ensku og kl. 12 á íslensku. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm- kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. Alla laug- ardaga: Barnamessa kl. 14.00. Til- beiðslustund er haldin í Kristskirkju á hverju fimmtudagskvöldi að messu lok- inni, þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15. Alla föstudaga í lönguföstu er krossferilsbæn lesin kl. 17.30. Gengið er frá einni við- stöðu til annarrar (14 viðstöður) og um leið erum vér hvött til að íhuga þjáningar Drottins og dauða og biðjum um miskunn og fyrirgefningu, oss sjálfum og öðrum til handa. Miðvikudaginn 9. mars: Um þess- ar mundir er nýr sendiherra páfans, Giov- anni Tonucci erkibiskup, í fyrstu opinberu heimsókn sinni til Íslands ásamt sendi- ráðsritaranum Gabor Pintér . Meðal ann- ars er hann kominn til að afhenda forseta Íslands trúnaðarbréf sitt. Í kvöld les hann messu ásamt biskupi vorum. Að messu lokinni er kirkjukaffi í safnaðarheimilinu og gefst öllum tækifæri til að heilsa hon- um. Reykjavík, Maríukirkja við Rauf- arsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár alt- arissakramentisins“: Tilbeiðslustund á mánudögum frá kl. 19.00 til 20.00. Rif- tún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.00. Miðvikudaga kl. 20.00. Hafn- arfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Alla virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár altarissakramentisins“: Til- beiðslustund á hverjum degi kl. 17.15. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00. Kefla- vík, Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Stykk- ishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Pét- urskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00. „Ár altarissakramentisins“: Til- beiðslustund á hverjum föstudegi kl. 17.00 og messa kl. 18.00 BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi: Guðsþjónusta kl. 11 f.h. Gunnar Krist- jánsson, sóknarprestur. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 10:00 Litlir lærisveinar, kóræfing. Kl. 11:00 Sunnudagaskóli á Æskulýðsdegi. Börn af leikskólanum Sóla boðin sér- staklega velkomin. Litlir lærisveinar syngja undir stjórn Guðrúnar Helgu og Jo- önnu Mariu. Músapési og Mýsla koma að öllum líkindum í heimsókn. Við biðjum saman í Jesú nafni, heyrum biblíusögu um ,,Eyrir ekkjunnar“ og við syngjum saman. Kl. 14:00 Æskulýðsguðsþjónusta í Landa- kirkju. Æskulýðsfélagar og fermingarbörn taka virkan þátt, ásamt æskulýðsfélagi fatlaðra. Hljómsveit unglinga úr æskulýðs- félaginu leiðir söng og nokkrir félagar úr Stúlknakórnum munu að öllum líkindum syngja. Eftir guðsþjónustu verður boðið upp á lengstu skúffuköku sem gerð hefur verið í Eyjum, og þótt víðar væri leitað, verður hún kannski ,,Guinness World Re- cord“? Stefnt er að því að kakan verði nærri tuttugu metra löng. Kl. 20:00 Æsku- lýðsfundur kvöldsins verður í æskulýðs- heimili KFUM&K við Vestmannabraut. Fé- lagar eru boðnir í mat kl. 19, þar sem borðaður verður kjarngóður kvöldverður og glatt verður á hjalla. Um klukkan 20 verður húsið opnað og verða sýndar stutt- myndir og fleira sem unglingarnir hafa ver- ið að vinna að síðustu vikurnar. LÁGAFELLSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11.00. Æskulýðsdagur þjóðkirkj- unnar. Athugið að sunnudagaskólinn fell- ur niður en börnin sem þangað hafa sótt eru hvött til þátttöku í guðsþjónustunni. Hugvekja: Hreiðar Örn Stefánsson. Kirkju- krakkar, 7 til 9 ára börn, TTT- starfið, ferm- ingarbörnin og æskulýðsfélagið taka þátt. Skólakór Mosfellsbæjar syngur. Stjórn- andi: Guðmundur Ómar Óskarsson. Org- anisti: Jónas Þórir. Athugið! Söngstund í kirkjunni frá kl. 10.30. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjölskyldu- guðsþjónusta kl.11.00. Hljómsveit leið- toga leikur. Unglingakórinn syngur. Sr. Þór- hallur leiðir „kirkjuleikinn“. Eftir guðsþjónustuna er boðið upp á hressingu í safnaðarheimilinu. Æskulýðsguðsþjón- usta kl. 20.00. Æskulýðsfélag kirkjunnar annast stundina. Hljómsveitin Gleðigjafar leikur undir söng. Krakkar í Æskó sýna leikrit. Unglingakórinn syngur. Að lokinni guðsþjónustunni bjóða fermingarbörn öll- um kirkjugestum til kaffiveislu í safn- aðarheimilinu. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Fjöl- skylduhátíð kl. 11. Sunnudagaskólinn og fjölskylduguðsþjónusta saman í einni stórri fjölskylduhátíð. Barnakórinn og Ung- lingakórinn syngja undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur. Samvera með ferming- arbörnum og foreldrum í safnaðarheim- ilinu að guðsþjónustu lokinni. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna- samkoma kl.11. Umsjón hafa Sigríður Kristín, Hera, Edda og Örn. Guðsþjónusta kl.13. Hljómsveit kirkjunnar og kór á létt- um og ljúfum nótum að venju. Tónlistar- stjóri er Örn Arnarson. Prestarnir Einar og Sigríður Kristín flytja samtalspredikun. Að lokinni guðsþjónustu hefst basar Kven- félagsins í safnaðarheimilinu. ÁSTJARNARSÓKN í samkomusal Hauka að Ásvöllum. Barnaguðsþjónustur sunnu- dag kl. 11–12. Messa á æskulýðsdegi kirkjunnar sunnudag kl. 20. Ingi Þór Em- ilsson, æskulýðsfulltrúi sóknarinnar, pré- dikar. KÁLFATJARNARKIRKJA: Barnaguðsþjón- ustur á laugardögum í Stóru-Vogaskóla kl. l1.15. Messa á æskulýðsdegi kirkjunnar sunnudag kl. 14. TTT í Borunni miðviku- dag kl. 17. Alfa-námskeið að Kálfatjörn miðvikudag kl. 19–22. VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta æsku- lýðsdagsins er kl. 11.00. Sunnudagaskól- inn tekur þátt í athöfninni ásamt Æsku- lýðsfélagi Garðasóknar og kór Hofsstaðaskóla. Leikþáttur og léttur söng- ur. Nemendur Tónlistarskólans í Garðabæ leika á píanó og trompet. Organisti er Jó- hann Baldvinsson. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Æskulýðsfélagið býður upp á kaffi, djús og kökur í safnaðarheimilinu að lok- inni messu. Allir velkomnir. GARÐAKIRKJA: Messa kl. 14.00. Barn borið til skírnar. Svanhildur Rósa Pálma- dóttir, nemandi í Tónlistarskóla Garða- bæjar, syngur einsöng. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng undir stjórn organistans, Jóhanns Baldvinssonar. Rúta fer frá Vídal- ínskirkju kl. 13.30 og frá Hleinum kl. 13.40 og til baka að lokinni athöfn. Allir velkomnir. BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskólinn í Álftanesskóla kl. 11:00. Mætum vel. Prestarnir. BESSASTAÐAKIRKJA: Æskulýðsguðs- þjónusta á æskulýðsdaginn, sunnudaginn 6. mars, kl. 14:00. Kór kirkjunnar Álfta- neskórinn syngur við athöfnina og leiðir al- mennan safnaðarsöng. Einnig syngur við athöfnina eldri barnakór Álftanesskóla undir stjórn Lindu Margrétar Sigfúsdóttur og Svövu Maríu Þórðardóttur. KFUM og K tekur þátt í athöfninni og sér um helgileik. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Við athöfnina þjóna: Sr. Hans Markús Haf- steinsson og Gréta Konráðsdóttir djákni. NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): Fermingarguðsþjónusta 6. mars kl.10.30. Kór Njarðvíkurkirkju syngur undir stjórn Gísla Magnasonar organista. Sunnudaga- skóli í Ytri-Njarðvíkurkirkju sunnudaginn 6. mars kl.11. í umsjá Margrétar H. Halldórs- dóttur og Gunnars Þórs Haukssonar . For- eldrar eru hvattir til að mæta með börn- unum. Síðasta skiptið á þessum vetri. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga- skóli sunnudaginn 6. mars kl.11. í umsjá Margrétar H. Halldórsdóttur og Gunnars Þórs Haukssonar. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnunum. Síðasta skiptið á þessum vetri. KEFLAVÍKURKIRKJA: Fermingarmessa kl. 10:30 (8. H.G.R.í Holtaskóla). Ferming- armessa kl. 14 (8. K.Á. í Holtaskóla). Kór Keflavíkurkirkju syngur við athafnirnar. Báðir prestarnir þjóna. Meðhjálparar: Laufey Kristjánsdóttir og Leifur Ísaksson. Organisti Hákon Leifsson. Sjá: keflavik- urkirkja.is HVALSNESKIRKJA: Safnaðarheimilið í Sandgerði. Gospel guðsþjónusta kl. 20:30. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir guð- fræðinemi prédikar. Kór Hvalsneskirkju syngur. Organisti Steinar Guðmundsson. Garðvangur: Helgistund kl 15:30. NTT – Níu til tólf ára starf er í safnaðarheimilinu í Sandgerði á þriðjudögum kl. 17. Safn- aðarheimilið Sæborg: Alfa-námskeið kl 19 á miðvikudögum. Alfahelgin verður 4.–5. mars í Ölveri í Borgarfirði. Sókn- arprestur. ÚTSKÁLAKIRKJA: Sunnudagurinn 6. mars: Gospel guðsþjónusta kl. 16:30. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir guð- fræðinemi prédikar. Kór Útskálakirkju syngur. Organisti Steinar Guðmundsson. Garðvangur: Helgistund kl. 15:30. NTT – Níu til tólf ára starf er í safnaðarheimilinu á fimmtudögum kl. 17. Safnaðarheimilið Sæborg: Alfa-námskeið kl 19 á mið- vikudögum. Alfahelgin verður 4.–5. mars í Ölveri í Borgarfirði. Héraðsfundur Kjal- arnesprófastsdæmis verður haldinn í Garði 10. mars kl. 17. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA: Poppmessa kl. 14. Gospelkór Akraness syngur. Safn- aðarheimilið Vinaminni: Kvöldvaka æsku- lýðsdagsins kl. 20. Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum. BORGARNESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.15. Föstuguðsþjónusta kl. 20. Sungnir verða Taize söngvar með fjöl- breyttum hljóðfæraleik. ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11 í umsjá foreldra fermingarbarna. Haraldur Júlíusson prédikar. Fermingarbörnin flytja helgileik. Kór Ísafjarðarkirkju syngur undir stjórn Huldu Bragadóttur. Kirkjuskóli barnanna á sama tíma. Sóknarprestur. HRÍSEYJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. MÖÐRUVALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11:00. Börn og unglingar taka þátt í guðsþjónustunni, ferming- arbörn lesa bænir, TTT kynnir hjálp- arstarfið á skemmtilegan hátt, brúðu- leikur og margt fleira fyrir yngstu börnin. Mikill og skemmtilegur söngur fyrir alla fjölskylduna. Allir velkomnir. AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Kvöldmessa kl. 20.30. Sr. Svavar A. Jónsson og Sólveig Halla Kristjánsdóttir. Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. GLERÁRKIRKJA: Æskulýðsguðsþjónusta kl 11.00. Sr. Arnaldur Bárðarson og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni leiða helgi- hald. Barnakór og Unglingakór Gler- árkirkju leiða söng undir stjórn Ástu Magn- úsdóttur. Organisti er Hjörtur Steinbergsson. Kakó og kleinur að guðs- þjónustu lokinni í safnaðarsal. Samvera fyrir fermingarbörn í Glerárkirkju kl 20.30. (Ath allir hópar.) Að helgistund lokinni horfum við á stuttmyndir frá Löngumýri. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Hjálp- ræðissamkoma kl. 11. Kapteinn Rannvá Olsen talar. Sunnudagaskóli kl. 11. Allir velkomnir. KFUM og K á Akureyri: Kristniboðs- samkoma kl. 20.30 á sunnudagskvöldið. Ræðumaður séra Ragnar Gunnarsson skólaprestur. LAUFÁSPRESTAKALL: Grenivíkurkirkja: Æskulýðsguðsþjónusta sunnudaginn 6. mars kl. 14 á æskulýðsdegi þjóðkirkj- unnar. Mikið af léttri tónlist, kirkjukórinn leiðir hefðbundinn sálmasöng, leikbrúður koma í heimsókn. Björg, Gylfi, Inga og Pét- ur leiða messuna. Kyrrðarstund mánudag- inn 7. mars kl. 20. LJÓSAVATNSPRESTAKALL: Þorgeirs- kirkja: Kyrrðarstund sunnudagskvöldið 6. mars kl. 20.30. Kaffisopi á eftir. EGILSSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 í samstarfi við nágrannapresta. Barna- kór kirkjunnar leiðir sönginn. Friðþjófur Þorsteinsson æskulýðsfulltrúi prédikar. 7. mars: Kyrrðarstund kl. 18. Sóknarprestur. NORÐFJARÐARKIRKJA: Gospelmessa sunnudag kl. 11. Kórar Norðfjarðar- og Eskifjarðarkirkju syngja gospellög og sálma með hljómsveit. Í guðsþjónustunni koma saman börn, unglingar og fullorðnir með hugvekju, tónlist og gospelgleði í lif- andi starfi. Allir velkomnir. FÁSKRÚÐSFJARÐARKIRKJA: Próf ferm- ingarbarna verður haldið í messsu 6. mars, kl. 11 í Fáskrúðsfjarðarkirkju. Allir eru velkomnir að hlusta á frammistöðu barnanna. Sóknarprestur. ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Guðsþjón- usta kl. 11. Barnakór Odda- og Þykkva- bæjarkirkna syngur. Organisti Nína María Morávek. Þau börn í sókninni sem verða 5 ára á árinu (fædd 2000) sérstaklega boð- uð til kirkju, ásamt foreldrum sínum, þar sem þeim verður afhent bókin Kata og Óli fara í kirkju. Fermingarbörn í Oddasókn leggja til meðlæti með kirkjukaffinu á eft- ir. Sóknarprestur. STÓRA-NÚPSPRESTAKALL: Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11 í Stóra-Núpskirkju. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 11. Sóknarprestur. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11. Sunnudagaskóli kl. 11.15. Léttur há- degisverður í safnaðarheimilinu á eftir. Fyrirbænir og morguntíð sungin þriðjudag til föstudags kl. 19, kaffisopi á eftir. For- eldramorgnar miðvikudaga kl. 11. Kirkju- skólinn á miðvikudögum kl. 13.30 í Fé- lagsmiðstöðinni við Tryggvagötu. Föstutíðagjörð miðvikudag kl. 18.15. Sr. Gunnar Björnsson. EYRARBAKKAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. HVERAGERÐISKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Aðalsafnaðarfundur Hveragerðis- sóknar að messu lokinni. Venjuleg aðal- fundarstörf. Sóknarprestur/ sóknarnefnd. ÞINGVALLAKIRKJA: Messa sunnudag kl. 14. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson. Prestur sr. Kristjan Valur Ingólfsson. Borgnesingar efstir hjá Bridsfélagi Borgarfjarðar Mánudaginn 28. febrúar lauk að- alsveitakeppni félagsins. Borgnes- ingar höfðu mótið í hendi sér fyrir síðustu umferð og gáfu hvergi eftir og höfðu fullnaðarsigur í sínum síð- asta leik. Í þeirra sveit spiluðu Jón H. Einarsson, Anna Einarsdóttir, Elín Þórisdóttir og Guðmundur Jónsson. Svanhildur Hall var í sömu stöðu nú og í fyrra að vera í þriðja sæti fyrir lokaumferðina. Í fyrra gekk allt á afturfótunum og verð- launasætið gekk henni úr greipum. Svanhildur taldi hins vegar enga ástæðu til að láta það endurtaka sig og vann góðan sigur og „stal“ um leið öðru sætinu í mótinu. Með Svan- hildi spiluðu þeir Sveinn Hallgríms- son, Jón Eyjólfsson og Baldur Árni Björnsson. Bifrestingar unnu mótið í fyrra og höfðu heitið því að láta bik- arinn ekki af hendi baráttulaust. Ekki vantaði baráttuna en þeir voru ofurliði bornir í síðustu umferð og töpuðu illa fyrir Tungnatröllunum. Samt varð þriðja sætið þeirra. Í sveit Bifrastar spiluðu Hörður Gunnarsson, Stefán Kalmannsson, Ingimundur Óskarsson og Hrannar Magnússon. Lokastaðan varð eftirfarandi: Borgarnes 240 Svanhildur Hall 218 Bifröst 204 Tungnatröllin 197 Kópakallinn 187 Næsta mánudag byrjar þriggja kvölda tvímenningur og eru allir vel- komnir meðan húsrúm leyfir. Nýliðun og ánægja Sveinbjörn Eyjólfsson sendir þættinum jafnan fréttir frá Brids- félagi Borgarfjarðar og þeir sem til þekkja vita að þetta eru skemmtileg- ustu fréttirnar sem birtast í þessum þætti. Hann sendi okkur þennan já- kvæða pistil sem umsjónarmanni er ljúft að birta: Ég hef oft velt því fyrir mér hvort allir hafi sama viðhorf til brids og Þorvaldur Pálmason vinur minn. Hann segir: „Brids er leikur gleð- innar,“ og gleymir því aldrei þó á móti blási. Oft hefur maður orðið vitni að því að spilurum sé lesinn pistillinn í hita leiksins og er þá engu skipt um stund né stað. Mér verður einnig oft hugsað til vinar míns sem er helst aldrei með hýrri há á brids- mótum út af slæmum spilum. Hann lék 10 leiki á síðustu Bridshátíð og var alltaf upptekinn af slæma spilinu í hverjum leik. Samt endaði sveitin hans meðal 15 efstu. Naut hann stundarinnar? Ég held ekki en trúi að margir hefðu verið glaðir með minna. Þegar nýliðar voga sér að keppnisborði þá eru þeir oft hugsi um hvort þetta verði þeirra „daglegt brauð“ og því mjög nauðsynlegt að laða þá til frekara samstarfs með uppörvun og hvatningu, ekki skömmum. Ég naut þess heiðurs í gærkvöld að spila við nýjan makker, Björk Lárusdóttur, en hún er 9 ára gömul. Í tveimur af fyrstu þremur spilunum krafði hún mig í láglita- geim sem gáfu okkur sveiflu inn. Síðar í leiknum spilaði hún laglega 4 hjörtu með yfirslag sem líka gaf inn. Samt tapaðist leikurinn. Þessi litla, stúlka sem á framtíðina fyrir sér, fór glöð í háttinn og bíður þess með óþreyju að fá að koma aftur. Kannski er það vegna þess að hún fékk hvatningu fyrir það sem var vel gert og með tímanum lærir hún að gæta sín á „pyttum“ spilaborðsins sem við öll vitum að eru svo margir og djúpir. Ég trúi að sú hugsun að brids sé leikur gleðinnar sé stærsti þátturinn í því að Bridsfélag Borg- arfjarðar hefur dafnað sem raun ber vitni á síðustu árum. Nú er algengt að þar sé spilað á 10–12 borðum og menn njóta stundarinnar. Það er í raun mjög auðvelt að fjölga keppn- isspilurum. Við höfum reynsluna. Þetta er bara spurning um hugarfar. Sveit Eyktar vann aðalsveitakeppni BR Aðalsveitakeppni Bridsfélags Reykjavíkur lauk 1. mars síðastlið- inn með næsta öruggum sigri sveitar Eyktar sem leiddi nánast allan tím- ann, fékk 209 stig sem gerir 20,9 stig að meðaltali í leik. Sannarlega glæsi- legur árangur. Í sveit Eyktar spiluðu Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Ragnar Hermannsson, Að- alsteinn Jörgensen og Sverrir Ár- mannsson. Lokastaða efstu sveita varð þannig: Eykt 209 Esso 196 Sparisjóður Siglufjarðar 175 Guðlaugur Sveinsson 167 Garðar og vélar 164 Sverrir Kristinsson 163 Jafnframt útreikningi á árangri sveita reiknaði keppnisstjórinn Björgvin Már út bötlerárangur para. Af þeim sem spiluð marktæk- an fjölda spila var Jón Baldursson efstur með 1,4 impa skoraða á spil í 112 spilum. Annar í röðinni varð Sig- fús Örn Árnason með 0,95 impa í 160 spilum og þriðji Ómar Olgeirsson með 0,92 impa í 160 spilum. Næsta keppni félagsins er butler-tvímenn- ingur, þriggja kvölda sem hefst 8. mars næstkomandi. Bridsfélag Akureyrar Nú þegar búin eru 2 kvöld af þremur í Heilsuhornstvímenningi BA er staðan þannig: Pétur Guðjónss. og Stefán Ragnarss. 62 Sveinn T. Pálss. og Jónas Róbertsson 58 Reynir Helgas. og Ragnheiður Haraldsd. 40 Stefán Sveinbjss. og Brynja Friðfinnsd. 17 Gylfi Pálss. og Helgi Steinsson 9 Tvímenningnum lýkur næstkom- andi þriðjudag. Á laugardaginn er Svæðamót Norðurlands eystra í paratvímenn- ing. Mótið er haldið í Hamri og hefst kl. 10. Við skráningum tekur Stefán Vilhjálmsson í síma: 8984475 eða 4622468. Svo verður að sjálfsögðu tvímenningur á sunnudag. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.