Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 45 MINNINGAR Hönnu. Þau voru mikið útivistarfólk og dugleg að ferðast. Það er ekki hægt að hætta nema minnast á harmonikkuna. Hún var fylgifiskur Steina alla tíð og oft var maður búin að vera á skemmtunum þar sem hann var að spila ásamt öðr- um Breiðdalsbítlum, eins og við köll- uðum þá. Kom fyrir að hann skellti sér á dansgólfið með nikkuna í fang- inu. Hver veit nema við eigum eftir að hittast síðar, kannski á skíðum. Gæti jafnvel endurgoldið honum og keyrt hann upp á heiði, hver veit. Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Hanna Bára Guðjónsdóttir. Ég rifja upp mínar fyrstu minn- ingar um Sigurstein Melsteð sem nú er fallinn frá eftir langa og stranga baráttu við illvígan sjúkdóm. Það hefur sennilega verið þegar hann flutti með sína fjölskyldu á efri hæð Gamla Kaupfélagsins á Breiðdalsvík upp úr 1960 Foreldrar mínir bjuggu á neðri hæðinni og því var oft mikill samgangur. Ég man hve Steini og Hanna voru glæsilegt par og þeim fylgdi lífsgleði og hamingja. Það var mikill fengur fyrir okkar litla byggðarlag að fá slíkan fag- mann til þess að sinna allri þeirri þjónustu við bíla, fiskiskip og vélar sem til féll. Steini var afbragðs vél- virki. Hann rak bifreiða-og véla- verkstæði í áratugi á Breiðdalsvík. Ég man að faðir minn sem rak um langt skeið útgerð á Breiðdalsvík leitaði mikið til Steina þegar eitt- hvað þurfti að laga og jafnvel heilu togskipin voru stopp vegna bilana. Eitt sinn var veiðiskipið Sigurður Jónsson vélarbilað við bryggju. Varahlut varð að fá úr Reykjavík. Allir vegir voru ófærir og mikill snjór. Steini leysti þá málið með að fá flugvél að sunnan með vara- stykkið og var því kastað úr vélinni innan við Hellurnar því ekki gat vél- in lent vegna fannfergis. Steini var mikill útivistarmaður. Stundaði mikið skíði og vélsleða- akstur. Hann kunni vel við sig á fjöllum og naut íslenskrar náttúru. Hann var áhugamaður um björgun- arstörf og góður félagi í Lions- klúbbnum Svan. Hann var veiðimað- ur og hafði yndi af bæði stang- og skotveiði. Guðmundur Sigurðsson frændi minn hefur sagt mér frá ógleymanlegum ferðum þeirra til hreindýraveiða hér á árum áður. En umfram allt var hann fjöl- skyldumaður í orðsins bestu merk- ingu. Steini og Hanna reistu sér fal- legt heimili og ræktuðu vel garðinn sinn. Að lokum vil ég þakka Steina fyrir samfylgdina og veit að nú líður hon- um betur eftir erfið veikindi. Ég votta Hönnu, Hrafni, Helgu, Ómari og öllum aðstandendum mína dýpstu samúð og bið þeim blessunar í þeirra miklu sorg. Pétur Pétursson. Kær vinur okkar hjóna er fallinn frá allt of snemma. Við trúum því ekki. Hvernig má það vera? Sterk- byggður útivistarmaður fullur áhuga á öllu lífi. Þúsundþjalasmiður. Án víns og tóbaks alla ævi. Af hverju krabbi? Engin svör. Þau eru ekki til. En minningarnar um ótal samveru- stundir síðustu 46 ára lifa. Yfir þeim getum við glatt okkur. Við munum svo margt. Afmælisveislu undir Kárahnúk, þegar Hanna dró upp dúkinn: Tertan sett á, en það vildi ekki lifa á kertunum. Færeyjaferð þar sem við athuguðum hvernig frændur okkar með enga mold rækta kartöflur. Nei, hér vex aldrei neitt sagði Steini, ef þið ætlið að rústa garðinum hjá fólkinu. Hlátur og kæti einkenndi ferðirnar okkar. Út í Grímsey, það var mikið ævin- týri. Utanlandsferðirnar ógleyman- legu og síðasta ferðin okkar saman inn í göngin í Fljótsdal, síðan í Kára- hnjúka í frábæru verðri. Nikkan er því miður þögnuð í bili. Hanna mín, við erum búin að fylgjast með þreki ykkar og sérstaklega síðustu mán- uðina. Höfum alltaf vitað hve vel þið eruð af guði gerð og krakkarnir ykk- ar hafa stutt þig og hann dyggilega. Sá sem öllu ræður hlýtur að hafa þurft að skipta um dekk, eða bíllinn bilað í slæmri beygju, en okkur finnst sá gamli frekur. Við máttum ekki missa Steina svona fljótt. Þökk- um samfylgdina. Þegar ellin á mann fer angra pestir lífsins neista. Geysilega gott þá er góða vininum mega treysta. Við höfum marga farið ferð feikilega góða, en ekki var hún alltaf gerð eftir troðnum slóða. (Ó.A.) Þórdís og Óskar. Horfa nú niður til mín kvíðalaus hafa fest hér rætur þar hendur að hlúðu það vor. (G. Sv.) Í morgun, þar sem ég sat við gluggann og horfði út í lognið og sól- skinið, hringdi síminn. Ég teygði mig í tólið. Kona mín var á línunni og sagði að vinur okkar Sigursteinn G. Melsteð, Steini, væri dáinn. Birta dagsins dofnaði. Þótt þetta kæmi kannski ekki á óvart í sjálfu sér var sem eitthvað brysti. Steini var búinn að berjast við krabbamein í nokkur ár en bjartsýnn á bata, þótt síðustu mánuðir bentu til annars. Þótt drægi fyrir sólu á skjá hugans og skuggar læddust að bjó birta minn- inga að baki. Komu hljóðar og glað- ar, tærar og einlægar. Þannig var Steini. Ég kynntist honum fyrst veturinn 1961. Var þá við nám í Stýrimanna- skólanum. Konan hafði skroppið suður í heimsókn. Vegna ýmissa að- stæðna dvöldum við með yngstu dótturina hjá ungum hjónum á Rauðarárstígnum, Hönnu og Steina, í um mánaðartíma. Þessi fyrstu kynni urðu góð og entust allt til þessara tímahvarfa og ég veit að þau munu endast, lifa úti í blárri eilífð- inni. Alltaf. Ég er maður seintekinn, jafnvel lokaður. Á þar af leiðandi fáa kunningja og enn færri vini. Til að slíkt gerist verður það fólk að hafa sérstaka bylgjulengd, senditíðni, sem nær inn úr skel sálar minnar. Á áðurnefndri bylgjulengd var Steini, þótt við værum næsta ólíkir í fljótu bragði. Eitthvað tengdi okkur samt saman. Það entist alla tíð. Steina tókst að vekja athygli mína og áhuga á þeim mörgu viðfangsefnum sem voru honum hugleikin en ég lítt grundað. Þótt honum tækist ekki að vekja áhuga minn á vélum tókst hon- um að vekja áhuga minn á ljósmynd- un, einkum litskyggnum. Slíkar myndavélar og filmur voru að ryðja sér til rúms eftir kassavélatímann. Stangveiði, fjalla- og óbyggðaferðir o.fl. fylgdu í kjölfarið, þ.m.t. hrein- dýraveiðar sem urðu nokkrar og sumar hverjar strembnar, er sótt var í tarfa hátt í hlíðum fjalla Breið- dals, einkum við Fagradal. Þar átt- um við margar skemmtilegar stund- ir með búendum þar. Steini reyndist og góður kennari. Kenndi mér t.d. að slá með traktorsláttuvél. Gaf sér tíma í það nokkra morgna áður en hann fór í vinnuna. Hann benti mér á hitt og annað er betur mætti fara í samskiptum mínum við búvélar. Einhvern árangur bar það, þótt neminn væri tregur að melta slíkt sbr. áður ritaður áhugi minn á vél- um. Þá var trjárækt ofarlega í huga hans. Dvaldi mörg sumur í æsku við Þingvallavatn hjá Símoni afa sínum í Vatnskoti og lærði þar að umgang- ast náttúruna. Var einnig tíma og tíma hjá móðurbróður sínum, Aðal- steini Símonarsyni í Laufskálum í Stafholtstungum, og fékk þar áhuga á gróðri og trjárækt. Aðalsteinn var gróðurhúsabóndi og fyrstur til að rækta kaktusa á Íslandi. Á öllu þessu og mörgu fleiru tókst Steina að vekja áhuga minn – og það tengdi okkur saman. Þau hjónin, Hanna og Steini, fluttu austur á Breiðdalsvík vorið 1961 og bjuggu þar allar götur síðan. Sigursteinn tók við rekstri Búvéla- verkstæðis Breiðdalshrepps þá um vorið. Hann var lærður rennismiður, en hafði víðtæka þekkingu á öllu er að vélum og viðgerðum laut. Var lengi eini lærði rennismiðurinn á Suðurfjörðum. Síðan urðum við ná- grannar. Húsin, sem þá voru nefnd Mánaberg og Hamrahlíð, og heita enn í minni vitund, standa á lóðun- um 19 (Mánaberg) og 21 (Hamra- hlíð) við Ásveg. Ég man vorið er við réðumst í að slétta lóðirnar með tæt- ara, bæta í þær mold og sækja að síðustu trjáplöntur upp að Hall- ormsstað til gróðursetningar í þeirri mold. Smátt og smátt uxu þessi tré yfir höfuð okkar og geyma enn þetta stutta ævintýri íslensks vors. Steini kom hér í árdaga síðasta síldarævintýrs landsmanna. Var á kafi í uppsetningu véla og tækja sem tilheyrðu því ævintýri. Lagði á stundum nótt við dag. Dugði honum oft að halla sér í nokkrar mínútur, spratt að því búnu á fætur og hélt starfinu áfram. Vissi að síldin lét ekki bíða eftir sér, allt varð að vera klárt ætti hún ekki að synda hjá. Þetta gerði Steini með bros á brá, gleði og gamansemi á vörum. Var þannig alla tíð. Hár og grannur, fríð- ur sýnum, látlaus og vinsamlegur. Vakti athygli mína á því að honum fyndist Breiðdælir helst til niðurlút- ir og orðfáir a.m.k. á stundum, sparir á að bjóða góðan dag er þeir hittust eða mættust á morgnana. Þetta varð til þess að ég bætti ráð mitt. Býð enn þann dag í dag góðan dag, jafnvel þótt ekki sé alltaf birta í huga. Trúi að svo sé um fleiri sveit- unga. Samskipti mín við Steina hafa vafalítið gert mig að tillitssamari manni en ég ella hefði orðið. Árið 1973 tók Steini til starfa í nýju verkstæðishúsi við Selnes 28. Það nefndi hann fljótlega Vélaverk- stæði Sigursteins G. Melsteð. Það nafn mun vafalaust haldast þótt Steini hafi kvatt. Dóttir hans, Helga Hrönn, sem einnig er lærður renni- smiður, og tengdasonur, Ingólfur Finnsson, hafa verið í rekstrinum með Steina síðustu árin. Munu halda starfi hans og nafni á lofti um ókom- in ár. Er þess fullviss. Steini vafa- laust líka. Á þessum árum skiptumst við á verkum. Ég barði saman reikn- ingsskil og skattframtal hans. Í staðinn yfirfór hann á hverju vori bíl okkar hjóna. Skildum á sléttu. Það var gott fyrirkomulag og stóð fram á miðjan síðasta tug nýliðinnar aldar. Ef til vill kynntumst við Steini best í nokkrum öræfaferðum á sjö- unda og áttunda áratug síðustu ald- ar. Þótt þær yrðu ekki margar búa þær í sálinni og á myndum er teknar voru. Við göngum, ásamt með vini okkar, Sigmari Péturssyni, yfir grá- ar hraunbreiður með poka á baki. Stefnum á Eyjabakka. Höfðum fyrst tjaldað undir Sauðahnjúkum. Lengra ekki komist á bílum. Engum tekist fyrr. Lögðum síðan land undir fót í áhnígandi síðsumarnótt. Höfð- um sem stefnuvita, ásamt vasaátta- vita, musteri fjallanna, Snæfell. Þar austanundir lúrðu Eyjabakkar í húminu. Höfðum kynnt okkur allar aðstæður af lestri bóka þeirra Þor- steins Jósepssonar og Steindórs Steindórssonar. Hugurinn fullur hrifningar og bjartsýni að ná þessu takmarki. Bárum með okkur lítið tjald. Um óttuskeið völdum við tjald- stæði á sléttri flöt þaktri dimm- grænum dýjamosa. Ætluðum rétt að halla okkur. Lögðumst til svefns. Hlýddum á ljóð vatnsins niða undir tjaldbotninum, á þögnina, einstaka fuglskvak, óljósan þyt öræfaandvar- ans. Svifum við þá unaðslegu sinfón- íu inn í stuttan svefn. Vöknuðum glaðir – en eilítið þreyttir. Hituðum te. Stutt í afburða gott vatn. Bund- um á ný bagga og héldum af stað yfir hrjúft Hraun, klætt mosa og skóf- um, með morgunsólina í bakið. Vóð- um ár og læki. Undum sokkana, héldum áfram með Snæfell að leið- arljósi. Ekki tókst okkur að komast í Eyjabakka, leiðin lengri en sýndist. Loftlína kortsins blekkti talsvert. Vistir ekki nægar til lengri tíma. Snerum heim að Sauðahnúkum af Háöldum. Sáum í fjarskanum gul- græna Eyjabakkana í tíbrá, horfð- um út eftir Kollumúlaheiðinni. Þar lágu spor okkar tveim árum áður. Gengum þöglir, en glaðir í sinni, til baka þótt takmarkið næðist ekki. Ræddum á leiðinni að síðar tækist það. En á þessari leið áttum við Steini ekki samleið aftur. Stend einn eftir. Hinir horfnir yfir fljótið. En lindin undir dýjamosanum kveður enn ljóð sín, bíður nýrra ferðalanga með lítið tjald. Eins og ég hef drepið á var Steini liðtækur á mörgum sviðum. Fyrir utan það að geta látið flestar vélar, tól og tæki snúast var hann dugleg- ur og flinkur bílstjóri, ekki síst í vertrarferðum, óragur en varfærinn – þó ekki um of. Þar er vandrötuð leið, skilur á milli færni og meðal- færni. Var aldrei hræddur í bíl hjá Steina. Hann var frumkvöðull að stofnun slökkviliðs hér og stjórnaði því um árabil. Var duglegur Lionsmaður, ók í mörg ár sjúkrabílnum og fleira mætti nefna. Var liðtækur harmon- íkuleikari. Brást alltaf vel við þá fólk gerði sér dagamun. Spilaði á böllum, þorrablótum, barnaböllum, 17. júní- samkomum og við fleiri tækifæri. Á sjöunda og áttunda áratugnum stóð hann fyrir uppsetningu skíðatog- brauta. Fyrst í Þverhamarsfjalli en síðar inni á Breiðdalsheiði. Þetta var þarft framtak. Þar lærðu krakkarnir fyrst að standa á skíðum og gott bet- ur, því skíðakennarar komu og stöldruðu við. Þessi starfsemi lagði upp laupana eftir að skíðamiðstöðin í Oddsskarði og fleiri stöðvar hófu starfsemi. Tveir síðustu atburðir í samskipt- um okkar Steina standa mjög skýrir í hugskotinu. Annar tengist harm- óníkunni. Í fyrrahaust kom hópur Þingeyinga. Hélt hann gömlu- dansaball á Staðarborg. Kvöldið áð- ur bað Steini mig að koma með ljóðabók sem ég hafði sett saman, ásamt nokkrum lögum er fylgdu með á geisladiski. Hann stakk upp á því að ég læsi úr bókinni og hann spilaði undir. Þetta gerðum við og fólkið gladdist. Ekki datt mér þá í hug að þetta yrði síðasta samkoman þar sem við Steini legðum í púkk. Hitt atvikið gerðist fyrstu dagana í desember sl. Nýlega hafði komið út barnabók eftir okkur Einar Árna- son, ég átti textann, hann klippi- myndir. Skrifaður var notalegur rit- dómur um hana í Morgunblaðið. Þennan ritdóm sá Steini. Hann hringdi austur í Mánaberg. Ég var ekki heima, en konan svaraði. Er- indið var að óska mér til hamingju með þessa litlu bók. Konan tók niður símanúmerið og daginn eftir hringdi ég. Þá heyrði ég að rödd hans var mun veikari en áður, en hugsun öll skýr. Við ræddum saman dágóða stund. Að lokum komnir inn á Hraun. Horfðum af Bótárhnúki yfir syðstu firði Austfjarða. Dauðinn svo fjarlægur. Rifjuðum upp ferðina á Bratthálsinn forðum á rauða rússa- jeppanum U-377, sem var einkennis- merki Steina um árabil. Merktum leiðina gulri málningu, sem entist í mörg ár. Varð leiðarvísir marga er um árabil fóru þessar slóðir, enda talin besta leiðin, þótt valin væri á stundum í þokuruðningi. Ég ætlaði að hringja aftur. Trúði enn á stefnu- breytingu sem ekki varð. Þetta var síðasta samtal okkar Steina, þessa trúa og trygga vinar. Hann langaði til að óska mér til hamingju, e.t.v. í síðasta sinn. Sigursteinn G. Melsteð skilur eft- ir sig stórt skarð í röðum Breiðdæla. Það verður ekki fyllt. Þessi litla byggð stendur mun fátækari eftir – en við vonum það besta. Maður kem- ur í manns stað er sagt. Það er raun- ar ekki alls kostar rétt, „en eitt sinn skal hver deyja“ og veröldin siglir áfram í tímarúminu óendanlega. Steini er horfinn. Minningin lifir. Söknuðurinn og treginn sitja eftir. Mér er til efs að ég eigi eftir að eign- ast annan eins vin þessi ár sem ég á eftir að dvelja hér á jörð. Okkur varð aldrei sundurorða. Svipmyndir sækja að. Man er við sóttum trjáplöntur að Hallormsstað. Fengum leyfi til að klippa bæði gul-, grá- og loðvíðianga inni í Heydala- skógi. Stungum þeim græðlingum í rás á millum lóðanna. Þar eru þeir enn – flestir. Hafa braggast. Minna á sólskin þess vors, þeirra nátta er við, ásamt konum okkar, gróðursett- um um 30–40 trjáplöntur í görðun- um. Grófum djúpar holur. Fylltum þær af búfjáráburði og mold og hlúðum að litlum rótum. Enn standa mörg þessara trjáa. Horfa niður til okkar. Sum fallin eins og verða vill. Þessi sundurlausu orð segja ekki mikið af ævi þessa ágæta vinar og nágranna. Eru sem kvittun fyrir lið- lega fjögurra áratuga vinskap, kvitt- un fyrir gengna slóð. Steini er far- inn. Heyri ekki lengur nikkutóna yfir lóðamörkin – nema í minning- unni. Ekki það sama. Við söknum hans. Minningin vakir ekki síst í vor- nóttinni. Kannski vegna þess að Steini var náttúruunnandi, virti um- hverfið er hann fór um. Vakti fyrst- ur athygli mína á því að hafa alltaf í farteski poka undir rusl. Slíkt eru mannkostir. Við hjónin vottum Hönnu, börn- um þeirra hjóna, tengdabörnunum, vinum, kunningjum og vandamönn- um einlæga samúð. Annað ekki á okkar færi. Far vel, Steini – far vel. Jóhanna og Guðjón í Mánabergi. Okkar ástkæri, KRISTINN HÓLM VIGFÚSSON, Ránargötu 23, Akureyri, lést á gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri sunnudaginn 27. febrúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudag- inn 7. mars kl. 13:30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Anna Rósantsdóttir, Lára Björk Kristinsdóttir, Halldór Árnason, Bragi Hlíðar Kristinsson, Fríða Pétursdóttir, afabörn og langafabarn. Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs sambýlismanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, JÓHANNESAR ÓLAFSSONAR, Ásum 4, Hveragerði, áður Ásum í Stafholtstungum. Margrét Larsen, Þórhildur Erla Jóhannesdóttir, Larry Sutherland, Kristján Jóhannesson, Vigdís Hallfríður Guðjónsdóttir, Björn Jóhannesson, Jóhannes Jóhannesson, Kristín Elísabet Möller, Sigríður Guðný Jóhannesdóttir, Skúli Guðmundsson, Ólafur Ingi Jóhannesson, Kolbrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.