Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 50

Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 50
50 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ NÝTT nafn verður letrað á Flug- leiðabikarinn sem keppt var um á meistaramóti Taflfélagsins Hellis sem lauk miðvikudaginn 2. mars síð- astliðinn. FIDE-meistarinn Sigurð- ur Daði Sigfússon (2.309) varð hlut- skarpastur á mótinu með sex vinninga af sjö mögulegum og er þetta fyrsti meistaramótstitill hans síðan hann gekk í raðir Hellis árið 2003. Sigurvegarinn leyfði eingöngu tvö jafntefli, annars vegar gegn Hrannari Baldurssyni (2.164) og hins vegar gegn Davíð Kjartanssyni (2.290). Sá síðarnefndi lenti í öðru sæti með 5½ vinning en Jóhann Helgi Sigurðsson (2.061) lenti nokk- uð óvænt í þriðja sæti með fimm vinninga. Taflmennska þess síðast- nefnda var prýðileg og hækkaði hann mikið á stigum á mótinu. Í þeim efnum hefur hann þó varla tærnar þar sem hinn ellefu ára Hjörvar Steinn Grétarsson (1.585) hefur hælana. Þessi rauðhærði hnokki lagði m.a. Hrannar Baldurs- son og Sverri Sigurðsson (2.010) að velli og fyrir lokaumferðina gat hann orðið meistari félagsins tækist hon- um að vinna Sigurð Daða. Þó að þeirri skák hafi lokið með ósigri þá getur hann vel við unað með sinn 4½ vinning. Hann lenti í 4.–6. sæti ásamt Hrannari Baldurssyni og Atla Frey Kristjánssyni (1.910). Lokastaða annarra keppenda varð þessi: 7.–12. Lenka Ptácníková (2.280), Þorvarður F. Ólafsson (2.109), Páll Sigurðsson (1.914), Helgi Brynjars- son (1.505), Þórir Benediktsson (1.896) og Svanberg Már Pálsson (1.550). 13.–18. Jóhann Ingvarsson (2.058), Sverrir Sigurðsson (2.010), Sverrir Þorgeirsson (1.950), Gylfi Davíðsson (1.560), Björn Þorfinnsson (2.356) og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1.325) 3½ v. 19.–21. Elsa María Þorfinnsdóttir (1.335), Dagur Andri Friðgeirsson, Paul Frigge (1.365) 3 v. 22.–24. Jóhanna Björg Jóhanns- dóttir, Jökull Jóhannsson og Andri Steinn Hilmarsson 2 v. 25. Ólafur Þór Davíðsson 1 v. Að öðrum ólöstuðum tefldi sigur- vegarinn best á mótinu. Skákstíll Sigurðar Daða hefur breyst mikið í seinni tíð. Áður fyrr var hann varkár og tefldi ávallt sömu byrjanirnar. Í dag breytir hann meira út af og teflir iðulega af mikilli sókndirfsku. Eft- irfarandi skák sýnir þó að hann hef- ur enn yfir mikilli seiglu að búa. Hvítt: Sigurður Daði Sigfússon (2.309) Svart: Jóhann Ingvarsson (2.058) 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5 5. a3 cxd4?! Þessi leikur er sjaldgæfur og hef- ur hugmynd svarts væntanlega verið að koma hvítum á óvart. Daði er við öllu búinn þó að hann hafi byrjað að leika 1. e4 seint á þrítugsaldri. 6. axb4 dxc3 7. Dg4 Re7 8. Rf3 Dc7 9. Bd3 Rbc6 10. 0–0 Rxe5 11. Rxe5 Dxe5 12. Bf4 Dd4 13. bxc3 Dxc3 14. Dg3 Allt hefur þetta sést áður í fræð- unum og talið er að færi hvíts sé meira en kappnóg fyrir peðin tvö sem hann hefur fórnað. Biskupa- parið og opnu línurnar tryggja það. Í staðinn fyrir næsta leik svarts mátti velta fyrir sér að leika 14. … Bd7 eða 14. … Dxb4. 14. … Dc6 Sjá stöðumynd 1 15. b5! Prýðilegur leikur sem þvingar drottninguna á svartan reit og þrengir enn frekar að drottningar- væng svarts. 15. … Db6 16. Dxg7 Hg8 17. Df6 17. Dc3! hefði verið fýsilegri þar sem eftir 17. … Bd7 18. Bc7 Hc8 19. Bxb6 Hxc3 20. Bd4! stendur hvítur mun betur að vígi. 17. … Rg6 18. Be3 Dd8 19. Dxd8+ Kxd8 20. Bxa7 Bd7 21. Bb6+ Ke7 22. Bc5+ Kf6 23. Hxa8 Hxa8 Endataflið sem nú er komið upp ætti um það bil að vera í jafnvægi þó að hvíta staðan sé vissulega þægi- legri að tefla vegna biskupaparsins. Næsti leikur hvíts reynir að skorða svörtu reitina betur. Sjá stöðumynd 2 24. f4! Ha4 25. Bd6 Kg7 26. g3 f6 27. Hb1 Kf7?! Hér virðist hafa verið nærtækt að leika 27. … e5 þar sem eftir 28. fxe5 fxe5 29. Bxg6 Kxg6 30. Bxe5 Hc4 31. c3 Hc5 ætti svartur að ná jafntefli án mikillar fyrirhafnar. 28. Hb3 Re7? Enn var ekki of seint að leika 28. … e5. Næsti leikur hvíts setur svartan í mikinn bobba. 29. Hc3! Rc8 30. Hc7 Ke8 31. Bc5 b6 32. Bf2 h5 33. Hb7 d4 34. h4?! e5 35. fxe5 fxe5 36. Be1 Eftir ónákvæmni hjá hvítum hefur svörtum tekist að verjast vel en næsti leikur skolar skákinni beint niður í klósettið. 36. … Ke7? 37. Bf5! Ha7 38. Bxd7 Hxb7 39. Bxc8 Hc7 40. Bf5 Kd6 41. Be4 Kc5 Sjá stöðumynd 3 42. g4! Frípeðið á h-línunni tryggir hvít- um sigurinn. 42. … hxg4 43. h5 Kd6 44. h6 Ke6 45. h7 Hc8 46. Kg2 Kf6 47. Kg3 Kg5 48. Bd2+ Kh5 49. Bb4 He8 50. Be7 d3 51. cxd3 Hh8 52. Bf6 og svartur gafst upp. Á heimasíðu Hellis, www.hellir.com, var hægt að fylgjast með gangi mála mótsins. Það var mögulegt að verða sér úti um allar skákir mótsins jafnframt sem prýði- lega umfjöllun var þar að finna um hverja umferð. Fleiri taflfélög mættu taka sér þessi vinnubrögð til fyrirmyndar þar sem það auðveldar að fylgjast með skákmótum og vekur meiri áhuga á þeim. Alltént auðveld- ar það starf skákblaðamanna til mik- illa muna! Sverrir Þorgeirsson og Hjörvar Steinn efstir og jafnir á ung- lingameistaramóti Reykjavíkur Taflfélag Reykjavíkur stóð fyrir unglingameistaramóti Reykjavíkur 26. febrúar sl. í húsnæði sínu í Faxa- feni 12. Lokastaða efstu manna varð þessi: 1.–2. Sverrir Þorgeirsson og Hjörvar Steinn Grétarsson 5½ vinn- ing af 7 mögulegum. 3. Einar Sig- urðsson 5 v. 4.–5. Daði Ómarsson og Gylfi Davíðsson 5 v. 6.–8. Matthías Pétursson, Hörður Aron Hauksson og Vilhjálmur Pálmason 4½ v. 9.–13. Hallgerður Þorsteinsdóttir, Elsa María Þorfinnsdóttir, Sigríður Björg Helgadóttir, Ingvar Ásbjörns- son og Helgi Brynjarsson 4 v. Sverr- ir varð efstur á mótinu þar sem hann hafði fleiri Monradstig en Hjörvar. Hins vegar varð Hjörvar unglinga- meistari Reykjavíkur þar sem Sverrir er búsettur í Hafnarfirði. Hallgerður Helga varð stúlknameistari Reykjavíkur eftir að stig höfðu verið reiknuð út á milli hennar og tveggja annarra. Vegleg verðlaun voru á mótinu en fyrir utan farandbikar sem telft hefur verið um síðan 1986 gáfu hljóm- plötufyrirtækin 12 tónar, Smekkleysa og Zonet öllum verð- launahöfum tónlist- arverðlaun. Óttar Felix Hauksson, verðandi formaður Taflfélags Reykja- víkur, afhenti verð- launin fyrir hönd út- gáfufyrirtækjanna. Íslandsmót skák- félaga – Flug- félagsdeildinni lýkur 4.–5. mars Síðari hluti Ís- landsmóts skák- félaga fer fram dag- ana 4. og 5. mars í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Tefldar verða þrjár umferðir og að þeim loknum verður ljóst hvaða fé- lag hampar Flugfélagsbikarnum, Ís- landsmeistaratitlinum. Staða a- sveitar Taflfélags Reykjavíkur er harla góð fyrir lokaátökin þar sem hún hefur fjögurra vinninga forskot á a-sveit Taflfélagsins Hellis. Að þessu sinni falla tvær sveitir úr hverri deild og tvær koma upp. Þetta gerir keppnina meira spennandi á öllum vígstöðvum. Skákdeild Hauka er efst í annarri deild en b-sveit Tafl- félags Garðabæjar leiðir í hinni þriðju. Spútniklið a-sveitar Skák- deildar Fjölnis er efst í fjórðu deild en þar taka hvorki meira né minna en 26 sveitir þátt. Íslandsmót í hraðskák – minningarmót Guðmundar Arnlaugssonar fer fram 6. mars Skákþyrstum skákunnendum verður helgin gjöful þar sem sunnu- daginn 6. mars kl. 13.00 hefst Ís- landsmótið í hraðskák sem að þessu sinni er jafnframt minningarmót Guðmundar Arnlaugssonar. Gera má ráð fyrir að margir sterkir skák- menn taki þátt í mótinu en prýðileg verðlaun eru í boði. Nánari upplýs- ingar um mótið er að finna á vef Skáksambands Íslands, www.skak- samband.com. Kasparov enn efstur í Linares Þegar seinni helmingur ofurmóts- ins í Linares á Spáni er hafinn hefur Garry Kasparov (2.804) enn forystu með 4½ vinning eftir 7 skákir. Vesel- in Topalov (2.757) kemur næstur með 4 vinninga en Viswanathan An- and er þriðji með 3½ vinning eftir sex skákir. Anand er eini keppand- inn sem ekki hefur teflt sjö skákir. Peter Leko (2.749) kemur svo í fjórða sæti með sjö jafntefli í jafn- mörgum skákum á meðan Rustam Ksimdzhanov (2.678) og Michael Adams (2.741) eru jafnir í fimmta sæti með 3 vinninga. Spánverjinn Francisco Vallejo Pons (2.686) rekur svo lestina með 2½ vinning en í átt- undu umferð lagði hann FIDE- heimsmeistarann Rustam að velli. Sigurður Daði skákmeistari Hellis SKÁK Mjódd MEISTARAMÓT TAFLFÉLAGSINS HELLIS 2005 14. febrúar – 2. mars 2005 Helgi Áss Grétarsson Óttar Felix ásamt verðlaunahöfum á unglingameistaramótinu. Sigurður Daði lagði Hjörvar Stein í úrslitaskák um meistaratitilinn. Stöðumynd 1 Stöðumynd 2 Stöðumynd 3 daggi@internet.is STJÓRN Læknafélags Íslands (LÍ) og Landsnefnd Lýðheilsustöðvar styðja eindregið frumvarp Sivjar Friðleifsdóttur og fleiri um breyt- ingar á lögum um tóbaksvarnir. Í bréfi stjórnar LÍ til þingmanna segir: „Stjórn LÍ styður efni frum- varpsins eindregið, þar sem sú lagabreyting, sem fylgdi samþykkt þess, tryggði starfsmönnum veit- ingahúsa þá vinnuvernd, sem þeir hafa farið á mis við vegna gildandi undanþáguákvæða um vinnustaði þeirra. Stjórn LÍ telur, að engin málefnaleg rök séu til þess, að þetta starfsfólk njóti lakari vinnuverndar en aðrir landsmenn.“ Landsnefnd Lýðheilsustöðvar fagnar líka frumvarpinu. „Nefndin tekur heilshugar undir það meg- inmarkmið frumvarpsins að um vinnuvernd sé að ræða. Nefndin tel- ur ennfremur að þegar frumvarpið verður að lögum muni af því hljót- ast sá ávinningur að draga muni úr reykingum almennt, sem er mik- ilvægt til að ná þeim markmiðum sem Alþingi hefur þegar samþykkt varðandi tóbaksnotkun í heilbrigð- isáætlun til 2010. Nefndin beinir því til Alþingis að flýta afgreiðslu þessa mikilvæga máls.“ Styðja frumvarp um tóbaksvarnir HEIMSSÝN, hreyfing sjálfstæð- issinna í Evrópumálum, telur sýnt að ályktun flokksþings Framsókn- arflokksins um síðustu helgi hafi ekki markað nein kaflaskil í um- ræðunni um Evrópumálin hér á landi. Í ályktun frá Heimssýn segir: „Stuðningsmenn aðildar að Evr- ópusambandinu á flokksþinginu reyndu ítrekað að fá það samþykkt að aðildarviðræður við sambandið yrðu settar á dagskrá á vegum flokksins en voru gerðir algerlega afturreka með þær tilraunir sínar eins og greint hefur verið frá í fjöl- miðlum og víðar.Niðurstaða flokks- þingsins var að Evrópumálin yrðu áfram til skoðunar á vettvangi Framsóknarflokksins eins og verið hefur hingað til, þ.á m. hugsanleg samningsmarkmið Íslands í hugs- anlegum aðildarviðræðum við Evr- ópusambandið sem hugsanlega gæti komið til einhvern tímann í framtíðinni. M.ö.o. er nákvæmlega engu slegið föstu í þessum efnum öðru en því að málið verði áfram til skoðunar innan flokksins eins og áður.“ Markaði ekki kaflaskil UNGIR sjálfstæðismenn fagna yf- irlýsingu iðnaðarráðherra og fjár- málaráðherra um breytt eign- arhald á Landsvirkjun. Þau hafa bæði látið opinberlega í ljós vilja sinn til þess að breyta fyrirtækinu í hlutafélag og skrá það á hluta- bréfamarkaði þannig að einkaað- ilar geti komið að rekstri þess. „Ungir sjálfstæðismenn ítreka þá skoðun að hefja beri undirbún- ing að einkavæðingu á sviði orku- iðnaðar. Landsvirkjun og Raf- magnsveitur ríkisins eru góð dæmi um fyrirtæki á þessu sviði sem væru betur komin í einka- eigu. “ Hvetja til einka- væðingar á sviði orkuiðnaðar LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að ákeyrslu á tvær bifreiðir 2. mars milli kl. 05.00 og 13.00 á bif- reiðastæðinu við Mjódd við Þöngla- bakka. Önnur bifreiðin er Honda, dökkblá fólksbifreið, og hin er Niss- an Primera, dökkblá að lit og einnig fólksbifreið. Bifreiðarnar stóðu að- skildar á stæðinu og því ekki víst að um sama tjónvald hafi verið að ræða, en hann/þeir fóru af vettvangi án þess að tilkynna um tjónið til hlut- aðeiganda eða lögreglu. Þeir sem geta gefið frekari upplýsingar eru beðnir að snúa sér til umferðar- deildar lögreglunnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.