Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Iron Maiden er að sönnu orðinrisastór hljómsveit á nýjanleik eftir að hafa átt mögur árum hríð. Til marks um það fékk blaðamaður náðarsamlegast út- hlutað fimm mínútum til að tala við einn mesta orkubolta rokksins fyrr og síðar, sjálfan Bruce Dickinson, forsöngvara sveitarinnar sem sneri aftur í sveitina árið 1999 eftir sex ára hlé og sneri þá um leið taflinu henni í hag og það svo um munaði. Í Gettu betur anda dritaði ykkar maður í framlínunni nokkrum hrað- aspurningum á Brúsa og fer hér á eftir niðurstaðan úr þeim. Íslenskur þorskur Ég og Dickinson heilsumst með virktum og hann er hress í bragði, eitthvað sem maður átti nú heldur von á en ekki. Dickinson er þó meira mjóróma en ég átti von á. Ég ber undir hann væntanlega tónleika en Iron Maiden léku hér- lendis fyrir tólf árum eins og kunn- ugt er, árið 1993 í Laugardalshöll, og voru þá að fylgja plötunni Fear of the Dark eftir. Þess má geta að stuttu eftir þessa heimsókn hætti Dickinson en sneri hins vegar aftur árið 1999 ásamt Adrian Smith gít- arleikara eins og áður segir. Tón- leikarnir í Egilshöll eru liður í Evr- óputúr sem hefst í maí og lýkur í júlí. „Já, við komum hingað fyrir tólf árum var það ekki? Það mjög gaman hjá okkur og ég man að nóttin var heiðbjört þannig að við héldum áfram að skemmta okkur alla nótt- ina eftir tónleikana! Ég er mjög spenntur fyrir því að koma aftur til Íslands. Á þessum nýja túr ætlum við m.a. að taka lög af fyrstu fjórum breiðskífunum okkar, lög sem við höfum ekki spilað mjög mjög lengi.“ Meðfram rokkinu starfar Dick- inson sem flugmaður hjá Iceland Express og hefur tengst landinu tryggðarböndum undanfarið, keyrði m.a. hringinn fyrir stuttu. „Já, ég kem til Íslands reglulega núna sem flugmaður og svo var birt mynd af mér um daginn í veiðiblaði þar sem ég var með íslenskan þorsk í höndunum, en ég brá mér í stjó- stangaveiði á dögunum, fór á mið ná- lægt Keflavík. Fiskurinn bragðaðist mjög vel (hlær innilega). Nei, í al- vöru, mér er farið að þykja mjög vænt um landið, finnst það alveg frá- bært land.“ Dickinson hlær við þegar blaða- maður segir honum að hann sé nú kominn í fríðan flokk Íslandsvina. „Já, það má segja að vináttan hafi verið fljót að myndast.“ Varð að hætta á sínum tíma Það sannast kannski best á Iron Maiden að það borgar sig stundum að halda fast í sömu listrænu stefnu, en farsælustu og fjölsóttustu tón- leikar sveitarinnar hafa verið haldn- ir á undanförnum fimm árum, þar á meðal lék sveitin fyrir 250.000 manns í Rio de Janeiro árið 2001 (þeir komu út á plötu árið eftir, Rock in Rio). „Ferðalagið sem við höldum í núna verður líka mjög stórt, við munum spila fyrir yfir hálfa milljón manns á um tuttugu tónleikum. Sem er alveg svakalegt verður að segj- ast!“ Aðspurður hvort brotthvarf hans úr Maiden á sínum tíma hafi kannski verið óhjákvæmilegt segir hann. „Já, í rauninni var það þannig. Iron Maiden er svo mikið batterí að ég held að það sé nauðsynlegt að stíga aðeins frá því við og við. Og ég kom mjög ferskur inn aftur. Í dag lít ég á Iron Maiden sem mitt aðal áhuga- mál. Það er skynsamlegast að taka á þessu þannig. Vandamálið við að vera atvinnutónlistarmaður er þetta orð, „atvinnu“ – að menn séu t.d. að elta ólar við þetta peninganna vegna. Ég er 46 ára í dag og á kost á því að hlaupa um sviðið og skemmta mér stórkostlega. Ég er mjög hepp- inn að eiga kost á þessu og mér finnst frábært að fara í þessi tón- leikaferðalög. Ég skil ekki af hverju sumir tónlistarmenn eru síkvartandi undan þeim. Þetta er algjör snilld!“ Á dögunum birti þungarokksritið Kerrang! lista yfir 100 bestu bresku rokkplöturnar og áttu Iron Maiden þar fjórar plötur á lista, Number of the Beast (2), Iron Maiden (9), Brave New World (28) og Killers (44). Dickinson nánast fussar og sveiar yfir þessu. „Uss…okkur er alveg sama. Kerr- ang! er skítablað. Bölvað popp. Plöt- urnar okkar hefðu aldrei komist þarna inn ef það hefðu ekki verið les- endur sem sáu um valið. Þannig að Kerrang! gat ekki komið þeim út af listanum, þótt þeir glaðir vildu.“ Starfsmaður hjá skrifstofu Iron Maiden (hljómar furðulega ekki satt?) kemur nú inn í símtalið og bið- ur mig vinsamlegast að slíta því. Ég kveð því með kurt en næ að endingu að veiða upp úr Dickinson að eftir þennan túr verður víst lagst í það að semja á næstu hljóðversplötu, sem yrði sú fjórtánda á yfir hartnær þrjátíu ára ferli. Tónlist | Rætt við Bruce Dickinson, söngvara Iron Maiden „Iron Maiden er mitt helsta áhugamál“ Bruce Dickinson. Söngvari, flugmaður, sagnfræðingur, skylmingakappi, útvarpsmaður, sjónvarpsmaður, rithöfundur, tungumálamaður og alveg öruggleg eitthvað miklu meira líka. Iron Maiden heldur tónleika í Egilshöll 7. júní næstkomandi. Arnar Eggert Thoroddsen heyrði stuttlega í Bruce Dickinson söngvara vegna þessa. Miðasala á tónleikana hefst á morgun klukkan 12.30 og fer fram í Íslands- banka, Kringlunni og Smáralind, í Pennanum á Akranesi og Vestmannaeyjum, Dagsljósi á Akureyri, Hljóðhúsinu á Selfossi og á www.farfuglinn.is. Verða ein- ungis seldir miðar í A-svæðið þann daginn, sem eru betri stæði, en frá og með mánudeginum 7. mars verður einnig hægt að kaupa miða í B-svæðið. Verð á A-miðum er 7.500 og B-miðum 6.500. arnart@mbl.is ÍSLANDSBANKI Sýnd kl. 1.50, 3.50 og 8. VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I S IPT I I ÍSL S F 20 FSL TT F I E I  Miðasala opnar kl. 15.30 Yfir 32.000 mannsfir .  Ó.Ö.H. DV  S.V. Mbl. A MIKE NICHOLS FILM Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 10. B.i.16 ára. Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn, hættir þú aldrei að horfa S.V. MBL. Ó.Ö.H. DV Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna jamie kennedyj i Alan cummingl i Sýnd kl. 2, 4 og 6 Ísl tal / kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Enskt tal jamie kennedyi Alan cummingl i CLOSER Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára. Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn, hættir þú aldrei að horfa Ó.Ö.H. DV  S.V. MBL. Þ.Þ.. FBL M.M.J. Kvikmyndir.com ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNAATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS  Ó.H.T. Rás 2   i ll l l Will Smith er Tvær vikur á toppnum í USA Tvær vikur á toppnum í USA Frumsýning Will Smith er Frumsýning CLOSER Sýnd kl. 1.40, 4 og 6 Ísl tal / kl. 2 og 8. Enskt talSýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.20. JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMANJULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN A MIKE NICHOLS FILM kl. 3.30, 6, 8.30 og 11 hlaut Óskarsverðlaun sem besta erlenda myndin VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDIVINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna i ll l l Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna jamie kennedyj iAlan cummingl i Fr r rí y fyrir l fj lskyl u Sýnd kl. 3, 5.30, 8, 10.30 og 12 á miðnætti   Will Smith og Kevin James (King of Queens) í skemmtilegustu gamanmynd ársins! Will Smith og Kevin James (King of Queens) í skemmtilegustu gamanmynd ársins!  J.H.H. kvikmyndir.com  J.H.H. kvikmyndir.com
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.