Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 2
Í dag
Fréttaskýring 8 Forystugrein 26
Úr verinu 12 Viðhorf 28
Viðskipti 13 Bréf 30
Erlent 14/15 Minningar 31/37
Akureyri 17 Dagbók 40
Höfuðborgin 17 Víkverji 40
Austurland 18 Velvakandi 41
Suðurnes 20 Staður og stund 41
Landið 21 Menning 44/49
Daglegt líf 21 Ljósvakamiðlar 50
Listir 22/23 Veður 51
Umræðan 24/30 Staksteinar 51
* * *
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VEKJA ATHYGLI
Kaup íslenskra fjárfesta á Sterl-
ing lágfargjaldaflugfélaginu vekja
mikla athygli í Danmörku, en blaða-
mannafundur var haldinn í Kaup-
mannahöfn í gær þar sem kaupin
voru kynnt.
Siglingaleiðin að lokast
Mikil hætta er á að siglingaleiðin
fyrir Horn lokist hvað af hverju
vegna hafíss, að sögn Jónatans Ás-
geirssonar, skipstjóra á Andey ÍS,
en þá var skipið nýkomið fyrir Horn
á leið til Súðavíkur eftir erfiða sigl-
ingu frá Óðinsboða í gegnum miklar
ísdreifar.
Vinna ekki með fréttastjóra
Fréttamenn á Ríkisútvarpinu
samþykktu einróma á félagsfundi í
gærkveldi að vinna ekki með ný-
ráðnum fréttastjóra. Vantraust á út-
varpsstjóra var ítrekað og mótmælt
eindregið orðum sem hann lét falla í
Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi
„þar sem hann fjallaði af fádæma
vanvirðingu um störf fréttamanna.“
Gagnrýna Kínastjórn
Bandaríkjamenn gagnrýndu í gær
ný lög í Kína sem heimila hernum að
beita hervaldi ef Taívanar reyna að
lýsa yfir sjálfstæði. Hvöttu þeir til
þess að deilurnar um stöðu Taívans
yrðu leystar með friðsamlegum
hætti. Evrópusambandið hvatti
deiluaðila til að forðast einhliða að-
gerðir sem gætu valdið aukinni
spennu á svæðinu.
Fjölmenn mótmæli
Nær milljón Líbana kom í gær
saman á útifundi í Beirút til að minn-
ast Rafiks Hariris, fyrrverandi for-
sætisráðherra, sem myrtur var fyrir
réttum mánuði. Einnig var þess
krafist að Sýrlendingar drægju her
sinn frá landinu.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
JÚLÍUS S. Ólafsson, forstjóri Rík-
iskaupa, segir að Ríkiskaupum hafi
borið að bjóða út á Evrópska efna-
hagssvæðinu breytingar og endur-
bætur á varðskipunum Ægi og Tý.
EES-reglurnar hafi ennfremur
bundið hendur Ríkiskaupa og stofn-
unin hafi orðið að taka hagstæðasta
tilboði. Ef það hefði ekki verið gert
hefði hún átt yfir höfði sér kæru frá
ESA eða pólsku skipasmíðastöðinni
sem átti hagstæðasta tilboðið.
Ingólfur Sverrisson, deildarstjóri
hjá Samtökum iðnaðarins (SI), sagð-
ist í Morgunblaðinu í gær álíta að
ekki hefði þurft að bjóða breytingar
og endurbætur á varðskipunum út á
Evrópska efnahagssvæðinu. Hann
sagðist líta á þetta sem hvert annað
útboðsverk og ekki væri skylt að
bjóða þau út nema þau losuðu 500
milljónir króna. Ingólfur vísar þarna
til reglugerðar um viðmiðunarfjár-
hæðir á EES, sem er að finna á
heimasíðu Ríkiskaupa.
Júlíus segir þetta misskilning hjá
Ingólfi. Með verkframkvæmdum sé
átt við mannvirkjagerð. „Við sjáum
ekki hvernig hægt er að koma því
heim og saman við viðhald á varð-
skipi. Þetta eru kaup á þjónustu og
öll þjónustukaup undir rúmlega 20
milljónum þarf að bjóða út á EES.“
Júlíus sagði að þetta verkefni
hefði ekki verið boðið út á EES ef
einhver vafi hefði leikið á því að það
væri nauðsynlegt. „Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem svona verk er boðið
út. Það var síðast gert 2001, en þá
var samið við pólska stöð um við-
haldsverkefni fyrir Landhelgisgæsl-
una.“
Flutningskostnaður
nam 5,8 milljónum
Júlíus sagði að kostnaður við að
flytja áhöfn út og koma varðskipun-
um til Póllands væri 5,8 milljónir.
Munur á lægsta og næstlægsta til-
boði, sem kom frá Slippstöðinni á
Akureyri, væri því 8 milljónir.
Júlíus sagði að samkvæmt reglum
mætti munur á tilboðum ekki vera
meiri en 1%, eða 2 milljónir í þessu
tilviki, til að hægt hefði verið að taka
ekki lægsta tilboði. Ríkiskaupum
hefði því ekki verið heimilt að taka
næstlægsta tilboði. „Þarna er um
það að ræða að taka hagstæðasta
boði. Þá er búið að vega inn í matið
kröfu, sem Landhelgisgæslan vildi
hafa þarna inni um ISO-vottun. Þá
er Slippstöðin með þriðja hagstæð-
asta boð.
Þarna var farið í samningskaup
vegna þess að öllum tilboðum var
hafnað af því að þau voru of há miðað
við kostnaðaráætlun. Þá gafst Slipp-
stöðinni eins og öðrum færi á að
lækka eða endurskoða sitt tilboð.
Stöðin gerði það ekki heldur sendi
inn óbreytt tilboð.“
Ríkiskaup stóðu ekki
ein að ákvörðuninni
Fram hefur komið í öðrum fjöl-
miðlum að Georg Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, telji það hag-
ræði fyrir gæsluna að endurbæturn-
ar færu fram hérlendis en að Gæslan
hafi ekki komið frekar að þessari
ákvörðun.
Júlíus sagði hins vegar í samtali
við Morgunblaðið að Ríkiskaup
stæðu ekki ein að þessari ákvörðun.
„Kaupandi að verkinu er Landhelg-
isgæslan fyrir hönd dómsmálaráðu-
neytisins. Þessi tilboð eru öll yfirfar-
in af þeim og okkar mönnum
sameiginlega. Þessi niðurstaða ligg-
ur alveg fyrir skýr og þeir [Land-
helgisgæslan] gerðu engan ágrein-
ing um eitt eða neitt í þessu ferli.
Samningurinn er ásamt okkur und-
irritaður af Georg Lárussyni og full-
trúa dómsmálaráðuneytisins.“
Óheimilt að taka
næstlægsta boði
ÁKVÖRÐUN Félags fréttamanna
um að lýsa yfir vantrausti á útvarps-
stjóra í kjölfar ráðningar Auðuns
Georgs Ólafssonar í starf frétta-
stjóra Útvarps stendur óhögguð
þrátt fyrir fund sem útvarpsstjóri
átti með fulltrúum fréttamanna í
gær. Á fundi Markúsar Arnar Ant-
onssonar útvarpsstjóra, Jóns Gunn-
ars Grjetarssonar, formanns Félags
fréttamanna, og Brodda Broddason-
ar fréttamanns, voru reifuð sjónar-
mið fréttamanna annars vegar og út-
varpsstjóra hins vegar.
„Við ræddum málin ítarlega og ég
er hvorki sáttur né ósáttur,“ sagði
Jón Gunnar við Morgunblaðið að
loknum klukkustundarlöngum fund-
inum. „Markús Örn gerði grein fyrir
sínu sjónarmiði og að ákvörðun sín
hefði verið byggð á ráðleggingum út-
varpsráðs. Við erum ekki sáttir við
það en á hinn bóginn er ég sáttur við
að hafa getað rætt málið við útvarps-
stjóra. Í mínum huga er málið ekki
leyst. Það er í ákveðinni biðstöðu,
forstöðumaður fréttasviðs er í út-
löndum og Markús er að fara til út-
landa. Við vonumst ennþá til þess að
bæði Markús og Auðun Georg Ólafs-
son endurskoði afstöðu sína.“
Jón Gunnar segist hafa spurt út-
varpsstjóra beint út hvort hann
myndi endurskoða ákvörðun sína.
„Hann svaraði okkur ekki alveg
beint með það. Hann sagðist hafa
tekið ákvörðun á ákveðnum forsend-
um og að óbreyttu stæði hún.“
Morgunblaðið náði ekki tali af út-
varpsstjóra í gær.
Lýsa enn vantrausti
Morgunblaðið/RAX
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri ásamt fulltrúum Félags fréttamanna,
Jóni Gunnari Grjetarssyni og Brodda Broddasyni, við upphaf fundarins.
Getur átt eðli-
legt samstarf
við starfsfólk
MARKÚS Örn Ant-
onsson útvarpsstjóri
sagðist í Kastljósi
sjónvarpsins í gær-
kvöldi alveg geta átt
eðlilegt samstarf við
starfsfólk Ríkis-
útvarpsins, þrátt
fyrir kröfur mikils meirihluta
starfsfólks um að ráðningin yrði
dregin til baka.
„Ég get alveg haft samband hér
við fólk og unnið áfram að marg-
víslegum framfaramálum, bæði
starfshópanna hér í húsinu og Rík-
isútvarpsins í heild sinni. Ég vænti
þess að eiga þátt í undirbúningi
þeirra breytinga sem nú eru fram-
undan með þessu nýja formi á Rík-
isútvarpinu og þeirri aðlögun sem
þarf að eiga sér stað að þeim nýju
tímum sem í hönd fara og ég ætla
bara að vera mjög virkur í því
starfi,“ sagði Markús.
SAMKEPPNISRÁÐ hefur fallist á
kaup Símans á eignarhaldsfélaginu
Fjörni frá því síðasta haust að gefn-
um ákveðnum skilyrðum. Fjörnir á
26,2% hlut í Skjá 1 og jafnframt fé-
lagið Íslenzkt sjónvarp sem á út-
sendingarréttinn á ensku knatt-
spyrnunni hér á landi.
Samkvæmt öruggum heimildum
Morgunblaðsins var stjórnendum
Símans kynnt niðurstaða samkeppn-
isráðs á föstudaginn en ekki fæst
upplýst hver skilyrðin eru eða hvort
Síminn telur þau aðgengileg eða
ekki. Það tengist aftur því að Sam-
keppnisráð hefur enn til skoðunar
kaup OgVodafone á dótturfélögum
Norðurljósa en í báðum tilvikum er
um að ræða viðskipti milli fjarskipta-
og fjölmiðlafyrirtækja.
Samkeppnisráð hefur frest til 20.
apríl til að komast að niðurstöðu í
máli OgVodafone. Enginn fundur
hefur enn verið dagsettur hjá Sam-
keppnisráði vegna máls OgVodafone
og því er ekki vitað hvenær von er á
niðurstöðu ráðsins.
Fallist á
kaup Símans
á Skjá 1
Lausir úr gæsluvarðhaldi
PILTUNUM tveimur sem voru á
föstudag úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald vegna fjölda innbrota á Sel-
tjarnarnesi og víðar var sleppt úr
haldi í gær. Mál piltanna, sem eru 15
ára gamlir, eru enn í rannsókn.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hef-
ur lögregla yfirheyrt nokkra pilta til
viðbótar vegna gruns um að þeir eigi
aðild að innbrotunum. Sá yngsti sem
var yfirheyrður er aðeins 13 ára.
Aukin geðlæknisþjón-
usta á Litla-Hrauni
AUKIÐ verður við geðlæknisþjón-
ustu á Litla-Hrauni innan tíðar með
því að auka fjárframlög til Heilbrigð-
isþjónustu Suðurlands og réttargeð-
deildarinnar að Sogni, að sögn Jóns
Kristjánssonar heilbrigðisráðherra.
Nú er geðlæknir í 20% starfi hjá
fangelsinu en staðan verður aukin í
a.m.k. 50–70%, að sögn ráðherrans.
Jafnframt verður geðheilbrigðis-
þjónusta aukin í fangelsunum á
Kvíabryggju og Akureyri.
Jón sagði að fjármagn til þessa
hefði verið tryggt með fjárlögum.
Enn væri eftir að auglýsa eftir
starfsfólki til að sinna þessum störf-
um en það yrði gert sem fyrst. Tölu-
vert hefur verið rætt um nauðsyn
þess að auka geðheilbrigðisþjónustu
í fangelsum og Fangelsismálastofn-
un mjög hvatt til þess. Aðspurður
hvort nóg væri að gert með þessum
breytingum sagði Jón Kristjánsson
að þetta væri verulega til bóta.