Morgunblaðið - 15.03.2005, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lífeyrissjóður lækna og Almenni lífeyrissjóðurinn
boða til sjóðfélagafunda þar sem tillögur um sameiningu
sjóðanna verða kynntar.
Sjóðfélagafundur Lífeyrissjóðs lækna verður
þriðjudaginn 15. mars í Ársal Hótel Sögu kl. 17.15.
Sjóðfélagafundur Almenna lífeyrissjóðsins verður
fimmtudaginn 17. mars í Ársal Hótel Sögu kl. 17.15.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnir Lífeyrissjóðs lækna og
Almenna lífeyrissjóðsins.
Félagar í Lífeyrissjóði lækna
og Almenna lífeyrissjóðnum „SKÓLINN er sennilega mikilvæg-
asta stofnun samfélagsins sem starf-
ar í þágu jafnréttis og almannaheilla.
Kennarar eru því ekki aðeins skóla-
menn, þeir eru verndarar lýðræðis í
samfélaginu,“ sagði Þorsteinn Gunn-
arsson, rektor Háskólans á Akur-
eyri, sem flutti inngangserindi um
þema þings Kennarasambands Ís-
lands sem hófst í gær en því lýkur í
dag. „Er skólinn á ábyrgð okkar
allra?“ en þeirri spurningu svaraði
hann játandi.
Í erindi Þorsteins kom fram að eitt
stærsta forgangsmál í menntakerf-
inu sé að kennarastéttin sjálf efli og
styrki kennara sem fagmenn. Hann
sagði að vinna þurfi að breytingum á
kennaramenntuninni m.t.t. þess að
lengja kennaranámið, sem hann taldi
vera sérlega brýnt. „Við fyrirhugaða
styttingu framhaldsskólans um eitt
ár og tilfærslu námsefnis af fram-
haldsskólastigi yfir á grunnskólastig
er mjög mikilvægt að samhliða verði
gert átak í að efla menntun kennara,
einkum á efri stigum grunnskólans.
Vandséð er að það verði gert á annan
hátt en að krefjast meistaraprófs til
kennsluréttinda líkt og víða er farið
að gera í þeim löndum sem við helst
viljum bera okkur saman við í skóla-
málum,“ sagði Gunnar.
Hann benti á að samhliða því að
stjórnunarlegt umhverfi skólanna
hafi breyst þá hafi væntingar og
kröfur í garð skóla og kennara orðið
flóknari. T.a.m. hafi foreldrar sem
hópur breyst, en hlutfall foreldra
sem hafi lokið háskólaprófi hafi vaxið
mjög.
Þorsteinn sagði að samtök kenn-
ara þurfi að styðja við rannsóknir á
fræðasviðum kennara, sérstaklega
þurfi að beina sjónum að innra starfi
skólanna. Hvetja þurfi kennara til
rannsókna í starfi og til að miðla
þekkingu sinni til samstarfsmanna.
Hann sagði það vera umhugsunar-
vert að ekkert sé í stefnumörkun
Kennarasambandsins, sem liggi fyr-
ir á þinginu, sem lúti að rannsóknum
á fræðasviði kennara. Velti hann fyr-
ir sér hvort það gæti talist eðlilegt
fyrir starfsstétt kennara sem njóti
faglegrar viðurkenningar, að eiga
lítil sem engin formleg tengsl við
rannsóknarstofnanir á sínu sviði.
Forgangsatriði
að lengja námið
Morgunblaðið/Einar Falur
Í dag er síðari dagur á þriðja þingi
Kennarasambands Íslands.
FORSTJÓRI Sterling, Harald
Andresen, og þeir Pálmi Haralds-
son og Jóhannes Kristinsson héldu
blaðamannafund á Kastrupflugvelli
í Kaupmannahöfn síðdegis í gær.
Þar voru kynnt kaup þeirra Pálma
og Jóhannesar á Sterling.
Harald Andresen greindi frá því
að eigendur Sterling hefðu í all-
nokkurn tíma leitað eftir sölu á fé-
laginu. Hann greindi frá því að fyr-
irtækið hefði verið í örum vexti
undanfarin fjögur ár en nú teldu
eigendur að það væri kominn tími
fyrir nýja eigendur til að spreyta
sig á rekstri félagsins. Hann sagði
að eignarhaldsfélagið Fons og
Sterling hefðu náð samkomulagi
um söluna núna um helgina.
Sóknarmöguleikar
Blaða- og fréttamenn fjölmenntu
á þennan fund og eftir að Harald
Andresen hafði lokið máli sínu sátu
þeir Pálmi Haraldsson og Jóhann-
es Kristinsson fyrir svörum. Fram
kom í máli Pálma að hann telur að
fyrirtækið eigi mikla framtíð fyrir
sér, sóknarmöguleikar séu á lág-
fargjaldamarkaðinum í Evrópu og
að þeir hafi talið þetta vænlegan
fjárfestingarkost.
Fram kom jafnframt að kaup-
verðið er 400 milljónir danskra
króna sem eru í kringum 4,4 millj-
arða ísl. króna. Auk þess kemur til
ýmis kostnaður þannig að hinir
nýju eigendur áætla að kaupverðið
sé í kringum 4,8 milljarða króna.
Ferða- og afþreyingar-
geirinn í örum vexti
Aðspurðir hvort þeir hygðust
breyta miklu í rekstri svöruðu þeir
félagar því til að svo yrði ekki til
að byrja með. Auðvitað kæmu nýj-
ar áherslur með nýjum eigendum.
Þannig væri það ávallt þegar skipti
um eigendur að félögum.
Fráfarandi forstjóri og hinir
nýju eigendur voru sammála um
það að Sterling hefði mjög vel
menntuðu og reyndu starfsfólki á
að skipa og að starfsfólkið bæri
hag fyrirtækisins fyrir brjósti á öll-
um sviðum.
Í máli Pálma kom fram að hann
teldi að ferða- og afþreyingargeir-
inn væri í stöðugum vexti, sér-
staklega á norðlægum slóðum. Auk
þess skýrði hann fyrir hinum
norrænu fréttamönnum hvernig
nýir eigendur sæju fyrir sér mögu-
leika í markaðssókn með því að
samnýta krafta Iceland Express og
Sterling.
Hafa hvarvetna mætt hlýhug
Pálmi og Jóhannes voru spurðir
hvort þeir teldu að þessi fjárfest-
ing þeirra yrði litin hornauga, nú í
kjölfar þess að aðrir fjárfestar hafa
eignast Magasin du Nord og fleiri
fyrirtæki á Norðurlöndum. Þeir
sögðu að það væri þvert á móti.
Þeir hefðu hvarvetna mætt hlýhug
og teldu að þeir yrðu boðnir vel-
komnir inn á þennan markað á
Norðurlöndum. Í máli Harald
Andresen kom fram að hann var
áður stjórnarformaður Sterling en
hefur að undanförnu starfað sem
forstjóri fyrirtækisins. Hann mun
starfa áfram fram á vor, þar til fé-
lagið hefur verið afhent hinum
nýju eigendum en hann upplýsti
jafnframt að hann hefði tekið að
sér, ótímabundið, að vera sér-
stakur ráðgjafi félagsins og nýju
eigendanna.
Kaupunum á Sterling-flugfélag-
inu vel tekið í Kaupmannahöfn
Hinir nýju eigendur Sterling-flugfélagsins, þeir Pálmi Haraldsson og Jóhannes Krist-
insson, kynntu, ásamt fráfarandi forstjóra félagsins, kaupin á lággjaldaflugfélaginu á
blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í gær. Agnes Bragadóttir var á fundinum.
Pálmi Haraldsson og samstarfsmenn kynntu kaupin á Sterling á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í gær.
agnes@mbl.is
Ljósmynd/Nanna Kreutzman
ÞRIÐJA þing Kennarasambands Ís-
lands (KÍ) hófst í gær og ber það yf-
irskriftina „Er skólinn á ábyrgð
okkar allra?“ Meðal umfjöllunar-
efna þingsins eru launa- og kjara-
mál, skólamál, jafnréttismál auk
þema þriðja þings. Á þinginu verð-
ur mörkuð stefna KÍ til næstu
þriggja ára. Hyggst sambandið
beita sér á næsta kjörtímabili fyrir
breytingum og umbótum í íslensk-
um skólamálum og nýta til þess
samtakamátt sinn og sérþekkingu
félagsmanna í samstarfi við stjórn-
völd og almenning í landinu. KÍ ætl-
ar m.a. að beita sér fyrir því að:
Gerð verði aðgerðaáætlun í sam-
vinnu við rekstraraðila skóla um
fyrirkomulag kennarasaminga þar
sem tekið verði m.a. mið af því að
laun og starfskjör kennara verði
alltaf með þeim hætti að friður ríki
um skólastarf í landinu.
Kennaramenntun verði tekin til
skoðunar og metið hvaða breyt-
ingar þurfi að gera á henni til að
mæta kröfum nýrra tíma.
Ákvörðun menntamálaráðherra
um að stytta námstíma til stúdents-
prófs verði endurskoðuð.
Gjaldtaka fyrir leikskólagöngu
verði tekin til endurskoðunar og
fimm ára börn verði leikskólaskyld.
Möguleikar barna og unglinga til
að stunda tónlistarnám verði jafn-
aðir svo sem kostur er.
Stefna
mörkuð til
þriggja ára
DAVÍÐ Oddsson, utanríkis-
ráðherra, sat fund utanríkis-
ráðherra Norð-
urlandanna í
Kaupmannahöfn
í gær, en reglu-
legir fundir ráð-
herranna eru
haldnir tvisvar á
ári. Á fundinum
var m. a. fjallað
um framtíð Atl-
antshafstengsl-
anna, nátt-
úruhamfarirnar í Suðaustur-Asíu í
desember og viðbrögð við þeim,
stöðu mála í Miðausturlöndum, Ír-
an, Írak og hina svonefndu norð-
lægu vídd ESB. Fundirnir eru
haldnir undir stjórn þess lands sem
hefur með höndum formennsku í
norrænu ráðherranefndinni, en
Danir tóku við formennsku þar af
Íslendingum um síðustu áramót.
Utanríkisráð-
herrar Norður-
landanna funda
Davíð Oddsson
LÖGREGLAN á Selfossi kærði um
helgina ökumann fyrir að aka undir
áhrifum lyfja og var sá með ungt
barn í bíl sínum. Í báðum tilvikum
fékk lögregla ábendingu frá veg-
farendum um undarlegt aksturslag
viðkomandi. Þetta kemur fram í yf-
irliti lögreglu um helstu verkefni
liðinnar viku. Lögreglan kærði að
auki 29 fyrir of hraðan akstur um
helgina. Einn þessara ók jeppa sín-
um á um 90 km hraða um Selfoss en
þar er hámarkshraði 50 km/klst.
Undir áhrifum
lyfja með
barn í bílnum
TF-SIF, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar sótti í gær sjómann sem hafði
slasast á hendi við vinnu um borð í
Björgvini EA-311 sem þá var stadd-
ur um 60 sjómílur austur af Vest-
mannaeyjum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Landhelgisgæslunni
hafði maðurinn skorist á þremur
fingrum. Þyrlan fór í loftið til þess
að sækja manninn um klukkan
13.30 og lenti í Reykjavík kl. 15.40.
Þyrla sótti slas-
aðan sjómann