Morgunblaðið - 15.03.2005, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SJÁLFKJÖRIÐ er í
stjórn SÍF hf. í stjórn-
arkjöri á aðalfundi fé-
lagsins, sem fram fer
föstudaginn 18. mars
næstkomandi, en fram-
boðsfrestur til stjórnar
rann út 13. mars.
Fyrir aðalfundinum
liggur tillaga um fækk-
un stjórnarmanna úr
sjö í fimm. Þau fimm
sem gefa kost á sér til
stjórnarsetu eru: Ólaf-
ur Ólafsson, núverandi
stjórnarformaður, Að-
alsteinn Ingólfsson
stjórnarmaður, Guð-
mundur Hjaltason
stjórnarmaður, Hart-
mut M. Krämer, stjórn-
armaður Kingfisher
plc, Toupargel SA og
Herlitz AG, og Nadine
Deswasiere, framkvæmdastjóri hjá
Nestlé í Frakklandi.
Í framboði til varamanns er Guðmund-
ur Ásgeirsson stjórnarmaður.
Sjálfkjörið í
stjórn SÍF
Nadine Deswasiere
Hartmut M.
Krämer
SAMNINGUR um endurfjármögn-
un fyrirtækisins Norðurskeljar ehf.
í Hrísey hefur verið undirritaður,
en fyrirtækið hefur á undanförnum
árum unnið að uppbyggingu rækt-
unar á bláskel í Eyjafirði.
Stefnt er að því að byggja upp
800 tonna ræktun á bláskel á ári,
innan þriggja ára, en félagið hefur
ræktunar- og starfsleyfi á þremur
stöðum í Eyjafirði, Hrísey, við
Dagverðareyri og Rauðuvík. Nú er
Norðurskel með um 50 kílómetra af
lifrusöfnurum í sjó, en samning-
urinn sem undirritaður var í gær
gerir ráð fyrir að næstu þrjú árin
verði settir út um 100 kílómetrar af
lifrusöfnurum.
Frumkvöðlar í Norðurskel, Víðir
Björnsson, Steinþór Guðmundsson,
Haraldur Ingi Haraldsson, Þórar-
inn Þórarinsson, Guðni Björn
Gunnlaugsson og Erlendur Steinar
Friðriksson eiga eftir endurfjár-
mögnun fyrirtækisins um 25% hlut.
Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar, Kaupfélag Eyfirðinga
og Tækifæri hf. eiga hvort félag
20% hlut og þá eiga Akureyrarbær,
Sæplast og Byggðastofnun sameig-
inlega 15%.
Norðurskel hóf ræktun á bláskel
í Eyjafirði árið 2000 og kom fram í
máli Halldórs Jóhannssonar hjá
KEA að frumkvöðlar hefðu fjárfest
í grunnþekkingu og búnaði, „en nú
er kominn tími til að hefja stórfellda
framleiðslu“. Innan fyrirtækisins er
mikil vitneskja um ræktunarskil-
yrði, hvað beri að varast og hverjir
helstu styrkleikar svæðisins eru.
„Nú hefst nýr kafli í sögu félags-
ins, við höfum á síðastliðnum fjórum
árum sýnt fram á að það er hægt að
stunda þennan atvinnuveg hér í
Eyjafirði og varan líkar vel,“ sagði
Víðir Björnsson, einn frumkvöðl-
anna. „Næsta skref er svo að gera
fyrirtækið arðbært og þessi endur-
fjármögnun gerir okkur það kleift.“
Haraldur Ingi Haraldsson, stjórn-
arformaður Norðurskeljar, sagði
törnina hafa verið langa og stranga,
margir tekið þátt og lagt fram gríð-
arlega vinnu svo takast mætti að
bjarga fyrirtækinu. Axel Gíslason
hjá Eignarhaldsfélaginu Samvinnu-
tryggingum kvaðst hafa fylgst með
uppbyggingu fyrirtækisins og hrif-
ist af bjartsýni og djörfung frum-
kvöðlanna. Hann teldi nú að með
nýju fé og raunhæfri áætlun um
uppbyggingu ætti allt að geta geng-
ið að óskum. Aðstæður til ræktunar
á bláskel væru ekki síðri í Eyjafirði
en víða annars staðar í heiminum,
en stóra verkefnið væri að fram-
leiða gæðavöru á góðu verði.
Bláskel frá Norðurskel hefur ver-
ið á boðstólum á nokkrum veitinga-
húsum hér á landi og þótt prýðis-
góð.
Stefnt að 800 tonna ræktun
Morgunblaðið/Kristján
Bláskel Frá undirritun samningsins um fjármögnunina.
ÚR VERINU
ENDURSKOÐUN stjórnarskrár Ís-
lands beinist einkum og sér í lagi að
þeim köflum hennar sem staðið hafa
svo til óbreyttir í áranna rás, þ.e.
fyrsti, annar og fimmti kafli hennar.
Aðrir kaflar stjórnarskrárinnar hafa
tekið verulegum breytingum.
Eiríkur Tómasson, prófessor við
HÍ og formaður sérfræðinganefndar
forsætisráðuneytisins um endurskoð-
un stjórnarskrárinnar, var einn frum-
mælenda á nýlegri ráðstefnu fé-
lagsvísinda- og lagadeildar Há-
skólans á Akureyri, en þar fjallaði
hann um endurskoðun á stjórnar-
skránni frá sjónarhóli fræðimanns.
Forsætisráðherra skipaði 9 manna
nefnd í janúar síðastliðnum til að end-
urskoða stjórnarskrána og einnig
fjögurra manna sérfræðinganefnd
sem ætlað er að starfa náið með þeirri
fyrrnefndu.
Í ávarpi Jóns Kristjánssonar, for-
manns endurskoðunarnefndarinnar,
kom fram að starf nefndarinnar væri
komið á fulla ferð, en tilgangur henn-
ar væri að koma fram með tillögur um
breytingar á stjórnarskránni sem
hentuðu í opnu lýðræðissamfélagi.
Mikilvægt væri að breytingarnar
endurspegluðu þjóðarviljann og því
myndi nefndin starfa fyrir opnum
tjöldum og kalla eftir sem mestri
þátttöku almennings m.a. með því að
efna til funda og halda ráðstefnur.
Eiríkur Tómasson sagðist á ráð-
stefnunni tala í eigin nafni en ekki
þeirrar nefndar sem hann er formað-
ur fyrir. Hann fór yfir þróun mála frá
því Kristján 9. konungur Dana færði
Íslendingum fyrstu stjórnarskrána
árið 1874 og bar einnig saman lýð-
veldisstjórnarskrána frá 1944 og nú-
verandi stjórnarskrá. Fram kom í
máli hans að fimmti kafli stjórnar-
skrárinnar, um dómstóla hefði tekið
hvað minnstum breytingum og væri
að stofni til sá sami og í fyrstu stjórn-
arskránni. Þá hefðu litlar breytingar
verið gerðar á öðrum kafla, sem
fjallar um forseta Íslands, ráðherra
og handhafa forsetavalds.
Sagði hann mörg ákvæði stjórnar-
skrárinnar eiga rætur að rekja til
þess tíma þegar konungur ríkti yfir
landinu og væru efni þeirra og orða-
lag alls ekki lengur í takt við tímann.
Þannig mætti til að mynda ætla af
lestri annars kafla hennar að forseti
landsins væri miklum mun valda-
meiri en hann í raun væri. Æskilegt
væri að breyta orðalagi og færa það
til nútímans. „Það er líka hætta á því
að þegar orðalag stjórnarskrárinnar
gengur þvert gegn því hvernig hún er
skýrð, hvað þá framkvæmd, að
árekstrar kunni að verða,“ sagði Ei-
ríkur.
Meginhlutverk stjórnarskrárinnar
væri að mæla fyrir um samskipti
æðstu handhafa ríkisvaldsins og
hvernig staðið skuli að mikilvægum
ákvörðunum að þeirra hálfu. Að
þessu leyti þjónuðu reglur stjórnar-
skrárinnar sama hlutverki og leik-
reglur t.d. um mannganginn í skák.
„Ef þessar reglur eru ekki nægi-
lega skýrar og þeir sem hlut eiga að
máli eru ekki sammála um hvernig
þær ber að skýra er voðinn vís,“ sagði
Eiríkur.
Leikreglur séu skýrar
Því væri mikilvægt að leikreglurn-
ar væru skýrar og menn vissu hverj-
ar þær væru til að koma í veg fyrir
árekstra og að leikurinn leystist upp í
slagsmál. Næðist ekki að höggva á
hnút sem myndaðist við að ágreining-
ur komi upp um hverjar leikreglurn-
ar eru, þá geti komið upp alvarleg
sjálfhelda við stjórn landsins.
Það ástand sem kallað hefur verið
stjórnskipunarkreppa var að mati Ei-
ríks yfirvofandi á síðastliðnu ári
vegna þess djúpstæða ágreinings
sem myndaðist um hvernig skýra
bæri ákvæði 26. greinar stjórnar-
skrárinnar um synjunarvald forset-
ans.
„Að mínum dómi er brýn nauðsyn í
þeirri vinnu sem nú er að hefjast við
endurskoðun stjórnarskrárinnar að
höggva á þennan hnút með því að
orða þetta ákvæði skýrar en nú er
gert, nema gengið verði svo langt að
afnema þetta vald forsetans.“
Hvað varðar atriði sem til greina
koma við endurskoðun stjórnarskrár-
innar nefndi Eiríkur m.a. að eflaust
yrði rætt ítarlega um kosti þess og
galla að gefa kjósendum kost á aðhafa
bein áhrif á mikilvægar pólitískar
ákvarðanir með því að greiða um þær
atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Gert væri ráð fyrir slíkum atkvæða-
greiðslum í núgildandi stjórnarskrá í
vissum tilvikum, m.a. ef forseti neitar
að staðfesta lagafrumvarp sem Al-
þingi hefur samþykkt. „Þetta verður
eflaust rætt ítarlega, m.a. hvort rétt
sé að taka upp ákvæði þess efnis að
tiltekin fjöldi kjósenda geti krafist
þjóðaratkvæðagreiðslu í einstökum
málum.“
Sagði Eiríkur að í því sambandi
kæmi til greina að skoða hvort slíkt
ákvæði ætti að koma í stað málskots-
réttar forsetans eða hvort slíkt
ákvæði yrði tekið upp til viðbótar
þeim málskotsrétti. Þá nefndi Eiríkur
að eðlilegt væri að taka til skoðunar
hlutverk og stöðu forseta Íslands,
m.a. tilhögun forsetakjörs. Eins stöðu
ráðherra og annarra framkvæmda-
valdshafa gagnvart Alþingi og stöðu
dómstóla gagnvart öðrum handhöf-
um ríkisvalds. Þannig nefndi Eiríkur
að engin bein fyrirmæli væri að finna
í stjórnarskrá um Hæstarétt. Að hans
mati er ástæða til að skoða hvort rétt
sé að mæla þar fyrir um t.d. fjölda
dómara og aðferð við skipan þeirra
með það að markmiði að treysta sjálf-
stæði réttarins gagnvart handhöfum
löggjafar- og framkvæmdavalds.
Rætt um endurskoðun stjórnarskrárinnar á ráðstefnu HA
Voðinn vís ef reglur eru
ekki nægilega skýrar
Morgunblaðið/Kristján
Háskólinn á Akureyri stóð fyrir ráðstefnu um stjórnarskrána.
Andvökunætur
á morgun
Um 70% þriggja
ára barna hafa
fengið eyrnabólgu