Morgunblaðið - 15.03.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 15
ERLENT
NORSKU landmælingarnar hafa
verið ákærðar fyrir að láta ekki vita
af skeri, sem olli því, að norska flutn-
ingaskipinu Rocknes hvolfdi í janúar
í fyrra. Fórust þá 18 menn.
Rocknes sigldi á skerið og hvolfdi í
Vatlestraumen skammt frá Björgvin
og tókst þá að bjarga 12 mönnum úr
30 manna áhöfn.
Skerið var ekki að finna á sjókort-
um og ekki er langt síðan það upp-
götvaðist. Þess hafði þó aldrei verið
getið í reglulegum viðvörunum
Landmælinganna til sjófarenda á
þessum slóðum.
Jarle Golten Smørdal segir í við-
tali við Bergens Tidende, að stofn-
unin hafi verið ákærð fyrir van-
rækslu en í yfirlýsingu frá
stofnuninni er því mótmælt. Bendir
hún á, að skerið hafi verið fært inn á
kort, sem gefið var út 2003, en Smør-
dal bendir aftur á, að breytingin frá
fyrra korti hafi verið einn millimetri.
Á svo agnarsmáum punkti hefði átt
að vekja sérstaka athygli.
Ákært í Rock-
nes-málinu
Ósló. AP.
Reuters
Rocknes á hvolfi eftir að það hafði
verið dregið upp að ströndinni.
GARRÍ Kasparov, fyrrum heims-
meistari í skák, lýsti yfir því í gær að
hann hygðist takast á við „einræð-
isstjórn“ Vladímírs Pútíns Rúss-
landsforseta.
Kasparov lét þessi orð falla í við-
tali við breska
ríkisútvarpið,
BBC. Í liðinni
viku skýrði Kasp-
arov frá því að
hann hefði ákveð-
ið að hætta að
tefla sem at-
vinnumaður á
stórmótum. Var
sú ákvörðun
tengd afskiptum
hans af stjórnmálum sem farið hafa
vaxandi á undanliðnum árum.
„Þörf er á samtökum, pólitískum
flokki, sem er fær um að berjast
gegn einræðisstjórn Pútíns á öllum
sviðum samfélagsins,“ sagði Kasp-
arov. „Ég tel að orka mín, pólitísk
sýn mín og áhrif muni hjálpa millj-
ónum Rússa, sem eru ósáttar við
vaxandi einræði í Rússlandi, að
standa saman til að verjast þrýst-
ingnum og færa Rússland aftur á
lýðræðisbrautina,“ bætti hann við.
Kasparov er 41 árs gamall og er
enn talinn sterkasti skákmaður
heims. Hann fer nú fyrir nefnd sem
stofnuð hefur verið vegna forseta-
kosninganna í Rússlandi árið 2008.
„Frjálsar kosningar“ nefnist hún en
tilgangurinn með þessum samtökum
er einkum sá að koma í veg fyrir að
Pútín forseti reyni að tryggja sér
þriðja kjörtímabilið, þvert á rúss-
nesku stjórnarskrána.
„Kröfur okkar eru einfaldar. Þær
eru að þrýsta á Pútín um að end-
urreisa lýðræðislegar stofnanir. Pút-
ín komst til valda í lýðræðisríki þótt
vissulega væri lýðræðið gallað. Nú
er fjölmiðlafrelsi ekki til í landinu og
Pútín og menn hans stjórna þing-
inu,“ sagði Kasparov.
Kasparov
vill flokk
gegn Pútín
Lundúnum. AFP.
Kasparov
HOPANDI jöklar í Himalaya-
fjöllum gætu leitt til vatnsskorts hjá
hundruðum milljónum manna, að
því er náttúruverndarsamtökin
World Wildlife Fund, WWF, sögðu í
gær. Samtökin telja að flóð kunni
að verða á Indlandi, í Kína og Nepal
vegna þessa, og í framhaldi af því
miklir þurrkar á komandi áratug-
um.
Mesta vatnsmagn á jörðinni er í
Himalaya-fjöllum, fyrir utan vatns-
magnið í heimskautahellunum
tveimur.
Í skýrslu sem WWF kynnti í gær
segir að verði gripið til aðgerða
strax sé hægt að hægja á bráðnun
en hún eykst á ári hverju. Jöklarnir
hopi vegna losunar gróðurhúsa-
lofttegunda út í andrúmsloftið.
Brýnt sé því að úr henni verði dreg-
ið.
„Hin hraða bráðnun jökla í
Himalaya mun fyrst auka vatns-
magn í ám, sem mun valda flóðum
víða,“ sagði Jennifer Morgan,
stjórnandi verkefnis um loftslags-
breytingar hjá WWF, á fundi með
fréttamönnum í Genf í gær. „En á
nokkrum áratugum mun þetta
breytast og vatnsmagnið í ám mun
minnka, sem mun þýða mikil um-
hverfisvandræði fyrir fólk í Vestur-
Kína, Nepal og á Norður-Indlandi.“
Talið er að jöklarnir hopi um 10–
15 metra á ári. Sjö stærstu fljót
Asíu; Ganges, Indus, Brahmaputra,
Mekong, Thanlwin og Yangtze
renna úr jöklunum auk Gulafljóts.
Hundruð milljóna manna sem búa í
Kína og Indlandi nota vatn úr þess-
um ám.
Hröð bráðn-
un jökla í
Himalaya
Genf. AFP.
LÖG sem banna reykingar á al-
mannafæri og tóbaksauglýsingar
gengu í gildi í Asíuríkinu Bangla-
desh í gær. Andstæðingar tóbaks-
reykinga fögnuðu þessum tímamót-
um og sögðu bannið mikilvægt skref
í baráttu þeirra.
Samkvæmt nýju lögunum verða
þeir sem reykja á almannafæri sekt-
aðir um 50 taka eða tæpar 50 krónur.
Brjóti menn bann við tóbaksauglýs-
ingum verða þeir hins vegar krafðir
um andvirði tæpra 5.000 króna.
Samkvæmt opinberum tölum
reykja um 37% íbúa Bangladesh.
Þar búa um 140 milljónir manna.
Reykbann í
Bangladesh
Dhaka. AFP.
♦♦♦