Morgunblaðið - 15.03.2005, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 17
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Höfuðborgarsvæðið | Dagur í
sporum stjórnenda var haldinn í
síðustu viku á vegum nemenda í
verkefnastjórnun og leiðtogaþjálf-
un við Endurmenntun Háskóla Ís-
lands í samvinnu við Junior
Achievement – Unga frumkvöðla.
Að sögn forsvarsmanna verkefn-
isins heimsóttu um 70 nemendur
yfir 40 vinnustaði og settu sig í
spor stjórnenda í íslensku atvinnu-
lífi og ræddu við þá um mennta- og
atvinnumál. Deginum lauk svo með
ráðstefnu þar sem nemendur fluttu
m.a. samantekt dagsins. Áformað
er að dagurinn verði eftirleiðis ár-
legur viðburður.
Salvör Þórisdóttir, nemandi á 4.
ári í Verslunarskóla íslands, slóst í
för með borgarstjóra í gær og
heimsótti m.a. mæðrastyrksnefnd.
Að sögn Salvarar var fróðlegt að
setja sig í spor hennar, starfið væri
bæði fjölbreytt og áhugavert. Að
lokinni heimsókn í mæðrastyrks-
nefnd fékk hún tækifæri til að
spyrja borgarstjóra út í starfið og
hvernig menntun hennar nýttist í
starfi o.fl.
Fylgdi í fótspor borgarstjóra
Í sporum borgarstjóra Salvör og Steinunn Valdís hittu m.a. Ragnhildi
Guðmundsdóttur frá mæðrastyrksnefnd.
Morgunblaðið/Þorkell
Seltjarnarnes | Harpa Snædís Hauksdóttir fimleikakona
og Páll Þórólfsson handknattleiksmaður voru kjörin
íþróttamenn ársins 2004 á Seltjarnarnesi á dögunum, og
við sama tækifæri voru viðurkenningar veittar ungu og
upprennandi íþróttafólki sem t.d. hefur náð þeim áfanga
að leika með unglingalandsliðum sinnar íþróttagreinar, og
afreksstyrkir afhentir.
Harpa Snædís er í meistarahópi fimleikadeildar Gróttu
sem hafa orðið bikarmeistarar í liðakeppni FSÍ síðastliðin
tvö ár. Þá hefur Harpa hlotið marga titla í einstaklings-
keppnum fyrir Gróttu, verið í landsliði FSÍ undanfarin
fimm ár og tekið þátt í mörgum mótum erlendis.
Páll hefur verið burðarás handknattleiksliðs Gróttu-KR
um árabil og lék með öllum landsliðum HSÍ og á 15
A-landsleiki. Áður lék Páll með sigursælu liði Aftureld-
ingar sem tók þátt í Evrópukeppnum með góðum árangri.
Kjörin íþróttamenn
ársins 2004
Íþróttamenn kjörnir Harpa Snædís Hauksdóttir og
Páll Þórólfsson voru kjörin íþróttamenn ársins.
Slippstöðvarinnar sagði að mönnum
fyndist oft að verið væri að búa til
dæmi svo hægt væri að auðvelda
mönnum að fara með verk af þessu
tagi úr landi. Hann sagði skilmála
útboðsins þannig að verð vægi 70%,
ISO-vottun 20% og reynsla 10%.
„Það vissu allir fyrirfram að við vor-
um ekki með þessa vottun, þessir
skilmálar virðast búnir til svo hægt
sé að sniðganga íslenskan iðnað.“
Guðmundur sagði að vottunina ekki
öllu skipta, Landhelgisgæslan hefði
komið með skip sín til viðgerða og
endurbóta í Slippstöðina og vissi að
hverju þar væri gengið.
Þá nefndi Guðmundur þá til-
hneigingu margra íslenskra emb-
ættismanna hvað varðar EES-
samninginn að finna fyrst út hvað
megi ekki, en annars staðar þar sem
hann þekkti til, t.d. í Þýskalandi
byrjuðu menn á að skoða hvað
mætti, svo hægt væri að styðja við
eigin iðnað.
Guðmundur nefndi einnig á fund-
inum að ærinn kostnaður hlyti að
fylgja þessu útboði, öll gögn hefðu
verið þýdd á ensku, að ástæðulausu
að hans mati og þess væru dæmi að
hinum íslensku bjóðendum hefðu
ÞUNGT hljóð var í starfsmönnum
Slippstöðvarinnar sem áttu fund
með forsvarsmönnum stéttarfélaga
í hádeginu í gær, en þar var sam-
þykkt að lýsa yfir megnri óánægju
með þá ákvörðun Ríkiskaupa að
sniðganga tilboð Slippstöðvarinnar
og ganga til samninga við erlenda
aðila um endurbætur á varðskip-
unum Tý og Ægi.
„Það er óvíst hvort hægt er að
breyta einhverju nú, samkvæmt
þeim upplýsingum sem við höfum er
þegar búið að semja við pólsku
skipasmíðastöðina, en við munum
reyna til þrautar að fá þeirri
ákvörðun hnekkt,“ sagði Hákon Há-
konarson formaður Félags málm-
iðnaðarmanna á Akureyri. Hann
sagði forvarsmenn stéttarfélaga á
Akureyri líta málið alvarlegum aug-
un og að þeir mundu freista þess að
fá ákvörðun Ríkiskaupa hnekkt,
„það er fátt óumbreytanlegt, okkur
þykir það réttmæt krafa að þið fáið
að vinna þetta verk.“ Nefndi hann
að einungis munaði 13 milljónum
króna á tilboði Slippstöðvarinnar og
pólsku stöðvarinnar sem fékk verk-
efnið.
Guðmundur Tulinius forstjóri
verið send gögn á ensku. Þetta væri
dæmi um allsendis óþarfa skrif-
finnsku. Einnig nefndi hann að því
fylgdi kostnaður að fara með skipin
úr landi og þá virtist ekki tekið með
í dæmið að ríkissjóður yrði af skött-
um. Þetta væri ekki metið inn í til-
boðið. „Þetta virðist allt byggjast á
geðþóttaákvörðun og þröngum
hagsmunum einhverrar stofnunar.“
Starfsmenn sem til máls tóku
nefndu m.a. að svo virtist sem ráð-
gjafar reyndu að fá sem mest út út
málinu, þeir fengju meira fyrir sinn
snúð með því að fara með verkið úr
landi, þannig fengjust meiri dagpen-
ingar vegna eftirlits þeirra.
Fundurinn skoraði á fjár-
málaráðherra og dómsmálaráðherra
að endurskoða ákvörðunina og
ganga tafarlaust til samninga við
Slippstöðina um framkvæmd verk-
efnisins og einnig skoraði fundurinn
á iðnaðarráðherra og þingmenn
kjördæmisins að beita sér af alefli í
málinu.
Formaður Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri
Reynum til þrautar að fá
ákvörðun yfirvalda hnekkt
Morgunblaðið/Kristján
Óánægðir Hákon Hákonarson, formaður Félags málmiðnaðarmanna, með
ályktunina sem samþykkt var á fundi starfsmanna Slippstöðvarinnar.
Þungt hljóð í starfsmönnum
Slippstöðvarinnar á fundi í gær
HAFÞÓR Einarsson, skrifstofustjóri
skóladeildar, mætti á síðasta fund
skólanefndar og lagði fram uppgjör á
rekstri skólamötuneytanna fyrir árið
2004. Þar kemur fram að hallinn á
rekstrinum var í heildina rúmlega 4,3
milljónir króna, sem skýrist að öllu
leyti af því að engar tekjur komu inn
fyrir sjö vikur vegna verkfalls grunn-
skólakennara sl. haust og nýtingin
varð minni en efni stóðu til eftir að
skólastarf hófst aftur og fram að ára-
mótum. Einnig var lagt fram uppgjör
á rekstri skólamötuneyta fyrir janúar
2005. Þar kemur fram að reksturinn
er í járnum og er ljóst að nýting verð-
ur að batna ef reksturinn á að verða
réttum megin við núllið.
Halli á
skólamötu-
neytum
TVEIR bæjarfulltúar Framsóknar-
flokks í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar
hafa óskað lausnar frá störfum, um er
að ræða aðalfulltrúa í bæjarstjórn og
varafulltrúa, en báðir eru búsettir í
Svarfaðardal. Bæjarstjórn Dalvíkur-
byggðar samþykkti á fundi í byrjun
mars að flytja starfsemi Húsabakka-
skóla í Svarfaðardal í Dalvíkurskóla
frá og með næsta hausti og urðu mikil
mótmæli því samfara, en íbúar í daln-
um eru ekki alls kostar ánægðir með
ákvörðunina.
Bæjarstjórn kemur saman til fund-
ar í dag, þriðjudag, þar sem beiðni
fulltrúanna verður tekin fyrir.
Vilja úr bæjar-
stjórninni
♦♦♦