Morgunblaðið - 15.03.2005, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
99.900.-
TravelMate 2304
TravelMate 2304 WLMI
Intel Celeron M 1.3Ghz
512mb vinnsluminni
15.4” WXGA WideScreen skjár
DVD skrifari
Þráðlaust netkort
Windows XP Home stýrikerfi
26”
Sjónvarp
!
17.900.-
EPSON
5760 dpi upplausn
6 lita prentkerfi
Hægt að prenta beint frá minniskorti
Prentar á geisladiska
Prentar allt að 15 bls. á mín.
USB 2.0 tenging
Stylus Photo R-300
17” 19” 20
”
Með hverri Acer mynda-
vél fylgir frí framköllun á
25 stk. myndum hjá
framköllunarstofunni
Pixlar!
27.900.-
5.3
Mpix
32.900.-
5.2
Mpix
Mynd
ir
25frítt!
34.900.-
6.3
Mpix
2.5”
skjár
2.5”
skjár
20”
Sjónvarp
!
Austurland | Nú sígur á seinni hluta
vinnu við hin 5,9 km löngu Fáskrúðs-
fjarðargöng og 8,5 km langan veg
milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar. Framkvæmdin mun bæta
samgöngur innan Austurlands veru-
lega og tengja betur saman Suður-
firði og Miðausturland. Leiðin milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
styttist um 31 km og á milli Miðaust-
urlands og Suðurfjarða um 34 km.
Verktaki er Ístak hf. Og E. Pihl &
Sön AS. Gísli Guðmundsson, staðar-
stjóri Ístaks á svæðinu, sagði í samtali
við Morgunblaðið að verkið stæði með
ágætum. „Menn eru í eftirvinnu í
göngunum, sem er m.a. vatnsvarnar-
vinna, þ.e. að setja upp vatnsvarnar-
dúk,“ segir Gísli. „Þá erum við að
leggja drenlagnir og rafstrengi undir
veginn og svo er að byggja upp veg-
inn í göngunum til að hægt sé að mal-
bika. Þá fer fljótlega í gang rafmagns-
vinna. Við erum að stefna á að byrja
að malbika upp úr miðjum apríl og þá
verða tekin 40% af göngunum frá Fá-
skrúðsfirði en malbikun lýkur senni-
lega ekki fyrr en um miðjan júní,“
segir Gísli Guðmundsson.
Gísli segir vegagerð hafa verið í
gangi samhliða allan framkvæmda-
tímann og sé hún nokkuð langt kom-
in. „Það er samt drjúg vinna eftir og
við ætlum að setja meiri kraft í vega-
gerðina á næstu mánuðum. Við
stefnum á að vera klárir með vegina
úti í september. M.a. gerum við nýjan
veg frá gangamunnanum og niður á
Fáskrúðsfjörð.“
Varðandi óskir um að opna göngin
fyrr en áætlað er segist Gísli ekki eiga
von á að framkvæmdum verði flýtt.
„Við gáfum Vegagerðinni tölur um
hvað það myndi kosta okkur að flýta
verkinu, sanngjarnar held ég og alls
ekki háar en það varð ekkert úr því.
Því ætlum við að nota þann verktíma
sem við höfum, eða fram í byrjun
október.“ Um 40 manns eru við vinnu
Vinna langt komin við
hvor tveggja jarðgöngin
Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson
Sprengt inn Framkvæmdir hófust við Almannaskarðsgöng í mars í fyrra
og miðar þeim, ásamt vinnu við Fáskrúðsfjarðargöng, vel.
Neskaupstaður | Viðgerð-
armenn frá Landsímanum
komu til Neskaupstaðar í
liðinni viku til að gera við
mastur Nesradíós sem lét
undan í veðurofsa í febrúar
síðastliðinum. Mastrið, sem
hafði staðið af sér veður og
vind um áratugaskeið, verð-
ur að hluta til notað aftur.
Skemmdir hlutir verða
klipptir burt og nýjum bætt
inn í, áður en fjarskipta-
mastrið verður reist á nýj-
an leik. Hér sést Ólafur
Sveinsson huga að
skemmdunum.
Gert við
mastur
Nesradíós
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Vopnafjörður | Kvenfélagið Lindin á
Vopnafirði veitti nýverið styrki úr
menntasjóði. Alls 20 einstaklingar
sóttu um styrk úr sjóðnum. Styrk-
þegar eru Heiðbjört Antonsdóttir,
Kolbrún Pétursdóttir, Kristín Jóns-
dóttir og Guðrún Dís Emilsdóttir.
Þórunn Egilsdóttir, formaður sjóðs-
stjórnar, segir sérstaka ánægju með
sífellt aukna sókn vopnfirskra
kvenna í framhaldsnám og endur-
menntun.
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Úthlutað úr menntasjóði
AUSTURLAND