Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 21

Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 21 DAGLEGT LÍF 1. flokki 1989 – 58. útdráttur 1. flokki 1990 – 55. útdráttur 2. flokki 1990 – 54. útdráttur 2. flokki 1991 – 52. útdráttur 3. flokki 1992 – 47. útdráttur 2. flokki 1993 – 43. útdráttur 2. flokki 1994 – 40. útdráttur 3. flokki 1994 – 39. útdráttur H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Útdráttur húsbréfa Húsbréf Koma þessi bréf til innlausnar 15. maí 2005. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í DV, þriðjudaginn 15. mars. Upplýsingar um útdregin húsbréf má einnig finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is. Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 Fyrir tilstilli Ragnhildarsendir fólk alls staðar aðúr heiminum handgerðavináttubúta til Íslands sem hún svo hnýtir saman og úr skal verða stór vinátturefill. „Ég velti þessari hugmynd upp á spjalli mínu á Netinu við handverkskonur úti í heimi og fékk svakalega fín viðbrögð og ég vissi eiginlega ekki af fyrr en þetta var farið af stað og orðið að raunveruleika. Fréttin um teppið hefur borist víða í gegnum frétta- bréf fyrirtækis sem heitir Nordic Needle og nú eru bútarnir byrjaðir að streyma til mín.“ Bútar frá öllum heimsálfum Þegar hafa borist 34 bútar til Ragnhildar frá hinum ýmsu löndum, Japan, Bandaríkjunum, Skotlandi, Hollandi, Brasilíu, Sviss og Íslandi. Ragnhildur segist bíða spennt á hverjum degi eftir því hvort bútur berist í póstinum. „Bréfin sem kon- urnar senda með bútunum eru svo falleg að ég sit oft hér í tárum, svo hrærð verð ég. Mér finnst eins og mér hafi opnast annar heimur, heim- ur kærleikans sem er inni í öllum öðrum heimum. Þó svo að við þekkj- umst ekki þá er þetta magnað vin- áttunet.“ En hvenær á að hætta að taka við bútum? „Upphaflega var ætlunin að miða við 15. apríl en við teygjum kannski eitthvað á þeirri dagsetningu af því okkur langar að hafa allar heimsálfurnar með og enn vantar til dæmis búta frá Afríku og helst vil ég líka fá bút frá Antart- íku.“ Enn hefur ekki borist bútur frá karlmanni en Ragnhildur segist sannarlega vonast til að það verði og hún veit um par sem ætlar að hanna og gera saman bút í teppið. Vináttuhugsun við gerð bútanna Þeir sem senda bút hafa algerlega frjálsar hendur og einu skilyrðin eru að bútarnir þurfa að vera í póst-  HANDVERK Í heimi stríðs og sundrungar veitir ekki af að huga að friði og kærleika. Listakonan Ragn- hildur Jónsdóttir leggur sitt af mörkum í þeim málum með því að skapa alheimsfriðarteppi. www.internet.is/friendshiptapestry friendshiptapestry@internet.is khk@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart kortastærð og bönd verða að vera á hornunum svo hægt sé að hnýta þá saman. „Þetta má vera prjónað, heklað, saumað, ofið eða hvernig sem er, bara að það sé gert í hönd- unum og að viðkomandi hugsi um vináttu á meðan hann býr til bút- inn.“ Þegar bútarnir eru skoðaðir kem- ur í ljós að þeir eru skemmtilega ólíkir og það sést vel hversu mikil vinna liggur á bak við þá og í þá hef- ur verið lögð mikil alúð og nostrað við smáatriðin. „Fyrsti búturinn kom frá Skotlandi og hann ilmar. Frá Japan barst bútur með tilvitnun úr biblíunni um vináttuna. Ég vil endilega hafa fleiri trúarbrögð í teppinu og vona að ég fá búta með tilvitnun úr kóraninum og öðrum trúarritum.“ Þegar bútarnir hafa allir verið hnýttir saman og teppið verður tilbúið er hugmyndin að fara með það til sýningar út í heim eftir að það hefur verið sýnt hér á landi. „Ég verð sannarlega stolt þegar þetta teppi verður tilbúið af því að það sýnir að við getum víst verið vinir ef við viljum, þrátt fyrir þann harða heim sem við lifum í.“ Hluti af bútunum sem þegar hafa borist frá ýmsum löndum eins og Japan og Hollandi. Bútar berast frá öllum heimshornum Handverk er Ragnhildi hugleikið. Texti á perlum um vináttuna sem fenginn er úr Biblíunni. Allir geta verið skapandi,segir Teresa Amabile, for- stöðumaður stofnunar við við- skiptadeild Harvard-háskólans þar sem frumkvöðlar og leiðtog- ar eru rannsóknarefnið. Hún hefur afsannað sex lífseigar goðsagnir um sköpunarkraft fólks, en greint er frá því á vef Svenska Dagbladet:  Goðsögn 1: Bara skapandi persónuleikar hafa sköp- unarkraft. Allar rannsóknir benda til þess að þeir sem eru meðal vel gefnir geti verið skapandi í starfi sínu.  Goðsögn 2: Peningar virkja sköpunarkraftinn. Rannsóknir á sköpunarkrafti sýna fram á að þeir sem segjast hvattir áfram af peningum, eru sjaldnast skapandi. Hins vegar er hvatning í orðum og viður- kenning mikilvægt fyrir sköp- unarkraft fólks.  Goðsögn 3: Tímapressa er eldsneyti sköpunarkraftsins. Þetta er alrangt! Rannsóknir sýna að fólk er minnst skapandi undir tímapressu og nokkra daga á eftir tímapressu.  Goðsögn 4: Hræðsla og þunglyndi virkja sköp- unarkraftinn. Rannsóknir sýna að gleði og kærleikur tengist frekar sköp- unarkraftinum en hræðsla og þunglyndi. Sá sem er hamingju- samur einn daginn er oft skap- andi þann næsta.  Goðsögn 5: Keppni er betri en samvinna. Þeir hópar sem vinna saman og ræða hugmyndir eru mest skap- andi, samkvæmt rannsóknum.  Goðsögn 6: Niðurskorin fyr- irtæki eru skapandi. Því miður, sköpunarkrafturinn líður fyrir niðurskurð og sparn- að. Hjá fyrirtæki sem sagði upp 25% starfsmanna var sköp- unarkrafturinn enn í lágmarki fimm mánuðum síðar. Allir geta skapað ustuparið Sannah Kvist og Eva Brusman urðu fyrir innan framhaldsskóla í Linköping í Svíþjóð. Þær höfðu hlakkað til að dansa vals á skólaballinu sínu en fengu í fyrstu ekki leyfi til þess þar sem þær voru báðar í síðkjól. Önnur hvor varð að vera í jakkafötum. Eftir samningaviðræður við ballnefndina var þeim hins vegar leyft að dansa hvor við aðra í kjólunum. Þær máttu þó ekki taka þátt í dönsum þar sem skipt var um dansfélaga því þá þyrftu stelpur sem ekki væru lesbískar að dansa við þær. Sannah og Eva segjast einnig hafa fengið þau skilaboð frá kennaranum sínum að afar, ömmur og aðrir ættingjar sem e.t.v. væru til staðar á skólaballinu þyrftu að fá að vita af því fyrirfram að tvær stelpur yrðu danspar, til að fyrirbyggja að einhver fengi jafnvel hjartaáfall. Stelpurnar hafa kært skólann til umboðsmanns samkynhneigðra. Umboðsmaðurinn Hans Ytterberg segir ljóst að stúlkunum hafi verið mismunað á grundvelli kynhneigðar. Stúlkurnar spyrja að lokum þeirrar spurningar hvað gert hefði verið ef málið hefði snúist um tvo stráka. „Hefði annar þeirra verið þvingaður til að dansa í kjól?“ spyrja þær. Stelpur eru skotnar í strákum og strákar eru skotnir ístelpum. Gagnkynhneigð er viðmiðið í sænskumskólabókum og -stofum, að því er m.a. kemur fram í Göteborgs-Posten og orsakirnar eru óöruggir kennarar og gamlar skólabækur. Samkvæmt könnnun á vegum Gautaborgarháskóla telja 82% aðspurðra nemenda að kynfræðslan komi aldrei eða næstum aldrei inn á samkynhneigð. Mikael Björk Blomqvist, formaður ungliðadeildar Samtaka um jafnrétti í kynferðismálum (RFSL), segir að margir kennarar séu óöruggir og velji að hlaupa alveg yfir samkynhneigð í kennslunni. Það leiði til þess að þeir sem hafi aðra kyn- hneigð verði ósýnilegir. Sjö líffræðibækur fengu falleinkunn Líffræðibækur reyndust innihalda bæði fordóma og staðreyndavillur, samkvæmt könnun RFSL. Fimmtán líf- fræðibækur á grunn- og framhaldsskólastigi voru athug- aðar og aðeins tvær stóðust kröfur samtakanna. Sjö fengu falleinkunn. Ungliðadeild RFSL vill að námskrá og náms- áætlanir verði endurskoðað. „Skólinn ber mikla ábyrgð. Enginn á að komast upp með að öskra hommadjöfull á göngunum. Kennarar verða að bregðast strax við í slíkum aðstæðum,“ segir Blomqvist í samtali við GP. Þar er einn- ig greint frá því að í New York hafi í nokkur ár verið starf- ræktur framhaldsskóli fyrir sam- og tvíkynhneigða þar sem nemendum býðst skólaganga án fordóma. Blomqvist er hræddur um að slíkur skóli gæti orðið að veruleika í Svíþjóð, það væri ekki óskastaða, en kannski eina leiðin. Í Aftenposten er greint frá mismunun sem kær- Forðast fræðslu um samkynhneigð  MENNTUN Reuters

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.