Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Með kveðju.
Sveinn, sími 695 9808.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Raðhús - Parhús
Mér hefur verið falið að leita eftir rað-
/parhúsi, helst á einni hæð 110-170
fm. Um er að ræða traustan og fjár-
sterkan aðila. Áhugasamir vinsamlegast
hafið samband og ég mun fúslega
veita nánari upplýsingar.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is
Gnoðarvogur - Neðri sérhæð
134,1 fm mjög góð neðri sérhæð auk 32,2 fm bílskúrs í fallegu fjórbýli
við Gnoðarvog. Hæðin sem er með sérinngangi skiptist í forstofu, hol,
gestasnyrtingu, þrjú stór svefnherbergi, bjarta stofu, glæsilegt
baðherbergi, eldhús með borðkrók og búri. Suður svalir. Geymsla og
þvottahús í kjallara. 5386. V. 28,9 m.
LISTASAFNIÐ í Stuttgart í
Þýskalandi (Kunstmuseum Stutt-
gart) flutti á dögunum búferlum í
nýtt og stærra húsnæði á Kleiner
Schlossplatz og hefur fyrsta sýn-
ingin verið opnuð undir yfirskrift-
inni „Komin á leiðarenda – safn-
eignin í eigin húsnæði“. Meðal
listamanna sem eiga verk á sýn-
ingunni er Dieter Roth en í eigu
safnsins eru fjölmörg verk eftir
hann.
Sýningin er, að sögn Evu Kling-
enstein kynningarstjóra safnsins,
einskonar forleikur að frekara
sýningarhaldi á verkum í eigu
safnsins en þau eru um fimmtán
þúsund talsins. „Kleiner Schloss-
platz er hjarta borgarinnar og er
viðeigandi rammi utan um lista-
safnið. Hið nýja sýnirými telur
fimm þúsund fermetra sem þýðir
að safnið hefur ærið svigrúm til að
færa út kvíarnar,“ segir Eva
Klingenstein.
Það var markgreifinn Silvio
della Valle di Casanova sem lagði
hornstein að safninu með því að
ánafna því málverkasafn sitt fyrir
áttatíu árum. Safnið hét upp-
haflega Gallerí Stuttgartborgar en
eftir flutninginn nú hefur nafnið
Listasafn Stuttgart verið tekið
upp.
Uppistaðan í safneigninni eru
verk eftir 20. aldar listamenn sem
margir hverjir tengjast Stuttgart
eða Suðvestur-Þýskalandi sterkum
böndum. Má þar nefna Otto Dix
en ekkert safn í heiminum á fleiri
lykilverk eftir hann. Einnig á safn-
ið fjölda verka eftir Adolf Hölzel,
Willi Baumeister, Fritz Winter,
Dieter Krieg, Wolfgang Laib,
Joseph Kosuth, Karin Sander og
Simone Westerwinter, auk Dieters
Roths.
Myndlist | Listasafnið í Stuttgart flytur í nýtt húsnæði
Á gott safn verka
eftir Dieter Roth
Verkið Anita Berber eftir Otto Dix. Eitt verka Dieters Roths sem er í eigu safnsins, Stummes Relief frá 1986–88.
Hin nýju húsakynni Listasafnsins í Stuttgart.
GRENJANDI gluggasólin s.l. laug-
arhádegi hlaut að kalla fleiri til úti-
vistar í hæfilegri fjarlægð frá mal-
bikssvifryki höfuðborgarsvæðisins en
fengust til að hlýða á huglæga nútíma
rafhljóðlist. Enda
kom aðeins um
hálft hundrað
manns á tölvu-
tónleika Hilmars
Þórðarsonar;
margir það ungir
að árum að gruna
mætti um nám í
eftirsóttri raf-
smíðadeild Tón-
listarskóla Kópavogs.
Á dagskrá voru fjögur verk úr
„Synonymus“-röð Hilmars, er sér-
kennist af samspili hefðbundins
hljóðfæris við tölvustýrð rafhljóð. Í
stað tónleikaskrár komu munnlegar
en vel heyranlegar kynningar höf-
undar. Tónleikarnir mynduðu sam-
hverft ABBA form með myndvæddu
verkunum fyrst og síðast. Fyrsti Syn-
onymusinn, fyrir „Mannslíkama og
gagnvirk tölvuhljóð“ (8’; 2004), skar
sig að því leyti úr að ekkert hljóðfæri
kom við sögu, heldur námu skynjarar
hljóðstýrandi líkamshreyfingar höf-
undar. Var sá á hvítum samfestingi
og leiddi ásamt uppsærandi fettum
ýmist hugann að útlægum geimfara,
súfískum sjaman eða hljómsveit-
arstjóra í djúpri leiðslu. Hljóðheim-
urinn mótaðist mest af urgandi sog-
hljóðum, burtséð frá stuttum
rauluðum miðkafla er minnti á hægan
gregorssöng miðalda í hvellu sam-
tóna tremólói. Snöggtum tilkomu-
meiri var hreyfimyndhliðin, er sýndi
þrívíða tölvugrafík af gaddsettum
risageimveirum á sísköruðu þyngd-
arlausu flæði. Ekki varð ég þó var við
áþreifanlegt formsamband milli
myndskeiðs og hljóðframvindu frek-
ar en í síðasta atriði tónleikanna.
Lengsta og músíkalskasta verkið í
hefðbundnum skilningi var Synon-
ymus fyrir Víólu og Tölvu (16’; 2005)
er Þórunn Ósk Marínósdóttir lék
bráðfallega og að mestu óáreitt af við-
skeyttri raftækni utan mikils eft-
irhljóms og lágværra tónalykkja.
Verkið var samið undir áhrifum frá
hafnarölduhamförunum í Indlands-
hafi og birtist áheyrendum sem þrí-
þætt sorgarlag á löngum hljóðlátum
nótum, með hraðstroknum naum-
hyggjuhljómaherplum í miðþætti.
Allt í angurværum moll.
Synonymus fyrir rafgítar og Tölvu
(15’; 2005) byggðist líkt og útþættir
víóluverksins á ofurhægu lagferli og
lagði, að frátöldum örstuttum mið-
spretti, lítið á gítarvirtúósinn góð-
kunna. Þetta nýjasta verk dagsins
var að sögn ekki fullunnið, og kom
það skilmerkilega fram af heldur
fálmkenndri framvindu, er dróst enn
á langinn sakir lit- og styrkbrigða-
leysis.
Lokaverkið, „Bitin eyru“ fyrir
Trompet og Tölvu (15’; 2003(?)), féll
niður á Myrkum músíkdögum í fyrra
vegna tæknibilana, en komst nú
klakklaust alla leið. Þrátt fyrir afar
spunakennt yfirbragð bjó það yfir
ákveðnum krassandi sjarma, er ent-
ist vel fram á seinni helming. Áki Ás-
geirsson stýrði furðuskilvirkt hljóð-
ferlinu frá MIDI-tengdum lúðri
sínum við flotta tölvugrafík Haralds
Karlssonar, og vakti uppákoman
greinilega töluverða hrifningu meðal
tæknisinnuðustu áheyrenda. Hjá mér
vaknaði hins vegar enn sem oftar
spurningin hvenær raftónhöfundar
okkar ætla að gefa tækniumgjörðinni
smá frí – til ágóða fyrir innihaldið.
Það myndi örugglega breikka áheyr-
endahópinn á svipstundu.
Umgjörð fyrir innihald
TÓNLIST
Salurinn
Verk fyrir hljóðfæri og tölvu eftir Hilmar
Þórðarson. Kristinn H. Árnason rafgítar,
Áki Ásgeirsson trompet, Þórunn Ósk
Marinósdóttir víóla. Tölva: Hilmar Þórð-
arson. Sjónlist: Haraldur Karlsson. Hljóð-
stjórn: Ríkharður H. Friðriksson. Laug-
ardaginn 12. marz kl. 13.
Tölvutónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Hilmar Þórðarson
HALLVEIG Rúnarsdóttir sópran
og Árni Heimir Ingólfsson píanó-
leikari halda í kvöld kl. 20.30 upp-
tökutónleika í Kirkjuhvoli, safn-
aðarheimili Vídalínskirkju í
Garðabæ. Á efnisskránni verða
sönglög eftir Franz Schubert,
Edvard Grieg og Kurt Weill.
Hallveig og Árni Heimir hafa
undanfarin ár verið iðin við tón-
leikahald víða um land og hafa
fest sig í sessi sem flytjendur
ljóðatónlistar. Hafa þau hlotið
góða dóma í fjölmiðlum, fyrir
flutning sinn, m.a. á Haugtussu
Grieg.
„Þetta verða
blandaðir tónleikar,
við ætlum að flytja
lög sem við höfum
verið að flytja mikið
undanfarið og lang-
aði til að koma þeim
á band,“ segir Hall-
veig. „Og af því að
það er svo dýrt að
kaupa upptökur
ákvað ég að hafa
þetta svona, því það
er miklu betra að
syngja fyrir fólk en
míkrófóna.
Ég hef trú á því að
þetta verði góðir tón-
leikar, enda sagði
Grieg um Haugtussu
að þetta væru hans
bestu sönglög,“ segir
Hallveig.
Tónleikarnir í
Kirkjuhvoli í Garðabæ
í kvöld munu vara í
um klukkustund og
venjulegt miðaverð er
1.500 krónur en 1.000
krónur fyrir náms-
menn og ellilífeyris-
þega.
Upptökutónleikar í Kirkjuhvoli