Morgunblaðið - 15.03.2005, Page 32
þar kærkomnir gestir. Bjarni var í
bæjarstjórn Akureyrar um tíma og
Bergljót síðar. Bjarni hafði mikinn
áhuga á tónlist og voru þau hjónin
samhent í því sem öðru að sækja
tónlistarviðburði.
Við systur og okkar fólk vottum
Björgu, Haraldi, Kristínu og Þór-
unni og fjölskyldum þeirra samúð
okkar við fráfall Bjarna. Guð blessi
Bjarna Rafnar. Minningin um hann
er björt og góð.
Halldóra J. Rafnar, Ingibjörg
Þ. Rafnar, Ásdís J. Rafnar.
Bjarni Rafnar, náfrændi minn og
vinur, er látinn. Bjarni var nokkr-
um árum eldri en ég en við náðum
snemma saman. Ein skemmtileg-
asta stund er ég átti í námi var
námsdvöl á fæðingardeildinni á
Landspítalanum. Þar héldu þeir
próf. Pétur Jakobsson og Bjarni
sem þá var deildarlæknir um taum-
anna. Það var á við heilt námskeið í
mannlegum samskiptum og bók-
menntum en þeir „opereruðu“ sam-
an. Bjarni var mikill húmanisti og
fróður í bókmenntum. Í ofanálag
var hann ætíð vel lesinn um fræði-
greina sína. Eitt sinn ræddum við
nokkrir félagar um þýðingu þess að
vera farsæll læknir. Farsæll læknir
er búinn mörgum góðum eiginleik-
um. Hann þarf að vera hæfileika-
ríkur og geta lært af reynslunni.
Hafa djúpstæðan skilning á sálarlífi
sjúklinga, stílhreina framkomu og
bera virðingu fyrir fólki.
Nafn Bjarna var oft nefnt í þessu
samhengi. Í fyrra embætti ferðað-
ist ég ásamt Ingu oft um landið og
einhver sagði að mér væri tíðreist
til Akureyrar. Þar bjuggu Bergljót
og Bjarni lengst af ásamt glæsileg-
um börnum. Bergljót var sterk og
vel gerð kona. Ef þú elst upp við
farsæld farnast þér vel eins og
komið hefur í ljós meðal barna
þeirra.
Við Inga og fjölskylda sendum
börnum þeirra og öðrum aðstand-
endum samúðarkveðjur og minn-
umst gleðistunda liðinna daga, í ná-
vist Rafnars-frændfólksins.
Inga, Ólafur Ólafsson og börnin.
32 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Lára Hansdóttirfæddist í Reykja-
vík 1. febrúar 1932.
Hún lést á heimili
sínu 6. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Ólöf Jónsdóttir, f.
26.2. 1910, d. 9.9.
1994, og Hans Kr.
Eyjólfsson, f. 15.10.
1904, d. 15.12. 1997,
bakari og síðar mót-
tökustjóri Stjórnar-
ráðsins. Lára var
elst þriggja systk-
ina. Bræður hennar
eru Bragi Hansson, starfsmaður
Íslenskra aðalverktaka, f. 13.
febrúar 1937, maki Rose Marie
Christiansen, f. 27. október 1937.
Bragi átti þrjú börn með fyrri
konu sinni Jóhönnu Guðmunds-
dóttur. Grétar Hansson sölumað-
ur, f. 14. apríl 1944, maki Kristín
Sigsteinsdóttir, f. 26. ágúst 1945.
ilismaður í íbúð Öryrkjabanda-
lagsins í Klapparhlíð 11 í Mos-
fellsbæ. 3) Ólöf Lára, starfsm.
flugdeildar Icelandair, f. 8.9.
1960. Barn: Ragnheiður Sara
Heimisdóttir, nemi, f. 4.7. 1989.
Hinn 17. desember 1993 gekk
Lára að eiga Gunnar Þ. Gunnars-
son, f. 8.8. 1926, forstjóra Ís-
lenskra aðalverktaka, sem lifir
eiginkonu sína.
Fyrri hluta ævi sinnar var Lára
húsmóðir og á sumrin gestgjafi
veiðimanna í Bræðraseli á Lang-
árbökkum. Lára tók virkan þátt í
starfi aðstandenda drengjanna í
Tjaldanesi, sem þau Hafsteinn
byggðu ásamt öðrum foreldrum
þroskaheftra drengja sem hvergi
áttu samastað.
Lára var hálfnuð með nám til
stúdentsprófs í MR er hún eign-
aðist Ragnheiði Söru, en tók sig til
er börnin voru farin að heiman,
lauk stúdentsprófi frá MH 1981 og
síðan BA-prófi frá Kennarahá-
skóla Íslands 1985. Hún varð
kennari við Hlíðaskóla og starfaði
þar um árabil.
Útför Láru verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Þau eiga þrjá syni.
Hinn 28. október
1950 giftist Lára Haf-
steini Sigurðssyni
hæstaréttarlögmanni,
f. 17. ágúst 1926, d.
3.9. 1986. Foreldrar
Hafsteins voru Ragn-
heiður Sara Þor-
steinsdóttir, kennd
við Sokkabúðina, og
Sigurður Z. Guð-
mundsson. Lára og
Hafsteinn eignuðst
þrjú börn. Þau eru: 1)
Ragnheiður Sara,
flugfreyja hjá Ice-
landair, f. 29.3. 1951, maki Ingvi
Hrafn Jónsson, fjölmiðlam., f.
27.7. 1942. Börn: A) Hafsteinn
Orri, flugmaður, f. 23.6. 1979,
maki Kristín Berta Sigurðardótt-
ir, f. 12.12. 1973, barn Ingvi
Hrafn, f. 29.11. 2004. B) Ingvi
Örn, stud. oecon., f. 6.1. 1983. 2)
Kristinn Már, f. 20.12. 1953, heim-
Hún elsku hjartans móðir mín er
dáin, aðeins 73 ára. Mikið óskaplega
er þetta sárt og allt allt of fljótt.
Líf mömmu var bæði hamingjuríkt
og erfitt. Hún og pabbi voru gift í 36
ár, en hann lést 1986 og tóku þá erf-
iðir tímar við hjá mömmu. Hún var
ekki tilbúin að vera ein, einfaldlega
kunni það ekki.
Ég á afskaplega góðar minningar
frá uppvexti mínum. Hún mamma
var mér óskaplega góð alla tíð og þá
sérstaklega í gegnum alla mína skóla-
göngu. Dugnaður hennar að fara í
öldungadeild MH og klára stúdents-
prófið árið 1981 með toppeinkunn
sem hún setti í bið 27 árum áður þeg-
ar hún varð ófrísk að mér er bara eitt
dæmi um drifkraftinn sem bjó í
henni. Mikið óskaplega vorum við
stolt af henni. Hún dreif sig svo í
Kennaraháskólann og útskrifaðist
þaðan 1984 þrátt fyrir að pabbi væri
búinn að vera veikur og amma Lóa og
afi Hans til skiptis. Þegar þau voru
veik fluttu þau alltaf til mömmu enda
var sambandið þeirra á milli afskap-
lega sterkt.
Mamma elskaði að vera uppi við
Langá enda er Bræðrasel dásamleg-
ur staður til að vera á. Því var það
henni afskaplega sárt þegar hún seldi
það í fyrra. En hún var mjög glöð yfir
því að hafa fundið gott fólk sem hún
vissi að myndi hugsa vel um lífsstarf
hennar.
Kiddi bróðir bjó í Tjaldanesi í tæp
fjörutíu ár og áttu mamma og pabbi
stóran þátt í að koma því starfi á
laggirnar, velferð Kidda var henni
mikið kappsmál. Hún var í foreldra-
félaginu og var aðaldriffjöðrin í því
starfi. Hún stóð meðal annars fyrir
því að keyptur var bíll svo hægt væri
að fara með strákana í stutt ferðalög.
Það var svo í fyrra sem Kiddi flutti í
nýja glæsilega íbúð við Klapparhlíð
11 í Mosfellsbæ. Mamma lagði mik-
inn metnað í að gera honum þar gott
heimili.
Barnabörnin hennar eru þrjú, Haf-
steinn Orri, Ingvi Örn og Ragnheiður
Sara, og mikið var hún stolt af þeim.
Hún eignaðist síðan sitt fyrsta lang-
ömmubarn í nóvember á síðasta ári.
Seinni eiginmaður mömmu var
hann Gunnar. Þau höfðu þekkst í ára-
tugi. Eftir að makar þeirra féllu frá
lágu leiðir þeirra saman á ný og giftu
þau sig árið 1993. Fljótlega upp úr því
hætti mamma að kenna, sem var mið-
ur því að henni þótti það óskaplega
gaman. Nemendum og samkennur-
um í Hlíðaskóla þótti mikil eftirsjá að
henni. Síðustu árin hefur Gunnar átt
við veikindi að stríða og reyndist
mamma honum afskaplega vel.
Hún var nýbúin að kaupa sér íbúð
við Klapparhlíð 5, í næsta húsi við
Kidda, og vorum við systurnar búnar
að vera að hjálpa henni að koma í
stand og þangað ætluðu þau að flytja
á árinu.
Ég kveð móður mína með miklum
söknuði. Guð veri með þér, elsku
mamma mín. Hvíl í friði.
Þín dóttir
Ragnheiður Sara.
Þau orð eru ekki til, sem lýst geta
þeirri sorg að mamma er dáin, þessi
glæsilega og góða kona á besta aldri.
Margs er að minnast og margt er að
þakka, og margar ógleymanlegar
stundir sem við áttum saman. Við
meira að segja fórum saman í
menntaskóla, mamma innritaði sig í
öldungadeildina og lauk stúdents-
prófi, ég var svo stolt af mömmu
minni og ennþá stoltari var ég þegar
hún fór í Kennaraháskólann. Hún
vann við það nám af miklum dugnaði
og eljusemi og lauk því með glæsi-
brag. Geri aðrir betur. Kenndi síðan
við Hlíðaskóla, sem hún naut til hins
ýtrasta, kennslan átti svo vel við
hana.
Eftir fráfall pabba ferðuðumst við
mikið saman og áttum ógleymanleg-
ar stundir á hinum ýmsum stöðum í
heiminum. Þær minningar munu
fylgja mér um ókomna tíð. Ekki má
gleyma hinum fjölmörgu góðu árum í
Borgarfirðinum við Langá.
Hugur mömmu var alltaf hjá
Kidda bróður og hafði hún áhyggjur
af því að kveðja þennan heim á undan
honum, hún hlúði að honum af ástúð
og alúð og var sambandið því sterkt á
milli þeirra. En nú munum við hugsa
vel um Kidda okkar því hans missir
er mestur.
Málefni þroskaheftra voru
mömmu hjartans mál, hún vann öt-
ullega að því að gera líf þessara ein-
staklinga sem best, og höfum við því
stofnað sjóð til styrktar Kidda og
Tjaldanesfélögum hans sem fylgdu
honum, þegar Tjaldanesheimilinu
var lokað, og fluttu í íbúðir Öryrkja-
bandalagsins í Klapparhlíð 11 í Mos-
fellsbæ. Reikningur 1135-05-443030,
450384-0469, kennitala Svæðisskrif-
stofu fatlaðra á Reykjanesi.
Það er mér efst í huga hversu góð
og yndisleg hún mamma var, og á ég
henni óendanlega margt að þakka.
Hennar verður sárt saknað af okkur
öllum.
Hvíl í friði.
Þín dóttir
Lóa Lára.
Elsku amma. Ekki grunaði mig
þegar ég var að keyra úr Borgarfirð-
inum á sunnudaginn með Kristínu og
fyrsta langömmubarninu þínu, Ingva
Hrafni, að seinna það kvöld myndi ég
fá hringingu um að þú værir fallin frá.
Mér verður hugsað til bernskuára
minna uppi við Langá með þér og afa
Hafsteini þegar ekkert annað komst
að en að vera í vegavinnu á gula
traktornum, í bíltúr á þaklausa Land
Rovernum eða úti á flugvelli að snatt-
ast í kringum flugvélina. Þú varst frá-
bær kennari og ég minnist þeirrar
miklu þolinmæði sem þú sýndir þeg-
LÁRA
HANSDÓTTIR
Elsku Lára mín. Kallið
kom svo óvænt að ég er varla
búin að átta mig.
Ég vil kveðja þig og þakka
þér alla þá hlýju, góðvild og
vináttu sem þú sýndir mér
þau ár sem við áttum saman.
Gunnari bróður mínum,
börnum, barnabörnum og
bræðrum Láru sendi ég
samúð mína.
Þorgerður mágkona.
HINSTA KVEÐJA
✝ Bjarni JónassonRafnar fæddist á
Akureyri 26. janúar
1922. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Eir 6. mars síðastlið-
inn. Hann var sonur
Jónasar Jónassonar
Rafnar, yfirlæknis á
Kristneshæli í Eyja-
firði, og Ingibjargar
Bjarnadóttur Rafn-
ar, húsfreyju. Systk-
ini hans voru Jónas
G. Rafnar, alþingis-
maður og banka-
stjóri, og Þórunn
Rafnar húsfreyja sem bæði eru
látin.
Árið 1944 kvæntist Bjarni
Bergljótu Sigríði Haralz, f. 20.
september 1922, d. 11. desember
2000. Bergljót var dóttir séra
Haraldar Níelssonar og Aðal-
bjargar Sigurðardóttur. Bjuggu
þau Bjarni og Bergljót fyrst í
Reykjavík en síðan á Akureyri
þar til Bjarni lét af störfum sem
yfirlæknir. Síðustu ár áttu þau
Bjarni og Bergljót heima í
og kvensjúkdómadeild, 1959–
1960. Mestan hluta starfsferils
síns, eða frá 1955 til 1989, starf-
aði Bjarni á Akureyri sem heim-
ilislæknir og sérfræðingur. Hann
var deildarlæknir við handlækn-
ingadeild og fæðingardeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri
1966–1970, yfirlæknir sömu
deilda 1970–1971 og yfirlæknir
fæðingar- og kvensjúkdómadeild-
ar 1971–1989. Þá gegndi hann
stöðu yfirlæknis við mæðraeftirlit
á Heilsuverndarstöðinni á Akur-
eyri 1958–1979 og á Krabba-
meinsleitarstöð Akureyrar 1969–
89. Eftir að Bjarni flutti suður
starfaði hann við Leitarstöð
Krabbameinsfélags Íslands. Á Ak-
ureyri sinnti Bjarni ýmum félags-
og trúnaðarstörfum. Hann var
ritari Læknafélags Akureyrar
1955–1956, sat í stjórn Krabba-
meinsfélags Akureyrar 1969–
1989 og í bæjarstjórn Akureyrar
sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
árin 1974–1978. Hann var vara-
formaður íþróttafélagsins Þórs í
áraraðir og starfaði innan Lions-
hreyfingarinnar. Bjarni var
sæmdur Riddarakrossi hinnar Ís-
lensku fálkaorðu árið 1984 fyrir
störf sín í þágu heilbrigðismála.
Útför Bjarna fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Reykjavík, þar sem
öll börn þeirra eru
búsett. Þau eru:
Björg Rafnar, læknir,
maki Össur Krist-
insson, Haraldur
Rafnar, rafeinda-
virki, maki Rósa
Þorsteinsdóttir,
Kristín Rafnar, hag-
fræðingur, maki
Gunnar Stefánsson
og Þórunn Rafnar,
líffræðingur, maki
Karl Ólafsson. Barna-
börn Bergljótar og
Bjarna eru átta og
barnabarnabörn eru þrjú.
Bjarni ólst upp á heimili for-
eldra sinna á Kristneshæli. Hann
lauk stúdentsprófi við Mennta-
skólann á Akureyri árið 1940 og
cand. med.-prófi frá læknadeild
Háskóla Íslands árið 1948. Hann
stundaði nám í kvensjúkdómum
og fæðingarhjálp í Danmörku og
hlaut sérfræðingsleyfi í þessum
greinum árið 1956. Hann var að-
stoðarlæknir á Baltimore City
Hospital í Baltimore, fæðingar-
Þrátt fyrir nokkurn aldursmun
voru náin tengsl á milli okkar
Bjarna allt frá þeim tíma er ég
starfaði með honum á fæðingar- og
kvensjúkdómadeild Fjórðungs-
sjúkrahúss Akureyrar (FSA) í
kandídatsnámi mínu 1972–1974.
Bjarni var hár maður vexti, virðu-
legur í fasi, snyrtimenni í klæða-
burði og var í augum okkar yngri
manna sannur yfirlæknir er naut
virðingar bæði innan sem utan
sjúkrahússins. Hann var ávallt fús
að miðla af kunnáttu sinni og leið-
beina yngri kollegum og vakti á
þann hátt áhuga okkar á sérgrein
sinni.
Bjarni var lengst af eini sérfræð-
ingurinn á sínu sviði á Norðurlandi
og vakta- og vinnuálag því umtals-
vert meira en nú telst ásættanlegt.
Þó hann hafi sjálfur fengið sinn
skammt af veikindum þá kvartaði
hann aldrei í mín eyru um vinnu-
álag né að hann treysti sér ekki til
vinnu vegna veikinda. Vinnuþrek
hans var umtalsvert og kom m.a.
fram í því að hann tók jafnframt
virkan þátt í félagsstörfum og sat
um tíma m.a. í bæjarstjórn Akur-
eyrar og stjórnum Læknafélags og
Krabbameinsfélags Akureyrar.
Bjarni kvæntist árið 1944 Berg-
ljótu Sigríði Haraldsdóttur og
eignuðust þau fjögur börn. Berg-
ljót var vel gefin og glæsileg kona
með ákveðnar skoðanir á málefnum
líðandi stundar og var virk í bæj-
arpólitíkinni á Akureyri. Við Sig-
rún minnumst ánægjulegra sam-
verustunda með þeim bæði á
Akureyri og í Svíþjóð þar sem
framtíðarplön voru rædd. Ekkert
varð þó úr samstarfi okkar á Ak-
ureyri en örlögin höguðu því síðan á
þann veg að eftir að Bjarni hætti
störfum sem yfirlæknir á FSA 1989
kom hann í hlutastarf á Leitarstöð-
ina í Reykjavík. Naut hann þar
virðingar samstarfsfólks og var
sárt saknað er hann hætti störfum
af heilsufarsástæðum á árinu 1998.
Eftir andlát Bergljótar í desem-
ber 2000 flutti Bjarni að hjúkrunar-
heimilinu Eir þar sem hann dvaldi
allt til andláts. Það má með sanni
segja að með Bjarna er horfinn
merkur læknir sem var einn af aðal
frumkvöðlum sérgreinar sinnar hér
á landi. Fyrir hönd Sigrúnar og
samstarfsfólks á Leitarstöð er
Bjarna vottuð virðing og þakklæti
fyrir liðnar samverustundir.
Kristján Sigurðsson,
yfirlæknir Leitarstöðvar
Krabbameinsfélagsins.
Fjölskylda breytir um svip við
hvert fráfall innan hennar en minn-
ingarnar lifa. Þeir standa okkur
skýrt fyrir hugskotssjónum saman
Bjarni og faðir okkar, Jónas G.
Rafnar. Þeir voru sannir bræður,
miklir vinir og áttu svo fjölmargt
sameiginlegt. Bjarni léttur í lund,
Jónas lítið eitt alvarlegri, líkir í út-
liti með sama yndislega brosið.
Þeim þótti undurvænt um systur
sína Þórunni. Sameiginlegt áhuga-
mál þeirra var sagnfræði. Báðir
voru mjög vel lesnir og áttu ekki
langt að sækja þann áhuga. Jónas
Jónasson frá Hrafnagili, sem skrif-
aði Íslenska þjóðhætti, var afi
þeirra. Jónas yfirlæknir í Kristnesi
faðir þeirra var prófdómari í latínu
og grísku, stundaði rannsóknir og
skriftir, safnaði þjóðsögum og
teiknaði upp torfbæi frá ofanverðri
19. öld í Eyjafjarðarsveit. Minning-
arnar eru ljúfar af fjölskyldufund-
um þegar þeir bræður stríddu
ömmu Ingibjörgu og ræddu saman
í gríni og alvöru um lauka Stein-
nessættarinnar, stjórnmálaviðhorf-
ið, heimsmálin, persónur mann-
kynssögunnar, herstjórnarlist til
forna og síðar, bókmenntir eða
þjóðlegan fróðleik.
Bjarni var okkur kær vegna
hlýju sinnar, glettni og glaðværðar.
Sjúklingar Bjarna nutu þessara
eiginleika í ríkum mæli. Það er
ósjaldan sem við höfum heyrt hans
minnst af góðu einu frá Akureyri,
þar sem hann var yfirlæknir um
áratugaskeið. Bergljót Haralz
Rafnar og Bjarni voru glæsileg
hjón. Það var skemmtilegt að koma
á heimili þeirra á Akureyri og síðar
í Reykjavík. Þau voru mjög vin-
mörg, höfðu sínar skoðanir og
mæltu fyrir þeim. Heimilið var svo
líflegt, mikill gestagangur, mál-
efnalegar umræður, gott meðlæti
og svo laust við tildur. Börn voru
BJARNI
RAFNAR