Morgunblaðið - 15.03.2005, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Reynir DavíðÞórðarson fædd-
ist í Grindavík 26.
mars 1972. Hann
lést aðfaranótt laug-
ardags 5. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hans eru Sigríður
Jóna Gísladóttir, f.
29.11. 1954, og
Þórður Mattías Sig-
urðsson, f. 11.7.
1954. Þau slitu sam-
vistum. Maki Sigríð-
ar er Þórarinn
Heiðmann Guð-
mundsson, f. 30.12.
1955. Maki Þórðar er Kristín
Sigurjónsdóttir, f. 7.2. 1958.
Systkini Reynis sammæðra eru
Eva Rakel Þórðardóttir, f. 29.8.
1973; Valur Smári Þórðarson, f.
7.8. 1974; Sindri Heiðmann Þór-
arinsson, f. 26.9. 1983. Systkini
Reynis samfeðra
eru: Róbert Þórðar-
son, f. 20.9. 1980;
Þórður Mattías
Þórðarson, f. 6.3.
1982; Sigurjón
Veigar Þórðarson,
f. 20.8. 1983; Ragn-
ar Freyr Þórðar-
son, f. 11.4. 1990;
og Sigurður Freyr
Þórðarson, f. 11.4.
1990.
Reynir hóf sam-
búð með Andreu
Davidson 1999.
Fyrir átti hún
Breka Eiríksson, f. 5.2. 1997, d.
13.8. 2001. Eiga þau saman Jan
Gunnar Reynisson, f. 15.1. 2000.
Þau slitu samvistum.
Útför Reynis verður gerð frá
Glerárkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Elsku drengurinn okkar, mikið
finnum við til. Þú tókst þá ákvörðun
að fara frá okkur, en það er eitthvað
það erfiðasta sem við höfum gengið í
gegnum.
Eftir stendur minningin um góðan
og fallegan strák sem brosti alltaf að
öllu í gegnum lífið og gaf öllum af
sér. Þetta eru ekki bara orð heldur
minnast allir þín svona.
Það má vera að þessi eiginleiki
hafi leikið þig grátt og leitt þig í
slæman félagsskap og í skuggaver-
öld lífsins.
Elsku Reynir, þú varst okkur góð-
ur sonur og vinur, þú varst bræðrum
þínum góður bróðir og alltaf varst þú
tilbúinn fyrir þá og stoltur af systk-
inahópnum þínum.
Það var gaman að fylgjast með þér
þegar þú stofnaðir fjölskyldu og
eignaðist fallegt heimili með Andreu.
Þú gekkst litlum drenghnokka í föð-
urstað, honum Breka litla sem
hændist mjög að þér enda varst þú
honum góður faðir.
Áður en langt um leið fæddist svo
sonur þinn Jan Gunnar, mikið varst
þú stoltur af honum og litlu fjöl-
skyldunni þinni.
En það skall yfir ykkur reiðarslag,
hann Breki litli lést af slysförum, það
slokknaði eitthvað í þér þá, Reynir
minn.
Eftir þetta varst þú mikið með Jan
Gunnar og aldrei höfum við séð feðga
svo samrýnda eins og ykkur, það er
sárt að hann geti ekki fengið að alast
upp með þig sér við hlið, en því skul-
um við lofa þér, elskan, að það verður
hugsað vel um þennan litla augastein
þinn.
Síðastliðið ár var þér erfitt, þú
hrasaðir því miður og lentir í aðstæð-
um sem voru þér ofviða enda hafðir
þú ekki hæfileika til að lifa í þessum
skuggaheimi.
Við erum viss um að það hafi lítil
hönd læðst í lófa þér þegar þú kvadd-
ir okkur og þið Breki gætið vel hvor
að öðrum.
Hvíl í friði og guð gæti að þér og
létti af þér þeim byrðum sem þú
þjáðist af.
Pabbi og Kristín.
Djúpt skarð hefur verið höggvið í
sálu mína við fráfall míns ástkæra
bróður, besta vinar og fyrirmyndar
að mörgu leyti. Ég á margar ynd-
islegar minningar um Reyni og aldr-
ei sá maður hann öðruvísi en með
bros á vör. Hvert sem hann fór var
hann hrókur alls fagnaðar og virki-
lega naut þess að vera til. Það var
alltaf frekar áberandi í fari bróður
míns hversu einlægur, góðhjartaður
og hjálpsamur hann var í garð ann-
arra þótt honum liði ekki sem best
sjálfum, og svo kom að því að hann
leitaði huggunar í skuggahliðum lífs-
ins sem að lokum leiddi til dauða
hans.
En minning hans lifir í gegnum
litla son hans sem er lifandi eftir-
mynd pabba síns og er umvafinn ást
úr öllum áttum.
Ég kveð hér manneskju sem
markaði djúp spor í líf mitt sem ég
kem alltaf til með að hafa að leið-
arljósi svo lengi sem ég lifi.
Hvíldu í friði, elsku bróðir.
Þórður Matthías Þórðarson.
Snemma dags laugardaginn 5.
mars bárust mér til eyrna þær
hörmulegu fregnir að hann Reynir
bróðir minn væri farinn frá okkur. Í
huga mér spretta upp ótal minningar
um ljúfan dreng sem alltaf vildi gera
vel við litla bróður. Minnisstæð er
mér alltaf mikil frægðarför sem við
fórum til Prag í Tékklandi haustið
2001. Þar skemmtum við okkur sam-
an og kynntumst að miklu leyti upp á
nýtt eftir dálítið hlé. Alltaf fylltist ég
stolti þegar þú dróst mig á milli
manna og kynntir mig sem „litla
bróður“ sem varð oft valdur að mik-
illi kátínu meðal viðstaddra því
stærðarmunurinn á okkur var ansi
mikill.
Einnig kemur sú mynd í huga mér
þegar við fórum austur í Grímsnesið
með Kristján, Jan Gunnar, Rögnu og
Andreu og trölluðum þar í nokkra
daga, þú með þinn einstæða hæfi-
leika að láta fólki líða vel í kringum
þig, sama hverjar aðstæðurnar voru.
Svona varst þú í hnotskurn, alltaf
brosandi, hlæjandi og góður pabbi.
En það var eins og þú týndir ein-
hverju af sjálfum þér þegar Breki
litli fóstursonur þinn fór frá okkur.
Og þú varðst einhvern veginn aldrei
samur. Sú tilhneiging þín að vilja
stytta þér leið að hlutunum varð til
þess að þú fetaðir ansi grýtta leið í
lífinu. En nú ertu kominn til hans
Breka litla og minning um góðan og
ljúfan dreng situr eftir í hjörtum
okkar en einnig skarð sem verður
aldrei fyllt.
Vertu sæll, elsku bróðir. Guð
geymi þig.
Sigurjón Veigar Þórðarson.
Elsku stóri bróðir, ég trúi ekki að
þú sért farinn frá mér en nú ertu far-
inn á betri stað.
Þú munt alltaf lifa í hjarta mínu.
Þú varst svo góður maður.
Þú vildir alltaf gera það besta fyrir
alla. Mér þótti svo vænt um að þú
vildir alltaf vernda mig. Við vorum
svo góðir vinir.
Elsku Reynir minn, ég mun alltaf
passa upp á hann Jan Gunnar son
þinn.
Og, Reynir, ég mun standa mig í
fótboltanum. Þú varst svo góður í að
styðja mig áfram. Þú varst svo
ánægður með okkur Sigga bróður.
Við munum gera þig stoltan af okk-
ur.
Elsku Reynir, farðu vel með þig
þarna uppi.
Þinn bróðir
Ragnar Freyr Þórðarson.
Elsku bróðir. Það er hræðilega
erfitt að skrifa þessi orð því að ég
trúi ekki að þú sért farinn frá mér því
ég elskaði þig svo mikið og mun
ávallt gera það.
Þú áttir alltaf stóran stað í hjarta
mínu og mér þótti alltaf mjög mikið
vænt um þig og leit mjög mikið upp
til þín.
Mér fannst líka mjög gaman að
horfa með þér á fótbolta og það var
líka alltaf mjög gaman þegar þú
komst í heimsókn, og ég var stoltur
af því að við ættum sömu áhugamál
og héldum báðir með Liverpool.
Ég sá Jan Gunnar í dag og hann er
alveg ótrúlega líkur þér og ég lofa
því að passa hann fyrir þig og vera
stóri frændi hans.
Ég vil bara segja það að þú ert
núna á miklu betri stað og með hon-
um Breka litla og ég veit að þér líður
betur núna og ég lofa því að ég bið
fyrir þér á hverju kvöldi.
Þinn bróðir,
Sigurður Freyr.
Í dag, 15. mars, verður hann
frændi minn jarðsunginn frá Glerár-
kirkju á Akureyri.
Ég hef alltaf álitið mig svo ríka þar
sem ég á svo mörg systkinabörn sem
eru nær mér í aldri en systkini mín.
Og hef ég alltaf sagt að ég sé yngst af
mínum systkinum en elst af systk-
inabörnunum.
Elsku Reynir, nú er stórt skarð í
þeim hópi sem enginn af okkur fær
skilið, en okkur er ekki ætlað að
skilja allt. Minningarnar hrannast
upp og hafa yljað okkur um hjartað.
Ég var níu ára þegar þú fæddist og
passaði þig mikið sem og þín yngri
alsystkin. Ég fór með ykkur til Ak-
ureyrar og hélt áfram að passa ykk-
ur nokkur sumur. Svo flutti ég alveg
til ykkar, þá 18 ára og þú orðinn níu
ára, bjó ég hjá ykkur í næstum þrjú
ár. En skólinn togaði í mig svo ég
flutti suður og fór í skóla og þið flutt-
uð síðar að Hálsi. Sveitalífið átti vel
við ykkur systkinin. Ég stofnaði fjöl-
skyldu og við fluttum út til Svíþjóðar
1990 og heim aftur 1998. Þá varst þú
kominn með konu og fóstursoninn
Breka. Þá kom í ljós hversu mikill
barnakarl þú varst. Þið ákváðuð svo
að flytja til Svíþjóðar og komuð til
okkar að fá allar upplýsingar um
hvernig þið bæruð ykkur að.
Þar úti fæddist sonur þinn Jan
Gunnar og þið feðgarnir komuð upp
til Íslands í sumarfrí og gistuð svo
allir þrír hjá okkur síðustu nóttina
áður en þið fluguð út. Stuttu seinna
komuð þið Jan Gunnar alkomnir
heim og passaði mamma þín Jan
Gunnar meðan þú vannst á sjónum.
Þá skeði sorgaratburðurinn að Breki
litli dó í bílslysi í Svíþjóð og þú
flaugst út og náðir í þau mæðginin.
Þetta tók á þig meira en margan
grunar. Sérstaklega erfitt var svo
þegar Jan Gunnar flutti síðar út aft-
ur til mömmu sinnar, þó þú og for-
eldrar þínir hafið verið dugleg að
fljúga út til að sækja hann.
Elsku Reynir minn, við söknum
þín öll, verðum að sætta okkur við að
þinn tími var kominn í þessu lífi, en
vitum líka að þú ert með Breka litla
og ömmu Rögnu á svo miklu betri
stað.
Elsku systir, Jan Gunnar, Tóti,
Valur Smári, Eva Rakel, Sindri og
fjölskyldur, megi guð veita ykkur
styrk og frið á komandi mánuðum og
árum. Einnig vil ég senda Dodda,
Stínu, sonum og fjölskyldum þeirra
allra samúðarkveðjur.
Hvíl í friði.
Þín frænka,
Inga Fríða.
Hver skilur lífsins hulda heljardóm
er haustsins nepja deyðir fegurst blóm,
að báturinn sem berst um reiðan sjá
brotna fyrst í lendingunni má.
Að einn má hlýða á óma af gleðisöng,
annar sorgarinnar líkaböng.
(Guðrún Jóh.)
Það er sárt að sjá á eftir ungum
manni í ótímabæran dauðann.
Það getur verið erfitt að fóta sig í
þessum heimi og það er ekki sjálf-
gefið að unga fólkinu takist að rata
beinu auðveldu leiðina.
Reynir vinur okkar var einn af
strákunum í hinni mögnuðu Þórs-
hamarsáhöfn (GK 75) sem aldrei
gleymist. Þá var nú gaman að lifa.
Við viljum muna hann sem falleg-
an, brosmildan góðan dreng sem alla
tíð hélt sambandi við okkur þó svo
hann væri ekki lengur á sjónum með
Jóni.
Það var alltaf jafn gaman að heyra
í honum þó stundum liði langur tími
á milli símtalanna, en alltaf komu
þau að lokum og þá var löng sögu-
stund og oftast mikið hlegið.
Það var mikið áfall fyrir hann að
missa fósturson sinn í slysi fyrir
nokkrum árum, og viljum við meina
að það hafi sett mark sitt á líf hans
síðan, hann var svo einstaklega barn-
góður og sál hans var svo brothætt.
Okkur þótti vænt um hann og
söknum þess að fá ekki oftar að
heyra í honum.
Megi góður Guð blessa og geyma
Reyni Davíð og minningu hans.
Við sendum ættingjum hans og
ástvinum öllum innilegar samúðar-
kveðjur. Megi þau öðlast styrk í
sorginni.
Rakel og Jón.
REYNIR DAVÍÐ
ÞÓRÐARSON
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Elsku hjartans sonur okkar, bróðir og barna-
barn,
HELGI FANNAR HELGASON,
Heiðarbrún 2,
Stokkseyri,
sem lést í bílslysi sunnudaginn 6. mars sl.,
verður jarðsettur frá Selfosskirkju miðvikudag-
inn 16. mars kl. 13.30.
Helgi Grétar Helgason, Ása Ólafsdóttir,
Berglind Sunna Guðmundsdóttir, Daniel Steinmo,
Ólafur Guðmundsson, Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir,
Helgi Helgason, María Friðþjófsdóttir,
Sunna Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Sigurðsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og sonur,
ÖRN J. JÓHANNSSON
vélvirki,
Höfðastíg 8,
Bolungarvík,
lést á Fjórðungssjúrahúsinu á Ísafirði laugar-
daginn 12. mars.
Björg Kristjánsdóttir
Kristján Arnarson, Anna Guðrún Edvardsdóttir,
Jóhann Arnarson, Auður Smith,
Gestur Þór Arnarson, Inga Berglind Sigurðardóttir,
Rúnar Arnarson, Auður Finnbogadóttir,
Þorbjörn, Óskar, Oktavía, Karólína,
Hlynur Örn, Finnbogi Örn, Bríet Björg,
Jóhann Valdimarsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MAGNÚSSÍNA GUÐBJÖRG
NANCY MAGNÚSDÓTTIR
frá Stapa í Vestmannaeyjum,
Kambahrauni 30,
Hveragerði,
sem lést föstudaginn 11. mars, verður
jarðsungin frá Þorlákskirkju laugardaginn 19. mars kl. 14.00.
Helga Engilbertsdóttir, Valtýr Einarsson,
Magnús Lárusson, Sigríður Rúnarsdóttir,
Bjarni Guðmundsson, Berglind Valdimarsdóttir,
Nansý Guðmundsdóttir, Ingvar Jóhannesson,
barnabarnabörn og barnabarnabarnbarn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, systir, amma og langamma,
ÞORBJÖRG HULDA ALEXANDERSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 1B,
Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi að
morgni mánudagsins 14. mars.
Ingimar Sigurðsson,
Guðrún Kristinsdóttir, Helgi Stefánsson,
Alexander Ingimarsson, Edda Ástvaldsdóttir,
Guðmundur S. Ingimarsson,
Birna Rúna Ingimarsdóttir, Friðþjófur Th. Ruiz,
Jórunn Alexandersdóttir, Lórens Rafn,
barnabörn og barnabarnabörn.