Morgunblaðið - 15.03.2005, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 37
MINNINGAR
LANDSMÓT í skólaskák hefur verið
haldið í fjölda ára á vegum Skáksam-
band Íslands. Keppnin hefur alltaf
gengið út á það að í hverju kjördæmi
eru haldin mót og ákveðinn fjöldi úr
þeim vinnur sér inn þátttökurétt á
landsmótið. Hvert kjördæmi hefur
hið minnsta einn keppanda á lands-
mótinu en kjördæmin á höfuðborg-
arsvæðinu hafa fleiri. Allir þeir sem
sækja nám í grunnskóla geta tekið
þátt en keppninni er aldursskipt
þannig að yngri flokkur nær frá 1.
bekk til 7. bekkjar en eldri flokkur
spannar 8. bekk til 10. bekkjar. Áður
fyrr átti hringurinn að hefjast í skól-
unum sjálfum og eingöngu efstu
keppendur þar áttu rétt til þess að
taka þátt í kjördæmamóti. Í dag er
sú regla misjafnlega viðhöfð en mik-
ilvægt er fyrir þróun skáklistarinnar
hér á landi að boðið sé upp á tafl-
mennsku fyrir krakka í skólum
landsins. Hverju svo sem því líður þá
fór fram fyrir skömmu Skólaskák-
mót Reykjavíkur í húsakynnum Tafl-
félags Reykjavíkur. Í eldri flokki
mættu alls 8 keppendur og varð loka-
staðan þessi:
1. Daði Ómarsson (Laugalækjar-
skóla) með 6½ vinning af 7 mögu-
legum.
2. Ingvar Ásbjörnsson (Rimaskóla) 5
v.
3. Einar Sigurðsson (Laugalækjar-
skóla) 4 v.
4. Matthías Pétursson (Laugalækj-
arskóla) 3½ v.
5.–6. Helgi Brynjarsson (Hlíðaskóla)
og Gylfi Davíðsson (Réttarholts-
skóla) 2½ v.
7.–8. Elsa María Þorfinnsdóttir
(Hólabrekkuskóla) og Vilhjálmur
Pálmason (Laugalækjarskóla) 2 v.
Það er greinilega uppgangur í
skáklífi Laugalækjarskóla þar sem
helmingur keppenda var þaðan fyrir
utan að tveir af þeim þrem sem unnu
þátttökurétt á landsmótið sækja nám
í skólanum. Sigur Daða var afar
öruggur en hann leyfði eingöngu eitt
jafntefli. Tvöfalt fleiri keppendur
tóku þátt í yngri flokknum en loka-
staðan hans varð eftirfarandi:
1. Hjörvar Steinn Grétarsson (Rima-
skóla) með 9 vinninga af 9 mögu-
legum
2.–3. Hallgerður Helga Þorsteins-
dóttir (Melaskóla) og Aron Ellert
Þorsteinsson (Laugalækjarskóla) 6
v.
4.–6. Hörður Aron Hauksson (Rima-
skóla), Jökull Jóhannsson (Húsa-
skóla) og Dagur Andri Friðgeirsson
(Seljaskóla) 5½ v.
7.–9. Mikael Luis Gunnlaugsson
(Vesturbæjarskóla), Benedikt Sigur-
leifsson (Laugalækjarskóla) og Sig-
ríður Björg Helgadóttir (Hamra-
skóla) 5 v.
10.–13. Ásgeir Daníel Hallgrímsson
(Rimaskóla), Sigríður Oddsdóttir
(Laugalækjarskóla), Hrafnkell Ás-
geirsson (Fossvogsskóla) og Hrund
Hauksdóttir (Rimaskóla) 4 v.
14. Smári Aðalsteinn Eggertsson
(Melaskóla) 3½ v.
15. Haukur Óskarsson (Rimaskóla) 2
v.
16. Dagur Kjartansson (Hóla-
brekkuskóla) 1 v.
Yfirburðir Hjörvars Steins í flokkn-
um voru mjög miklir og gaf hann
engin grið. Hann virðist í mikilli
framför um þessar mundir og er það
vel. Hallgerður Helga fékk annað
sætið eftir stigaútreikninga en enn
einn nemandinn úr Laugalækjar-
skóla á mótinu, Aron Ellert, fékk
jafnmarga vinninga og hún en þurfti
að gera sér þriðja sætið að góðu.
Þessir þremenningar tryggðu sér
sæti á landsmótið en Hörður Aron,
Jökull og Dagur Andri þurfa að
heyja aukakeppni um fjórða sætið
sem einnig veitir þátttökurétt á
landsmótið. Þeirri aukakeppni verð-
ur væntanlega lokið fyrir páska.
Skákstjórn mótsins var í höndum Ás-
geirs Tryggvasonar, Ólafs Kjartans-
sonar, Jóns Viktors Gunnarssonar
og Torfa Leóssonar auk Vigfúsar Óð-
ins Vigfússonar kjördæmisstjóra.
Allir fyrir utan kjördæmisstjórann
eru meðlimir í Taflfélagi Reykjavík-
ur en Torfi lét af formennsku í félag-
inu 10. mars sl. eftir að hafa sinnt því
starfi frá árinu 2002. Óttar Felix
Hauksson er nýr formaður félagsins
og eru miklar vonir bundnar við störf
hans.
Fjöldi móta framundan
um páskaleytið
Þrátt fyrir að ekkert Íslandsmót í
skák verði haldið í ár um páskana
verður nóg um að vera í íslensku
skáklífi. Páskaeggjamót Taflfélags
Kópavogs fer fram í Hamraborg 5, 3.
hæð, miðvikudaginn 16. mars og
hefst kl. 17.15. Allir grunnskólanem-
ar geta tekið þátt og hóflegt þátt-
tökugjald er tekið af öðrum keppend-
um en þeim sem eru félagar í TK og
Helli. Frekari upplýsingar um mótið
er að finna á www.hellir.com. Tívolí-
syrpa Íslandsbanka heldur áfram
sunnudaginn 20. mars og fer keppnin
fram í höfuðstöðvum bankans á
Kirkjusandi. Nánari upplýsingar um
mótið er að finna á www.hrokurinn-
.is. Skákfélag Akureyrar heldur
hraðskákmót Akureyrar sama dag
og hefst taflið í KEA-salnum, Sunnu-
hlíð, kl. 14. Nánari upplýsingar um
mótið er að finna á heimasíðu félags-
ins, www.skakfelag.is. Páskaeggja-
mót Taflfélagsins Hellis fer fram
mánudaginn 21. mars og hefst kl. 17 í
húsakynnum félagsins í Mjódd. Nán-
ari upplýsingar um mótið er að finna
á heimasíðu félagsins. Á sömu síðu er
hægt að verða sér úti um frekar upp-
lýsingar um Stigamót Hellis en það
er kappskákmót sem fram fer dag-
ana 22. mars til 26. mars.
Aftari röð: Ingvar Ásbjörnsson, Einar Sigurðsson og Daði Ómarsson.
Fremri röð: Torfi Leósson, Aron Ellert Þorsteinsson, Hjörvar Steinn Grét-
arsson og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir.
Daði og Hjörvar sigurvegarar
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
SKÓLASKÁKMÓT REYKJAVÍKUR 2005
7.–8. mars 2005
daggi@internet.is
SKÁK
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar móður okkar og fósturmóður,
GUÐRÚNAR SIGRÍÐAR BJARNADÓTTUR
frá Lækjamóti,
Fáskrúðsfirði.
Sérstakar þakkir fær hjúkrunar- og starfsfólk
Uppsala fyrir frábæra umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnheiður M. Hjartardóttir, Birna Fanney Óskarsdóttir,
Guðbjörg Hjartardóttir, Sigrún Ragnarsdóttir,
Lára Hjartardóttir, Ragnar B. Malmquist,
Aðalbjörg Hjartardóttir, Jóhann B. Malmquist.
Lokað
Lokað verður í dag, þriðjudaginn 15. mars, vegna útfarar
GUÐMUNDAR ÁRNA JÓNSSONAR.
Stálhúsgögn ehf.,
Skúlagötu 61,
Reykjavík.
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar frá kl. 10-14 í dag, þriðjudaginn
15. mars, vegna útfarar GUÐMUNDAR ÁRNA JÓNSSONAR.
Fasteignasalan Lundur.
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs föður okkar, bróður, tengdaföður
og afa,
ÞÓRHALLS BJÖRGVINSSONAR
frá Þorgerðarstöðum
í Fljótsdal,
til heimilis að Útgarði 6,
Egilsstöðum.
Börn, barnabörn, tengdabörn,
systkini og aðrir aðstandendur.
mínir hoppandi upp og niður í sætinu
við hlið mér náfölrar og hvöttu pabba
óspart til að taka framúr öllum bíl-
um. Sá eldri varð síðan öskureiður
og ætlaði að hlaupa heim til Reykja-
víkur, þegar pabbi neitaði að fara
fram úr vörubíl efst á Öxnadalsheiði.
Heimsóknin til ykkar og ömmu á
Akureyri var öll hin skemmtilegasta
og áður en við lögðum aftur í hann
suður brást þú á það ráð að þeyta
einhver ósköp af „besta rjóma í
heimi“. Og svo var ég sett upp á eld-
hússkenkinn og mötuð. Skeiðarnar
af þessu stóra bragðlausa skýi voru
óteljandi og þolinmæðisvinna að
koma þessu ofan í mig, en þú
straukst á mér vangann og ég dingl-
aði löppunum og horfði á bræður
mína sem voru eitthvað að pískra
fyrir framan ísskápinn. Þeim fannst
10 lítra mjólkurkassinn, sem lá eins
og belja inni í skápnum, ofsalega
spennandi og kvörtuðu undan alveg
ótrúlegum þorsta. Jú, hvort þeir
máttu fá, nóg væri nú til. Svo kýttu
þeir um það hver mætti hverju sinni
og hversu lengi tappa af kassanum.
Fyrir sunnan voru jú bara þessar
óspennandi 1 lítra grænu mjólkur-
hyrnur. Svo gat ég ekki opnað munn-
inn meir, harðákveðin í því að ég
skyldi aldrei aftur láta hafa mig út í
það að borða rjóma. En þetta hjálp-
aði, á bakaleiðinni ældi ég ekki fyrr
en í Hvalfirði.
Þið bjugguð í yndislegu húsi á
Byggðavegi 91, þú og Haraldur og
strákarnir ykkar fjórir: Siggi, Einar
Karl, Haddú og Jakob. Og amma bjó
alla tíð hjá ykkur, elsku fallega góða
Kristín amma, langbesta amma í öll-
um heimi. Hún lifði fyrir fjölskyld-
una sína og hélt henni fast saman.
Jólagjafirnar hennar voru ótrúlega
rausnarlegar, þær keypti hún fyrir
ellilífeyrinn sem hún hafði allt árið
lagt til hliðar. Hún hugsaði aldrei um
sjálfa sig en gaf allt sem hún eign-
aðist áfram til barna, barnabarna og
loks barnabarnabarna. Hún sneið
upp gömul föt og saumaði ný. Fata-
kaup þekkust varla í okkar fjöl-
skyldu. Og á hverju hausti tókuð þið
báðar slátur og senduð suður.
Næst kom ég til ykkar með
Hönnu, fallegu stóru systur minni.
Hún var sigld, hafði verið lengi, lengi
í Ameríku en núna var hún loksins
komin aftur heim, með fangið fullt af
gjöfum – yndisleg eins og þú. Við
keyrðum á tveimur dögum norður og
gistum í Fornahvammi, vá á hóteli,
það var ótrúlegur lúxus, nú fannst
mér ég líka vera „sigld“. Hanna og
Svenni skemmtilegi voru að fara til
Mývatns og ætluðu að sækja mig aft-
ur á bakaleiðinni. Farartækið var
fólksvagn, fyrsti bíllinn hans Svenna,
hann var svolítið óþéttur þannig að
við komum kolbrún og með hárið
stíft af ryki til ykkar. Þá slóst þú þér
á lær og þá var mikið hlegið.
Svo komuð þið suður og þá fóru
Ragnar og Matti bræður mínir og
Haddú og Jakob strax í meting um
það hvort Dagur væri betri en
Mogginn, KEA betri en Mjólkur-
samsalan og hvar Paradís á jörðu
væri, í Reykjavík eða á Akureyri. Og
af því að hvorugum tókst að sann-
færa hina – og það þótt mikill
ástríðuþungi væri lagður í málið –
fuku hnúar og hnefar út í loftið,
tættu og rifu og strákarnir tuskuð-
ust og hentust öskureiðir til. Á þess-
um árum var mikil tíska hjá karlkyni
á vissum aldri að vera í hverfisstríð-
um. Og er það sjálfsagt enn. Ég efast
um að globalisérínginn hafi breytt
hér einhverju…
Sumarið þegar ég var 10 ára göm-
ul fékk ég að fara norður til að búa
hjá ykkur á Byggðaveginum í nokkr-
ar vikur. Ég lærði norðlensku, drakk
jolly-cola og mix, synti í Akureyrar-
laug, heimsótti þig í vinnuna í Amaro
og dáðist að bollastellunum, – það
var alltaf svo góð lykt í Amaro – þar
stakkstu að mér einhverju góðgæti
og straukst mér um vangann. Ég fór
út um allt í heimsóknir með ömmu-
lömmu, spásseraði um í lystigarðin-
um, eignaðist fullt af nýjum vinkon-
um, las „Sólon Íslandus“ eftir Davíð
Stefánsson og hundurinn Bokki
flaðraði upp um mig og sleikti mig og
ég elskaði hann heitt á móti og – ykk-
ur öll. Mér fannst frábært að vera
hjá ykkur, hér var paradís á jörðu,
hér var hundahald ekki bannað eins
og í Reykjavík, norðlenskan miklu
göfugri en menningarsnauð sunn-
lenskan, sólin heitari en í Reykjavík,
Dagur miklu betra blað en Morgun-
blaðið og ég hefði gjarnan viljað setj-
ast að hjá ykkur, ömmu og Bokka.
Þótt ég elskaði mína mömmu heitt,
öfundaði ég strákana þína af því að
eiga svona skemmtilega mömmu,
sem bjó á kvöldin til ljósar rjóma-
karamellur eða poppaði popp og
leyfði strákunum sínum að lesa
Andrésblöð við matarborðið. Vá.
Elsku Lilla mín. Leiðir okkar lágu
alltof sjaldan saman. Þú í höfuðstað
Norðurlands eða á ströndinni við
ysta haf, en ég í Reykjavík eða suður
í bjórsólinni í München. Ég hefði
viljað hitta þig miklu oftar – jafnoft
og bræður mínir Ragnar og Matth-
ías, sem alltaf litu inn hjá ykkur Har-
aldi þegar þeir voru á ferð með eig-
inkonum sínum Guðrúnu Soffíu og
Grétu og var tekið eins og höfðingj-
um. Ég kom að vísu nokkrum sinn-
um til þín núna síðustu árin – ég ætl-
aði að tileinka þér og Haraldi
kvikmyndina mína um Sólon Ísland-
us – af því að það voruð þið sem
kynntuð okkur, mig og Sölva – kvik-
mynd sem því miður vildi ekki fæð-
ast að sinni. Alltaf tókuð þið Har-
aldur svo fallega á móti mér og mínu
samstarfsfólki. Þótt þú værir orðin
heilsulaus, áttir þú samt alltaf eitt-
hvert góðgæti, hvort sem það voru
„ömmu“-pönnukökur eða karamellu-
kaka og allt í einu vorum við stödd í
dýrindis veislu við uppdúkað borð og
hlátur og gleði.
Eitt sinn þegar ég heimsótti ykkur
varð mér á orði að ég hefði í þetta
sinn ekki komist í Hrolleifsdalinn í
Sléttuhlíð, þegar ég var þar á ferð í
leit að tökustöðum. Ég yrði að gera
það næst, þegar ég kæmi frá Þýska-
landi. En viti menn, þið lögðuð þá
leið ykkar inn í dalinn, genguð um í
margar klukkustundir, tókuð ljós-
myndir fyrir mig, límduð þær á kart-
on og senduð mér svo. Ég var orð-
laus og táraðist þegar ég fékk
myndirnar. Svona gríðarstórt var
heilsulaust hjartað…
Elsku Lilla mín, þú gafst mér
stundir fullar af hamingju, hvort sem
ég var barn eða fullorðin. Og alltaf
þegar ég hugsa til þín fer ég að brosa
og hjarta mitt verður heitt af þakk-
læti. Ég held að eins sé um flesta far-
ið, sem þekktu þig.
Handan við göngin, ljósið og móð-
una miklu hafa tekið fagnandi á móti
þér þinn elskandi sonur Siggi, elsku
besta amma, Lóló systir þín, Viðar,
Matthías pabbi þinn, fleiri ástvinir
og samferðafólk eins og Kalli leigj-
andinn ykkar. Mikið eiga þau gott að
hafa fengið þig til sín!
Haraldi, sonum þínum, tengda-
dætrum, barnabörnum, barnabarna-
börnum, pabba mínum, mömmu
minni og öllum ástvinum þínum og
vinum sendi ég einstaklega fallegar
samúðarkveðjur. Megi þau fá hugg-
un í öllum fallegu minningunum um
þig.
Margrét Rún Guðmunds-
dóttir Kraus, München.
Fleiri minningargreinar um Sig-
ríði Kristbjörgu Matthíasdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Ásta S.
Hannesdóttir og Vera Einarsdóttir.