Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 43

Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 43 DAGBÓK ROKKÓPERAN Jesus Christ Superstar eftir Andrew Loyd Webber og Tim Rich var frum- sýnd í fullri lengd sl. fimmtudag í Hagaskóla. Í fyrra settu nemendur í Hagaskóla upp söngleik- inn Hárið þannig að ljóst er að ekki ráðast nem- endur Hagaskóla á garðinn þar sem hann er lægstur. Að sýningunni koma um 70 nemendur skólans en þrjátíu nemendur leika og syngja í sýning- unni og hljómsveitina skipa aðrir tuttugu nem- endur auk fjölmargra sem sjá um hljóð, ljós, búninga og fleira. Nemendur Hagaskóla eru á aldrinum 13–16 ára. Það er Sigríður Birna Valsdóttir sem leik- stýrir sýningunni og tónlistarstjóri er Hrólfur Sæmundsson. Sýningar eru í Hagaskóla og verða næstu sýningar mánud. 14. mars, þriðjud. 15. mars og miðvikud. 16. mars og hefjast kl. 20. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jesús Kristur ofurstjarna LOKATÓNLEIKARNIR í hádegistón- leikaröð Íslensku óperunnar á þessu starfsári verða í dag kl. 12 og bera þeir yfirskriftina „Tveir bassar og annar með strengi.“ Þar þenur Davíð Ólafsson bassi raddböndin, en Dean Ferrell kontrabassa- leikari plokkar strengina. Þeim til að- stoðar verður Kurt Kopecky á píanó. Bæði Mozart og Bach skrifuðu ástar- söngva fyrir kontrabassa og bassasöngv- ara og eru þeir því vissulega á efnisskrá dagsins. Mozart skrifaði fjörlega konsert- aríu um hina fallegu kvenhönd, Per questa bella mano, en Bach samdi aftur á móti litla kantötu um svikular ástir, Am- ore traditore. Bæði eru tónverkin fjörmikil og einstakt að fá að heyra þau saman á tónleikum. Að auki verða fluttar þekktar aríur þar sem kontrabassinn fær aðeins að keppa við bassasöngvarann. Ólíkir bassatónar í Óperunni Davíð Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.