Morgunblaðið - 15.03.2005, Side 49
UNDANKEPPNI Músíktilrauna
lauk sl. föstudagskvöld er síðustu tíu
sveitirnar kepptust um sæti í úrslit-
um. Þetta tilraunakvöld er einna
merkilegast fyrir það að þrjár
hljómsveitir komust áfram og því
koma ellefu hjómsveitir fram á úr-
slitakvöldinu í Austurbæ næstkom-
andi föstudag.
Það er erfitt að vera fyrsta sveit á
svið á tilraunakvöldi en þeir félagar í
Jamie’s Star létu það ekki á sig fá,
byrjuðu af öryggi á fínu rokklagi.
Eini ljóðurinn á því var hvað söng-
urinn var ótraustur í rólegu köfl-
unum, en hann lagaðist þegar á leið
og var fínn í seinna lagi sveitarinnar.
Hefur væntanlega einhver áhrif á
óskýra framsetningu að sungið var á
ensku. Seinna lag sveitarinnar var
hörkulag, en fulllangt, mætti klippa
af því óþarfa kaflaskiptingar og
stæla og þá er komið grípandi út-
varpsvænt rokk.
Kalk spilaði frekar óspennandi
sveimkennda raftónlist framan af.
Fyrra lagið var þó vel flutt en ekki
reyndi mikið á annars ágæta söng-
konu. Seinna lag sveitarinnar var líf-
legra en þó ekki eiginlegt lag.
Ekki kom mikið á óvart í fyrra
lagi Fordæmis, fínar laglínur og vel
spilað en söngur slæmur. Seinna
lagið kom aftur á mót á óvart, húmor
í því og fín þjóðleg keyrsla á köflum.
Keyrslan var mikið hjá ArgAstA-
mönnum og tilbrigði í söngnum. Þeir
voru ekki nema þrír en hljómuðu
sem mun fleiri, argasta rokk. Það
tók þá smátíma að snúa í gang í
seinna laginu en svo var ætt áfram
með tilþrifum þrátt fyrir smáhnökra
í spilamennsku hér og þar.
Oft tekur það smátíma hjá hljóm-
sveitum að komast af stað í lögum,
getur verið erfitt að finna réttu leið-
ina inn í lög, en öllu verra er þegar
menn eiga erfitt með að stoppa, ekki
síst ef þegar er búið að segja allt
sem hægt er að segja í umræddu
lagi. Þannig var því farið með þá fé-
laga í Killer Bunny, annars ágætri
sveit sem átti fína spretti – seinna
lag sveitarinnar ætlaði aldrei að
enda, aldrei að enda, aldrei að enda.
Líflegur söngur þó.
Kodiak tekur tónlistina af mikilli
alvöru og gott eitt um það að segja.
Bæði lög sveitarinnar voru prýðileg,
kannski fullstuttir kaflar og of marg-
ir, en ágætur þungi í því sem þeir
voru að gera. Þeir teygðu líka lop-
ann fullmikið.
Ekki vantaði íþróttina í spila-
mennsku hjá Mextrakt-mönnum, en
lögin voru ekki vel samin. Þeir voru
þó vel samstiga og gerðu margt vel.
Væri gaman að heyra í þeim með
betra efni í höndunum.
Hefð er fyrir því í Músíktilraunum
að sprella og margar hljómsveitir
hafa brugðið sér í glysrokksgallann
svona rétt til að gera grín að sjálfum
sér og rokkinu. Sumir hafa reyndar
klæðst gallanum í fullri alvöru og
ekki nema gott eitt um það að segja,
sjá hina frábæru sveit The Dark-
ness, en því er þetta rifjað upp að
Mystical Fist var einmitt mjög glys-
kennd á sviði og lék klassískt glys-
rokk af bestu gerð. Þeim tókst sér-
staklega vel upp í fyrra lagi sínu og
alltaf er gaman að heyra gítarsóló á
réttum stað.
Weland vakti athygli fyrir það
meðal annars að trymbill sveit-
arinnar spilaði standandi. Hugs-
anlega er á því einhver eðlileg skýr-
ing, en þó að hann hafi staðið sig vel
hefði hann líklega staðið sig betur
sitjandi. Fyrsta lag sveitarinnar var
eiginlega hvorki fugl né fiskur fram-
an af en svo rættist úr því. Söngv-
arinn stóð sig mjög vel.
Lokaorðið í undankeppni Mús-
íktilrauna 2005 átti hljómsveitin
Elysium. Hún keyrði af krafti með
fínt rokk, góð öskur og mikla
keyrslu.
Áheyrendur kunnu vel að meta
glysrokkið og kusu Mystical Fist
áfram, en dómnefnd fannst ástæða
til að hleypa fyrstu og síðustu sveit
kvöldsins áfram, Jamie’s Star og
Elysium.
TÓNLIST
Músíktilraunir
Músíktilraunir, hljómsveitakeppni Tóna-
bæjar og Hins hússins, síðasta til-
raunakvöldið. Þátt tóku Jamie’s Star,
Kalk, Fordæmi, ArgAstA, Killer Bunny,
Kodiak, Mextrakt, Mystical Fist, Weland
og Elysium. Haldið í Tjarnbarbíói 11.
mars.
TJARNARBÍÓ
Árni Matthíasson
Björg Sveinsdóttir
ArgAstA
Lokatilraunahnykkur
Kodiak Killer Bunny Mextrakt
KalkWeland
Fordæmi
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 49
Mbl.
DV
HELVÍTI VILL
HANN,
HIMNARÍKI
VILL HANN
EKKI,
JÖRÐIN
ÞARFNAST
HANS
LIFE AQUATIC SÝND KL. 4-5.30-8-10.20.
LIFE AQUATIC VIP SÝND KL. 5.30-10.20.
CONSTANTINE SÝND KL. 5.30-8-10.20. B.I. 16 ÁRA
PHANTOM OF THE OPERA SÝND KL. 6-10. B.I. 10 ÁRA
WHITE NOISE SÝND KL. 5.30-8-10.20. B.I. 16 ÁRA
BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL SÝND KL. 3.45-6.15.
LEMONY SNICKETS SÝND KL. 3.45.
COACH CARTER SÝND KL. 5.30-8-10.30.
CONSTANTINE SÝND KL. 8-10.30. B.I. 16 ÁRA
BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL SÝND KL. 6. ísl tal
MILLION DOLLAR BABY. SÝND KL. 5.30-8-10.30
CONSTANTINE SÝND KL. 10.10. B.I. 16 ÁRA
HITCH SÝND KL. 8-10.20.
CLOSER SÝND KL. 8
CONSTANTINE SÝND KL. 8-10.20. B.I. 16 ÁRA
RAY SÝND KL. 8-10.30
ÁLFABAKKI
KRINGLAN
AKUREYRI
KEFLAVÍK
Sló í gegn í USA
t mynd. Töff tónlist
E með Twista, BALLA
Da Hood & Mack 10).
ð á sannri sögu. Með
m eina sanna töffara,
amuel L. Jackson
y . ff t li t
i t ,
).
ri .
i t ff r ,
l .
Magnaður spennutryllir
sem þú mátt ekki missa af!
með Keanu Reeves
í aðalhlutverki