Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 1

Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 1
Mikið stuð á Ísafirði Rokkhátíð alþýðunnar þótti takast vonum framar | Menning Fasteignir | Fullgerðum íbúðum í borginni fækkar  Frárennsliskerfin eru mikilvæg  Breyttur byggingarmáti Íþróttir | Viggó mjög ánægður með strákana  Spennan eykst í körfunni Markvarsla Birkis Ívars stóð upp úr STOFNAÐ 1913 83. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Fasteignablað og Íþróttir í dag STJÓRN kommúnista í Norður- Kóreu sagðist í gær hafa gripið til ráðstafana til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu fuglaflensu en hætta er talin á að sýkin geri út af við kjúklingarækt í landinu. Skýrt var frá því á páskadag að sýkin hefði greinst á nokkrum hænsnabúum í grennd við höfuðborgina Pyong- yang. Slátrað hefði verið hundruðum þúsunda kjúklinga. Norður-Kóreumenn segja að ekki séu nein dæmi um að fuglaflensan hafi borist í menn í landinu en það hefur hún gert í nokkrum Asíulönd- um. Fulltrúi Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar, WHO, sagði að stjórnin í Pyongyang hefði gert við- eigandi ráðstafanir og ætti fulla sam- vinnu við önnur ríki vegna málsins. „Það veldur okkur miklum áhyggj- um þegar veikin breiðist út til nýrra landa,“ sagði Kumara Rai, yfirmaður farsóttadeildar WHO, sem hefur bækistöðvar í Nýju-Delhí á Indlandi. Suður-Kóreumenn heyrðu orð- róm um sýkina fyrir skömmu Norður-Kóreumenn fullyrtu lengi að engin tilfelli hefðu greinst í land- inu en fyrir tveimur vikum bárust óstaðfestar fréttir um að sjúkdóm- urinn hefði valdið þar usla. Gripu þá stjórnvöld í Suður-Kóreu til ráðstaf- ana sem eiga að minnka hættu á að veikin berist yfir landamærin. Afbrigði fuglaflensu hefur orðið 34 Víetnömum að bana, einnig 12 Taí- lendingum og tveim Kambódíu- mönnum. Sérfræðingar óttast að verði um að ræða faraldur gætu orð- ið mörg dauðsföll þar sem um sé að ræða nýjan sjúkdóm hjá mannfólki. Fuglaflensa í N-Kóreu Seúl í Suður-Kóreu. AFP. Reuters Stjórnvöld segja veikina ekki hafa borist í menn LÖGREGLAN í Suður-Afríku hefur handtekið mann í Jóhannesarborg og er hann grunaður um að hafa föndrað við umferðarljós til að reyna að valda árekstrum. Hann segist hafa unnið verkið fyrir tvö fyrirtæki sem reka dráttarbíla. Katlego Mogale, liðþjálfi í lögregl- unni í Jóhannesarborg, sagði mann- inn hafa verið handtekinn í úthverf- inu Roodeport á laugardag. „Fólk á svæðinu sagði að grunsamlegur maður, ekki í einkennisbúningi, væri að reyna að taka úr sambandi um- ferðarljós,“ sagði hún. „Hann var með tvo aðstoðarmenn, annar er níu ára og hinn þrettán ára.“ Maðurinn verður kærður fyrir morðtilraun og skemmdir á götuvit- anum. Ýtt undir bílslys Jóhannesarborg. AFP. „ÞETTA er augljóslega miklu minni skjálfti en varð 26. desember. Hins vegar veldur skjálfti upp á 8,5 stig á Richter gífurlega miklu tjóni allt að 200 km fjarlægð frá upptökunum,“ segir Ragnar Stefánsson jarðskjálfta- fræðingur um skjálftann í Ind- landshafi í gær. Skjálftinn kom greinilega fram á mælum Veð- urstofu Íslands enda er kerfi Veð- urstofunnar mjög næmt. „Þarna verður lóðrétt misgengi á plötuskilum og upptökin eru með- fram strönd Súmötru. Skjálftinn verður í nánast sömu sprungunni og skjálftinn í desember, þó lengra til suðurs að þessu sinni.“ Ragnar segir að búast megi við miklu tjóni á byggðu bóli í nágrenni við skjálftann. Stærsti eftirskjálfti sem kom fram á alþjóðlegum skjálftamælum var um 5,5 á Richter en kom ekki fram á mælum Veður- stofunnar. Stóri skjálftinn mældist á bilinu 8,2–8,7 á Richter. Kom fram á mælum hérlendis Ragnar Stefánsson Jan Egeland, sem hefur umsjón með neyðaraðstoð fyrir Sameinuðu þjóðirnar, sagðist í gær vonast til að hægt yrði að senda þyrlur í birtingu í dag til að kanna ástandið á vestur- strönd Súmötru. Sagði hann að um 10.000 manns byggju á litlum eyjum í innan við 50 km fjarlægð frá upptök- unum. Indónesískir embættismenn sögðu að hundruð húsa hefðu hrunið í borginni Gumung Sitoli á eynni Nias við suðurströnd Súmötru og töldu víst að um 300 manns hefðu farist þar. Margir hefðu grafist undir rúst- um húsa og þúsundir bæjarbúa hefðu flúið á hærra svæði. Skelfing greip um sig í mörgum löndum við Indlandshaf þegar jarð- skjálftinn reið yfir. Einkum var ótt- inn mikill í héraðinu Banda Aceh á norðanverðri Súmötru en þar varð manntjónið mest í desember. Þegar ljóst þótti að ekki væri lengur hætta á flóðbylgju sendu yfirvöld út til- kynningar um að hættan væri liðin hjá. Skjálftinn varð um miðnætti að staðartíma á Súmötru og fannst greinilega í fjarlægum borgum, m.a. í skýjakljúfum í Kuala Lumpur í Mal- asíu, sem er í um 500 km fjarlægð frá upptökunum. „Ég var að fara að sofa og allt í einu fór herbergið að hrist- ast,“ sagði Jessie Chong, íbúi í borg- inni. „Fyrst hélt ég að þetta væri ímyndun en svo heyrði ég nágrann- ana æpa og hlaupa út.“ Skjálftinn fannst einnig í Bangkok í Taílandi og á Maldive-eyjum suður af Indlandi. Stjórnvöld í Indónesíu, Malasíu, Taílandi, Indlandi og á Sri Lanka sendu í gær út viðvaranir til almenn- ings og var fólk í strandhéruðum hvatt til að hraða sér lengra inn í land. Framan af ríkti ótti við að á ný skylli mikil flóðbylgja á land en þar sem slíkar bylgjur fara með mörg hundruð kílómetra hraða um hafið var ljóst eftir nokkrar stundir að slík- ar hamfarir yrðu ekki að þessu sinni. Minnst 300 þúsund manns dóu af völdum flóðbylgjunnar í desember í alls 12 löndum við Indlandshaf. Jarðskjálftafræðingar spáðu því fyrir hálfum mánuði að hætta væri á hörðum skjálfta á hafsbotni við Súm- ötru og hann yrði jafnvel álíka mikill og sá sem reið yfir í desember. Vitað að mörg hundruð manns fórust á Súmötru Reuters Íbúar í Aceh-héraði á Súmötru á leið um götu í héraðshöfuðborginni Banda Aceh í gær eftir að hafa yfirgefið heimili sín í kjölfar jarðskjálftans. Margir óttuðust að aftur skylli á mikil flóðbylgja en svo fór ekki og var hættunni aflýst nokkrum stundum eftir jarðskjálftann sem var 8,7 stig á Richter. Jarðskjálftinn í gær olli ekki telj- andi flóðbylgju en mikil skelfing greip um sig víða við Indlandshaf Banda Aceh, Colombo, SÞ, París. AFP, AP.                                       !                   VITAÐ er að hundruð manna létu lífið og margir slösuðust í hörðum jarðskjálfta sem varð á hafsbotni skammt frá Indónesíu í gær. Upp- tökin voru við vesturströnd eyjarinnar Súmötru en talsvert sunnar en í skjálftanum sem olli flóðbylgjunni mannskæðu í lok desember sl. Bandarískir vísindamenn sögðu í gærkvöld að skjálftinn hefði verið 8,7 stig á Richter sem merkir að hann var mörgum sinnum vægari en jarðhræringarnar í desember sem voru 9 stig. „ÉG STÓÐ þarna vaggandi og var ekki viss hvort þetta væri skjálfti í mér sjálfri eða jörðinni,“ segir Birna Halldórsdóttir, sendifulltrúi Rauða krossins í Banda Aceh í Indónesíu, um upplifun sína af jarðskjálftanum. Birna býr í því hverfi borgarinnar sem verst varð úti í flóðbylgjunni miklu í desember sl. Sagði hún mikla ringulreið hafa ríkt í hverfinu og greinilegt að íbúar borgarinnar hefðu verið dauðhræddir við aðra flóðbylgju./2 Mikil ring- ulreið ríkti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.