Morgunblaðið - 29.03.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 29.03.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 11 FRÉTTIR                               fessor, Karl G. Kristinsson yfir- læknir og prófessor, Davíð Á. Gunnarsson, Ragnheiður Haralds- dóttir og Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur ráðuneytisins. Sú yf- irlýsing ráðuneytisstjórans í frétt- um útvarpsins á páskadag, að ekki sé um stjórnsýslukæru að ræða heldur „kvörtunarbréf“ kemur því verulega á óvart og gengur í ber- högg við orð ráðherra heilbrigð- ismála. Ómálefnaleg fullyrðing ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðu- neytis þess efnis, að faglega og lög- lega sé staðið að ráðningu sviðs- stjóra á LSH stangast á við rökstutt lögfræðiálit hinna þekktu lögmanna. Orð hans eru ómerk nema álitsgerð lögmannanna sé svarað með lögfræðilegri álitsgerð ráðuneytisins eins og skylt er skv. stjórnsýslulögum. Sömuleiðis stenst ekki sú fullyrðing hans að sviðsstjórar séu ráðnir með hlið- sjón af samningum við Háskóla Ís- lands. Jafnvel þótt svo væri myndu lög gilda ofar samningum og starfslýsingum. 6. Í viðtalinu við Jóhannes M. Gunnarsson kemur fram að „ásak- anir um ógnanir og hótanir í garð starfsfólks séu alvarlegar og þarfn- ist nánari skýringa frá viðkomandi yfirlækni“ (þ.e. frá undirrituðum). Engin slík ásökun kom fram af minni hálfu í viðtali því sem RÚV hafði við mig. Aðeins var sagt það sem satt er, að sumir læknar þyrðu ekki að notfæra sér málfrelsi sitt af ótta við afleiðingar á starf sitt; þau orð eru höfð eftir ákveðnum lækn- um í trúnaði en orð þeirra voru ekki ásökun af minni hálfu. Stað- reyndin er hins vegar sú, að marg- ir starfsmenn og heilbrigðisstéttir á LSH (læknar, lyfjafræðingar, iðjuþjálfar og hjúkrunarfræðingar) telja sér ógnað af yfirstjórn sjúkra- hússins og fleiri en einn hafa verið kallaðir á teppið þar fyrir að láta í ljós skoðanir sínar. Um það hafa forystugreinar Morgunblaðsins fjallað með réttu. Í þessu sambandi má nefna að fyrir fáum vikum var yfirlæknum rannsóknasviðs bent á það með upplestri á lagaklásúlu, að forstjóri (eða „handhafi ráðningar- valds“, þ.e. sviðsstjóri) mætti segja starfsmönnum upp án ávirðinga. Sex af átta yfirlæknum sviðsins höfðu skömmu áður ritað nafn sitt undir bréfið til ráðherra. Hver var tilgangurinn með þessum lestri? Lokaorð Þrátt fyrir orð stjóranna í frétt- um RÚV stendur eftir óhrakin frétt RÚV byggð á gögnum um al- varlegan stjórnkerfisvanda á LSH. Viðtölin við stjórana styrkja þá skoðun enn frekar að slíkur vandi sé raunverulegur. Það er sérlega miður að ráðuneytið hyggist ekki sem eftirlitsaðili svara vel mein- andi málaleitun yfirlækna til ráð- herra. Með því er ráðuneytið hugs- anlega að taka á sig ábyrgð á þeim misfellum sem kunna að vera í stjórnkerfi LSH. Hver ber ábyrgð á LSH?“ Höfundur er yfirlæknir blóð- meinafræðideildar LSH og forstöðumaður kennslu í blóð- sjúkdómum við læknadeild Háskóla Íslands. JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, segir að bréfi frá tólf yfirlæknum á Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi um stjórn- unarvanda LSH, sem ráðherra fékk í hendur í febrúar sl., verði svarað formlega á næstunni. „Við höfum meðtekið þetta bréf þar sem farið er fram á að því sé svarað formlega. Ég mun gera það og hef tjáð þeim það. Ég hef rætt við alla þessa aðila, bæði forystu spítal- ans og eins þá sem sendu bréfið. Ég hef verið að vinna í því og mun vinna að því að það ríki friður á spítalan- um,“ segir ráðherra, en vil ekki tjá sig um málið fyrr en erindinu hefur verið svarað. Ekki stjórn- sýslukæra Spurður út í stjórnsýslukæru sem tólfmenning- arnir segja að ekki hafi verið svarað, segir Jón að ráðuneytið líti ekki svo á að um sé að ræða stjórnsýslukæru, enda sé er- indið ekki þannig upp byggt, en engu að síður verði því svarað formlega. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra Vinn að því að friður ríki á LSH Jón Kristjánsson Í BRÉFI tólf yfir- lækna við LSH til heilbrigðisráð- herra, dagsettu í febrúar sl., er m.a. bent á að lækna- ráð hafi endurtek- ið ályktað um al- varlegan stjórn- kerfisvanda spít- alans, en hvorki hafi verið tekið til- lit til álitsgerða né ályktana lækna- ráðs. Friðbjörn Sigurðsson, formaður læknaráðs, segir vandann fyrst og fremst snúast um sameiningu spítal- anna fyrir röskum fjórum árum þegar tveir ólíkir spítalar með ólík stjórnkerfi voru sameinaðir. Óánægja hafi ríkt meðal fagaðila um hvaða kerfi myndi henta best á nýju sjúkra- húsi og vonir hafi verið bundnar við endurskoðun á stjórnkerfi hans í fyrra. „Það verður að segjast, að mínu áliti, að þá mistókst sú endurskoðun, því það tókst ekki að leysa neitt af þeim vanda sem var augljós,“ segir Friðbjörn. Stjórn læknaráðs hafi haft áhyggjur af gangi mála og skrifað heilbrigðisráðherra bréf í nóvember þar sem farið er fram á íhlutun ráð- herra vegna samskipta læknaráðs og yfirstjórnar spítalans. Efni bréfsins hafi verið ítrekað á fundi með ráð- herra í janúar aftur og með bréfi fyrir um hálfum mánuði. Mikilvægum málum ekki vísað til læknaráðs Greint var frá efni bréfsins í Mbl. í desember í fyrra og segir þar að læknaráð LSH hafi farið fram á að heilbrigðisráðherra hlutist til um það að farið sé að lögum um heilbrigðis- þjónustu hvað varði hlutverk og starf læknaráðs og jafnframt að yfirstjórn- endum verði gert að virða starfsregl- ur sem læknaráðinu hafi verið settar og staðfestar séu af stjórnarnefnd LSH. Þá að ráðuneytið skoði stöðu læknaráðs og meti hvort samskipti yf- irstjórnar LSH og læknaráðs séu með tilhlýðilegum hætti. Segir m.a. í bréfinu að miklir mein- bugir séu á að stjórnendur sjúkra- hússins hafi uppfyllt lagaskyldu sína og að mikilvægum og afdrifaríkum málum hafi ekki verið vísað til lækna- ráðs til álitsgerðar. Læknaráð endurtekið ályktað um alvarlegan stjórnkerfisvanda Friðbjörn Sigurðsson ÞESSI unga stúlka notaði góða veðrið á páskadags- morgun til þess að hefja byggingu á sandkastala í fjör- unni við ós Norðfjarðarár. Lét hún sig það engu skipta þó ekki sé talið ráðlegt að byggja á sandi. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Byggt á sandi Neskaupstað. Morgunblaðið. ÍSLAND er meðal þeirra landa sem sjónum er beint að í nýrri klukkustundarlangri heimildamynd um vetni sem nefnist The Hydro- gen Age eða Vetnisöldin. Þetta kemur fram í frétt á vef C21 Media net. Í myndinni, sem framleidd er af Hydrogen 2000, er fjallað um möguleikana sem felast í vetni sem hreinni og endurnýjanlegri orku sem geti leyst orkuvanda heimsins til frambúðar. Framleiðendur myndarinnar fóru til fjölmargra landa í heimildaöflun. Auk Íslands voru Japan, Þýska- land, Kína og Bretland heimsótt í því skyni að kanna vetnisnotkunina og þær tækniframfarir sem orðið hafa í vetnisvæðingunni. Þannig voru bæði skoðaðir bílar og verk- smiðjur sem ganga fyrir vetni og menga því ekkert. Samkvæmt fréttinni dregur myndin fram kosti þessa nýja orku- gjafa og veltir upp þeirri spurningu hvort vetni geti bjargað heiminum frá þeim orkuvanda sem hann stendur frammi fyrir. Einnig er þeirri spurningu velt upp hvort vetnisvæðing geti dregið úr eða bundið enda á þá hættu sem stafar af hlýnun andrúmslofts sökum gróðurhúsalofttegunda. Vetnisvæðingin til skoðunar í nýrri heimildamynd Morgunblaðið/Sverrir SIMON Wiesenthal-stofnunin í Jerúsalem sendi á páskadag frá sér yfirlýsingu þar sem mótmælt er ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að veita Bobby Fischer ríkisborg- ararétt. Er því haldið fram að afneit- un Fischers á Helförinni og gyðinga- hatur hans feli í sér brot á íslenskum lögum. Stjórnvöld eru hvött til að taka til baka ákvörðun sína og er jafnframt vakin á því athygli að frá komu Fischers til landsins hafi hann þegar brotið íslensk lög sem kveða á um bann við því að vega að fólki vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, trúarbragða eða kynhneigðar. Haft er eftir dr. Efraim Zuroff, forstjóra Wiesenthal-stofnunarinn- ar, að ummæli Fischers um gyðinga á blaðamannafundi á föstudaginn langa sýni að Íslendingar hafi boðið heim manni af þeirri gerð sem muni ekki verða nýju heimalandi sínu til sóma. Simon Wiesenthal-stofnunin Ríkisborgararétti Fischers mótmælt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.