Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 9 FRÉTTIR Hlíðasmára 11, Kópavogi sími 517 6460 www.belladonna.is Réttu stærðirnar Matseðill www.graennkostur.is Þri. 29/3: Spínatlasagne sívinsælt m. fersku salati og hýðishrísgrjónum. Mið. 30/3: Orkuhleifur m. heitri sinnepssósu m. fersku salati og hýðishrísgrjónum. Fim. 31/3: Graskerakarrý og spínat- buff m. fersku salati og hýðishrísgrjónum. Fös. 1/4: Linsubakstur m. heitri sósu m. fersku salati og hýðishrísgrjónum. Helgin 2/4 og 3/4: Ítalskur pottréttur og pol- enta m. heimalöguðu pestó.                       Flottar gallabuxur 18 gerðir, str. 36-56 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 Full búð af nýjum vörum frá s i m p l y www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Str. 36-56 Laugavegi 4, sími 551 4473 • www.lifstykkjabudin.is Þú minnkar um 1 númer Litir: Svart - hvítt - húðlitað Póstsendum Saumlaust aðhald Ný sending af útitrjám Glæsilegt úrval Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) sími 551 2040 Silkitré og silkiblóm Yfirhafnir á hálfvirði þessa viku Mörkinni 6, sími 588 5518. Vattúlpur, ullarkápur, dúnúlpur, húfur og hattar myndir um uppsetningu setursins og breytingar á húsinu og lóð og um- hverfi þess. Ýmsir tóku til máls og hvöttu frumkvöðla þessa verkefnis til dáða, lofuðu hlutafé og stuðningi við mál- efnið og sögðu reynslusögur af lík- um verkefnum. Tóku þar til máls, m.a Anna Kristín Gunnarsdóttir al- þingismaður, Steinþór Sigurðsson hönnuður, Árni Snæbjörnsson hlunnindaráðunautur B.Í., Pétur Guðmundsson formaður selabænda og Ólafur B. Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Meleyrar ehf. sem á VSP-húsið að hálfu. Á fundinum voru kosnir í undir- búningsstjórn: Jóhann Albertsson, Guðmundur Jóhannesson, Guðlaug Sigurðardóttir, Árni Kristjánsson og Karl Eggertsson. Varamenn: Anna Kristín Gunnarsdóttir og Pétur Guð- mundsson. Þá skráðu margir fundarmenn sig fyrir hlutafé, en stefnt er að því að ljúka söfnun hlutafjár og stofnun fé- lagsins fyrir apríllok. FJÖLMENNI var á undirbúnings- stofnfundi Selaseturs Íslands ehf. sem haldinn var í Félagsheimili á Hvammstanga í síðustu viku. Jóhann Albertsson kynnti undir- búningsvinnu starfshóps sem varð til á atvinnuráðstefnu Húnaþings vestra árið 2003. Hópurinn stefnir að opnun upplýsinga- og fræðslu- safns um seli í húsi Sigurðar Pálma- sonar kaupmanns á Hvammstanga. Hægt að nálgast seli og fræðast um selanytjar Megintilgangur Selaseturs Ís- lands er m.a. að vekja athygli á, hve auðvelt er að nálgast og skoða seli víða á Vatnsnesi, ásamt að upplýsa ferðafólk almennt um selinn og lifnaðarhætti hans. Einnig verður lögð áhersla á að kynna selanytjar fyrr og nú. Rætt var einnig um að kynna þyrfti ferðamönnum mat- reiðslu og nýtingu selkjöts og spiks. Starfshópurinn hefur notið að- stoðar ýmissa, m.a. Steinþórs Sig- urðssonar, sem sett hefur fram hug- Selir kynntir ferðamönnum í Selasetri Hvammstanga. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Steinþór Sigurðsson skýrir hugmyndir sínar um húsnæði Selasetursins. ÍSLAND er ásamt Kanada, Græn- landi, Sviss, Svíþjóð og Finnlandi talið öruggasta landið til kvikmynda- gerðar, samkvæmt úttekt Aon, næststærsta tryggingafyrirtækis heims. Þetta kemur fram í frétt á vef breska dagblaðsins Telegraph. Hefur fyrrnefnt fyrirtæki séð um tryggingamál við gerð stórmynda á borð við Hringadróttinssögu, Harry Potter og James Bond auk Stjörnu- stríðsmyndanna. Samkvæmt fyrr- nefndu mati eru Alsír, Pakistan, Indónesía, Kólumbía og Filippseyjar meðal hættulegustu staða á jarðar- kringlunni til þess fallnar að kvik- mynda. Í mati sínu taka starfsmenn Aon m.a. mið af glæpatíðni viðkomandi landa, spillingu, hættu á mannrán- um, sjúkdómum og almennum heilsufarsaðstæðum. Hefur fyrir- tækið látið útbúa sérstakt kort til handa kvikmyndagerðarmönnum, sem byggist á rannsóknum fyrirtæk- isins og upplýsingum frá opinberum aðilum á borð við WHO og Central Intelligence Agency. Að sögn Chris Palmer, yfirmanns áhættustjórnunar fyrir kvikmynda- og skemmtanaiðnaðinn hjá Aon, hef- ur landslagið breyst töluvert á um- liðnum árum. „Fyrir tíu árum hefði kvikmyndagerðarfólk óhikað farið hvert á land sem er til að mynda. Það er hins vegar ekki svo í dag.“ Hann bendir á að flestir líti á hryðjuverk sem hættulegustu ógn- ina sem steðji að kvikmyndagerðar- fólki, en samkvæmt úttekt Aon er mun líklegra að kvikmyndagerðar- fólk verði fórnarlömb ýmiss konar sjúkdóma, lélegs heilbrigðiskerfis eða glæpa. Í nýjustu úttektinni voru sjötíu lönd heims flokkuð sem hættu- leg, en til samanburðar má nefna að fyrir ári voru aðeins fimmtíu og fimm lönd í þeim flokki. Á sama tíma hafa tryggingaiðgjöld í kvikmynda- geiranum lækkað um 10–15% á sl. tólf mánuðum. Að mati Peter Robey, framkvæmdastjóra Aon í Bandaríkj- unum, má rekja það bæði til hertra tryggingaskilmála og þess að fólk er almennt orðið meðvitaðra um hætt- una sjálfa. Meðal öruggustu landa til kvikmynda- gerðar DANSPARIÐ Hauk- ur Hafsteinsson og Denise Margrét Yaghi, úr dans- íþróttafélaginu Hvönn, tóku þátt í danskeppni sem fram fór í Þýska- landi um helgina og kepptu í flokki fjór- tán til fimmtán ára með frjálsri aðferð. Þau náðu þeim ágæta árangri að vinna silfur í keppni í samkvæmisdöns- um. Keppt var í suður- amerískum dönsum á laugardag og á sunnudag kepptu þau í samkvæmis- dönsum. Af fjörutíu pörum í suðuramer- ískum dönsum lentu þau í ellefta sæti og í samkvæmisdönsum í dag höfnuðu þau eins og fyrr segir í öðru sæti. Haukur og Denise verða um hríð í æf- ingabúðum hjá virt- um þýskum þjálfara. Dönsuðu til silfur- verðlauna í Þýskalandi Morgunblaðið/Jón Svavarsson Haukur Hafsteinsson og Denise Margrét Yaghi. ❖ Opið virka daga 10-18 ❖ Laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 Kópavogi s. 554 4433 Þar sem konurnar versla AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.