Morgunblaðið - 29.03.2005, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.03.2005, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. É g held að þetta sé góð regla, segir Arngrímur Jóhannsson, flugstjóri og stofnandi Flugfélagsins Atl- anta, þegar hann er spurður hvernig honum finnist að þurfa að láta af störfum sem flugstjóri eins og reglur mæla fyrir um þar sem hann nær 65 ára aldri 7. apríl næstkomandi. Arngrímur er eins og margir á sama aldri í fullu fjöri og á næga starfsorku. „Ég tek eftir því að ég er farinn að gleyma og í þessu starfi er vitanlega best að hætta áður en nokkuð alvar- legt gerist af þeim sökum,“ segir flugstjórinn einnig glottandi með þennan skemmtilega ólíkindasvip sem hann á til að setja upp. Ljóst er að einhvers staðar verð- ur að setja punkt og hann segist fyrst og fremst þakk- látur fyrir að hafa komist í gegnum ferilinn áfallalaust. „Annars finnst mér þetta stundum eins og jarðarför, það er eins og menn haldi að allt sé búið þótt maður þurfi að láta af störfum vegna aldurs en það er líka ein- staklingsbundið. Áður var miðað við að flugmenn létu af störfum við 60 ára aldur og víða erlendis hafa mörkin verið lægri. En fyrir nokkrum árum hækkaði ald- urshámarkið í 63 ár og nú er miðað við 65 ár. Það má kannski segja að 65 ára maður í dag sé í svipuðu formi og sextugur áður fyrr,“ segir Arngrímur og samþykkir að þótt hann láti nú af störfum muni hann hafa nóg fyrir stafni, nú sé að hefjast nýr kafli, nú taki við alls konar dund og bauk sem tengist samt sem áður áhugamálinu, fluginu. Áður en farið er út í það er rétt að staldra við síðustu ferðir Arngríms í flugstjórasætinu. Með syninum síðustu vikurnar Síðasta ferðin var til Kúbu og þaðan var hann vænt- anlegur nú í morgunsárið. Síðustu vikur og mánuði hef- ur hann flogið talsvert með syni sínum, Gunnari og hafa þeir meðal annars verið mikið á ferðinni í Asíulöndum þar sem Atlanta sinnir fraktflugi. Ein dóttir Arngríms, Ragnheiður, er einnig flugmaður og hefur flogið með honum gegnum árin en er ekki að fljúga eins og er. Önnur börn Arngríms eru Sigurlaug hjúkrunarfræð- ingur sem reyndar er með í Kúbuferðinni, Sigrún, garð- yrkjufræðingur og einkaflugmaður sem býr á Akureyri en hún leggur einnig stund á söng, Thelma sem er nemi og Vilhelmína. Áður en haldið var til Kúbu flugu þeir feðgar eina ferð til Kanaríeyja. Stefán Bjarnason var flugvélstjóri en hann er einnig með þeim í Kúbuferðinni. „Stefán var með mér fyrst þegar ég flaug þotu Air Viking fyrir Guðna í Sunnu og hann rifjaði upp þetta flug sem var fyrir 30 árum,“ segir Arngrímur. „Við vorum staddir yf- ir Færeyjum á leið á sólarströnd þegar mér barst til- kynning um radíóið að mér væri fæddur sonur. Það var Gunnar sem nú stendur á þrítugu.“ Næsti kafli hjá Arngrími snýst að mestu leyti áfram um áhugamálið flug. Það gerist m.a. í flugskýli hans á flugvellinum á Tungubökkum í Mosfellsbæ þar sem spjallið fer fram innan um hálfsmíðaðar flugvélar bæði í fullri stærð og líkön. Hann á annað flugskýli á Akureyr- arflugvelli enda á hann taugar til Akureyrar þar sem hann var alinn upp. Hvaða verkefni hefur hann í skýl- inu? Góður í vöfflunum „Ég smíða flugvélar og vinur minn, Einar Páll Ein- arsson, hjálpar mér,“ segir hann ísmeygilegur. Um- ræddur Einar ræskir sig og bendir kurteislega á að Arngrímur sé flínkur að baka vöfflur. Hann geri það gjarnan á sunnudögum þegar gestagangur er í skýlinu hjá þeim. En grínlaust þá er Einar Páll um þessar mundir að gera upp flugvélar fyrir Arngrím sem hyggst nú leggja drýgri hönd á plóginn þar sem hann ræður tíma sínum betur nú orðið. En hverju sinnir hann í skýl- inu fyrir norðan? „Það er eitthvað svipað dund og þar geymi ég list- flugvélarnar sem ég gríp stundum í. Þar er Húnn Snæ- dal að smíða í svipaðri aðstöðu og hér á Tungubökkum. Ég sleit barnsskónum á Akureyri og byrjaði flugnámið þar. Fór svo suður til náms 16 ára en kom aftur og vann hjá Flugmálastjórn í fjögur ár og síðan hjá Tryggva Helgasyni áður en ég hélt suður aftur. Bróðir minn býr þar og ein dóttirin og hér er ég með íbúð,“ segir Eyr- arpúkinn og kveðst sjá fyrir sér að dvelja talsvert á Ak- ureyri á næstunni, hann hafi taugar til bæjarins sem togi meira í hann með árunum. Þyrluflug kemur sögu í nýja kaflanum því Arngrímur á þyrlu og h fengið réttindi á hana sem hann hyggst nýta sér ekki má heldur gleyma listfluginu, því eins og áð nefnt á hann tvær listflugvélar sem notaðar verð sumar. Spenna og bróðerni í listfluginu „Ætli við séum ekki svona tíu manna hópur se stundum listflug hérlendis að einhverju ráði og v um líka mót á hverju ári. Við höfum flestir fengi nokkra þjálfun erlendis og stundum fengið heim þekkta listflugmenn hingað til að kenna okkur,“ Arngrímur. Í hópnum eru bæði atvinnuflugmen einkaflugmenn á öllum aldri. „Ég hugsa nú að u mennirnir í hópnum séu að verða betri en við en urkennum við nú helst ekki þessir eldri,“ segir A grímur og bætir við að í hópnum ríki hæfileg bla spennu og bróðerni. „Listflug er skilgreint í fjórum flokkum og er ákveðnar æfingar í hverjum. Þær þyngjast í efr unum og við erum flestir hér komnir í annan flok Það er ekki útilokað að við þokum okkur upp um ef við tökum fleiri námskeið. Listflug reynir mjö skrokkinn því við dýfurnar og lykkjurnar mynd margfalt álag, blóðið ýmist þrýstist upp í höfuð e ur í skrokk og því verða menn að vera vel á sig k líkamlega til að standast slíka raun.“ Arngrímur hefur lengst af verið stjórnarform Atlanta og situr í stjórn Avion Group, sem er mó urfélag Atlanta og nokkurra annarra fyrirtækja rekstri, og ætlar hann að sinna þeim störfum en sinn. Þá er hann einnig forseti Flugmálafélags Í og situr í stjórn Flugskóla Íslands og hyggst ha að því að losa sig úr þessum síðasttöldu verkefn Áfram á ferðinni Ferðalög verða áfram á dagskrá hjá Arngrím kannski meira á jörðu niðri, hann ætlar að skoða og jafnvel fleiri lönd. „Mig langar til að kynnast Íslandi betur. Ég þ það nokkuð vel eftir innanlandsflugið, bæði hjá T Helgasyni í gamla daga og síðan frá innanlandsf á Arnarflugsárunum. En þá var maður alltaf að sér, það var aldrei stoppað á þessum stöðum nem ferma og afferma vélarnar. Ísland heillar æ mei mig langar að ferðast um Vestfirði og Strandir, ið og Austurlandið.“ En eitthvað til útlanda líka? „Já, mig hefur alltaf langað að kynnast Græn betur þótt ég hafi komið á alla flugvelli þar. Ég h áhuga á að ferðast um Argentínu, Alaska og Ma Þetta eru spennandi og skemmtileg lönd.“ Til hversu margra landa hefurðu komið? „Ég hef kannski ekki töluna en það eru allar h álfur nema Suðurskautslandið. Og ég hef mikið Afríku, á Biafraárunum, í pílagrímaflugi og frak núna og þau lönd hef ég talið nákvæmlega, þau e Reykjavíkurflugvöllur kemur líka til umræðu grímur vill ekki hugsa til þess að flugvöllurinn v lagður af og getur næstum talað sig heitan um þ „Það er verið að benda á að vallarsvæðið sé dýrm byggingarland. Ég vil bara benda á að Reykjaví urflugvöllur er dýrmætt svæði eins og það er. V um ákveðið samhengi með höfninni, Kvosinni, fl inum og Nauthólsvík og það á ekki að fylla þetta af húsum þó að vissulega sé hægt að byggja á hl svæðisins. Og ég vil líka benda á að höfuðborgir byggst utan um umferðar- eða samgöngukjarna sýna líka að það stafar ekki hætta af flugvellinum það væri að mínu viti misráðið að leggja hann ni er líka orðið súrt þegar ungmennin geta ekki len farið og skoðað smáflugvélarnar, þetta er allt or að og læst.“ Arngrímur er líka áhugamaður um flugsögun höfum flugminjasöfn að Hnjóti, á Akureyri og n verið að tala um að koma á safni á Suðurnesjum bara af hinu góða að reka ólík söfn á þessu sviði skulum hafa í huga að það á enginn einn íslensku söguna. Við þurfum hins vegar að gæta þess að v veita þessa sögu og muna að hún gerðist ekki í g heldur gerist hún í dag og því þarf að halda henn haga á hverjum degi.“ Arngrímur hefur líka lagt eitt og annað til flu Arngrímur Jóhannsson flugstjóri og stofnandi Flugið verður áfram aðalatriði á dagskránni Eftir farsælan áratuga feril sem flugstjóri og flugrekandi lætur A grímur Jóhannsson af störfum í stjórnklefanum. Í viðtali við Jóha es Tómasson segist hann áfram ætla að sinna ýmsum þáttum flug ins og hann ætlar líka að leggjast í ferðalög. LEIKSKÓLINN OG SAMKEPPNI SVEITARFÉLAGA Áform Reykjavíkurborgar um aðbjóða foreldrum leikskólaplássfyrir börn sín án endurgjalds hafa verið gagnrýnd. Geir H. Haarde fjármálaráðherra lýsti því yfir á Al- þingi í síðustu viku að hann væri sam- mála þeim markmiðum en yfirlýsing borgarinnar hefði komið illa í bakið á ríkisstjórninni vegna nýgerðs sam- komulags um aukna tekjustofna sveit- arfélaganna. Þá gagnrýndi ráðherra að borgin hefði með þessu sett þrýst- ing á önnur sveitarfélög. Við svipaðan tón kvað hjá sumum þeim forsvarsmönnum sveitarfélaga, sem við var rætt í Morgunblaðinu í síð- ustu viku. Athygli vekur þó að enginn var þar heldur ósammála því mark- miði að gera leikskólann gjaldfrjálsan. Það blasir við að aðeins var spurn- ing um tíma hvenær eitthvert sveitar- félag kysi að styrkja stöðu sína í sam- keppni við önnur með því að bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla. Næstum því öll börn sækja leikskóla núorðið. Leik- skólavist er talin mikilvægur hluti af þroskaferli barna og hefur verið skil- greind sem hluti af menntun þeirra. Góð þjónusta leikskóla er forsenda at- vinnuþátttöku beggja foreldra og þar með jafnréttismál. Þjónusta leikskól- anna er sömuleiðis algerlega nauðsyn- leg fyrir atvinnulífið í landinu. Við þessar aðstæður skýtur auðvit- að skökku við að leikskólastigið skuli vera eina skólastigið, þar sem almennt eru greidd há skólagjöld, sem oft nema um þriðjungi af þeirri upphæð, sem sveitarfélögin leggja sjálf með hverju barni í leikskóla. Stjórnmála- menn þora varla að nefna að greidd séu skólagjöld í háskólanámi, en þykir engu að síður mörgum sjálfsagt að há gjöld séu greidd fyrir leikskólavist. Að sjálfsögðu tekur Reykjavíkur- borg þessa ákvörðun á eigin ábyrgð. Til skemmri tíma litið getur hún ekki átt neina kröfu á ríkið að það standi straum af kostnaði við hana. Og kjós- endur í borginni hljóta að gera þá kröfu til Reykjavíkurlistans að þessi ákvörðun setji fjármál borgarinnar ekki frekar úr skorðum. Til lengri tíma litið má hins vegar telja víst að eðlilegt verði talið að fyrsta skólastig- ið verði fjármagnað af almannafé rétt eins og grunnskólinn og að tekjustofn- ar sveitarfélaga taki mið af því. Reykjavík hefur að ýmsu leyti stað- ið höllum fæti í samkeppni við önnur sveitarfélög í valdatíð Reykjavíkur- listans, m.a. skorts á lóðum fyrir íbúð- arhúsnæði. Leikskólabörnum hefur fækkað í borginni undanfarin ár sem sýnir að barnafjölskyldurnar hafa far- ið annað. Það er ekkert óeðlilegt að borgin reyni að rétta hlut sinn. Það er sjálfsagt og jákvætt að sam- keppni ríki milli sveitarfélaga í þjón- ustu við íbúana. Á sínum tíma, í valda- tíð Sjálfstæðisflokksins, var byggð upp í Reykjavík velferðar- og fé- lagsþjónusta, sem tók því fram sem gerðist í öðrum sveitarfélögum. Auð- vitað gerði borgin það í krafti styrks síns og sérstöðu, m.a. varðandi tekjur. Það sem helzt má gagnrýna Reykja- víkurlistann fyrir, er hann boðar gjaldfrjálsan leikskóla, er að hann skuli ekki fyrst hafa útrýmt biðlistum á leikskólum borgarinnar. Ef leik- skólapláss eiga að vera ókeypis er það auðvitað ósanngjarnt gagnvart for- eldrum sem ekki fá inni í leikskóla fyr- ir börn sín og þurfa að greiða fyrir önnur dagvistarúrræði. En Reykja- víkurlistanum standa ýmsar leiðir til boða í því efni, t.d. að ganga til sam- starfs við einkaaðila um að reka leik- skóla til að mæta eftirspurninni. SKÖMM HVERS? Robert James Fischer sneri til Ís-lands á skírdag eftir tæplega 33 ára fjarveru. Fischer hafði í níu mán- uði verið í haldi í Japan og átti yfir höfði sér að verða framseldur til Bandaríkjanna fyrir að hafa brotið gegn alþjóðlegu viðskiptabanni gegn gömlu Júgóslavíu þegar hann tefldi þar 1992. En Fischer hefur ekki síð- ur vakið reiði Bandaríkjamanna með því ítrekað að fordæma gyðinga og fagna því í útvarpsviðtali þegar hryðjuverkin voru framin í Banda- ríkjunum 11. september 2001. Hörðustu viðbrögðin við komu Fischers birtust í leiðara bandaríska dagblaðsins Washington Post í gær undir fyrirsögninni „Skömm Ís- lands“. Blaðið segir að dagurinn, sem Alþingi samþykkti að veita Fischer íslenskan ríkisborgararétt, hafi verið „sorgardagur fyrir Ísland, sem þar með spyrti sig í verki við mann, sem fyrir löngu hefur sagt skilið við allt velsæmi“. Þar segir: „Fischer, sem greinilega er í miklu ójafnvægi, ætti ef til vill fremur skilið meðaumkun en hatur. En hann ætti vissulega ekki að vera heiðraður af löggjafan- um – ekki nema hinir nýju landar hans vilji að skömm verði kölluð yfir þjóð þeirra í hvert skipti, sem þessi skákmaður opnar munninn.“ Bobby Fischer er ekki hingað kominn vegna skoðana sinna en þær eru hans og hann er ábyrgur orða sinna eins og hver annar Íslending- ur. Er Fischer varð heimsmeistari voru Bandaríkjamenn fúsir til að eigna sér sigur hins sérvitra skák- snillings á sovéska skákveldinu, en óbilgirni þeirra í hans garð eftir 1992 er alger. Snemma í vetur skrifaði Fischer stjórnvöldum og bað um hæli á Ís- landi. Davíð Oddsson utanríkisráð- herra sýndi bæði dirfsku og mannúð þegar hann ákvað að verða við beiðni Fischers. Hér var myndaður hópur stuðningsmanna Fischers, sem hefur barist ötullega fyrir að fá hann laus- an og á ásamt utanríkisráðherra veg og vanda af því að hann er nú kominn hingað. Í upphafi var ekki ætlunin að veita Fischer íslenskan ríkisborgara- rétt, en það var gert þegar ljóst var að Japanar myndu ekki láta hann lausan að öðrum kosti. Alþingi kall- aði ekki skömm yfir Ísland með þeirri ákvörðun, heldur forðaði Bandaríkjamönnum frá þeirri skömm að setja Fischer í fangelsi fyrir það eitt að hafa ekki hegðað sér í samræmi við bandaríska utanríkis- pólitík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.