Morgunblaðið - 29.03.2005, Page 12

Morgunblaðið - 29.03.2005, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR ● BAUGUR Group mun ekki geta innbyrt Somerfield jafnauðveldlega og búast mátti við ef marka má bresku pressuna í gær. Eins og komið hefur fram sagðist stjórn Somerfield ekki geta mælt með óformlegu tilboði Baugs við hluthafa sína og hefur það leitt til getgátna um að Baugur muni hækka tilboð sitt, sem upphaflega hljóðaði upp á 190 pens/hlut, og fá skoska athafnamanninn Tom Hunt- er í lið með sér en hann var meðal þeirra sem fjármögnuðu yfirtöku Baugs á Big Food Group. Baugur má hins vegar eiga von á harðri samkeppni samkvæmt bresku pressunni en Financial Tim- es og Times auk Daily Mail og Daily Express segja að minnsta kosti þrjá verða um hituna þegar kemur að því að bjóða í Somerfield. Þetta eru auk Baugs, írönsku bræðurnir Ro- bert og Vincent Tchenguiz og hinir ensku Livingstone-bræður, Ian og Richard. Tchenguiz-bræður hafa að sögn blaðanna fengið fjármálafyrirtækin Apax Partners og Barclays Capital í lið með sér og er talið að þau muni bjóða 205 pens/hlut fyrir Somer- field. Samkvæmt FT er tilboð Living- stone-bræðra jafnhátt tilboði Baugs en þeir bræður njóta stuðnings jap- anska bankans Nomura og sam- kvæmt Times hafa þeir einnig feng- ið fjármálafyrirtækið UBS til þess að vera ráðgjafar sínir í þessu ferli. Stríð um Somerfield FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Evrópu, með hinn franska Thierry Breton í fararbroddi, berjast nú fyrir því að búið verði til nýtt embætti vara- bankastjóra í Al- þjóðabankanum en þeir vilja gjarna fá evr- ópskt mótafl gegn hinum bandaríska Paul Wolfowitz, sem að öllu óbreyttu verður skipaður bankastjóri bank- ans á fimmtudag. Þar með yrði stjórnskipun bank- ans sú sama og ríkir í Alþjóða gjald- eyrissjóðnum, IMF, en þar er hefð fyrir því að forstjórinn sé fulltrúi Evrópuríkja en að aðstoðarforstjór- inn sé bandarískur. Fari svo að þessi tilhögun verði samþykkt mun það leiða til þess að Kínverjinn Shengman Zhang, sem nú starfar sem æðsti fram- kvæmdastjóri bankans og er annar í goggunarröðinni, verði í raun lækkaður í tign. Samkvæmt frétt Financial Times eru Bretar þó fullir efasemda um ágæti þess að Evrópumaður verði næstæðstur í Alþjóðabankanum enda sé aðalhlutverk bankans að stuðla að bættum efnahag þróun- arríkjanna og því ætti fulltrúi þess- ara ríkja að koma til greina í slíkt starf. Höfuðstöðvar Alþjóðabankans í Washington. Varabankastjóri Alþjóðabankans? Thierry Breton VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF LANDIÐ Blönduós | Það eru ekki allir au- fúsugestir í kirkjum landsins. Hinn útsjónarsami fugl starrinn hefur fundið sér leið inn í loftræstikerfi kirkjunnar á Blönduósi og gert sér þar hreiður undangengin ár. Komið upp ungum og skilið eftir mun- aðarlausar starraflær þegar hann yfirgefur hreiðrið. Forsvarsmenn kirkjunnar ætla sér að vera á undan starranum í ár og loka með vírneti fyrir loftræsti- op kirkjunnar og benda starranum á að verpa annars staðar í vor. Til þess verks var að sjálfsögðu feng- inn valinkunnur maður, Lýður Rögnvaldsson. Hann gjörþekkir kirkjuna, að minnsta kosti í bygg- ingarfræðilegu tilliti, en hann var einn helsti smiður Blönduóskirkju, sköpunarverks dr. Magga Jóns- sonar frá Kagaðarhóli. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Starrinn ekki velkom- inn í Blönduóskirkju Sauðárkrókur | Það var ljóst að Skagfirðingar ætluðu ekki að missa af fjörinu síðastliðið laugardags- kvöld, þegar saman leiddu hesta sína Hljómar úr Keflavík og Karlakórinn Heimir í Íþróttahúsinu á Sauð- árkróki, í magnaðri tónlistarveislu. Óskar Pétursson frá Álftagerði var kynnir kvöldsins og sagði hann komu Hljóma í Varmahlíð á skírdag hafa valdið þar nokkrum titringi, enda búsettar þar nokkrar konur ættaðar úr Keflavík, og sagði Óskar að til mundu af þeim svarthvítar myndir við sviðið í Stapanum á fyrstu árum Hljóma þar. Taldi Óskar að eiginmenn þessara kvenna hefðu tal- ið mjög mikilvægt að sýna yfirvegaða stillingu á þessum viðsjárverðu há- tíðisdögum meðan gestirnir stæðu við. Dagskráin í Íþróttahúsinu hófst með því að fyrst flutti Heimir nokkur lög, en síðan stigu Hljómarnir á svið og fluttu nokkur af sínum ótalmörgu lögum sem orðið hafa sígild meðal landsmanna. Að afloknu hléi komu Hljómar og Heimismenn saman á sviðið og síðari hluti tónleikanna samanstóð af þekktum lögum, meðal annars úr amerískum söngleikjum, svo og perlum Gunnars Þórðarsonar. Má þar nefna lögin Þitt fyrsta bros, Harðsnúna Hanna og Bláu augun þín, en þar sungu saman Óskar Pét- ursson og Engilbert Jensen. Í lok tónleikanna kröfðust áheyr- endur, sem voru á sjöunda hundrað, aukalaga og voru endurflutt öll lög Gunnars á söngskránni auk lagsins Gamli bærinn minn, við frábærar undirtektir ánægðra gesta. Gunnar Sandholt, sem kynnti lög þau sem karlakórinn flutti, sagði við lok söngs þeirra félaga Engilberts og Óskars, að Sigurður Hansen, einn af kórfélögum, hefði gaukað að sér vísu, sem orðið hafði til á meðan á flutn- ingi stóð. Uppheimsverur ófu klið endilangt um himinhvel. Þó slógu öllu öðru við, Engilbert og Gabríel. Páll Dagbjartsson, formaður karlakórsins, sagði að það hefði gerst á síðastliðnu ári þegar Hljómar spiluðu á dansleik í sæluviku, að í spjalli þeirra Gunnars Þórðarsonar og Stefáns Gíslasonar kórstjóra hefði komið upp sú hugmynd að halda sameiginlega tónleika og þetta væri afraksturinn af því samtali. Sagði Páll að kórinn hefði byrjað að æfa þetta prógramm þegar eftir áramót og ætlunin væri síðan að flytja það bæði í Stapanum í Keflavík og í Há- skólabíói dagana 9. og 10. apríl næst- komandi. Páll sagði að á undanförnum árum hefði kórinn reynt að brydda upp á nýjungum og fara ótroðnar slóðir og þessi samvinna Hljóma og Heimis væri einn þáttur í þeirri viðleitni. Þetta væri spennandi verkefni að takast á við, héldi kórum vel gang- andi og síungum, enda væri það nú svo að flestir söngmenn Heimis væru af sömu kynslóð og Hljómarnir, og þess vegna væri bilið ekki breitt á milli aðila. Morgunblaðið/Björn Björnsson Óskar Pétursson frá Álftagerði og Engilbert Jensen úr Hljómum tóku lagið saman. Hljómar og Heimir fylltu íþróttahúsið Grenjaðarstaður | Fjölmenni var við árlega páskavöku á Grenjaðar- stað í Aðaldal, sem hófst um mið- nætti páskadags til að fagna upp- risuhátíð frelsarans. Um 120 manns mættu og var fullt út úr dyrum, en í sókninni eru alls 168 manns. Þorgrímur Daníelsson sóknar- prestur segir páskavökunni ætlað að undirstrika þá gleði sem stafi af sigri hins góða yfir hinu illa, sigri ljóssins yfir myrkrinu. „Páskavakan er elsta hátíð kristinna manna. Hún er í raun táknræn endurupplifun á upprisu Krists,“ segir Þorgrímur. Á Grenjaðarstað er virk þátttaka safnaðarins mikil. „Í fyrsta lagi er enginn kór, heldur almennur safn- aðarsöngur,“ segir Þorgrímur. „Þá er á miðnætti búið að slökkva öll ljós nema á einu kerti í kirkjunni, en það kerti táknar Krist og er síð- an hulið til að minnast dauða Krists. Þá er búið að slökkva á öllum úti- ljósum þannig að það er algert myrkur í kirkjunni. Síðan kemur ljósið aftur og lesið upprisuguð- spjall. Síðan tek ég þetta ljós og fer með það fram að altarinu og býð kirkjugestum að sækja sér ljós, því allir kirkjugestir eru með kerti. Þá færa þeir hver öðrum ljós með orð- unum: „Kristur er upprisinn, sann- lega upprisinn.“ Það er áhrifamikið að sjá hvernig ljósið breiðist út og sigrar myrkrið. Þá er skírnarminning, þar sem ég stökkvi vatni á þá sem vilja minnast skírnar sinnar. Meirihluti kirkju- gesta tók þátt í þessu og maður sér að fólki finnst þetta gaman.“ Þorgrímur segir einnig sérstakt gleðiefni hversu margir aðkomu- menn sæki þessa gleðilegu athöfn. Fjölmenn páskavaka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.