Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
JARÐSKJÁLFTI Í ASÍU
Harður jarðskjálfti, líklega 8,7 á
Richter-kvarða, varð á botni Ind-
landshafs, í grennd við eyna Súmötru
í Indónesíu, í gær. Embættismenn
sögðu ljóst að hundruð manna hefðu
farist í Indónesíu og mikið eignatjón
orðið. Upptökin voru á svipuðum
slóðum og upptök skjálftans sem olli
flóðbylgjunni mannskæðu í desem-
ber. Þá fórust hundruð þúsunda
manna við Indlandshaf, langflestir í
Indónesíu. Mikil skelfing greip víða
um sig í gær og fólki var sagt að flýja
frá strandhéruðum ef merki sæjust
um flóðbylgju.
Fuglaflensa í N-Kóreu
Stjórnvöld í Norður-Kóreu segjast
hafa gripið til viðeigandi ráðstafana
til að stöðva framgang fuglaflensu
sem greinst hefur á nokkrum kjúk-
lingabúum í landinu. Hefur þegar
verið slátrað hundruðum þúsunda
fugla. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
WHO, segir N-Kóreumenn eiga fullt
samstarf um varnir gegn útbreiðslu
sýkinnar sem getur borist í menn.
Vilja ekki þjóðaratkvæði
Þing Ísraels felldi í gær með mikl-
um meirihluta tillögu um að áætlun
Ariels Sharons forsætisráðherra um
brottflutning hermanna og landtöku-
manna gyðinga frá Gaza yrði borin
undir þjóðaratkvæði.
Stjórnkerfisvandi LSH
Læknaráð Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss hefur endurtekið ályktað
um alvarlegan stjórnkerfisvanda
LSH en hvorki hefur verið tekið tillit
til álitsgerða né ályktana ráðsins, að
því er fram kemur í bréfi tólf yf-
irlækna við spítalann til heilbrigð-
isráðherra, frá því í febrúar. Þar er
lagt til að brugðist verði við alvar-
legum stjórnunarvanda á stofn-
uninni.
Þorskur víða magur
Þorskur sem veiðst hefur að und-
anförnu er víða magur og magi fisks-
ins galtómur. Hefur ástandið á
þorskinum að sögn fiskimanna verið
svona í allan vetur og þykir það
óvanalegt. Telja margir sjómenn að
lítil loðna á miðum hafi haft þessi
áhrif.
Fermingargjöfum stolið
Bíræfnir þjófar gerðu sér lítið fyr-
ir og stálu fermingargjöfum úr bílum
á bílastæðum við Kópavogskirkju og
Digraneskirkju á skírdag á meðan
fermingarathafnir fóru þar fram.
Voru rúður bifreiðanna brotnar og
pakkarnir teknir en í þeim voru arm-
bandsúr, veski og snyrtivörur að
sögn lögreglunnar í Kópavogi.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Brids 28
Viðskipti 12 Skák 29
Vesturland 12 Dagbók 30/32
Erlent 14/15 Staður og stund 32
Daglegt líf 16 Menning 33
Listir 17 Fólk 34/37
Umræðan 18/22 Bíó 34/37
Bréf 22 Ljósvakamiðlar 38
Forystugrein 20 Veður 39
Minningar 22/26 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ÉG sat í herberginu
mínu og var að vinna á
tölvuna þegar vatn í
flösku sem stóð á borð-
inu fór á hreyfingu,“
sagði Birna Halldórs-
dóttir, sendifulltrúi
Rauða krossins í borg-
inni Banda Ache í
Indónesíu, þegar Morg-
unblaðið ræddi við hana
um fjórum klukkustund-
um eftir jarðskjálftann
sem mældist 8,2 á Richt-
er á hafsbotni vestur af
Súmötru. Jarðskjálftinn
varð rétt fyrir miðnætti
að staðartíma og olli
mikilli skelfingu í Banda Ache.
„Titringurinn varð æ kraftmeiri
uns ég heyrði hrópað á mig að utan og
þá hljóp ég út og sá jörðina enn
skjálfa. Ég stóð þarna vaggandi og
var ekki viss hvort þetta væri skjálfti í
mér sjálfri eða jörðinni. Þetta gekk
yfir en fólk þusti út úr öllum húsum
og það varð algjör ringulreið.“
Birna býr í því hverfi Banda Ache
sem varð einna verst úti í flóðbylgj-
unni miklu og sagði fólk þar enn ugg-
andi. „Fólk var dauðhrætt um að nú
væri að koma önnur flóðbylgja. Það
tók föggur sínar og þeir sem áttu öku-
tæki keyrðu í burtu en hinir hlupu.“
Engin skipun var gefin um brott-
flutning af svæðinu að sögn Birnu en
hún sagði að lögreglan hefði komið 15
mínútum eftir skjálftann og notað
gjallarhorn til að tilkynna fólki að
ekki væri nein flóðhætta á ferðum.
Hálftíma síðar kom
lögreglan aftur með
þau skilaboð að herinn
myndi gera fólki við-
vart með loftvarnabún-
aði ef hætta væri á
ferðum. Svo fór þó
ekki.
Öngþveiti við spít-
ala Rauða krossins
Á því svæði sem
Birna starfar nú fórust
150 þúsund manns í
flóðbylgjunni miklu að
því er talið er. Eftir
skjálftann fór Birna út
á aðalgötuna skammt
frá dvalarstað sínum og sagði talsvert
öngþveiti hafa skapast við spítala
Rauða krossins. Eitthvað var um að
fólk hefði slasast í troðningi en engar
fréttir bárust um að fólk hefði slasast
vegna hruns af völdum sjálfs jarð-
skjálftans.
Birna sagðist telja að jarðskjálftinn
hefði orðið klukkan 23:45 en klukkan
eitt hefði fólk verið farið að snúa heim
til sín aftur. Talið er að skjálftinn hafi
varað í fáeinar mínútur en Birna
sagðist ekki átta sig fyllilega á tíma-
lengdinni. „Mér fannst þetta heil ei-
lífð. Á meðan skjálftinn varaði hljóp
ég út og niður stiga út úr húsinu og þá
var jörðin enn skjálfandi. Þetta er
lengsti skjálfti sem ég hef upplifað.
Mér stóð ekki á sama og var farin að
halda að mikil alvara væri á ferðinni.
Ég var þó ekki skelfingu lostin.“
Birna lýkur þriggja mánaða dvöl
sinni fyrir Rauða krossinn um næstu
helgi og er væntanleg til landsins á
laugardag. Hún sagði hjálparstarfið
hafa gengið afar vel. Í fyrstu var mat-
vælum dreift til eftirlifenda flóðbylgj-
unnar miklu og síðar var farið að
dreifa svokölluðum fjölskyldupökk-
um með mataráhöldum, svefnmott-
um, tjöldum, plastfötum og slíkum
nauðsynjum. Einnig var dreift und-
irfötum, sem voru mjög vel þegin að
sögn Birnu. „Og nú síðast vorum við
að dreifa verkfærum og ræstinga-
áhöldum til þeirra sem eru á heimleið
og þurfa að lagfæra heimili sín eftir
flóðbylgjuna.“
Birna Halldórsdóttir upplifði mikla skelfingu í Banda Ache eftir skjálftann í gær
Birna Halldórsdóttir
Fólk óttast aðra flóðbylgju
Reuters
Íbúar í Aceh-héraði á Súmötru flúðu margir heimili sín í gær og leituðu
sumir skjóls í Baiturrahman-moskunni miklu í borginni Banda Aceh.
LJÓSBRÁ Baldursdóttir varð Ís-
landsmeistari í opnum flokki í brids
ásamt eiginmanni sínum, Matthíasi
Þorvaldssyni, og meðspilurum
þeirra, feðgunum Karli Sigurhjart-
arsyni og Snorra Karlssyni, Sævari
Þorbjörnssyni og Magnúsi E. Magn-
ússyni en Íslandsmótinu lauk sl.
laugardag. Ljósbrá mun vera fyrsta
konan sem sigrar í opnum flokki í
sveitakeppni í brids og má orða það
svo að enn eitt karlavígið hafi fallið
um helgina.
„Þetta leggst mjög vel í mig, auð-
vitað finnst manni gaman að
vinna,“ segir Ljósbrá, en segir þó
sigurinn ekki þýða að neinnar bylt-
ingar sé þörf í bridsheiminum, enda
sé jafnréttið þar í góðu lagi. „Þetta
er opinn flokkur, einn flokkur og
svo eru alls konar hliðarkeppnir,
ekki bara kvennaflokkur. Kvenna-
flokkurinn er bara hluti af alls kyns
hliðarflokkum eins og yngri og
eldri spilara flokki. Opinn flokkur
er hins vegar fyrir alla. Það spilar
fullt af konum í opnum flokki og
margar konur taka þátt í öllum
þessum mótum. Þær konur sem
spila eru að spila með körlunum.
Þessi kvennamót eru bara tvö á ári,
sem eru sitt hvora helgina.“
Ljósbrá segist þó vilja sjá meira
af blönduðum pörum þar sem kon-
ur spiluðu meira fast við karla.
„Það myndi auka fjölbreytnina og
það er líka lærdómsríkt að spila við
ólíka makkera.“
Þetta er þriðji Íslandsmeist-
aratitill Ljósbrár á þessari önn en
hún vann einnig titilinn í Íslands-
móti kvenna og paratvímenningi.
Þá var hún stigahæst allra spilara í
svokölluðum Butler-útreikningi,
bæði í 40 sveita undankeppninni
sem og úrslitakeppninni um
helgina, en það mun ekki áður hafa
gerst frá því Butler-útreikning-
urinn hófst að sami spilari hafi orð-
ið stigahæstur í báðum þessum
mótum.
Á þriðja hundrað manns tekur
þátt í undankeppninni og allir bestu
spilarar landsins í úrslitunum.
Kona meistari í opnum flokki í brids
Jafnréttið í lagi
Hjónin og meistararnir Ljósbrá Baldursdóttir og Matthías Þorvaldsson
ásamt börnum sínum, Hrafnhildi Ýri, Eysteini Orra og Svövu Sól.
Dauf lokabarátta/28
EINAR Bragi, skáld
og rithöfundur, lést 26.
mars sl. á Landspítala
– háskólasjúkrahúsi, á
áttugasta og fjórða
aldursári.
Einar fæddist 7.
apríl 1921 á Eskifirði,
sonur Borghildar Ein-
arsdóttur húsmóður
og Sigurðar Jóhanns-
sonar skipstjóra. Að
loknu stúdentsprófi
frá MA árið 1944 nam
Einar bókmenntir,
listasögu og leikhús-
sögu við Háskólann í
Lundi og Stokkhólmsháskóla.
Fyrsta ljóðabók Einars, Eitt kvöld í
júní, kom út 1950, en meðal annarra
verka Einars má nefna Gestaboð
um nótt, Ljós í augum dagsins og
Eskju I–V. Ljóð Einars hafa komið
út í bókarformi á norsku, sænsku,
ensku, frönsku og samísku og birst í
fjölda erlendra safnrita.
Einar var mikilvirkur þýðandi og
eftir hann liggur fjöldi þýðinga í
bundnu og óbundnu máli, bæði leik-
rit, ljóð og skáldsögur, einkum úr
Norðurlandamálum. Meðal þeirra
höfunda sem hann hefur þýtt eru
Martin Andersen-Nexø, August
Strindberg, Henrik Ibsen og Feder-
ico García Lorca.
Einar var alla tíð
virkur í félagastarfi
og sat m.a. í stjórn
Rithöfundasambands
Íslands og í stjórn
Rithöfundasjóðs Ís-
lands, auk þess að
gegna formennsku í
báðum félögum.
Hann var fulltrúi
Bandalags íslenskra
listamanna í ráði
Norræna hússins í
Reykjavík um margra
ára skeið og fulltrúi
Íslands í nefnd á veg-
um Norrænu ráð-
herranefndarinnar sem samdi
starfsreglur Norræna þýðingasjóðs-
ins.
Á ferli sínum hlaut Einar viður-
kenningu úr Rithöfundasjóði Ís-
lands, Rithöfundasjóði Ríkisút-
varpsins og Launasjóði íslenskra
rithöfunda. Árið 1995 hlaut hann
heiðursveitingu úr Þýðingasjóði og
heiðursviðurkenningu frá Bóka-
safnssjóði árið 1998. Einar var kjör-
inn heiðursborgari á Eskifirði 1986
og kjörinn heiðursfélagi í Rithöf-
undasambandi Íslands 2001.
Einar var kvæntur Kristínu Jóns-
dóttur, en hún andaðist 1. nóvember
2004. Börn þeirra eru Borghildur og
Jón Arnarr.
Andlát
EINAR BRAGI
ÖKUMAÐUR svokallaðs átthjóls,
sem slasaðist alvarlega við Gufu-
skála á laugardag þegar hjólið valt,
var útskrifaður af gjörgæsludeild
Landspítalans á páskadag.
Sex slösuðust þegar hjólið valt,
þar af fimm ungmenni sem hlutu
minniháttar meiðsl, en ökumaðurinn
hlaut alvarleg meiðsl á mjöðm og í
baki. Var þyrla Landhelgisgæslunn-
ar fengin til að flytja hann á Land-
spítalann.
Slysið bar til með þeim hætti að
maðurinn ók átthjólinu upp í barð
með þeim afleiðingum að það valt og
lenti hann undir hjólinu. Farþegarn-
ir á hjólinu voru ungmenni á aldr-
inum 16–20 ára sem voru á slysa-
varnanámskeiði hjá Landsbjörg.
Ökumaðurinn var sjálfur eigandi
hjólsins, sem er nýtt farartæki hér á
landi. Hafði hann m.a. ætlað sér að
sýna liðsmönnum Landsbjargar
hjólið þegar slysið varð.
Slasaðist alvarlega á átthjóli