Morgunblaðið - 29.03.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.03.2005, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Umræðan  Daglegt málþing þjóðarinnar á morgun MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Páli Torfa Önundarsyni, yfirlækni blóð- meinafræðideildar á Landspítala – háskólasjúkahúsi og forstöðumanni kennslu í blóðsjúkdómum við læknadeild Háskóla Íslands: „Á LSH hefur á undanförnum árum verið skorin niður sjúkra- þjónusta og þanið út ófaglegt, mið- stýrt og kostnaðarsamt stjórnkerfi, sk. sviðakerfi. Lögmæti núverandi sviðakerfis orkar tvímælis skv. álitsgerð lögmannanna Hreins Loftssonar og Þórðar Bogasonar. Afleiðingin er stjórnunarvandi, sem lýsir sér þannig, að réttir stjórnendur læknisfræðinnar eru sviptir stjórnunarábyrgð sinni í raun en án uppsagnar. Hér er átt við yfirlækna sérdeilda eins og t.d. yfirlækna hjartaskurðlækninga, nýrnalækninga, taugalækninga, krabbameinslækninga og rann- sóknadeilda en sérdeildirnar kosta hundruð milljóna hver um sig ár- lega. Sem dæmi þessu til stuðnings má nefna, að á síðustu árum hafa yfirlæknar sannanlega ekki verið tilkallaðir þegar gerðir eru samn- ingar fyrir hönd sérgreina þeirra, ekki tilkallaðir í þróunarvinnu sjúkrahússins, erindum þeirra vegna húsnæðismála hefur ekki verið svarað og starfsmannahaldið hefur neitað að eiga við þá sam- skipti. Tólf yfirlæknar sérdeilda á LSH, þ. á m. undirritaður, rituðu heil- brigðisráðherra kurteislegt bréf í febrúar sl. vegna stjórnunarvand- ans. Efni bréfsins var birt af fréttastofu RÚV um páskahelgina og viðtal var haft við undirritaðan í hádegisfréttum á páskadag. Í frétt- um RÚV síðar sama dag fóru hins vegar settur forstjóri LSH (Jó- hannes M. Gunnarsson) og ráðu- neytisstjóri heilbrigðisráðuneytis- ins (Davíð Á. Gunnarsson) heldur frjálslega með sannleikann í við- brögðum sínum við hádegisfrétt- inni. Því er nauðsynlegt að koma staðreyndum málsins á framfæri enda varðar landsmenn um rekstur stærsta sjúkrahúss landsins: 1. LSH byggir þjónustu sína á um 40 sérgreinum læknisfræðinnar. Yfir hverja þeirra hefur verið ráð- inn forstöðumaður með faglegum og löglegum hætti, þ.e. yfirlæknir sérgreinar í skilningi laga um heil- brigðisþjónustu. Réttir yfirmenn (þ.e. yfirlæknar sérgreina sem eru u.þ.b. 40, en ekki 70 eins og forstjóri virðist telja) bera skv. lögum um heil- brigðisþjónustu faglega og fjár- hagslega ábyrgð á sinni deild. Lög heimila ekki aðra faglega yfirmenn en þá sem hafa verið til þess metnir hæfastir með löglegri ráðningu í starf yf- irlæknis sérdeildar. Órökstudd fullyrðing Jóhannesar M. Gunnars- sonar, setts forstjóra LSH þess efnis, að sú lagagrein sem vísað sé til „hafi ekki það vægi sem lækn- arnir tólf telji“ er út í hött og er ekki sæmandi forstjóra stærstu lækningastofnunar Íslands. Þessi lagagrein er grundvöllur uppbygg- ingar sérgreinaskipts sjúkrahúss. 2. Löggjafinn ætlast til þess að uppbygging sjúkrahússins sé fag- leg. Tilgangurinn er sá að tryggja bestu hagsmuni sjúklinga og sem besta meðferð almannafjár. Sviðs- stjórar eru ekki yfirlæknar í skiln- ingi laga. Þeir eru valdir af for- stjóra án auglýsingar og hæfnis- mats. Staðreyndin er sú, að sviðs- stjórar hafa enga réttarstöðu sem fagstjórnendur. Núverandi sviða- kerfi með þeim fjárhagslega og faglega kostnaði sem af því hlýst er ekki heimilað með lagasetningu af Alþingi. Því mega sviðsstjórar ekki bera ábyrgð sem öðrum er sett með lögum skv. álitsgerð lög- mannanna. 3. Sviðsstjórum hefur hins vegar síðan haustið 2000 verið sett starfslýsing sem skarast við starfs- lýsingu löglega ráðinna yfirlækna sérdeilda. Í starfslýsingunni felst ábyrgðarsvipting réttra yfirlækna og sú hefur orðið raunin. Slíkt er ófaglegt (jafnvel lífshættulegt á sjúkrahúsi) og það er ólöglegt að áliti lögmannanna Þórðar Bogason- ar hrl. og Hreins Loftssonar hrl. 4. Lögfræðiálitið var afhent for- stjóra LSH (Magnúsi Péturssyni) á vottuðum fundi snemma á árinu 2001 í þeirri von að hann myndi endurskoða skipulagið með hlið- sjón af álitinu og áliti læknaráðs LSH. Afhendingin er vottuð af Þórði Bogasyni hrl. og Sverri Bergmann þáverandi formanni læknaráðs. Einn sviðsstjóri hefur staðfest, að hann hafi séð álitsgerð- ina á borði forstjóra. Álitinu var aldrei svarað og því var sannanlega stungið undir stól. Núverandi sett- ur forstjóri fullyrti meira að segja í bréfi til heilbrigðisráðherra haustið 2004 (birt í Morgunblaðinu í des- ember 2004), að álitið hafi aldrei verið sent til LSH þótt hann hafi sjálfur verið viðstaddur afhend- inguna ásamt lögfræðingi LSH. Þannig eru það bein ósannindi að stjórnendum LSH hafi verið ókunnugt um mögulegt ólögmæti skipurits LSH skv. áðurnefndu lögfræðiáliti. Með öðrum orðum er hugsanlegt að núverandi stjórn- kerfi LSH gangi vísvitandi á svig við faglega stjórnun og lög um heilbrigðisþjónustu auk þess sem stjórnsýslulög eru brotin. 5. Í ljósi hinna ósönnu ummæla JMG í bréfi til ráðherra sendi und- irritaður ráðherranum erindi 14. desember 2004 ásamt með lög- fræðiálitinu. Ákveðin spurning um lagalega stöðu ábyrgra yfirmanna læknisfræðinnar var sett fram í bréfinu. Bréfinu hefur ekki verið svarað enn. Ragnheiður Haralds- dóttir skrifstofustjóri tók við bréf- inu og tjáði undirrituðum, að ráðu- neytið yrði að líta á bréf mitt sem stjórnsýslukæru vegna alvarleika málsins og eðlis spurningarinnar. Heilbrigðisráðherra sagði á afar kurteislegum, málefnalegum og friðsamlegum fundi í febrúar, að stjórnsýslukærunni yrði svarað sem og bréfi yfirlæknanna tólf. Á fundinum voru ásamt mér, Elías Ólafsson yfirlæknir og pró- Um stjórnkerfisvanda á LSH vegna fréttar í RÚV á páskadag Yfirlýsing frá Páli Torfa Önundarsyni Páll Torfi Önundarson JÓHANNES M. Gunnarsson, starf- andi forstjóri Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, segist spurður um gagn- rýni tólf yfirlækna á meintan stjórnunarvanda stofnunarinnar, að spítalanum sé þvert á móti prýðilega stjórnað. Náðst hafi verulegur rekstr- arlegur og faglegur árangur, afköst og gæði hafi aukist og sífellt sé leitað leiða til að nýta fé spítalans á sem bestan mögulegan hátt. Skipurit staðfest af heilbrigðisráðuneyti Jóhannes vill árétta að skipurit og tilvist sviðsstjóra hefur verið staðfest af heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneyti, með samþykktu skipuriti í kjölfar sameiningar spítal- anna fyrir nokkrum árum. Þá hafi spítalinn álit eigin lögfræðinga þar sem aldrei hafi verið dregið í efa skipurit né val sviðsstjóra. „Það má segja að þarna séu tvö lögfræðiálit sem stangast á. Ég hef bent á að til þess að fá úr réttmæti þeirra skorið þá séu það dómstól- arnir sem hafa þar hlutverk. Ég tel að það hefði raunar mátt nýta þessi fimm ár frá því lögfræðiálitið varð til til þess að fá fram einhvers konar úr- skurð,“ segir Jóhannes. Ráðning og verksvið sviðsstjóra spítalans sé hins vegar að sínu viti hvorki ólögmætt né ófaglegt á nokkurn hátt. Jóhannes bendir á að í samningi spítalans og Háskóla Íslands séu til- greind skilyrði sem sviðsstjórar þurfi að axla, þ. á m. að þeir skuli hafa aka- demískt hæfi, þ.e. vera gjaldgengir kennarar við læknadeild, og að því hafi verið fylgt. Hins vegar séu aðrir þættir sem vega meira við val sviðs- stjóra heldur en við val yfirlækna. „Það byggist á því að þetta er rekstrarlegt starf þar sem menn verða bæði að hafa kunnáttu og vilja til að sinna slíkum hlutum,“ segir Jó- hannes. Þessir þættir hafi minna vægi við ráðningu yfirlækna. Læknarnir tólf sem gagnrýna stofnunina í bréfi til ráðherra eru: Páll Torfi Önundarson, Sveinn Guð- mundsson, Ólafur Ó. Guðmundsson, Sigurður Björnsson, Þórarinn Sveinsson, Jóhannes Björnsson, Hannes Petersen, Helgi Valdimars- son, Karl G. Kristinsson, Gunnlaugur Geirsson, Elías Ólafsson og Arthur Löve. Morgunblaðið/Júlíus Jóhannes M. Gunnarsson, starfandi forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss Ráðning og verksvið sviðsstjóra hvorki ólögmætt né ófaglegt Jóhannes M. Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.