Morgunblaðið - 29.03.2005, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 29.03.2005, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 27 Atvinnuauglýsingar Útkeyrsla/lagerstörf Ísdekk ehf., heildverslun, Bíldshöfða 9, óskar eftir að ráða starfsmann tímabundið til 1. júní. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt. Starf- ið felst í vinnu með hjólbarða og hjólbarðavör- ur á vörulagerum ásamt vöruútkeyrslu. Við- komandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar gefur Guðbergur í síma 691 6038 milli kl. 9 og 10 og milli kl. 17 og 18. Auglýsingastjóri Stórt fjölmiðlafyrirtæki leitar að hæfum ein- staklingi til þess að selja auglýsingar í eitt þekktasta tímarit á Íslandi. Starfið felst í öflun viðskiptasambanda, markmiðasetningu og sölu. Viðkomandi þarf að geta byrjað strax. Hæfniskröfur: Framúrskarandi samskiptahæfileikar. Reynsla af sölumennsku. Jákvæðni og metnaður. Góð tölvukunnátta. Umsókn ásamt ferilskrá sendist til auglýsinga- deildar Morgunblaðsins, Kringlunni 1 eða á netfangið box@mbl.is undir fyrirsögninni „Auglýsingastjóri - 16856“ fyrir 1. apríl næst- komandi. Matsveinn/netamaður Matsvein og netamann eða mann vanan neta- viðgerðum vantar á 100 tn. snurvoðabát sem rær frá Suðurnesjum. Upplýsingar í síma 892 2590. Ritari/aðstoðamaður lögmanns Lögmannsstofa óskar eftir að ráða ritara/ aðstoðarmann lögmanns sem fyrst. Starfið felst meðal annars í vélritun af diktafóni og annari skrifstofuvinnu. Gerð er krafa um mjög góða kunnáttu í vélritun og íslensku, tölvukunnáttu, sjálfstæði í starfi, stundvísi og reglusemi. Þeim sem áhuga hafa á starfinu er bent á að senda starfsferilsskrá og meðmæli á auglýsingadeild Mbl. eða á box@mbl.is fyrir 2. apríl merkt: „R—16859“. Auglýst er eftir drífandi og atorkumiklum einstaklingi til að vinna að undirbúningi og stofnun Evrópufræðaseturs, sem starfrækt verður í samstarfi Alþýðusambands Íslands, BSRB, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins og Viðskiptaháskólans á Bifröst. Gert er ráð fyrir að setrið hefji starfsemi sína 1. ágúst n.k. og verði staðsett að Bifröst í Borgarfirði. Viðkomandi skal fullnægja skilyrðum um menntun háskólakennara skv. 7. gr. háskólalaga nr. 136/1997 og hafa reynslu af háskólakennslu. Hann þarf einnig að hafa menntun og/ eða reynslu á fræðasviði setursins. Hluti af starfsskyldum forstöðumanns verður kennsla við Viðskiptaháskólann á Bifröst og ráðgjöf og aðstoð við alþjóðlegar og evrópskar styrkumsóknir. Einnig er gert ráð fyrir að hluti starfs forstöðumanns fari í að afla setrinu sjálfsaflafjár til að standa undir rekstri þess. Frekari upplýsingar veitir Magnús Árni Magnússon, aðstoðarrektor og deildarforseti í síma 433 3061. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið magnus@bifrost.is fyrir 4. apríl n.k. www.bifrost.is Evrópufræðaseturs Forstöðumaður Tölvumaður Laust er til umsóknar starf innan upplýsinga- og útgáfusviðs Þjóðskjalasafns Íslands Starfið felst m.a. í tölvuumsjón, þróun og við- haldi ytri og innri vefja, gagnagrunna og tækni- legri vinnu við langtímavörslu rafrænna skjala- safna. Gerð er krafa um góða menntun og alhliða þekkingu á sviði tölvumála. Góð þekking á Windows og LINUX-stýrikerfum, PostgreSQL- gagnagrunnum og PHP vefforritunarmálinu er nauðsynleg. Góð kunnátta í Norðurlanda- máli og ensku er áskilin. Leitað er að fjölhæfum og áhugasömum starfs- manni með lipra framkomu. Laun skv. kjarasamningum ríkisins. Umsóknarfrestur er til 12. apríl nk. Í umsókn skal greina frá menntun og starfsreynslu. Vott- orð um menntun fylgi. Æskilegt er að viðkom- andi geti hafið störf fljótlega eftir ráðningu. Umsóknir sendist til Þjóðskjalasafns Íslands, Laugavegi 162, 105 Reykjavík, eða á netfangið atvinna@skjalasafn.is. Nánari upplýsingar veitir fjármálastjóri og sviðsstjóri upplýsinga- og útgáfusviðs í síma 590 3300. Þjóðskjalavörður. Raðauglýsingar 569 1111 Tilboð/Útboð ÚTBOÐ Verkfræðistofan Línuhönnun hf., f.h. Húsfélagsins Hvammabraut 2-16, óskar eftir tilboðum í viðhald og endurbætur utanhúss á Hvammabraut 2-16 í Reykja- vík. Verkið felst í hefðbundnum steypu- og gluggaviðgerðum, staðbundnum viðgerðum á þaki og þéttidúk á svölum, sem og endurmálun utanhúss. Verkinu er skipt upp í tvo áfanga, sem verða framkvæmdir sumarið 2005 og sumarið 2006. Áfangi nr. 1: Viðgerðir á bakhlið og gafli. Áfangi nr. 2: Viðgerðir á framhlið og gafli. Helstumagntölur eru: Múrviðgerðir á flötum 65 m² Viðgerðir á ryðpunktum 250 stk. Endurnýjun á þéttilistum faga 130 m Þétting milli karms og steypu 120 m Endurnýjun dúks á svölum 350 m² Endurnýjun þéttingar undir áfellum á þaki 350 m Endurmálun glugga 4500 m Endurmálun útveggja 3370 m² Endurmálun þaks 1740 m² Endurmálun flata 3350 m² Útboðsgögn verða afhent gegn 10.000,- kr. skilatryggingu, frá og með fimmtudeginum 31. mars nk., á verkfræðistofunni Línuhönnun hf. Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 14. apríl 2005, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Tilkynningar Trésmíðafélag Reykjavíkur Aðalfundur Félagsmenn Trésmíðafélags Reykjavíkur! Munið aðalfundinn á morgun, miðvikudaginn 30. mars. Fundurinn verður haldinn í Akogessalnum í Sóltúni 3 kl. 19.00. Fundarefni: 1. Skýrsla stjórnar og starfsáætlun. 2. Skýrslur fastanefnda. 3. Reikningar félagsins og skýrsla endurskoð- enda. 4. Ákvörðun um félagsgjald og mælingagjald. 5. Lýst kjöri stjórnar. 6. Kosning fastanefnda. 7. Kynnt niðurstaða úr launakönnun TR frá mars 2005. 8. Önnur mál. Við upphaf fundar verður boðið uppá léttan kvöldverð. Stjórn TR. Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/ 2000 um mat á umhverfisáhrifum. Breytingar á efnislosunarsvæðum á Ólafs- firði vegna jarðganga milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Árkvíslar og tímabundin rennslisstýring í Eldhraun, Skaftárhreppi. Allt að 150.000 rúmmetra efnistaka á Blikastaðanesi, Mosfellsbæ Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær er einnig að finna á heimasíðu Skipulags- stofnunar: www.skipulag.is . Ákvarðanir Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 26. apríl 2005. Skipulagsstofnun. Félagslíf  HLÍN 6005032919 IV/V EDDA 6005032919 I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.